Morgunblaðið - 19.08.1999, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 41
VINNUALJGLYSINGAR
Endurhæf-
ingar- og
taugasvid
SJÚKRAHÚS
REYKjAVÍ KU R
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkraliðar
Hjúkrunarfræðinemar
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða á endurhæfingardeild R-2 að
Grensási vegna skipulagsbreytinga. Hjúkr-
un sjúklinga í endurhæfingu er vaxandi
áhugasvið innan hjúkrunar og á eftir að efl-
ast á komandi árum vegna áherslubreyt-
inga innan heilbrigðiskerfisins. Óskað er
eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum
og sjúkraliðum til að móta og byggja upp
góða heilbrigðisþjónustu þar sem þunga-
miðjan er umhyggja fyrir skjólstæðingnum
og aðstandendum hans. í boði eru tvískipt-
ar vaktir en einnig kemur til greina annað
vaktafyrirkomulag. Stöðurnar eru lausar frá
1. október 1999 eða eftir nánara samkomu-
lagi. Umsóknarfrestur er til 14. september
1999.
Næturvaktir. Hjúkrunarfræðingur óskast
einnig á fastar næturvaktir að Grensási.
Launaröðun hjúkrunarfræðings á nætur-
vaktir er samkvæmt framgangskerfi hjúkr-
unarfræðinga á SHR.
Nánari upplýsingar veita:
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir hjúkrun-
arframkvæmdastjóri í síma 525 1652
gudrakel@shr.is og Margrét Hjálmars-
dóttir deildarstjóri í síma 525 1671
mhjalmar@shr.is.
Laun samkvæmt gildandi samningi fjármálaráðherra og
viðkomandi stéttarfélags.Umsóknareyðublöð fást hjá starfs-
mannaþjónustu Sjúkrahúss Reykjavíkur Landakoti og hjá
upplýsingum í Fossvogi.
Okkur vantar starfsfólk við afgreiðslu
á kassa, ófyllingar og önnur almenn
verslunarstörf. öóð laun í boði.
Upplýsingar ó skrifstofu Bónus
Skútuvogi 13, kjallara, milli klukkan
9.00 og 12.00 alla virka daga.
BÓNUS
£ittkvaÖ hyitUi (tig'?
Við bjóðum upp á sveigjanlegan vinnutíma
sem getur hentað skólafólki og húsmœðrum
ó öllum aldri ógœtlega.
Afgreiðslustörf
Björnsbakarí vesturbæ vill ráða afgreiðslufólk
til starfa nú þegar. Vinnutími kl. 7.30—13 eða
kl. 13—19 virka daga, auk helgarvinnu.
Upplýsingar gefa Kristjana eða Margrét í síma
561 1433 og 699 5423.
Starfsfólk óskast á
næturvakt við vöru-
húsaþjónustu
Samskip óska eftir dugmiklu og heiðarlegu
starfsfólki í Vörudreifingamiðstöð Samskipa.
Um er að ræða störf við tiltekt pantana í
Vörudreifingamiðstöð Samskipa.
Vinnutíminn er frá kl. 20.00 til 4.00.
Vinsamlegast sendið inn skriflegar umóknir
sem allra fyrsttil Starfsmannahalds Samskipa.
Þorsteinn Pálmar Einarsson veitir allar nánari
upplýsingar í síma 569 8632. Öllum umsóknum
verður svarað og farið með þær sem trúnaðar-
mál.
SAMSKIP
Holtabakki v/Holtaveg, 104 Reykjavík,
sími 569 8300, fax 569 8327.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Setbergsskóli
Enn vantar okkur kennara til almennrar kennslu
á yngra stigi. Um er að ræða 70—100% stöðu
eftir samkomulagi.
Setbergsskóli er vel búinn skóli þar sem starfa
áhugasamir kennarar og ríkjandi er jákvæður
starfsandi.
Við hvetjum kennara til að hafa samband og
kynna sér nánar starfsaðstöðu og kjör.
Upplýsingar gefur skólastjóri, Loftur Magnús-
son í síma 565 1011, 555 2915 eða 899 2285.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Skólaskrif-
stofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 31.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.
Mosfellsbær
Fræðslu- og menningarsvið
Varmárskóli
Mosfellsbæ
1.—6. bekkur
Kennara vantar nú þegartil að kenna hand-
mennt (sauma). Upplýsingar gefa Birgir D.
Sveinsson, skólastjóri og Þyrí Huld Sigurðar-
dóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 566 6154.
Laun skv. kjarasamningum Sambands íslenskra
sveitarfélaga og KÍ/HÍK.
Einnig er í gildi sérsamningur milli grunnskóla-
kennara og Mosfellsbæjar.
Skólafulltrúi.
Samskiptamiðstöð
hcyrnarlausra hcyrnarskcrtra
Vélritar þú hratt?
Við leitum að fólki með menntun á háskóla-
stigi, sem getur vélritað að minnsta kosti 80
orð á mínútu til að rittúlka fyrir heyrnarlausa
og heyrnarskerta nemendur. Starfið býður upp
á breytilegan vinnutíma og fjölbreytni. í því
er krafist trúnaðar pg færni í samskiptum.
Upplýsingar veitir Árný Guðmundsdóttir eða
Valgerður Stefánsdóttir í síma 562 7702.
Umsóknir skal senda til Samskiptamiðstöðvar
heyrnarlausra og heyrnarskertra, Sjómanna-
skólanum v/Háteigsveg, 105 Reykjavík.
Heilsdagsstörf
— hlutastörf
Óskum að ráða fólk í sal og afgreiðslu, bæði
50% og 100% störf. Einnig vantar vana
pizzubakara. Góð laun í boði.
Upplýsingar á staðnum, Hjallahrauni 13,
Hafnarfirði, sími 565 2525.
Harðduglegir
byggingaverkamenn
Okkurvantar nokkra harðduglega verkamenn
í vinnu á nýbyggingasvæði okkar við
Borgartún/Sóltún í Reykjavík.
Hafið samband við Jens Sandholt í síma
897 33166.
Wt i I f t á r 5 s
www.alftaros.is
P E R L A N
Starfsfólk óskast
Vantar hörkuduglegt starfsfólk í kaffiteríu
Perlunnar. Um er að ræða vaktavinnu.
Áhugasamir hafi samband í síma 562 0210 eða
komi á kaffiteríu á 4. hæð.
Halló Hafnarfjörður
Cafe Hafnarfjörður, sportbar- skemmtistaður,
Dalshrauni 13, óskar eftir fólki í
eftirfarandi stöður:
Rekstrarstjóri Barfólk
Diskótekari Dyraverðir
Uppl. á staðnum föstud. 20. ágúst kl. 18—20.
Gjafavöruverslun
óskar eftir starfskrafti
Gott lundarfar og aðlaðandi framkoma skilyrði.
Æskilegur aldur frá 22ja-40 ára.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
27. ágúst. merktar. „Reyklaus — 8512".
Vélstjórar
Vélstjórar óskast strax á togarann Skagfirðing
SK 3 sem gerður verður út á ís-rækjuveiðar.
Vélarstærð er 1595 KW.
Upplýsingar í símum 464 0100,898 8372 og
865 1485.
Austurlensk heilsa
óskar eftir íslenskumælandi Asíubúum í
ýmis störf. Hlutastörf 50—150 þús. kr. Fullt starf
150—350+ þús. kr. Viðtalspantanir í síma
562 1600. Góð heilsa er gulli betri!
Feitt fólk
sem vill léttast, óskast til starfa sem fyrst.
Starfsþjálfun í boði. Hlutastarf eða fullt starf.
Viðtalspantanir í síma 698 8558.
Bifvélavirki óskast
Upplýsingar í síma 553 4362 eftir kl. 13.00.
Bifreiðaverkstæði N.K. Svane ehf.