Morgunblaðið - 19.08.1999, Síða 48
* 48 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
>
%
Sofíð
á verðinum
VIÐ borgarbúar þurf-
um aldeilis að gæta þess
að sofna ekki á verðin-
um þegar skipulag borg-
arinnar er annars vegar.
I borgarstjórnarkosn-
ingum hefur okkur verið
talin trú um að við séum
að velja fólk sem við
treystum til að standa
þennan vörð fyrir okk-
ur, en þegar til kastanna
kemur er ýjað að því að
svo lengi sem við hreyf-
um ekki kröftugum mót-
mælum, megi borgar-
stjórn leika lausum hala,
veita byggingaleyfí og
fækka grænum svæðum
í borginni að vild.
I kosningabaráttunni kynnti R-list-
inn sig sem fánabera fjölskylduvæns
mannlífs í borginni og víst má telja að
kjósendur hans hafa treyst þvi að sú
stefna hans fæli í sér umhyggju fyrir
svæðum á borð við Laugardalinn,
einu vinsælasta útivistarsvæði fjöl-
skyldna í borginni. En nú segir borg-
arstjóri að það hafi legið fyrir frá ár-
inu 1963 að byggja ætti ýmsa
steinkumbalda í Laugardalnum og
það verið samþykkt æ ofan í æ við
endurskoðun aðalskipulags síðan þá -
án mótmæla af hálfu borgarbúa.
Þó svo að viðhorf borgarbúa til
umhverfisins hafi gerbreyst á þess-
um tíma, er varla hægt að reikna
með að hinn almenni borgarbúi
fylgist grannt með hverri samþykkt
aðalskipulags og mótmæli kröftug-
lega - einn og sjálfur.
Það er nefnilega fyrst þegar komið
er að framkvæmdum, sem við borg-
arbúar vöknum við vondan draum og
það er eðlilegt. Hins vegar finnst mér
í þessu máli að pólitískt kjömir full-
Margrét K.
Sverrisdóttir
trúar okkar borgarbúa
hefðu mátt rumska
miklu fyrr, hvar í flokki
sem þeir standa. Það er
nefnilega það sem við
kjósum þá til að gera.
Það er ánægjulegt að
sjá að borgarstjóri
kveðst ekki munu
hundsa þær raddir sem
krefjast þess að Laug-
ardalurinn fái áfram að
vera griðland útivistar
og íþróttaiðkunar innan
borgarmarkanna og því
hvet ég hinn almenna
borgarbúa til að halda
nú vöku sinni og mót-
mæla hinu umdeilda
skipulagi Laugardalsins
strax. (Það er unnt að gera með því
að skrá sig á lista sem liggja víða
frammi, eða hafa samband við sam-
Skipulagsmál
Ég hvet hinn almenna
borgarbúa til að halda
nú vöku sinni, segir
Margrét K.
Sverrisdóttir, og
mótmæla hinu
umdeilda skipulagi
Laugardalsins strax.
tökin „Verndum Laugardalinn" með
tölvupósti: vemdum@laugardalur-
inn.is).
Höfundur er frkv.stjóri Frjálslynda
flokksins.
„Gáttir allar
áður gangi fram...“
SJALDAN opna ég
svo dagblað að ekki
gefí þar að líta skrif
gegn yfirvofandi
vatnsvirkjun og orku-
veri á Austurlandsör-
æfum - aðallega handa
útlendingum - og yfír-
vofandi náttúruspjöll-
um í kjölfari hennar.
Þessi skrif eru orðin
eins konar skoðana-
sjóður, sem ég vil
leggja lið. Varnarlið
Islands, hið eina og
sanna, segir að fyrir-
hugað vatnsmiðlunar-
svæði sé einstök nátt-
úruparadís, ein af fá-
Ásgerður
Jónsdóttir
um, sem enn eru eftir í heiminum
og enn fremur, að þessi há-
lendisperla íslands sé og verði í
framtíðinni arðvænlegri eign en
orkuver/álver og skírskotar þar til
vaxandi ferðamennsku.
Fleiri váboðar
Ég hef einnig heyrt um mjög trú-
verðugar ályktanir um umhverfis-
og eyðingaráhrif virkjunar Jök-
ulsár á Brú/Dal - Fljótdalsvirkjun-
ar - á gjörvalla byggð Norðaustur-
lands. I morgunþætti Ríkisútvarps-
ins - traustasta fjölmiðli landsins -
voru tekin viðtöl við fjóra greina-
góða menn, tvo meðmælendur
Fljótdalsvirkjunar og tvo andmæl-
endur hennar. Ég endurtek ekki
rök meðmælenda, þau voru um
flest samhljóða rökum opinberra
aðstandenda virkjunarinnar. En
rök eða öllu heldur ályktanir og for-
A SAUTJAN
VEIÐIDAGA I ungfrú
EFTIR! Katnn Bos^uné^
—-7~- - oé Reyn,r - —
- Arnar og
Gaupi á Stöð 2:
i Þorbjorg Þorarins-
i dóttir tekur ofan
M fyrir reykiausum:
HELDU
DYRASTA
EG ÆTLA AÐ
VEÐJA UM
BRUÐKAUP
SIGRA KRABBA-I ENSKA
1111 iiiiii ■■■■ll'úliillll
spár andmælenda voru
svo óvæntar, óheyrðar
og geigvænlegar, að
þær hafa ekki liðið mér
úr minni.
Annar tvímenning-
anna kvaðst álíta að
þegar virkjuð Jökulsá
á Brú/Dal kæmi fram
úr hálendinu, þykk af
framburði, og niður á
láglendið væri hún orð-
in svo vatnslítil og afl-
laus að hún næði ekki
að flytja framburðinn
áfram eftir farveginum
heldur settist hann að
við útfall árinnar og
myndaði hauga, er sí-
fellt þyrfti að flytja burt, þeir
mynduðust svo ótt. Áuk þess yrðu
þeir eilíft rokefni yfír nærliggjandi
héruð.
Hinn viðmælandinn talaði um
Jökulsá á Brú/Dal sem væri hún líf-
æð hafsins fyrir Norðausturlandi.
Hann sagði, að þegar áin væri orðin
svo vatnslítil sem áætlað er og hún
hætti að flæða með ferskt leysing-
arvatn hálendissnævarins niður til
sjávar væri lífríki hafsins hætta bú-
in.
Þessir menn virtust kunna góð
skil á landi og staðháttum og þ.a.l.
umræðuefninu. Ég skrifaði hjá mér
nöfn viðmælenda í útvarpsþættin-
um en hef glatað þeim. Ég get ekki
dagsett þennan tiltekna útvarps-
þátt en ég hygg að hann hafi farið
fram um mitt síðasta sumar. Þegar
hálendisfundurinn var haldinn í
Háskólabíói í fyrra haust var ég
fjarverandi og bað einn aðstand-
enda fundarins að minnast á þetta
fyrir mig. Það tókst ekki.
Ég tel það mikil undur ef enginn
hefur heyrt þennan merkilega þátt
nema ég og þótt hann þess verður
að halda honum á loft. Þeir ættu að
gefa sig fram ef einhverjir eru og
einnegin hinir ágætu viðmælendur
útvarpsþáttarins.
Á þeim kortum af virkjunarsvæði
Fljótsdalsvirkjunar, sem birt eru í
blöðum, er sýnt að Lagarfljót skuli
taka við Jökulsá á Brú/Dal og sel-
flytja hana um héruð til sjávar.
Þessi áætlun ber fáránleikasvip og
sætir gagnrýni. Það er ólíklegt að
Austfirðingar eða aðrir landsmenn
vilji raska Lagarfljóti.
Umhverfísmat
og ábyrgð
Ég hef vænst þess allt þetta ár
og einnig hið síðasta, að ríkisstjórn
og Landsvirkjun virði þjóðina og
landið - já ekki síst landið sjálft -
þess að láta fram fara víðtækt og
rækilegt umhverfismat vegna
Fljótsdalsvirkjunar og það ekki síð-
ur í byggðum en óbyggðum. Ekki
vegna fyiTnefnds útvarpsþáttar
sérstaklega, þótt mér sýnist sem
allt geti þar verið sagt með sanni,
heldur vegna þess, að það á að vera
Ijóst hverjum viti bomum manni,
að náttúrubylting eins og sú sem
áætluð er - að breyta Jökulsá á
Brú/Dal í bæjarlæk - hlýtur að
breyta náttúrufari þess lands sem
hún rennur um, bæði loftslagi,
gróðri svo og haflnu alveg í sömu
veru og vísindamenn lýstu fyrir
mörgum árum, hvað gerast mundi
ef Jökulsá á Fjöllum yrði numin
brott og virkjuð. Slíkt mundi
breyta loftslagi í þeim landshluta
og þ.a.l. landi og legi. Það er nálega
ósldljanlegt og ótrúlegt að nokkur
stjórnmálamaður eða stofnun vilji
skapa sér ábyrgð á þeim land-
níðsluaðgerðum og afleiðingum
sem nú eru í umræðu um allt land
og það án þess að gera tilraun til
óháðs umhverfismats. Enginn get-
ur vænst þess að menn treysti ein-
litu umhverfismati Landsvirkjunar,
sem er beinn aðili í málinu og
hyggst knýja fram virkjunaráform
sín samkvæmt 15-20 ára gammalli
heimild.
Það er alkunna, að stjórnmála-
menn og ýmsir opinberir starfs-
menn hafa komið sér upp kaup-
hækkunarvindu vegna ábyrgðar í
starfi. Það er jafnkunnugt að þeir
bera enga raunverulega persónu-
Virkjanir
í stórmálum eins og
virkjunarmálum er
stj órnmálamönnum
skylt, segir Ásgerður
Jónsdóttir, að sýna þá
ábyrgð að skoðast og
skyggnast vel um allar
gáttir áður en gengið
er fram.
lega ábyrgð pólitískra orða sinna
og gerða, þó að hún sé vel launuð,
enda er slíkt óframkvæmanlegt. En
í stórmálum eins og virkjunarmál-
um er þeim beinlínis skylt að sýna
þá ábyrgð að skoðast og skyggnast
vel um allar gáttir áður en gengið
er fram eins og segir í Hávamálum,
jafnvel þó að það taki mörg ár og
hverfa frá ef lífríki landsins er
stefnt til Heljar.
Ávinningshugsjónir
Umhyggja fyrir Austfirðingum
er uppsláttarhugsjón Fljótsdals-
virkjunar. Eru Austfirðingar bætt-
ari með það að fá eitt álver og
hljóta í staðinn limlesta náttúru -
bæði land og haf? Það er líka önnur
hugsjón á ferli. Það er hluta-
bréfagróði í álverinu. Það fer ekki
leynt í fjölmiðlum. Til þess að sú
hugsjón megi rætast og stóriðja á
Islandi fái áfram raforku á niður-
settu verði þarf að hækka hana ríf-
lega til almennings í landinu. Ætli
Austfirðingar verði bættari með
það fremur en aðrir landsmenn?
Vítt og breitt um ísland fyrir-
finnast kraumandi jarðhitasvæði.
Væri ekki vistvænlegra að nýta
orku úr iðrum lands en sökkva yfir-
borði þess? Það hefur þegar verið
gert með góðum árangri þar sem er
Nesjavallavirkjun. Samkvæmt um-
tali og fréttum er hún vistvænt fyr-
irtæki. Nú reynir á mannvit og holl-
ustu ráðamanna um val á virkjun-
arstefnu framtíðar. .
Höfundur er fv. kennari.
HAGNYTT STÆRÐFRÆÐINAM
Tilgangur námsins er aö undirbúa þátttakendur undir árangursrikt framhalds- og háskóla-
nám meö nýrri tækni. Farið er vandlega yfir öll mikilvægustu atriðin í námsefni framhalds-
skólans og nemendum kennt aö leysa verkefni og dæmi meö tölvu- og stærðfræðiforriti.
Sérstök áhersla er lögö á myndræna framsetningu og lausn á hverskyns jöfnum.
Tfmi: 2.-28. september, 72 kennslustundir
Vönduð námsgögn á íslensku - Vel menntaðir kennarar
Vertu með og tryggðu þér forskot
Nánari upplýsingar og skráning í SÍma 552 7200
Stærðfræði- og tölvuþjónustan
Brautarholti 4, Reykjavík.