Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens 'VyJ HVAÖ ERTU Aö LESA? BOKUMLJONA- FJÖLSKYLDU FYRIR NORÐAN 7--------- HVAt> HEITIR HUN? 1 STOLT ÞINGEYINGA"! Grettir ói/ona.þ'ercö> sfoja. -þessnrsCní fd Aefurhoift Quþastub áú 7 Fleiri spil! Við þurfum fleiri spil! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Súni 569 1100 • Símbréf 569 1329 Fúsk eða fagmennska Frá stjóm Félags húsgagna- og innanhússarkitekta: SJALDAN hefur innrétting opin- berrar skrifstofu hlotið aðra eins umfjöllun í fjölmiðlum og á síðum Morgunblaðsins föstudaginn 25. júní síðastliðinn. Skyggnst var á bak við tjöldin á skrifstofu ráðstefn- unnar Konur og lýðræði við árþús- undamót. Stór orð voru höfð um umhverfi skrifstofunnar sem var mótað af ráðgjafa sem, eins og segir í greininni, er með ólæknandi hönn- unaráráttu. Faglærðir hönnuðir eru furðu lostnir og finnst að horft hafi verið framhjá fagkunnáttu þeirra. Menntun hönnuða er höfð að engu og leitað til einstaklings sem að eig- in sögn er sjálfmenntaður á hönn- unarsviðinu. Félagsmenn í Félagi húsgagna- og innanhússarkitekta, FHI, eru sérmenntaðir á sviði innanhúss- hönnunar. Þeir hafa allir sótt menntun sína til útlanda og eiga að baki þriggja til fimm ára nám við háskóla eða listaskóla. Fagmenntaður innanhússai-ki- tekt/innanhússhönnuður er einstak- lingur með sérhæfingu sem byggist á menntun, reynslu og hæfni. Hann skilgreinir og leysir á skap- andi hátt verkefni sem tengjast nýt- ingu og gæðum innri rýma - gerir uppdrætti, verklýsingar og önnur gögn sem varða innanhúss- hönnun - veitir þjónustu og ráðgjöf sem tengist innanhússskipulagi - þarf að kunna skil á áætlanagerð, þarfagreiningu, rýmishönnun og fagurfræði - þarf að geta gert byggingafræði- lega úttekt á staðnum þar sem stuðst er við þekkingu á skipulagi og smíði innviða, innréttinga og deila - ber að starfa innan ramma bygg- ingarlaga - hefur kynnt sér fram- boð á byggingar- og húsgagna- markaði - leitast við að auðga umhverfið með tilliti til heilsu, öryggis og vel- ferðar almennings. Félag húsgagna- og innanhúss- arkitekta var stofnað árið 1955. Fé- lagsmenn hafa sótt þekkingu sína til fjölmargra landa; svo sem Banda- ríkjanna, Danmerkur, Englands, Italíu, Kanada, Noregs, Spánar, Svíþjóðar og Þýskalands. Menntun þeirra er víðtæk og fjölbreytileg. Lögverndað starfsheiti öðluðust fé- lagsmenn árið 1986. Undirbúningsnefnd ráðstefnunn- ar Konur og lýðræði við árþúsunda- mót hefur til umráða húsnæði sem forsætisráðuneytið er með á leigu. Þvert á það sem eðlilegt mætti telj- ast þegar um opinbert verkefni er að ræða, var ekki leitað tO fag- menntaðra með hönnun skrifstof- unnar. í stað þess var, að sögn for- manns undirbúningsnefndarinnar, Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur, samið sérstaklega við ráðgjafarfyr- irtækið Hollráð um að það veitti helmings afslátt gegn því að fá að nota tækifærið og kynna almenn- ingi vinnu sína. Slíkir viðskipta- hættir hljóta að þykja óeðlilegir. Einkenni flestrar hönnunarvinnu er að afraksturinn sé sýnilegur og það réttlætir ekki að höfundur fái ekki borguð eðlileg laun fyrir vinnu sína. Félagsmenn FHI eru 84 talsins, þar af 53 konur. Því má vera ljóst að menntun kvenna og staða þeirra í lýðræðislegu samfélagi er innan- hússarkitektum hugleikin. Fag- kunnátta sem fjöldi kvenna hefur tileinkað sér var sniðgengin þegar tekin var ákvörðun um að skipta við ráðgjafarfyrirtækið Hollráð. Það er kaldhæðnislegt að aðstandendur ráðstefnu sem fjallar um stöðu kvenna í lýðræðissamfélagi horfi framhjá menntun sem margar kon- ur hafa valið. Vonandi ráða ólík sjónarmið við val annarra sérfræð- inga sem að ráðstefnunni koma. Það er ósk stjómar Félags hús- gagna- og innanhússarkitekta að þessi skrif megi vekja aðstandendur ráðstefnunnar til enn frekari um- hugsunar um gildi lýðræðis og menntunar. Ef þekkingarleysi hef- ur ráðið ferðinni við val á ráðgjafa er sannarlega tími til kominn að op- inberir aðilar kynnist stétt innan- hússarkitekta og læri að nýta sér fagmenntun hennar. Stjóm Félags húsgagna- og innanhússarkitekta, FHI. Allt efni sem birtist í Morgunbiaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Utsalan hefst á morgun, fimnratudag Stór sending beint á útsöluna: I áður kr.-3=^00 núkr. 1.990 áður kr. -3.BOO nú kr. 2.500 Kvartbuxur í fimm litum Blómakjólar Kringlunni 8-12 Sfmi 581 1717
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.