Morgunblaðið - 19.08.1999, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 19.08.1999, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ Fjölþjóðlegur bragur á Flateyri Nær hundrað brúður frá 23 löndum LANDIÐ Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson Bjarni F. Einarsson við upphaf fornleifauppgraftarins. F ornleifauppgröftur við Irskubúðir Isafirði - Fólk af ýmsu þjóðemi hef- ur verið áberandi á Vestfjörðum síðari árin. Nú hefur hið fjölþjóð- lega yfirbragð tekið á sig nýja mynd, því að til viðbótar fólki af eitthvað í kringum 40 þjóðernum hafa nær hundrað brúður frá 23 löndum sest hér að. í síðustu viku var á Flateyri opn- að safn með brúðum sem þýsk hjón hafa gefið Minjasjóði Flateyrar og komu þau hingað í boði sjóðsins til að setja upp safnið. í snjóflóðinu árið 1995 eyðilagðist Minjasafn Flateyrar og starfsemi þess lagðist þá niður. Nú hefur Minjasjóður Flateyrar fengið inni í Hafnarstræti 4, þar sem Sparisjóð- ur Önundarfjarðar var til skamms tíma. Minjasjóðurinn er þar í sam- býli við handverkshópinn Purku á meðan hann hefur ekki eignast sitt eigið safnahús. Brúðusafnið er einn af fyrstu vísunum að nýju safni á Flateyri. Gefendur brúðusafnsins eru hjón- in dr. Senta Siller og dr. Norbert Pintseh prófessor, en þau eru bú- sett í Berlín. Þau hafa á undanföm- um ámm að eigin frumkvæði unnið að verkefnum í Pakistan, Kamerún og Kólumbíu í því skyni að efla at- vinnu á landsbyggðinni þar. Dr. Senta Siller er graflskur hönnuður en nam síðan listasögu og fleiri greinar. Hún hefur unnið mikið með konum í fátækum og afskekktum byggðum í fyrrgreindum löndum og m.a. kennt þeim handverk og að búa til brúður til að selja ferða- mönnum. Fyrsta verkefnið fór af stað í þorpi í Pakistan árið 1993. Par kenndi Senta konum að búa til brúður sem tengdust menningu svæðisins og nú starfa þar um 120 manns við brúðugerð. Verkefnin í Kamerún og Kólumbíu eru svipuð. Dorothee Lubecki, ferðamálafull- trúi á Vestfjörðum, komst í kynni við hjónin og í framhaldi af því kviknaði sú hugmynd hjá þeim að gefa brúðusafnið sitt til Vestfjarða. Brúðunum hafa þau safnað víða um lönd áratugum saman og má meðal þeirra nefna eina rússneska sem þau keyptu í Sovétríkjunum fyrir réttum fjörutíu árum. Að hluta til er safninu ætlað að styðja við ferðaþjónustu á Vest- fjörðum en öðrum þræði er það líka tákn fyrir hinar fjölmörgu þjóðir sem eiga fulltrúa sína á Vestfjörð- um. Brúðurnar munu væntanlega eiga sinn þátt í því að tengja saman ólíka menningarheima og stuðla að skilningi og vináttu milli þjóða. Hugmyndir eru um að nota safnið m.a. í tengslum við þemadaga, þar sem gerð yrðu skil hefðum ólíkra þjóða og þjóðabrota. Hellissandi - Fornleifafræðistofan undir forystu Bjama F. Einars- sonar fomleifafræðings hefur hafíð uppgröft við írskubúðir vestan Gufuskála. Á undanförnum ámm hefur Bjarni unnið að rann- sóknum á staðnum og komist að þeirri niðurstöðu að hér muni vera um landnámsbæ að ræða og hefur komið í ljós við rannsókn á sýnum sem hafa verið aldurs- greind ytra að þessar fornminjar eru frá árunum 850-950. Bjarni hefur bent á að mjög mikilvægt sé að grafa á írskubúð- um í ljósi þessarar vitneskju því að mikill fengur sé að því að fínna landnámsbæ svo nærri alfaraleið, þar sem þúsundir ferðamanna fara um ár hvert. Sýslumaður í uppgreftri Ásamt Bjarna vinna fímm menn að uppgreftrinum en það eru Magnús A. Sigurðsson, fornminja- vörður Vesturlands, sænskur fornleifafræðingur, Daniel Lind- blad, Ólafur Kr. Ólafsson, sýslu- maður Snæfellinga, og Sæmundur Kristjánsson, verkstjóri hjá Snæ- fellsbæ. Bjarni kvað það hafa gert þennan uppgröft mögulegan að styrkir hefðu fengist til verksins frá eftirtöldum aðilum; sam- gönguráðuneytinu, Snæfellsbæ, Björgunarskóla fslands, Krist- jáni Guðmundssyni hf. í Rifi og Hraðfrystihúsi Hellissands. Og væri hann þeim afar þakklátur fyrir áhugann og stuðninginn. Bjarni kvaðst vona að fleiri aðil- ar ættu eftir að bætast í þennan hóp styrktaraðila svo hægt yrði að standa myndarlega að þessu verki. Strax fyrsta daginn voru komnar í ljós augljósar mann- vistarleifar. Sjá mátti steina úr einhvers konar hleðslum, steina sem greinilega voru úr eldstæð- um. Þá fúndu þeir strax á fyrsta degi grýtubrot úr klébergi sem er erlend bergtegund og járngrip sem þeir höfðu ekki áttað sig á til fulls en minnti á brot úr ljá. Bjarni kvað þá mundu halda upp- greftrinum áfram næstu daga og eftir því sem aðstæður og fjár- magn leyfði. Fjölsótt Töðugjöld á Heliu Vettvangur brott- fluttra Rangæinga Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir Frá afhendingu Hornsteina og Heimshorns á Töðugjöldunum, f.v. Helgi Valberg frá Sunnlenska fréttablað- inu, Óli Már Aronsson, framkvæmdastjóri Töðugjalda, Steinunn Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Töðu- gjalda, Þór Vigfússon sem tók við verðlaununum fyrir konu sfna, Hildi Hákonardóttur, Már Sigurðsson, Geysi, Guðrún Markúsdóttir ásamt syni sinum, en hún tók við verðlaununum fyrir föður sinn Markús Run- ólfsson, Þórir Kjartansson, Vík í Mýrdal, Ágústa Bárðardóttir sem tók við verðlaununum fyrir Sigurbjörn Bárðarson og Jón Ársæll Þórðarson sem afhenti verðlaunin. Hellu - Árleg töðugjaldahátíð var haldin um helgina á Hellu og ná- grenni. Rangæingar og gestir fjöl- menntu og skemmtu sér hið besta við fjölbreytta dagskrá sem í boði var frá föstudagskvöldi til sunnu- dags. Var áberandi að sjá hversu margt fólk, sem er ættað úr héraðinu eða á taugar til sveitarinnar, lagði leið sína á Töðugjöldin tO að sýna sig og sjá aðra. Dagskrá Töðugjalda er orðin nokkuð hefðbundin, en í boði voru m.a. dansleikir, markaðstorg, búvélasýning, íjöltefli, fallhlífar- stökk, gæðingasýning, þjóðlaga- söngur, kvöldvaka með brekkusöng, varðeldi og flugeldasýningu auk margs annars. Mikill skortur á vinnuafli á Vestfjörðum ísafirði - Eins og löngum áður er mikill skortur á vinnuafli á norðan- verðum Vestfjörðum og horfir jafn- vel tO vandræða þegar skólar hefj- ast og skólafólk hverfur úr vinnu. Á síðasta vori auglýsti Bakki hf. í Bol- ungarvík hvað eftir annað eftir starfsfólki án nokkurs árangurs. Tugi starfsfólks vantar nú á Flat- eyri, bæði í vinnsluna hjá Skelfiski hf. og í bolfiskvinnslu hjá Básafelli hf. Atta auglýsingar birtust í Bæj- arins besta í síðustu viku þar sem auglýst var eftir tugum fólks í vinnu og fleiri hafa birst í Morgunblaðinu. I mörg ár hefur atvinnuástandið á Vestfjörðum verið betra en í öðr- um landshlutum eins og jafnan kemur fram í opinberum tölum. Að líkindum væri lítið unnið af sjávar- fangi hér um slóðir ef ekki hefði komið til stórfelldur innflutningur á erlendu vinnuafli. Forseti albióðasambands Lionsfélaga Gróðursetti grenitré í Reyk- holtsdal Reykholti - Alþjóðaforseti Lions- hreyfingarinnar, Bandaríkjamað- urinn Jim Ervin, er nú í stuttri heimsókn á íslandi ásamt Betty eiginkonu sinni. Á sunnudag fóru hjónin í ferð um Akranes og Borgarnes í fylgd íslenskra Lionsmanna. Eftir að hafa skoðað Deildartunguhver og Reykholt var svo rennt í hlað hjá sveitarstjóranum, Þórunni Gests- dóttur, en hún hefur unnið mikið með Lionshreyfingunni og við þetta tækifæri veitti Jim Ervin Þórunni eina af helstu orðum Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir Jim Ervin gróðursetti grenitré við bústað sveitarstjórans, Þórunnar Gestsdóttur. hreyfingarinnar fyrir vel unnin störf. Alþjóðaforsetinn gróðursetti grenitré á lóðinni við bústað sveit- arstjóra og voru svo þegnar veit- ingar í garðinum, í blíðskaparveðri. Hornsteinar og Heimshorn afhent Hátíðinni lauk á sunnudag með afhendingu viðurkenninga Töðu- gjaldanna og Sunnlenska frétta- blaðsins, svokallaðra Hornsteina, til fjögurra aðila á Suðurlandi sem skarað hafa fram úr á ýmsum svið- um að mati úthlutunamefndar. Fimmtu verðlaunin eru Heimshom, en þau fá aðili, íslenskur eða erlend- ur sem hefur komið Islandi á fram- færi út fyrir landsteinana. Að þessu sinni hlutu eftirtaldir aðilar Homsteina: Fyrir atvinnu- mál, Þórir Kjartansson, eigandi og framkvæmdastjóri Víkurprjóns í Vík í Mýrdal, fyrir atvinnuuppbygg- ingu í sínu byggðarlagi, ásamt nýt- ingu íslenskra hráefna og hönnun- ar. Fyrir umhverfismál, Markús Runólfsson, formaður Skógræktar- félags Rangæinga, fyrir framsýni, tækninýjungar og framkvæmd í landgræðslu- og skógrækt. Fyrir menningarmál, Hildur Hákonar- dóttir á Selfossi fyrir þrautseigju og framsókn fjölbreytilegrar listsköp- unar og listkynninga. Fmmkvöð- ulsverðlaun hlaut Már Sigurðsson Geysi í Haukadal fyrir framkvæði í atvinnuuppbyggingu og menningar- málum við Geysi. Heimshomið fékk Sigurbjörn Bárðarson hestamaður fyrir að auka hróður íslands og ís- lenska hestsins víða um heims- byggðina. Verðlaunagripirnir era hannaðir af listamanninum Snorra Guðmundssyni, en hann nefnir þá „listaverk náttúrannar", en í þeim er m.a. hraun úr Heklu. Það var svo fjölmiðlamaðurinn Jón Ársæll Þórðarson sem fékk nafnbótina „fallhlífarstökkvari Suð- urlands", en hann lét sig ekki muna um að koma svífandi í fallhlíf niður á hátíðarsvæðið til að afhenda við- urkenningarnar fyrir hönd Töðu- gjaldanna og Sunnlenska frétta- blaðsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.