Morgunblaðið - 01.09.1999, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Glímt við lax í Tinnudalsá á Breiðdal.
Irskur bú-
svæðasér-
fræðingur
skoðaði
Elliðaárnar
Martin O’Grady t.h. og Orri Vigfússon
við Elliðaárnar.
NÝLEGA var staddur hér á landi
írinn Martin O’Grady, sem að sögn
Orra Vigfússonar formanns Norður
Atlantshafslaxasjóðsins, er einn
fremsti sérfræðingur í Evrópu á
sviði búsvæða vatnafiska.
„Martin kom hingað til lands í
boði NASF og hann ferðaðist með
mér um landið og skoðaði margar
ár, m.a. Elliðaámar. Hann leit
einnig á Langá og síðan árnar á
Norðausturhorninu, allt frá Laxá í
Aðaldal og til Vopnafjarðar. Hann
skoðaði m.a. Hafralónsá ítarlega.
Það hefur þegar reynst gagnlegt að
fá ráðgjöf Martins, hann hefur
gaukað að okkur ýmsum góðum
ráðum og hann er að vinna úr gögn-
um sem hann hafði með sér heim.
Þá mun hann koma aftur af og til
næstu 2-3 árin og ég bind miklar
vonir við starf hans hér á landi,“
sagði Orri í samtali við Morgunblað-
ið.
65.000. laxinn
Það gekk eftir, að 65.000. laxinn
frá leigutöku Laxárfélagsins á
drjúgum hluta Laxár í Aðaldal árið
1941, var dreginn á þurrt um helg-
ina. Það var ungur veiðimaður,
Breki Karlsson, sem veiddi þennan
tímamótalax, 6 punda hæng í Heið-
arendaflúð á fluguna Draumadís
númer átta. Laxinn var duglegur,
auk þess sem Breki gaf sér góðan
tíma og laxinum var ekki landað
fyrr en eftir 45 mínútna glímu.
Breki verður heiðraður sérstaklega
í vertíðarlok af Laxárfélaginu, en
ekki er búið að ákveða enn í hverju
sú heiðrun verður fólgin.
Sporðaköst
Áhugamenn um stangaveiði og
náttúruskoðun geta vænst nýrrar
syrpu af veiðiþáttunum „Sporða-
köst“ á Stöð 2 næsta vor, en um-
sjónarmaður þeirra þátta, Eggert
Skúlason fréttamaður, hefur verið á
Stígar frá Starlight og
áltröppur firá Beldray
fást í öllum stæröum
í byggingavöruverslunum
um allt land
DREIFINGARAÐILl
Sfmi: 533-1999, Fax: 533-1995
ferð vítt og breitt um landið frá
hásumri við tökur. Eins og vant er,
verða sex þættir í syrpunni og sagði
Eggert í samtali að fyrst um sinn
yrði þagað um það hverjir væru
gestir í viðkomandi þáttum. Það má
þó geta þess, að einn þáttur er frá
Miðfjarðará, annar frá Grímsá og sá
þriðji frá Amarvatnsheiði. Einn
þáttur er frá Þverá í Borgarfirði, en
síðan eru tveir þættir um ónafn-
greinda veiðimenn og þá er farið
vítt og breitt um landið. I öðru til-
vikinu er þó mest staldrað við á
bökkum Laxár í Kjós. Þótt Eggert
vildi ekki nefna gestina, upplýsti
hann að mörg góð skot hefðu náðst,
m.a. skot ofan af Miðbergi við Lax-
foss í Grímsá, þar sem lax tekur sig
út úr torfu til að næla sér í flugu
sem sveimar skammt frá. Og annað
þar sem kvikmyndatökuvélin er í
„búrinu“ neðan vatnsborðs og nær
því er lax tekur sig til og eltir flugu
sem rákar yfirborðið með gáru-
hnúti.
Fréttir héðan og þaðan
A sunnudaginn voru komnir 102
laxar á land úr Fáskrúð í Dölum
sem er minna en menn höfðu vænst.
Að sögn Eiríks St. Eiríkssonar, ár-
nefndarmanns við ána, hefur vatns-
leysi háð aflabrögðum. Dæmi um
það væri, að einn besti veiðistaður
árinnar til margra ára, Laxahylur,
er svo vatnslaus að enginn lax hefur
lagst þar í sumar. „Það hefur nán-
ast ekkert rignt í Dölunum lungann
úr sumrinu. Frændur mínir voru í
Laxá í Dölum fyrir skömmu og þar
var dauft, hollið fékk aðeins 8 laxa
og það voru komnir eitthvað um eða
yfir 500 laxar úr ánni.
Rétt yfir 400 laxar hafa veiðst í
Leirvogsá og stefnir í að hún verði
með mestu meðalveiðina á stöng á
íslandi í sumar. Þann sess hefur
Laxá á Asum skipað til margra ára,
en aflinn í þeirri verstöð er nú
áþekkur, en betur gengur í Leir-
vogsá og því góður möguleiki að
hún endi með meiri afla.
Þá hefur heyrst að eitthvað hafi
rofað til á Iðunni síðustu daga. Einn
dagurinn gaf 7 laxa og annar 6 laxa.
Þetta er svo sem ekki mikið á mæli-
kvarða umrædds veiðistaðar, en at-
hyglisvert miðað við ördeyðuna sem
verið hefur megnið af sumrinu.
Bresk-íslenska verslunarráðið
Verslunar-
samskipti
fara vaxandi
Magnús Gunnarsson
HLUTVERK þess
er að efla sam-
skipti og við-
skiptatengsl milli þeirra
aðila sem eiga viðskipti
milli landanna. Félagar
eru í dag um 200 fyrir-
tæki úr öllum greinum
atvinnulífsins og skiptast
þau nokkuð jafnt á milli
landanna. Framkvæmda-
stjóm félagsins er í
höndum Verslunarráðs
Islands en auk þess er
viðskiptafulltrúinn í
sendiráði Islands í Bret-
landi í hlutastarfi hjá ráð-
inu.“
- Hvers konar fyrir-
tæki eru það helst sem
eigafulltrúa í félaginu?
„011 fyrirtæki sem eiga
í samskiptum við Bret-
land, bæði inn- og út-
flutningsfyrirtæki og fyr-
irtæki sem eiga í samskiptum
við Bretland á ýmsum öðrum
sviðum, svo sem flugfélögin,
hugbúnaðarfyrirtæki og fyi-ir-
tæki í fjármálastarfsemi."
-Hvað var helst á dagskrá
aðalfundarins?
„Á aðalfundinum, sem haldinn
var á Hótel Sögu, var ávarp for-
seta íslands, herra Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, og tvær fram-
söguræður, annars vegar um af-
stöðu Breta til sjávarútvegs-
stefnu Evrópubandalagsins, það
erindi flutti Steven J. Norton, og
hins vegar markaðssetning Is-
lands í Bretlandi, sá sem flutti
það erindi var Steinn Logi
Björnsson, framkvæmdastjóri
hjá Flugleiðum."
- Þetta er tveggja ára gamait
félag, hvað hefur á daga þess
drifiðístórum dráttum?
„Til þess að ná fram markmiði
sínu stendur ráðið fyrir reglu-
legum fundum um ýmis málefni,
þannig voru t.d. á þessu ári
haldnir tveir morgunverðar-
fundir, annar með Gary Titley,
breskum Evrópuþingmanni um
Bretland og evruna, og hinn
með Terry Brown, frá alþjóða-
ráðgjafafyrirtækinu Deloitte &
Touche, sem fjallaði um skatta-
mál fyrirtækja í alþjóðlegum
rekstri. Aðalfundir hafa verið
haldnir til skiptis í London og
Reykjavík.“
- Fara viðskiptatengsl vax-
andi milli íslands og Bretlands?
„Já, þau fara vaxandi og áhugi
er á aukinni starfsemi. Bresk-ís-
lenska verslunarráðið
er stærsta millilanda-
verslunarráðið innan
vébanda Verslunar-
ráðs íslands. Ráðið
hefur sérstaka heima-
síðu undir heimasíðu Verslunar-
ráðs íslands (www.chamber.is).
Þar er hægt að finna upplýsing-
ar um félaga í Bresk-íslenska
verslunarráðinu og hægt að
tengjast beint heimasíðu þeirra.
Félagamir, sérstaklega þeir
bresku, eru duglegir við að nýta
sér þann upplýsingabanka sem
félagatalið er, í leit að nýjum
viðskiptatengslum. Bresk-ís-
lenska verslunarráðið gefur út
fréttabréf nokkrum sinnum á ári
og hefur tekið á móti viðskipta-
sendinefndum frá Bretlandi til
íslands og tekið þátt í slíkum
sendinefndum frá Islandi til
Bretlands. Síðast en ekki síst
►Magnús Gunnarsson er fædd-
ur í Reykjavík 6.9. 1946. Hann
lauk stúdentsprófí frá Verslun-
arskóla fslands 1967 og við-
skiptafræðiprófi frá Háskóla
Islands 1971. Hann hefur starf-
að sem kennari við Verslunar-
skólann, sem framkvæmda-
stjóri Arnarflugs 1976 til 1981,
í stuttan tfma var hann aðstoð-
arframkvæmdastjóri Olíufé-
lagsins, siðan framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambands-
ins. Framkvæmdastjóri SÍF var
hann til 1993, þá stofnaði hann
eigið ráðgjafafyrirtæki, sem
hann hefur rekið siðan. Magnús
er kvæntur Gunnhildi Gunnars-
dóttur snyrtifræðingi og eiga
þau tvö böm, Aðalheiði og
Gunnar Kristin.
veitii’ skrifstofa ráðsins félags-
mönnum almennar viðskipta-
upplýsingar."
- Hverjir eru ykkar sam-
starfsaðilar?
„Almennt á ráðið mjög gott
samstarf við breska sendiráðið á
íslandi og við sendiráð íslands í
Bretlandi. Þá er ráðið aðili að
samtökum breskra verslunar-
ráða í Evrópu (COBCOE), og
eins og fyrr sagði er aðalskrif-
stofa ráðsins hjá Verslunarráði
íslands og nýtur Bresk-íslenska
verslunarráðið góðs af þeirri
þekkingu sem Verslunarráð ís-
lands hefur byggt upp á þessu
sviði gegnum tíðina. I því sam-
bandi má segja frá því til gam-
ans, að á morgun, 2.
september, í sam-
vinnu við Verslunar-
ráðið og önnur milli-
landa-verslunarráð,
stendur Bresk-ís-
lenska verslunarráðið fyrir golf-
móti í Reykjavík, en mikill áhugi
virðist vera meðal félaganna á
þeirri íþrótt. Fjöldi félagsmanna
sýnir tvímælalaust að það er
þörf fyrir slíkan sameiginlegan
vettvang fyrir þá aðila sem eiga
í viðskiptum milli landanna. Ný
stjórn hefur sett sér að halda
áfram því öfluga starfi sem átt
hefur sér stað á liðnum tveimur
árum og hvetur alla þá sem ekki
eru enn félagar að skrá sig í
Bresk-íslenska verslunarráðið.
Þess má geta að félagsgjöldum
hefur verið haldið í lágmarki,
þau eru einungis 100 bresk
pund á ári.“
Áhugi er á
aukinni
starfsemi