Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 21 ERLENT Umhverfísslys sagt yfirvofandi í Alaska NOKKRIR yfirmenn BP Amoco ol- íufyrirtækisins hafa greint frá því að umhverfisslys, mun umfangs- meira en Exxon Valdez-slysið fyrir tíu árum síðan, sé yfirvofandi í Alaska. Sex starfsmenn BP Amoco - sem haldið hafa nafni sínu leyndu - skrifuðu fyrir skömmu Sir John Browne, aðalframkvæmdastjóra fyrirtækisins, bréf þar sem þeir vara við að „óábyrgt starf ‘ við olíu- leiðslu skapi mikia hættu fyrir fólk og umhverfi. Talsmenn Alyeska Pipeline Service Company, fyrirtækisins sem sér um viðhald á olíuleiðslunni, segja ásakanir starfsmanna BP Amoco tilhæfulausar og telja að ol- íuleiðslan sé örugg. „Við erum full- vissir um að leiðslan er örugg og vitum ekki um nein atvik sem bent gætu til annai’s," sagði Bob Malone, forstjóri fyrirtækisins. Viðvaranir starfsmanna BP Amoco beinast að olíuleiðslu sem liggur um 1.280 km leið í Alaska, að því er fram kom í frétt breska dag- blaðsins Guardian í liðinni viku. Segja starfsmennimir að leiðslan, sem er 22 ára gömul og flytur gríð- arlegt magn olíu á hveijum degi, gæti brostið fyrirvaralaust eða að sprenging geti orðið í olíutönkum á aðalathafnasvæði Valdez-olíufyrir- tækisins. „Þetta er ekki spuming um hvort eitthvað gerist heldur hvenær það gerist,“ sagði einn starfsmann- anna í viðtali við Guardian. Bæði olíuleiðslan og olíutankamir era í umsjá Aleyska sem sér um rekstur og viðhald fyrir BP Amoco, sem á 50% hlut í fyrirtækinu. Reglugerðir sniðgengpiar í bréfi starfsmannanna er greint frá því að líkur á slysi hafi aukist mjög vegna þess að öryggiseftirliti hafi verið afar ábótavant og að lög og reglugerðir hafi ítrekað verið sniðgengin. Þá er greint frá því að aðrir starfsmenn er hafi viljað ljóstra upp um ástandið hafi sætt hótunum. Starfsmennimir segja að hætta sé á mun verra slysi en Exxon Vald- ez-slysinu, sem olli afar umfangs- miklum náttúraspjöllum sem enn sér ekki fyrir endann á. Andvirði hundraða milljarða króna hefur verið varið í hreinsunaraðgerðir. Asakanimar sem koma fram í Guardian eru talsvert áfall fyrir Sir John Browne, aðalframkvæmda- stjóra BP Amoco, sem á undanföm- um árum hefur reynt að skapa „græna“ ímynd fyrir íyrirtækið. Rekur blaðið að árið 1993 hafi bandarísk þingnefnd rannsakað ásakanir nokkurra starfsmanna um olíuleiðsluna. Sex árum síðai- hafi hins vegar ekkert verið gert til að draga úr „yfirvofandi hættu“. Myndun heima- stjórnar á N-írlandi Lætur Trimble slag standa? London. Reuters. BRESKA stjómin lagði í gær fram lagafrumvarp fyrir þingið í London sem vonast var til að gerði leiðtogum stríðandi fylkinga á Norður-írlandi kleift að ná sátt um að tilnefna fulltrúa sína í heimastjóm á morgun, fimmtudag, eins og framkvæmdaáætlun breskra og írskra stjómvalda ger- ir ráð fyrir. Óvíst er hins vegar enn hvort sambandssinnar telja bresku stjórnina hafa fullnægt kröfum, sem þeir hafa sett, eigi þeir að fást til að setjast í stjórn með Sinn Féin, stjómmálaarmi Irska lýðveldishersins (IRA). David Trimble, leiðtogi stærsta flokks sambandssinna, UUP, verð- ur í dag að taka ákvörðun um hvort hann hyggst leggja blessun sína yfir hugmyndir Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, og Berties Aherns, forsætisráðherra Irlands, varðandi myndun heima- stjórnarinnar og afvopnun öfga- hópa. Hart var lagt að Trimble í gær að láta slag standa, og láta á það reyna hvort IRA hyggist í raun afvopnast, en hann gerði þó öllum ljóst við umræður í breska þinginu að hann teldi löggjöfina, sem lögð var fram í gær, ekki ganga nógu langt. Ihaldsmenn snerust á sveif með sambandssinnum og lögðu fram breytingartillögur sem gerðu ráð fyrir að í frumvarpinu yrðu skýr ákvæði um útilokun Sinn Féin frá stjórnarsetu, afvopnist IRA ekki, sett yrði fram nákvæmlega tíma- sett áætlun um hvernig staðið verði að afvopnuninni og að hætt yrði að sleppa föngum er tengjast öfgahópunum stæðu þeir ekki við skuldbindingar varðandi afvopnun. Forystumenn bæði Sinn Féin og SDLP, flokks hófsamra kaþólikka, sökuðu hins vegar sambandssinna um að reyna að „endurskrifa" frið- arsamkomulagið frá því í fyrra með skilmálum um útilokun Sinn Féin og lýstu þeir miklum von- brigðum með afstöðu sambands- sinna. Frjáls ferða sinna París. The Daily Telegraph. LANDLAUS maður sem dvalist hefur ellefu ár á flugvelli í París er loksins frjáls ferða sinna. Komið liafa í leitimar löngu glöt- uð skjöl sem sanna hver hann er. Alfred Merhan er fimm- tíu og fjögurra ára gamall flóttamaður sem fæddist í Iran. Hann hefur hafst við í einum af brottfararsölum Charles de Gaulle-flugvallar í París allt frá því honum var neit- að um landvistarleyfi í Bretlandi árið 1988 þar sem hann hafði eng- in gögn sem sanna hver hann var. Merhan, sem heitir réttu naftii Merhan Karimi Nasseri, staðhæfir að hann sé óskilgetinn sonur læknis frá Iran og breskrar hjúkr- unarkonu. Hann lítur á sjálfan sig sem breskan ríkisborgara og vill láta kalla sig Alfred, herra Alfred eða Sir Alfred. Allar eignir sínar geymir hann í pokum og pappa- kössum og hann drepur tímann með því að hlusta á útvarpið, lesa dagblöðin og skrifa í dagbók sína, auk þess sem hann þreytist aldrei á því að segja sögu sína hveijum þeim sem á hann vill hlusta. Um margra ára skeið þvældist Alfred um Evrópu en var alls staðar vísað frá og neitað um póli- tískt hæli. Allt þar til belgísk stjórnvöld ákváðu árið 1981 að verða við ósk hans. Svo virðist hins vegar sem hann hafi end- ursent skilríki þar að lút- andi fyrir mistök og í kjölfarið eyddi hann drjúgum tíma í frönskum fangelsum. Á endanum settist Alfred að á Charles de Gaulle-flug- velli eftir misheppnaða tilraun til að komast inn í Bretland. Á mánudag greindi lögmaður Alfreds hins vegar frá því að komið hefðu í leitimar skilríkin sem belgísk yfírvöld veittu honum árið 1981. Eftir tíu ára langa bar- áttu við réttarkerfið getur Alfred nú sótt um flóttamannavegabréf, sem veitir honum rétt til ferða- laga og til að dvelja í Frakklandi. Lögmaður hans sagði að Merh- an myndi e.t.v. neita að yfirgefa flugvöllinn. Starfsstúlka á flug- vellinum tók í sama streng: „Hann mun aldrei fara héðan, hér hefur hann það alltof gott. Flugfreyjur gefa honum matarmiðana sína, hreingerningafólk hleypir honum í sturtu á hverjum morgni, ferða- menn kaupa handa honum mat og lögreglan fylgist grannt með að ekkert ami að honum. Hvers gæti maður, sem stendur aleinn uppi, frekar óskað sér?“ Alfred Merhan Ljósahlífar á flestar tegundir bifreiða CGR naust Sími 535 9000 • Fax 535 9040 • www.biianaust.is Frelsi andi & sonum Maxon MX-3204, Frelsi og sérútgefinn diskur með Landi og sonum TILBOOIÐ GILDIR AÐEINS MEÐAN BIRGÐIR ENDAST Léttur og þægilegur sími. Ending rafhlöðu allt að 2 klst. i notkun og 50 klst. í biðstöðu. Númerabirting ásamt nöfnum ef númer er í minni. Val um 9 hringitóna. Með simanum fylgir Frelsi frá Simanum GSM, GSM númer, talhólfsnúmer, 500 kr. inneign auk 1.000 kz. aukainneignar við skráningu. Diskurinn með L&S er 5 laga og inniheldur m.a. hið geysivinsæla lag Lending 407, sem ekki hefur áður verið gefið út á diski. Einnig endur- útgefið lag, Frelsi, eftir Labba. SÍMINN WWW.SIMI.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.