Morgunblaðið - 19.08.1999, Síða 53

Morgunblaðið - 19.08.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 53 MINNINGAR JORUNDUR FINNBOGI GUÐJÓNSSON Jörundur Finn- bogi Guðjónsson fæddist í Kjörvogi í Árneshreppi í Strandasýslu 12. júní 1948. Hann lést í bflsiysi í Kaup- mannahöfn hinn 4. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kirlyu 16. ágúst. Á torgum margir tíðum reyna - að tala meira en hinir. En þegar menn geta þagað saman, þá eru menn vinir. (GD) Þegar óvænt er höggvið verður sársaukinn mikill og skarðið stórt. Að eiga mikið er því bæði erfitt og áhættusamt, þar sem missirinn verður þá svo þungbær. Að þekkja Jörund og eiga að góð- um vini og mági var svcj sannarlega þessarar áhættu virði. Ymsar minn- ingar, sem spanna 30 ár, koma í hugann, sumar fyndnar, aðrar sárar og allt litrófið þar á milli. Fyrstu ár- in var vináttan náin og vel ræktuð, þar sem svo til daglega var setið yf- ir kaffibolla í litlu risíbúðinni á Skólavörðustígnum og málin rædd fram og til baka, eða hlustað á tón- list, eða bara þagað saman. Stund- um tók Jörundur fram gítarinn, spilaði og raulaði með - já þessar stundir voru áhættunnar virði. Á þessu tímabili ræddi Jörundur stundum um að hann væri eirðar- laus og tími væri kominn til að taka ákveðna stefnu í lífinu. Stuttu seinna gerðist það síðan að hann kynntist stóru ástinni í lífi sínu, henni Rann- úu, og upp frá því gengu þau sam- stiga í gegnum lífið. Samband þeirra var svo fallegt og náið að ekki var annað hægt en taka eftir því. Það var samt ekkert stanslaus dans á rósum, frekar en í lífinu almennt. Þau náðu einstaklega vel að vinna úr sínu, þroskuðust saman sem eitt en gáfu jafnframt hvort öðru nægjan- Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.- is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem við- hengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-texta- skrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. legt svigrúm til að vera einstaklingar með eigin persónuleika. Jörandur hafði ýmis áberandi persónuein- kenni, m.a. var hann vel greindur og fljótur að sjá út hvað skipti máli, hvort sem það var í samskiptum eða verkefnum. Hann var nákvæmur og vand- virkur og átti það gjaman til - jafnvel í boðum - að sitja heil- lengi þögull, píra ann- að augað, horfa t.d. á dyrakarm, gólflista eða flísar og at- huga gæði vinnubragðanna. Meðan á þessum athugunum stóð var gjaman erfitt að ná sambandi við hann. Þetta skemmtilega sérkenni hefur Jörundur fengið frá föður sín- um og einkennir það einnig aðra bræður hans. I samskiptum var Jörundur mjög hreinn og beinn, hann sagði það sem hann meinti og meinti það sem hann sagði. Ymsum viðkvæmum gat stundum sámað, en einlægni hans, umhyggja og heil- indi voru þannig að viljandi særði hann engan og hann hafði afskap; lega hlýja og aðlaðandi nærveru. I íjölskyldunni var alltaf mikið tU- hlökkunarefni ef von var á Jörundi í gleðskapinn, með gítarinn sinn - þá leiddist engum. Þrátt fyrir að Jörundur væri hrókur alls fagnaðar, laðaði að sér ættingja, vini og vinnufélaga þá var hann frekar lokaður og dulur og flíkaði ekki því, sem inni fyrir bjó. Nálægt kjarnanum hleypti hann ekki mörgum, einstaka sinnum fékkst þó lykUlinn að láni - og fyrir það er þakkað af heilum hug. Með tUkomu Rannúu í líf Jörand- ar eignaðist hann þrjú fósturböm, síðan tengdaböm og bamabörn. Hann sinnti fjölskyldunni sinni af einstakri umhyggju og natni og ber- lega kom í ljós hve mikUl og einlæg- ur fjölskyldumaður hann var. Fyrir nokkrum árum stækkaði fjölskylda Jörandar enn tU muna þegar dóttir hans Ragnheiður kom tU sögunnar, börnin hennar og eiginmaður. Það er komið að leiðarlokum, fjöl- skyldan á Haðarstígnum kveður með söknuði og þakklæti. Við biðj- um góðan Guð að vera með Jörandi í nýjum heimkynnum, styrkja Rannúu og hennar fjölskyldu og aðra þá sem nú eiga um sárt að binda. Það sem Jörundur stóð fyrir og gaf var svo sannarlega áhætt- unnar virði - því það missir enginn mikið nema sem átt hefur mikið. Vilborg G. Guðnadóttir. INGIBJORG HALLDÓRSDÓTTIR + Ingibjörg Hall- dórsdóttir fæddist á Akureyri 29. október 1906. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Hlíð á Akureyri 3. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akureyrar- kirkju 12. ágúst. Því að hvað er það að deyja annað en standa nakinn í blænum og hverfa inn í sól- skinið? Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti ris- ið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns? Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagnarinnar, mun þekkja hinn volduga söng. Og þegar þú heftir náð ævitindinum, þá fyrst munt þú hefja fjallgönguna. Og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn. (Kahlil Gibran) Elsku amma okkar. Við eram 4 systkinin sem öll eigum einhverjar hlýjar og skemmtilegai- minningar um þig. Þú varst mjög bjartsýn kona og oft mættum við þér á rölti niðri í bæ og þá sáum við bjarta brosið þitt langar leiðir. En þú tókst ekki endilega eftir því að við voram að heilsa þér þar sem þú varst oft í þínum eigin heimi. Jólin í bamæsku era mjög tengd þér og afa, tilhlökkunin var mikil í okkur öllum þegar haldið var af stað með alla jólapakkana niður í Strandgötu 17 þar sem heimili ykkar var. Þar var oft mikið fjör og læti þótt hátíðleikinn hafi aldrei verið langt undan. Þá var beðið eftir að maturinn væri borinn fram og þvegið upp eða allt þetta sem gerir spennuna aðeins meiri þar til farið var að opna pakkana. Alltaf last Þú á merkimiðana og svo fengum við krakkamir að afhenda þá. Ekki má gleyma því að við sungum alltaf jólasöngvana við undirleik þinn og þá var vel tekið undir. Ekki má gleyma að minnast þess hvað þú varst alltaf dugleg að lesa bækur fyrir hann afa seinni árin þar sem hann sá hálfilla. Alltaf var gam- an að koma til ykkar í Strandgötuna og rabba svolítið við ykkur yfir mjólkurglasi og kökum sem þú hafðir gaman af að baka. Og ekki var amalegt þegar rétt var að manni bolsía eða lakkrís eins og amma kallaði þetta alltaf. Elsku amma, nú þegar við kveðj- um þig vitum við að þér líður vel þar sem þú ert. Magnús, Inga, Gunnhildur og Bryndís. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUNNLAUGS E. BRIEM. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar fyrir umhyggju og hjúkrun sem hann naut þar. Guðrún Briem, Þráinn Þórhallsson, Garðar Briem, Hrafnhildur Egilsdóttir Briem, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA ÓLAFSDÓTTIR frá Öxl, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði á morgun, föstudaginn 20. ágúst, kl. 13.30. Reimar Karlsson, Jóhannes Karlsson, Ingólfur Karlsson, Steinar Karlsson, Kristjana Karlsdóttir, Ólöf Karlsdóttir, Ólafur Karlsson, Kristlaug Karlsdóttir, Elín Karlsdóttir, Eiríkur Karlsson, Anna Karlsdóttir, Emilía Karlsdóttir, Guðrún Karlsdóttir, Sigurður Karl Karlsson, Galína Karlsson, Sigrún B. Jónsdóttir, Sigrún D. Jóhannsdóttir, Ester Halldórsdóttir, Guðmundur Einarsson, Vigfús Þór Jónsson, Þórhildur Richter, Anna Margrét Vésteinsdóttir, Einar Þór Þórsson, Ólafur Hjálmarsson, Þorvaldur Bjarnason, Ása Magnúsdóttir, Guðbjörg Baldvina Karisdóttir, Egill Þór Magnússon, barnabörn og langömmubörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir og mágkona, LÁRA BJÖRGVINSDÓTTIR, Gullengi 3, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 20. ágúst kl. 15.00. Jón S. Pálsson, Guðný Björk Atladóttir, Björgvin Atlason, Páll Arnar Jónsson, Áslaug Bima Einarsdóttir, Björgvin Magnússon, Björn Magnús Björgvinsson, S. Fanney Úlfljótsdóttir, Áslaug Björgvinsdóttir, Hafdís Björgvinsdóttir, Sigurður Reynaldsson, systkinabörn og aðrir aðstandendur. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR, Birkigrund 9b, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstu- daginn 20. ágúst kl. 15.00. Einar E. Sæmundsen, Helga Ásgeirsdóttir, Ólafur G.E. Sæmundsen, Guðrtður Þorsteinsdóttir, Vilhjálmur Einarsson, Sigurbjörg Magnúsdóttir, Jónína G. Einarsdóttir, Óli K. Ásgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegi drengurinn okkar, RAGNAR MÁR ÓLAFSSON, Tunguseli 3, sem lést af slysförum laugardaginn 14. ágúst, verður jarðsunginn frá Maríukirkju, Breiðholti, mánudaginn 23. ágúst kl. 13.30. Foreldrar, systkini og aðrir vandamenn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ESTERAR ÁSGEIRSDÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Svanhildur, Halldór, Anna, Stefania og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.