Morgunblaðið - 19.08.1999, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 19.08.1999, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Útlitið svart fyrir SPD og Schröder Berlín. Reuters. MEIRIHLUTI þýzkra kjósenda býst ekki við því að stjórnartíð Ger- hards Schröders kanzlara og Jafnað- armannaflokks hans, SPD, verði löng, eftir því sem fram kemur í nið- urstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birtar voru í gær. I könnuninni, sem Allensbach- stofnunin gerði, kemur fram að kjós- endafýlgi við SPD hefði hrapað frá því Schröder leiddi flokkinn til sig- urs í þingkosningum sl. haust og batt þar með enda á 16 ára óslitna setu flokksmanna á stjórnarandstöðu- bekknum. Yfir helmingur aðspurðra - 54% í vesturhluta landsins og 57% í aust- urhlutanum - sögðust telja að SPD myndi aðeins halda völdum í tak- markaðan tíma. Væru kosningar í næstu viku fengi SPD samkvæmt könnuninni 32,6% atkvæða, en Kristilegir demókratar (CDU), flokkur Helmuts Kohls fyrr: verandi kanzlara, fengi 42,2%. í kosningunum í september sl. fékk SPD 40,9% atkvæða en CDU 35,2%. Meðal helztu skoðanakannanastofn- ana Þýzkalands spáði Allensbach næst til um úrslit kosninganna. Fimm héraðsþingakosningar framundan Persónulegt fylgi Schröders hefur samkvæmt könnuninni einnig dregizt saman. Aðeins 23 af hundraði sögðust nú ánægðir með kanzlarann, en í fyrra mældist persónufylgi hans 54%. Þykja þessar niðurstöður ekki vísa á gott fyrir Schröder og jafnaðar- menn, ekki sízt með tilliti til þess að það sem eftir er þessa árs fara fram kosningar til þinga fimm af þýzku sambandslöndunum 16. Khatami sér , jákvæð merki“ Dubaí, Teheran. Reuters. AP. FORSETI írans, Mohammad Khatami, segir í blaðaviðtali sem birt var í gær, að hann sjái jákvæð merki frá bandarískum stjórnvöldum gagn- vart Iran, en almennt viðhorf Banda- ríkjamanna til landsins sé enn ruddalegt. „Tónninn í bandarískum stjórn- málamönnum hefur breyst, í sumum tilfellum mikið,“ sagði Khatami í við- tali við íranska blaðið Iran Daily, sem gefið er út á ensku. „Engu að síður má enn sjá merki um rudda- lega framkomu í almennu viðhorfi þeirra,“ bætti hann við án nánari út- skýringa. Æðsti leiðtogi Irans, Ayatollah Ali Khamenei, sagði í gær að Islamska lýðveldið vildi bæta samskipti sín við ríki heims, en þó ekki við Bandaríkin og Israel. Opinber fréttastofa Irans, IRNA, greindi frá þessu. Sagði Khamenei að íran viðurkenndi ekki tilvist Israels, en hvað Bandaríkin varðaði væri vandinn efnahagslegs eðlis. Uppgangur í íran kæmi illa við Bandaríkin, og því sæktust þau eftir því að leggja stein í götu írana. Væru bandarísk stjórnvöld að reyna að ná völdum yfir stjórnkerfinu í Ir- an. „Það er þess vegna sem ógern- ingur er að gefa eftir í samskiptum við Bandaríkin,“ sagði Khamenei. Khatami forseti hvatti til þess í fyrra að samskipti bandarískra og íranskra einstaklinga ykjust. Khamenei er valdameiri en Khatami, og hefur kennt „ósýnilegum hönd- um“ Bandaríkjanna um óeirðirnar sem brutust út í Teheran og fleiri írönskum borgum í síðasta mánuði. Nissan Sýning um helgina frá kl. 14.-17. Verið velkomin í reynsluakstur. Helgason hf. ■Sascrii£fia 2 flimti 'BTJJt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.