Morgunblaðið - 19.08.1999, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Mikið af stórsil-
ungi í Þingvallavatni
STAFRÆN OG FILMULAUS
Með 3 x zoom • 2,1 milljón punkta upplausn
( 1600 x 1200 ) • Með tengi fyrir utanáliggjandi
flass • Hægt að tengja við sjónvarp • Hægt að
vista sem tiff og jpeg • Fjarstýring fylgir • Tekur
32mb smartmedia kort ( 8mb fylgir með) • Getur
tekið 45 myndir í röð, 2 á sekúndu • Hægt að
fá aukalinsur
♦♦♦
Það er kannski verið að bera í
bakkafullan lækinn að tíunda frek-
ar laxleysið í Stóru Laxá. Þar halda
menn enn í vonina um að eitthvað
rætist þar úr er líður á haustið.
Þær raddir heyrast raunar að nægt
tilefni sé fyrh- leigutaka árinnar að
endurgreiða seld leyfí í september
og hreinlega loka ánni til varnar
hrygningarstofni þessa árs, en
sáralítið er af laxi í ánni. Svo lítið,
að borið hefur á því að menn hafa
annaðhvort látið öðrum leyfi sín í té
eða hreinlega látið vera að fara á
Guðjón Björn Haraldsson með risableikjurnar
þrjár, 7, 8 og 10 punda, úr Þingvallavatni.
sögn Einars Sigfússonar var lax-
inn veiddur neðst í ánni, hann var
„4 punda og ljótur“, eins og hann
komst að orði. Laxinn hefur legið
freðinn í frystikistu veiðihússins
við ána að undanförnu, en í haust
verður honum skilað til athugunar
til Veiðimálastofnunar. Bleiklax,
eða hnúðlax, er ein af nokkrum
laxategundum Kyrrahafsins. Fyrir
þónokkrum árum veiddist talsvert
af þessum löxum í íslenskum ám.
Það voru flækingar frá Rússlandi,
en þarlendir gerðu þá tilraunir
með sleppingar þeirra í ár við
Hvítahaf. Tilraunirnar mislukkuð-
ust og laxarnir veiddust í ám
beggja vegna Atlantsála við litla
hrifningu viðkomandi heima-
manna. Hnúðlaxar eru þó sjaldséð-
ir nú orðið.
Islensk miðlun
hefur augastað
á Bolungarvík
Þrettán ný
störf gætu
skapast
Ísafírði. Morgunblaðiö.
„VIÐ höfum átt óformlegar við-
ræður við bæjaryfirvöld í Bolung-
arvík. Ef þau vinna heimavinnuna
sína sýnist mér að þetta muni
ganga eftir mjög fljótlega,“ sagði
Rafn Jónsson hjá íslenskri miðlun
hf. í samtali við Morgunblaðið.
Þreifíngar eru í gangi um stofn-
un þjónustufyrirtækis í Bolungar-
vík með sama sniði og þegar er
komið í gang á vegum íslenskrar
miðlunar hf. og heimamanna á
Raufarhöfn og Stöðvarfirði og senn
fer af stað í ísafjarðarbæ. Hið nýja
fyrirtæki, sem einkum mun starfa
á sviði fjarvinnslu og símaþjónustu,
mun skapa þrettán ný störf í Bol-
ungarvík ef af verður.
„Þetta ætti að geta farið af stað í
septemberlok ef hlutirnir ganga
hratt,“ segir Magnús Hávarðarson,
forseti bæjarstjórnar og formaður
atvinnumálaráðs Bolungarvíkur.
„Til að þetta geti orðið að veruleika
í Bolungarvík þarf samtakamáttur
Bolvíkinga að koma til. íslensk
miðlun hf. leggur fram hlutafé að
vissu marki en því fjármagni sem á
skortir, eða um 7 milljónum króna,
þarf að safna í Bolungarvík. Við
vonum að sem flestir komi að því
máli, bæði fyrirtæki og einstakling-
ar. Það er mikilvægt að koma
þessu af stað enda er ýmislegt
spennandi að gerast í fjarvinnslu-
málum,“ sagði Magnús.
ÓVENJUMIKIÐ virðist vera af
mjög stórum silungi í Þingvalla-
vatni í sumar, bæði urriða og
bleikju. Frést hefur af 6, 8,10 og 12
punda urriðum og ekki eru bleikj-
urnar ómerkilegri, þær hafa veiðst
allt frá 5-6 pundum upp í 10 pund.
Dæmi eru um að sami maður hafi
fengið þrjá slíka fiska á skömmum
tíma. Spónn virðist vænlegastur til
árangurs, enda er um stórtæk rán-
dýr að ræða. Bleikjurnar tilheyra
afbrigði sem kallað er ránbleikja
eða sílableikja. Þegar umræddri
stærð er náð er bráðin þó líklegri til
að vera smásilungur fremur en síli.
Þráinn Viggósson, sumarbústað-
areigandi í Hestvík, veiddi 8 punda
bleikju af báti, 200 metra úti fyrir
Lambhaga. Hann notaði 18
gramma íslandsspón og sagði
menn hafa séð mikið af vænni
bleikju og veitt vel í Vatnsvikinu og
í Miðfellslandi fyrr í sumar. Guðjón
Björn Haraldsson veiddi þrjár
bleikjur af þessu tagi í landi Nesja
fyrir nokkru. Stefán Haraldsson,
sem tók myndina sem hér birtist af
Guðjóni með aflann, sagði fiskana
hafa verið yfir 40 sentímetra að
rúmmáli og 45 til 60 sentímetra að
lengd. Þyngd bleikjanna á mynd-
inni er 7, 8 og 10 pund. Fyrir
nokkru veiddi svo Daníel Jónsson 8
punda bleikju á líkum slóðum og
missti urriða, sem hann taldi mun
stærri, við tæmar á sér. Fleiri fisk-
ar hafa veiðst og einnig hefur borið
á smærri urriða sem bendir til að
einhver hrygning hafi borið góðan
árangur. Varðandi stórsilunginn
hefur verið bent á að murtustofninn
hefur verið talinn í nokkurri upp-
sveiflu í seinni tíð, en hún er talin
mikilvæg fæða fyrir stóru ránsil-
ungana í vatninu.
Óvæntur lax
Þráinn Viggósson með 8 punda
bleikju úr Þingvallavatni.
veiðar. Einn sem fréttist af átti
leyfi á svæðum 1 og 2, sem hafa
verið afgerandi ónýtust í sumar.
Hann reyndi allt hvað af tók að
koma leyfi sínu í verð og tókst það
eftir mikinn eftirrekstur, en afföllin
voru þó veruleg. Á endanum var
það einhver eiginmaður vinkonu
vinkonu starfsfélaga eiginkonu
leyfishafans, maður sem les lítið
veiðifréttir og fer sjaldan á veiðar,
sem við leyfinu gein. Sá gerði sér
síðan lítið fyrir og tók 12 punda ný-
genginn hæng.
Hnúðlax í Hafijarðará
Hnúðlax, eða bleiklax, veiddist í
Haffjarðará fyrir skömmu. Að
Nýr framkv.stjóri Reykjavíkurakademíu
Mikil upp-
bygging
framundan
Kristrún Heimisdóttir
NÚ UM næstu
mánaðamót tekur
nýr fram-
kvæmdastjóri við störf-
um hjá Reykjavíkuraka-
demíunni. Jón Karl
Helgason lætur af störf-
um en við tekur Kristrún
Heimisdóttir. Reykjavík-
urakademían var stofnuð
1997 og er félag sjálf-
stætt starfandi fræði-
manna. Kristrún var
spurð hvort mikil umsvif
væru hjá félaginu um
þessar mundir
- Það er alveg ljóst að
fyrirbæri eins og Reykja-
víkurakademíuna hefúr
vantað á Islandi. Það hef-
ur orðið mikil breyting á
því hvað stétt fræði-
manna er fjölmenn. Hún
var tiltölulega fámenn
lengst af en er nú orðin mjög
fjölmenn. Þessi þróun hefur orð-
ið mest áberandi síðasta áratug.
-Hvaða fræðimenn eru fjöl-
mennastir í Reykjavíkuraka-
demíunni?
Reykjavíkurakademían er
fyrst og fremst vettvangur
fræðifólks í „húmanískum“ fræð-
um. Áherslan er eigi að síður
mjög þverfagleg. Þetta er hugs-
að sem vettvangur fyrir fræði-
fólk þar sem það getur unnið og
haft samneyti hvert við annað,
rætt fræði sín og auðgast af
samskiptum við fólk sem er að
sinna svipuðum viðfangsefnum
og það sjálft og hefur áþekk
áhugamál, þótt frá sjónarhorni
annarrar fræðigreinar sé. Ég
held að þetta sé nútímaleg nálg-
un vegna þess að múrar milli
fræðigreina eru sem óðast að úr-
eldast.
- Hver er starfsvettvangur
framkvæm das tjóra ?
Mitt verkefni verður ekki síst
uppbygging. Segja má að
Reykjavíkurakademían standi á
tímamótum á vissan hátt. Þessi
hugmynd reyndist eiga svo ríkan
hljómgrunn að þetta hefur vaxið
á nánast ævintýralegan hátt.
Akademían flutti inn í húsnæði
sitt í JL-húsinu í nóvember sl.
Mitt verkefni er að móta form
starfseminnar. Við tekur endur-
skipulagning. Það þarf að endur-
skoða lög félagsins og ýmislegt
annað. Það þarf með öðrum orð-
um að sníða starfseminni nýjan
stakk, mönnum sýnist að hún sé
um það bil að vaxa upp úr þeim
gamla. Þetta finnst mér heillandi
verkefni, ég hlakka til að fá að
taka þátt í þessu starfi með því
góða fólki sem þarna er.
- Hversu margir koma að
starfsemi þarna?
Fjöldi fólks er á félagaskrá í
Reykjavíkurakademí-
unni en fasta starfsað-
stöðu hefur hátt á
fjórða tug fræðimanna
og eru að bætast við
sex nýjar skrifstofur
þessa dagana.
-Hvernig er þessi starfsemi
fjármögnuð?
Yfirbygging Reykjavíkuraka-
demíunnar er ekki mikil, það
stendur ekki til að safna eignum.
Meginatriði var að fá þetta hús-
næði á sínum tíma. Nú er það
fyrir hendi og það er fyrir ríkan
skilning og framsýni Geirs Haar-
de fjármálaráðherra. Ríkið hefur
húsið til ráðstöfunar og leigir
Reykjavíkurakademíunni þetta
►Kristrún Heimisdóttir fæddist
í Reykjavík 1971. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anurn í Reykjavík 1990, nam
heimspeki við Háskóla íslands
og lauk lagaprófi frá sama
skóla 1998. Hún hefur starfað
sem íþróttafréttamaður hjá
Ríkisútvarpi og Sjónvarpi
sumrin 1991 til 1993 og var
einnig fréttamaður á Frétta-
stofu Utvarps í sumarvinnu.
Hún hefur og verið lausamann-
eskja í þættinum Víðsjá. Undan-
farið ár hefur Kristrún verið
lögfræðingur hjá umboðsmanni
Alþingis en tekur nú 1. septem-
ber við starfi sem fram-
kvæmdastjóri Reykjavíkuraka-
demíunnar. Kristrún hefur tek-
ið mikinn þátt í félagsmálum og
íþróttum. Hún er ógift og barn-
laus.
húsnæði við vægu verði. Einnig
hefur akademían notið stuðnings
Reykjavíkurborgar, einkum
borgarstjóra og atvinnu- og
ferðamálanefndar. Segja má að
ríkur velvilji hafi mætt þessari
starfsemi Reykjavíkurakademí-
unnar fram til þessa og vonandi
verður svo áfram.
- Er þetta hið dæmigerða
starf fyrir ungan lögfræðing?
Að sumu leyti ekki, þetta er
ekki dæmigert skrifstofustarf
lögfræðings. Hins vegar er þetta
verkefni, að móta formlega hlið
starfseminnar, þess eðlis að lög-
fræðimenntunin kemur sér mjög
vel. Meginástæða þess að ég
ákvað að fara í þetta er þó fræði-
leg. Ég lít á lögfræði sem
„húmaníska" fræðigrein en ekki
tæknigrein. Þess vegna hlakka
ég persónulega mikið til að verða
þátttakandi í þessu umhverfi,
auk þess sem það er ríkur hugur
í fólki til þess að efla
fræðigreinina lögfræði
innan vébanda
Reykj avíkurakademí-
unnar.
-Sinnir þú öðrum
lögfræðistörfum samhliða þessu
starfi hjá Reykjavíkurakademí-
unni?
Já, ég mun sinna slíkum störf-
um fyrir umboðsmann barna,
auk þess býst ég við að vera
jafnvel eitthvað viðloðandi störf
hjá Útvarpinu. Lokaritgerð mín
í lagadeild var um fullveldi Is-
lands, þróun EES-réttar og
þjóðaréttar almennt, ég hef mik-
inn hug á að hnýta þar ýmsa
lausa enda á næstu mánuðum.
Vettvangur
fyrir
fræðifólk