Morgunblaðið - 01.09.1999, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þjóðleikhúsið
Hilmir Snær
leikstýrir
Gullna hliðinu
Verkefnaskrá
Þjóðleikhússins á
afmælisári þess
verður kynnt í
dag. Þegar hefur
komið fram að
nýtt leikrit eftir
Hrafnhildi Haga-
lín Guðmunds-
dóttur verður á
verkefnaskrá og
einnig verður nýtt
barnaleikrit eftir
Magnús Scheving
og Sigurð Sigur-
jónsson á dag-
skrá.
Jólasýning leik-
hússins verður
Gullna hliðið eftir Davíð Stef-
ánsson í leikstjórn Hilmis
Snæs Guðnasonar.
Mikil áskorun að
takast á við
Hilmir Snær hefur ekki
leikstýrt áður við Þjóðleik-
húsið en hefur um nokkurra
ára skeið verið í hópi fremstu
yngri leikara hússins og leik-
ið hvert stórhlutverkið af
Hilmir Snær
Guðnason
öðru. Frumraun
hans við leik-
stjórn var í Nem-
endaleikhúsinu nú
í vor er hann
stjórnaði uppsetn-
ingu á Krákuhöll-
inni eftir Einar
Orn Gunnarsson.
Hilmir sagði í
samtali við Morg-
unblaðið að stutt
væri siðan ákveð-
ið hefði verið að
hann leikstýrði
Gullna hliðinu.
„Þetta er stórt
verkefni og mikil
áskorun að takast
á við, en annars er ég rétt að
byrja að velta þessu fyrir
mér. Það er vissulega stórt
stökk að fara beint upp á
stóra svið Þjóðleikhússins
með jólasýninguna en ég býst
við að Ieikhússtjórinn hafi
talið að ungur leiksljóri
myndi nálgast verkið með
nýjar hugmyndir. Ég hlakka
til að takast á við þetta,“
sagði Hilmir Snær.
íslenska sjávarútvegssýningin 1. til 4. september
Umfang sýningar-
innar aldrei meira
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra opnar formlega íslensku
sjávarútvegssýninguna í Smáranum
í Kópavogi klukkan 10 árdegis í
dag. Sýningin hefur verið haldin á
þriggja ára fresti frá 1984 og ávallt í
Laugardalshöll þai- til nú.
Sýningin er um 45% meiri að um-
fangi en fyrir þremur árum, að sögn
Johns Legates, sem hefur verið
framkvæmdastjóri hennar frá upp-
hafí, en eigandi sýningarinnar er
breska útgáfu- og sýningarfyrir-
tækið Nexus Media Limited. Heild-
arsýningarsvæðið hefur aldrei verið
eins stórt, en svæðið undir þaki í
Smáranum er um 13.000 fermetrar.
Þar er um að ræða íþróttahúsið
Smárann, tennishöllina og þrjá inn-
flutta skála sem eru samtals um
6.000 fermetrar að stærð. Auk þess
er svæðið á milli mannvirkjanna
nýtt til hins ýtrasta. Árið 1996
sýndu 699 fyrirtæki frá 28 löndum á
sýningunni en nú eru þau hátt í 900
frájfö þjóðum auk íslands.
Útbúin hafa verið um 2.000 bíla-
stæði auk þeirra sem fyrir voru.
Gert er ráð fyrir um 1.000 til 2.000
gestum frá útlöndum og vonir
skipuleggjenda standa til að sýning-
argestir verði alls 17.000 til 20.000.
„Þetta er stærsta sýning, sem hald-
in hefur verið á íslandi," segir Ellen
Ingvadóttir, fjölmiðlafulltrúi sýn-
ingarinnar, en allt gistirými á höf-
uðborgarsvæðinu var nánast
Morgunblaðið/Árni Sæberg
í gær var unnið að því hörðum höndum að gera allt tilbúið fyrir opnun
Islensku sjávarútvegssýningarinnar í Smáranum í Kópavogi.
upppantað fyrir nokkru vegna sýn-
ingarinnar.
Sýningin stendur yfir 1. til 4.
september og verður opin klukkan
10 til 18 alla dagana.
Úr verinu í dag er helgað Sjávar-
útvegssýningunni. Þá verða skrifað-
ar fréttir af sýningunni meðan hún
stendur yfír á Fréttavef Morgun-
blaðsins.
■ Sjávarútvegssýningin/D-blað
*
Islandsbanki
með 693
milljónir
í hagnað
HAGNAÐUR íslandsbanka hf. nam
693 milljónum króna að teknu tilliti
til reiknaðra tekju- og eignarskatta
fyrstu sex mánuði ársins 1999, en
var 596 milljónir króna að teknu til-
liti til skatta á sama tímabili árið
1998. Hagnaður er því 97 milljónum
króna rneiri en á sama tímabili í
fyrra. Vaxtamunur bankans var
3,6% og hækkaði um 0,1% milli ára.
Hagnaður fyrir skatta var 751 millj-
ón króna, sem er 110 milljóna króna
aukning frá sama tímabili í fyrra.
Arðsemi eigin fjár var 22,9% en var
21,9% í fyrra.
Framlag í afskriftarreikning út-
lána nam 325 milljónum króna á móti
449 milljónum króna á sama tíma í
fyrra. Hlutfall þess af heildarfjár-
magni Iækkaði því úr 0,9% í 0,5% og
er þetta lægsta framlag í sögu bank-
ans.
Viðskipti með hlutabréf í íslands-
banka á Verðbréfaþingi íslands í
gær námu 111 milljónum króna og
lækkaði gengi þeirra um 3,8%, úr
4,50 í 4,33.
■ Islandsbanki hagnast/24
Hið nýja varðskip íslendinga verður mun stærra en þau sem nú eru í notkun.
Hönnun nýs varð-
skips komin á lokastig
HÖNNUN nýs varðskips liggur nú
fyrir í aðalatriðum, en skipið verður
105 metra langt, um 3.000 brúttó-
rúmlestir og með 29 manns í áhöfn.
Þetta kemur fram á minnisblaði
Sólveigar Pétursdóttur dómsmála-
ráðherra sem hún lagði fram á rík-
isstjórnarfundi í gær.
Til samanburðar er yngsta núver-
andi varðskip íslendinga, Týr, 1.300
brúttórúmlestir og 71 metri að
lengd, en það var byggt fyrir 25 ár-
um. Samkvæmt minnisblaði ráð-
herra hefur meðalstærð íslenskra
fiskiskipa tvöfaldast á þessum tíma
og meðalstærð flutningaskipa
margfaldast. Þvi þykir nauðsynlegt
að stækka varðskipin svo þau geti
aðstoðað flotann.
Fjölnota skip
Hið nýja varðskip verður fjölnota
skip, þar sem m.a. verður góð að-
staða fyrir vísindarannsóknir. Skip-
ið á að geta flutt rúmlega 200
manns í neyðartilvikum og á því
verður einnig góður útbúnaður til
að þjónusta þyrlur Landhelgisgæsl-
unnar.
Gert er ráð fyrir að unnið verði
að nokkrum útfærsluatriðum varð-
andi hönnun skipsins síðar á þessu
ári og á því næsta, en búist er við
að það verði afhent árið 2001 og
muni kosta rúma tvo milljarða
króna.
Skákþing Islands
Ekkert
jafntefli
1. umferð
*
1
SKÁKÞING íslands hófst í
húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur í Faxafeni 12 í
gær. Tólf keppendur eru í
karlaflokki, þar af þrír stór-
meistarar, en í kvennaflokki
eru keppendur sex.
Úrslit í 1. umferð urðu þau
að Jón Viktor Gunnarsson
sigraði Braga Þorfinnsson,
Helgi Áss Grétarsson sigraði
Sigurbjörn Björnsson, Jón
Garðar Viðarsson sigraði
Björn Þorfinnsson, Hannes
Hlífar Stefánsson sigraði Dav-
íð Kjartansson og Róbert
Harðarson sigraði Bergstein
Einarsson. Einni skák var
ólokið þegar blaðið fór í prent-
un, en það var skák Sævars
Bjarnasonar og Þrastar Þór-
hallssonar. Var staðan í skák-
inni geysilega tvísýn.
í kvennaflokki sigi’aði
Harpa Ingólfsdóttir Steinunni
Kristjánsdóttur, Aldís Rún
Lárusdóttir sigraði Önnu
Margréti Sigurðardóttui' og
Anna Björg Þorgrímsdóttir og
Ingibjörg Edda Birgisdóttir
skildu jafnar.
Skákþingið stendur þar til
11. september og hefst keppni
klukkan 17 á virkum dögum
en klukkan 14 um helgar. I
dag hefst keppni hinsvegar
ekki fyrr en klukkan 18 vegna
jarðarfarar Dans Hanssonar
skákmanns.
Sérblöð í dag fHiQVflHnMaiþitfo
HÁLFUR MÁNUÐUR AF
DAGSKRÁ FRÁ MIÐVIKUDEGI
TIL ÞRIÐJUDAGS.
m sfewi
4 Sfe)ffi
m §ftu m
toÓHR
'iHiw.ftvmVln'Mii
► Úr verinu í dag er helgað íslensku
4 Sfe) !ii
Bikarinn í
höfn hjá KR-
stúlkum
Blikar af |20. alþjóða-
botni efstu | rallið á Is-
deildar • landi
B1
B2 B4
sjávarútvegssýningunni sem hefst í dag
í Smáranuni í Kópavogi. Er þetla stærsta
sýning sem haldin hefur verið hér á
landi.
Pennavinir
Safnarar