Morgunblaðið - 19.08.1999, Síða 60

Morgunblaðið - 19.08.1999, Síða 60
^61 FIMMTUDAGUR 19. ÁGIJST 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ I Akopian í heims- meistaraeinvígið SKAK Las Vegas HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í SKÁK 30. júlí-29. ágúst VLADIMIR Akopian (2.646) sigraði Michael Adams (2.705) örugglega í fjögurra skáka ein- vígi þeirra í undanúrslitum heimsmeistarakeppninnar í skák. Akopian dugðu þrjár skák- ir, en þá hafði hann fengið 2V2 vinning gegn hálfum vinningi Adams. Þar með er Akopian bú- inn að vinna sér rétt til þess að tefla í einvíginu um heims- meistaratitil FIDE. í hinu einvígi und- anúrslitanna er Alexander Khalifm- an (2.628) með vinn- ingsforystu á Liviu- Dieter Nisipeanu (2.584) sem verður að teljast maður þessarar keppni. Jafntefli varð í tveimur fyrstu skákunum, en Khal- ifman vann þá þriðju á sannfær- andi hátt. Reyndar missti Khalifman einnig af röktum vinningi í fyrstu skákinni í tímahraki. Það lítur því út fyrir að Khalifman verði loksins til þess að stöðva ótrúlega sigurgöngu Nisipeanu. Komi Nisipeanu ekki enn einu sinni á óvart verður því annað hvort Akopian eða Khalifman heimsmeistari FIDE. Akopian er nú í 36. sæti á stigalista FIDE og Khalifman er í 45. sæti. Nisipeanu er ekki meðal 100 efstu. Margir hafa tekið framvindu mála sem merki um að fyrirkomulag heimsmeistara- keppninnar sé óviðunandi til frambúðar. Það má þó ekki gleyma því að stigakerfi FIDE byggir á því að góð „blöndun" eigi sér stað milli skákmanna af mismunandi styrkleika. Undan- farin ár hefur hins vegar mynd- ast nokkurs konar klúbbur stigahæstu skákmanna sem tefla örsjaldan við skákmenn ut- an þess hóps. Það er því líklegt að breiddin á toppnum sé tölu- vert meiri en stigamunurinn þar gefur til kynna. VISA-lokamótið Ellefu umferðum af þrettán er nú lokið á VISA-stórbikar- mótinu í Danmörku. í tíundu umferð sigraði Helgi Áss Grét- arsson Helga Ólafsson, en Jón Viktor Gunnarsson tapaði fyrir Heikki Westerinen. í elleftu umferð gekk síðan allt á aftur- fótunum hjá íslensku þátttak- endunum. Helgi Áss fékk ágætt út úr byrjuninni gegn Tiger Hillarp Persson. Hann vann síð- an peð, en lék skákinni niður í tímahraki. Helgi Ólafsson fékk mjög góða stöðu gegn Sune Berg Hansen í byrjun tafls og síðan unna stöðu. Hann gat unn- ið á ýmsa vegu, en valdi ranga leið og tapaði skákinni eftir vafasama skiptamunsfórn. Jón Viktor Gunnarsson tapaði fyrir Einar Gausel. Mesta athygli í elleftu umferð vakti þó sigur Heikki Westerinen gegn Simen Agdestein. Baráttan um sigur á mótinu stendur á milli Sune Berg Han- sen og Tiger Hillarp Persson. Staðan á mótinu er þessi þegar tvær umferðir eru eftir: 1.-2. Sune Berg Hansen 8V2 v. 1.-2. Tiger Hillarp Persson 8‘/2 v. 3. Simen Agdestein 7/2 v. 4. Einar Gausel 7 v. 5. -6. Helgi Áss Grétarsson 6/2 v. 5.-6. Jonny Hector 6'/z v. 7. Heikki Westerinen 6 v. 8. Lars Schandorff 5V2 v. 9. -10. Helgi Ólafsson 5 v. 9.-10. Ralf Akesson 5 v. 11. Jón V. Gunnarsson 4’/2 v. 12. Nikolaj Borge 3 v. 13. Torbjorn R. Hansen 2 v. 14. Heini Olsen 1 /2 v. Heimsmeistaraeinvígi kvenna Nú stendur yfir heimsmeist- araeinvígi kvenna milli þeirra Xie Jun (Kína) og Alisa Galli- amova (Rússland). Einvígið hófst 30. júlí og því lýkur 23. ágúst. Fyrri hluti einvígisins var haldinn í Kazan í Tatarstan, en síðari hlutinn stendur nú yfír í Shen Yang í Kína. Tefldar eru sext- án skákir, átta á hvorum stað. Þegar keppninni í Kazan lauk var staðan jöfn, fjórir vinning- ar gegn fjórum. Xie Jun hefur hins veg- ar gengið betur í seinni hlutanum og hefur unnið tvær skákir, en ein skák- in endaði með jafn- tefli. Xie Jun hefur því tveggja vinn- inga forystu, 6‘/2-4y2. Kannski hefur heimavöllurinn sitt að segja, en einnig er hugsanlegt að snubbóttur endir á þátttöku Ivanchuks í heimsmeistara- keppni karla eigi einhvern þátt í versnandi gengi Galliamova. í stigalista FIDE er Galliamova nefnilega skráð sem Galliamova- Ivanchuk. Julian Hodgson breskur meistari Breski stórmeistarinn Julian Hodgson uppskar ríkulega þeg- ar hann sigraði á breska meist- aramótinu sem nýlega lauk í Scarborough. Þetta er í þriðja sinn sem Hodgson verður breskur meistari. Hann tryggði sér titilinn með stuttu jafntefli gegn Tony Kosten í síðustu um- ferð mótsins. Hodgson fékk níu vinninga í ellefu umferðum og varð vinningi fyrir ofan næstu menn. Röð efstu manna varð þessi: 1. Julian Hodgson 9 v. 2. -3. Peter Wells 8 v. 2.-3. Ziaur Rahman (Ban) 8 v. 4.-12. Jonathan Rowson, Matthew Tumer, Nigel Davies, Bodgan Lalic, Stuart Conquest, Anthony Kosten, Andrew Webster, Krishnan Sasikiran og Abhijit Kunte 7'A v. o.s.frv. Landsliðsflokkur Keppendalisti í landsliðsflokki á Skákþingi íslands liggur nú fyrir. íslandsmeistarinn, Hann- es Hlífar Stefánsson, verður meðal þátttakenda: 1. Hannes Hlífar Stefánsson 2. Helgi Áss Grétarsson 3. Þröstur Þórhalisson 4. Jón Viktor Gunnarsson 5. Jón Garðar Viðarsson 6. Róbert Harðarson 7. Sævar Bjarnason 8. Bragi Þorfinnsson 9. Sigurbjörn Bjömsson 10. Bergsteinn Einarsson 11. Bjöm Þorfinnsson 12. Davið Kjartansson Mótið hefst 31. ágúst í Faxa- feni 12. Taflið hefst klukkan 17 virka daga, en klukkan 14 um helgar. Frídagur er mánudaginn sjötta september, þannig að mótinu lýkur laugardaginn ell- efta september. Keppni í kvennaflokki fer fram á sama stað og hefst sama dag. Keppendafjöldi liggur ekki enn fyrir og þá ekki heldur um- ferðafjöldi. Daði Örn Jónsson Vladimir Akopian VELVAKAMH Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags „Hælbítar“ í MORGUNBLAÐINU 12. þ.m. ritaði hjúkrunar- fræðingur og lýsti „Sorg- legri sýn í Langadal". Sé rétt frá skýrt, er þetta ófögur sýn og unglingum til skammar. I upphafi greinarinnar segist hún hafa lagt leið sína árlega í Bása og gist þar. Sá ferðamaður sem ekki veit að Básar eru ekki í Þórs- mörk en heldur það, hann þarf að læra landafræði sína betur. Með þetta í huga, fer maður að líta á greinina í öðru ljósi. Ur því að ég er farinn að stinga niðr penna, kemur annað upp í hug minn. Það þótti heldur hvimleitt að heimsækja bæi, þar sem „hælbítar“ voru, en það vom hundar sem gjömmuðu og geltu að gestum og læddust að mönnum og glefsuðu í hæla þeirra, en hlupu síð- an gjammandi í felur. Óneitanlega minnir þetta mig á tiltekinn mann, sem hefur komið fram í fjöl- miðlum og „gjammað“ í nafni þekkts félags, án heimildar stjórnar þess. H.B. Ekki góð þjónusta KONA hafði samband við Velvakanda og vildi hún koma á framfæri er óá- nægju sinni með þjónustu Ibúðaleigunnar. Segir hún að það kosti 5000 kr. að komast á skrá hjá þeim en fyrir þann pening fái fólk takmarkaðar upplýsingar. Eins finnst henni síma- þjónustunni hjá þeim ábótavant. Finnst henni að fyrirtækið ætti að fá sér símsvara eða svara síman- um og eins mættu þeir út- búa lista fyrir viðskipta- vini eins og aðrar leigu- miðlanir gera. Ein í íbúðarleit. Tapað/fundið Þríkoss týndist GULLÞRÍKROSS týnd- ist fyrir u.þ.b. 10 dögum, gæti hafa verið í Heið- mörk eða einhvers staðar í bænum. Skilvís finnandi hafi samband í síma 568 1902. Fundarlaun. Hvítagullshringur týndist í maí HRINGUR úr hvítagulli með einum stórum glær- um steini týndist í maí sl. líklega í World Class eða í Garðabæ. Hringurinn hefur mikið tilfinninga- legt gildi fyrir eiganda og býður hann fundarlaun. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 893 0076 eða 897 9493. Svört taska týndist SL. föstudagskvöld í Þjóðleikhúskj allaranum týndist svört taska, axlar- taska með brunagati, í henni er grænt veski með skilríkjum. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 898 8844. Tveir hringir týndust um helgina TVEIR hringir, perlu- hringur og gullhringur með egglaga steini, týnd- ust líklega á Rex eða Astro sl. laugardagskvöld. Hringirnir hafa mikið til- finningalegt gildi fyrir eiganda. Þeir sem kann- ast við að hafa séð hring- ina hafi samband í síma 553 0788 eða 863 9316. Fundarlaun. Motorola GSM-sími týndist MOTOROLA GSM-sími týndist sl. þriðjudag lík- lega í Árbæjarhverfi. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 557 2801. Laxarotari merktur: „Úlfar" ÉG hef um nokkurt skeið verið með laxarotara, sem ég fann á árbakka. Lax- arotarinn er með kopar- skapti og hausinn er holur og hægt að skrúfa skaptið af og hella koníaki í haus- inn. I hausinn er grafið „Úlfar“ og trúi ég að það sé nafn eigandans. Har- aldur Blöndal, sími 551 1733. Lyklakippa í óskilum LYKLAKIPPA með mjög sérstökum lyklum Dýrahald Vaka er týnd SIAMS kisan á myndinni hér fyrir ofan hvarf frá Arnarsmára 16, Kópavogi, þann 16. ágúst sl. Vaka er ljós drapplituð símans kisa með brúnt skott og brún í framan. Hún er með fjólubláa hálsól en ómerkt og hlýðir nafninu Vaka. Hennar er sárt saknað af Skottu vinkonu sinni og annarra fjöl- skyldumeðlima. Vinsam- lega látið vita í síma 554 6878 eða 8961932 ef að sést hefur til hennar eða hún fundist. Fundar- laun. Högni fæst gefins ÞRIGGJA mánaða kassa- vaninn högni, svartur með hvítar hosur, fæst gefins. Upplýsingar í síma 588 7890. Fress vantar heimili FJÖGURRA mánaða fresskettlingur, kelinn og kassavanur, óskar eftir nýju heimili strax vegna fannst fyrir 3 vikum. Upplýsingar hjá Stefaníu í síma 557 4097 eftir kl. 17. Motorola GSM-sími týndist MOTOROLA GSM-sími týndist sl. þriðjudag lík- lega í Árbæjarhverfi. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 557 2801. ofnæmis eiganda. Upplýs- ingar í síma 557 2064. Heimsendingarþj ónusta. Gulur fress týndist í Garðabæ GULUR fress, geltur og eymamerktur, týndist frá Lækjarfit í Garðabæ en átti heima á Móaflöt og gæti hann hafa leitað heim aftur. Þeir sem hafa orðið varir við hann láti vita í síma 897 2221 og 565 4643. Kisa vantar heimili FRÍSKUR og fjörugur fress (með eitt auga) vant- ar ástríkt heimili. Upplýs- ingar í síma 587 7252. Víkverji skrifar... FRÓÐLEGT verður að sjá hver niðurstaða verður í máli sem sveitarfélagið Árborg ætlar að höfða fyrir Félagsdómi gegn BSRB vegna uppsagna leikskóla- kennara sem starfa hjá sveitarfé- laginu. Algengt hefur verið á seinni árum að hópar opinberra starfs- manna, aðallega kennarar og starfsmenn í heilbrigðisstétt, hafa beitt uppsögnum í kjarabaráttu. Löngu tímabært er að látið verði reyna á lögmæti þessara uppsagna fyrir Félagsdómi. Stéttarfélög starfsmanna sem notað hafa þessa baráttuaðferð hafa lagt áherslu á að koma ekki nálægt þessum uppsögnum með beinum hætti. Forystumenn félag- anna forðast að koma fram sem talsmenn þeirra sem sagt hafa upp, en vísa á starfsmennina sjálfa. Lík- ast til hafa forystumenn stéttarfé- laganna litið svo á að með því að fjarlægja sig uppsögnunum firri þeir félagið ábyrgð af henni. Vík- verji tók eftir því að þegar rætt var við formann Félags íslenskra leik- skólakennara um málshöfðun Ár- borgar sagðist hann ekkert hafa vitað um uppsagnirnar fyrirfram og fyrst frétt af þeim í fjölmiðlum. Búast má við að í Félagsdómi verði að einhverju leyti tekist á um ábyrgð stéttarfélaganna í þessu máli og hvort Félagsdómur sættir sig við þær óskrifuðu reglur sem félög opinberra starfsmanna hafa farið eftir þegar hópar hafa sagt upp vegna óánægju með laun. XXX SYNT er að vegalagning yfir Vatnaheiði á Snæfellsnesi á eftir að verða umdeild, en nýlega óskaði Skipulagsstofnun eftir frekara mati á áhrifum vegarins og framkvæmdanna við lagningu hans á umhverfið. Sérstaða svæð- isins liggur í því að þar er stórt ósnortið mýrlendi. Á seinni árum hafa menn verið að vakna til vit- undar um að landsmenn hafa stór- skemmt mýrar- og votlendissvæði landsins. Þetta hefur komið niður á fuglalífi, sem sést best á því að sá merkilegi fugl, keldusvínið, er hættur að verpa á íslandi. Ástæð- an er sú að varpsvæðum hans hef- ur verið spillt með framræslu mýra. Ástæðan fyrir áhuga íbúa á Snæfellsnesi á því að leggja veg um Vatnaheiði er sú að vegarstæð- ið þykir betra heldur en vegurinn yfir Kerlingaskarð. Þó Vatnaheið- in sé lægri en Kerlingaskarðið tel- ur Veðurstofan að vegurinn muni lokast álíka oft vegna veðurs og snjóa og Kerlingaskarðið. Kostn- aður við lagningu vegar yfir Vatnaheiði er hins vegar heldur lægri en uppbygging nýs vegar yf- ir Kerlingaskarð. xxx DEILUR um veg um Vatnaheiði minna Víkverja dálítið á harð- vítugar deilur um lagningu Borgar- fjarðarbrautar. Þár var upphaflega lagt til að leggja ódýrari veg um betra vegarstæði, en það hefði kostað að jörð bóndans á Stóra- Kroppi hefði verið stórlega spillt. í því máli beitti Sturla Böðvarsson alþingismaður sér fyrir lausn sem fól í sér að gamli vegurinn var í meginatriðum endurbyggður. Nú er Sturla orðinn samgönguráð- heira og verður fróðlegt að sjá hvort hann lætur sömu sjónarmið ráða ferðinni nú og þegar hann beitti sér fyrir lausn deilurinnar um lagningu Borgarfjarðarbrautar. Auk þess má spyrja hvort þörf er á að leggja fjóra vegi yfir Snæfells- nes, en hægt er að fara þrjár leiðir yfir nesið í dag, um Fróðárheiði, Kerlingaskarð og Heydal.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.