Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 35^
MINNINGAR
+ Kristíján Frið-
geir Kristjáns-
son fæddist í Bol-
ungarvík hinn 9.
júlí 1918. Hann lést
á heimili sínu í
Garðabæ 3. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Kristján
Hálfdánarson og
Ingibjörg Guðjóns-
dóttir og var Krist-
ján elstur í allstór-
um systkinahópi.
Systkini hans voru
Daði Steinn, f. 1920,
látinn, fyrri maki
Gerður Sturlaugsdóttir og síð-
ari Kolbrún Matthíasdóttir. Ein-
ar Hálfdán, f. 1921, maki Fjóla
Pálsdóttir, bæði Iátin. Jónatan,
f. 1922, maki Hulda Einarsdótt-
ir. Guðjón Birkir, f. 1925, maki
Kristín Vilhjálmsdóttir, fædd
Christa Seebiirger. Sigurlína, f.
1927, maki Ásgeir Valhjálms-
son. Jóhanna, f. 1929, maki Ell-
ert Kristjánsson, en hann er
látinn.
Hinn 16. desember 1939
kvæntist Kristján Friðgeir
Jónínu Elíasdóttur, f. 24. októ-
ber 1918. Foreldrar hennar
voru Elías Magnússon og
Jónína Sveinbjörnsdóttir. Krist-
ján Friðgeir og Jónína bjuggu
flest sín búskaparár í Bolung-
arvík, en fluttu til Hafnarljarð-
ar 1977 og þaðan í Garðabæ.
Þau eignuðust sex börn. Þau
eru: 1) Krislján Benóný, f. 20.9.
1939, kennari, maki þuríður
Guðmundsdóttir, f. 1945, hús-
móðir. Börn þeirra eru Guð-
mundur þórir, f. 1963, Jónína
þórunn, f. 1967 og Kristján
Friðgeir, f. 1970. 2) Elín Ingi-
björg, f. 7.11. 1941, rekur
brauðstofu í Garðabæ, maki
Leifur Albert Símonarson, f.
1941, jarðfræðingur. Börn
þeirra eru Ólöf Erna, f. 1969 og
Það eru liðnir rúmlega þrír ára-
tugir síðan sá er þetta ritar, einn
ættlaus maður af Ströndum, kvænt-
ist inn í ætt biskupa og sálma-
skálda. Ég ætla ekki að tíunda ná-
kvæmlega hvaða ráðum var beitt til
að svo vel mætti takast, en grunur
minn er sá að einhverjar aðrar
hvatir hafi þar legið að baki en ein-
tómur áhugi á að tengjast höfðingj-
um. Hvaða öfl voru þama að verki
veit ég raunar ekki með vissu, en
hitt veit ég að þau færðu mér ekki
aðeins tengdaforeldra heldur og
foreldra í þrengstu merkingu orðs-
ins.
Bergþór, f. 1974. 3)
þórir Sturla, f. 1.10.
1945, trésmiður,
maki Guðmunda
Inga Veturliðadótt-
ir, f. 1949, húsmóð-
ir. Börn þeirra eru
Hulda Guðborg, f.
1969, Jón Friðgeir,
f. 1972, Gunnar, f.
1976 og Ingi Sturla,
f. 1982. 4) Dag-
bjartur Hlíðar, f.
24.8. 1952, stýri-
maður, maki Sig-
ríður Björg Gunn-
arsdóttir, f. 1959,
bankastarfsmaður. Börn þeirra
eru Gunnar, f. 1988 og Stefán,
f. 1993. Dætur Sigríðar úr fyrri
sambúð eru Gunnhildur Lilja, f.
1980 og Kristín Linda, f. 1982.
5) Sonur fæddur andvana 1957.
6) Jón Pétur, f. 27.6. 1959, tré-
smiður, maki Helena Snæfríður
Rúriksdóttir, f. 1960, tón-
menntakennari. Börn þeirra
eru Rúrik Fannar, f. 1985 og
Guðrún, f. 1990. Barnabarna-
börn Kristjáns Friðgeirs eru
tíu.
Krislján Friðgeir tók stýri-
mannapróf árið 1942, en sjó-
mennsku hóf hann aðeins 14
ára gamall. Árum saman var
hann stýrimaður á bátum, sem
Einar Guðfinnsson í Bolungar-
vík gerði út, einkum á því vel-
þekkta aflaskipi Einari Hálf-
dáns. Eftir að Kristján Friðgeir
hætti sjómennsku 1953 vann
hann um tíma við verslunar-
störf hjá Einari Guðfinnssyni.
Þá var hann fiskmatsmaður í
Bolungarvík 1961-1977, en
með þessum störfum stundaði
hann eigin harðfiskverkun allt
til 1992.
Utför Krisfjáns Friðgeirs fór
fram frá Garðakirkju þriðju-
daginn 13. júlí í kyrrþey að ósk
hins látna.
á Langavatni í Suður-þingeyjar-
sýslu er hann var á engjum og þótti
Kristrúnu systur sinni dveljast
óþarflega lengi heima á bæ við
mjaltir og matargerð og fann að því.
Hún svaraði því til að einhvem tíma
yrði maður þó að sofa. Þá á Jón að
hafa sagt: „Þú getur sofið í vetur.“
Kristján Friðgeir hafði alltaf mik-
inn áhuga á öllu því sem viðkemur
sjósókn. Hann lifði miklar byltingar
í útgerð, bæði hvað varðar skipa-
kost og alla tækni. Löngu eftir að
hann var hættur að stunda sjó
fylgdist hann með aflabrögðum og
skipaferðum og því var það engin
tilviljun að hann valdi sér bústaði
bæði í Bolungarvík og Garðabæ
þannig að hann gæti séð út yfir
höfnina og út á hafflötinn. Ef skip
voru til sýnis í höfnum suðvestan-
lands voru þau skoðuð í krók og
kring, jafnt fiskiskip og flutninga-
skip sem seglskútur og kafbátar.
Ég á eftir að sakna tengdaföður
míns því hann var bæði líkur og
ólíkur öðrum mönnum. Ég vil hins
vegar nota tækifærið og þakka hon-
um fyrir samveruna sem ég held að
hafi verið okkur báðum tO nokkurr-
ar ánægju.
Leifur A. Símonarson.
Stutt er milli gleði og sorgar.
Diddi afi var hress og kátur í af-
mæli hjá mömmu, nýbúinn að slá
garðinn og gera fóstudagsinnkaup-
in. Nokkrum klukkustundum seinna
var hann allur.
Sumarið 1977 fluttu afi og amma
suður, þá fórum við vestur tO að
keyra með þeim í bæinn. Þau fluttu
í sömu blokk og við áttum heima í
og var alltaf mikOl samgangur mOli
heimOanna. I Bolungarvík hafði afi
verið með harðfiskverkun og eftir
að við fluttum á Vesturvanginn
pakkaði hann harðfisk í kjallaranum
hjá okkur í nokkra mánuði, eða þar
tO hann keypti sér aðstöðu tO að
geta verkað sjálfur. Við eldri systk-
inin fengum stundum að selja harð-
fisk fyrir afa, og borgaði hann okk-
ur visst fyrir pakkann. Harðfiskur-
inn var í sérmerktum plastpokum
sem var lokað með rauðu límbandi.
En það var ekki alltaf harðfiskur í
pokunum. I jólapökkunum, sem við
þekktum alltaf úr á rauða límband-
inu, leyndust samskonar pokar fúll-
ir af nammi. Jólin byrjuðu þegar afi
og amma komu í skötuna á Þoriáks-
messu og afi þefaði inn í eldhúsið
heima og sagði: „ “Er engin lykt?“
Diddi afi var sparsamur og nýt-
inn maður, en alltaf mjög örlátur á
gjafir tO okkar allra.
Við þökkum afa okkar fyrir allt
og biðjum guð að styrkja Jónínu
ömmu og alla fjölskylduna.
Hulda, Jón Friðgeir,
Gunnar og Ingi Sturla.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper-
fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á
netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má iesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
KRISTJAN FRIÐGEIR
KRISTJÁNSSON
Það var alltaf upplífgandi og end-
urnærandi að heimsækja Kristján
Friðgeir og Jónínu, en eins gott að
hafa þá fulla stjóm á matelsku
sinni. það gat á stundum verið
býsna erfitt eða nær ómögulegt. Ég
held hins vegar að mér og tengda-
föður minum hafi með tímanum tek-
ist að leysa velflest ef ekki öll
vandamál líðandi stundar við eld-
húsborðið og oftast fundið afar
snjallar lausnir á flóknustu vanda-
málum samtíðarinnar, bæði verald-
legum og andlegum, t.d. vaxta- og
peningamálum, uppeldis- og skóla-
málum, að ógleymdum stjórnmálun-
um. Kristján Friðgeir fylgdist mjög
vel með allri umræðunni, en mér
fannst vOja brenna við að hann
hefði full afdráttarlausar skoðanir
fyrir minn smekk og við vorum
stundum langt frá því að vera sam-
mála. En það jók bara á ánægjuna
og hleypti lífi í samræðumar.
Kristján Friðgeir var einn af
vinnusömustu og harðduglegustu
mönnum sem ég hef kynnst. Aldrei
kom maður að honum óvinnandi í
björtu og þrátt fyrir alltof litla
þekkingu á erfðafræði sýnist mér að
öll gen vinnuseminnar og dugnaðar-
ins hafi gengið óskert til barnanna.
það var því engin furða að mér yrði
hugsað tO tengdaföður míns þegar
ég las frásögnina af Jóni Davíðssyni
+
Ástkær bróðir minn,
BJARNI RAGNAR JÓNSSON,
Kópavogsbraut 63,
sem lést mánudaginn 5. júlí sl., verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
15. júlíkl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, vinsamlegast
láti líknarstofnanir njóta þess.
Björgvin Jónsson.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
JÓNA ÞURÍÐUR BJARNADÓTTIR,
Vallargötu 14,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsungin frá Landakirkju Vestmanna-
eyjum fimmtudaginn 15. júlí kl. 16.00.
Guðmundur Ármann Böðvarsson,
Sigurleif Guðfinnsdóttir, Höskuldur Rafn Kárason
og barnabörn.
+
ANDRÉS PÁLSSON
fyrrum bóndi á Hjálmsstöðum
í Laugardal,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn
12. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda,
systkini hins látna.
+
Hjartkær systir okkar,
STEINGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
skáld,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 12. júlí.
Hjördís Guðmundsdóttir,
Droplaug Guðmundsdóttir.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HELGA J. SVEINSSONAR,
fyrrv. fulltrúa L(Ú,
áður Þorragötu 7,
Reykjavík.
Sigríður Sigurðardóttir,
Sigurður Helgason, Peggy Oliver Helgason,
Sveinn Gunnar Helgason,
Ágústa Helgadóttir, Jón Karl Einarsson,
Jóhann Helgason, Þórhildur G. Egilsdóttir,
Helgi S. Helgason, Steinunn Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður, bróður, afa og langafa,
JÓNS HALLDÓRSSONAR
loftskeytamanns,
Kaplaskjólsvegi 51.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Reykjalundar og
einnig starfsfólks deildar B-4 á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur.
Guðný Bjarnadóttir,
Rósa Guðný Jónsdóttir,
Guðrún Lilja Halldórsdóttir,
Anna Halldórsdóttir Ferris,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
°g
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
vinarhug við fráfall og útför
FANNÝAR EGILSON.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild K-2,
Landakoti, fyrir umönnun síðustu ára.
Guðrún Högnadóttir Ansiau,
Charles Ansiau,
Erla Egilson,
Skarphéðinn Loftsson
og fjölskyldur.
Lokað
Lokað verður í daa, miðvikudaginn 14. júlí, vegna útfarar
frú HELGU VIGGÓSDÓTTUR.
Efnissalan ehf.,
Smiðjuvegi 9, Kópavogi.
Lokað
Lokað verður í dag, miðvikudaginn 14. júlí, vegna útfarar
frú HELGU VIGGÓSDÓTTUR.
Sætir sófar,
Smiðjuvegi 9, Kópavogi.