Morgunblaðið - 01.09.1999, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
það eitt að ávaxta okkar pund með
bankanum en engin önnur undir- I
liggjandi sjónarmið réðu fjárfest-
ingunni."
Eyjólfur segir val mannanna
ekki byggjast á tengslum við hlut-
hafahópana fjóra sem standa að
Orca S.A. „Gunnar Þór Ólafsson
varamaður er aðili að félaginu en
er þó fyrst og fremst valinn út frá
innsýn sinni í viðskipti. Hann situr |
í stjórnum ýmissa stórfyrirtækja
og sama má segja um Jón Ingvars-
son. Þessir menn hafa víðtæka '
reynslu úr viðskiptalííinu og við
vildum fá þá til liðs við okkur. Kri-
stján Þór hefur bæði setið í stjórn-
um fyrirtækja og stýrir einu
stærsta bæjarfélagi landsins og
nýtur almennrar virðingar og
trausts. Þorvarður hefur bæði
komið að fyrirtækjarekstri og ver-
ið skólastjóri Verslunarskólans
lengi. Hann hefur mikla innsýn í ís-
lenskt viðskiptalíf og kemur þannig
að málinu.“
Sljórnarmenn bjartsýnir
á framtíðina
Jón Ingvarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður SH, var kosinn í
stjórn FBA fyrir hönd Orca S.A.
„Eg lít á það sem áhugavert verk-
efni að taka þátt í því uppbygging- .
arstarfi sem þarna á sér stað,“ seg-
ir Jón. Hann segir þá orrahríð sem
staðið hefur um kaup Orca S.A. á |
hlut í FBA ekki til að bæta stöð-
una. „Það er ákaflega mikilvægt
fyrir eigendur bankans að það
skapist ró og friður um bankann og
ég vona svo sannarlega að svo
verði.“ Jón segist ekki geta sagt til
um hvort kjör nýrrar stjórnar
breyti einhverju í stefnu bankans.
„Það er svo skammt um liðið að ég |
hef engar forsendur til að svara
því. Ég hef ekkert sérstakt í huga
varðandi framtíð bankans því ég *
þekki félagið lítið. Ég vona að þetta
verði spennandi verkefni fyrir
stjórnina að fást við. FBA er
áhugavert fyrirtæki sem hefur
gengið vel og margir hæfir menn
eru innan bankans."
Kristján Þór Júlíusson, annar
maður Orca S.A. í stjórn FBA, var
ekki staddur á hluthafafundinum
og vildi ekki tjá sig um niðurstöð-
una að sinni. Þorvarður Elíasson,
varamaður Kristjáns Þórs, segist
ekki tengdur Orca S.A. á neinn
hátt en hafa orðið við beiðni stjórn-
armanna Orca S.A. vegna áhuga.
„Ég hef áhuga á að taka þátt í að
leiða FBA á sléttan sjó. Allir hlut-
hafar FBA eiga þar mikilla hags-
muna að gæta.“
Friður skapist innan
stjórnarinnar
Þorsteinn Ólafsson, stjórnarfor-
maður FBA, segist munu beita sér
fyrir því innan stjórnarinnar að
friður skapist um starfsemi bank-
ans. „Ég hef enga ástæðu til að
halda annað en að slíkur friður ríki.
Ég tel það mjög mikilvægt að hlut-
hafar og allur almenningur skynji
það að áfram verður unnið í sama
anda innan bankans og verið hefur. «
Ég tel að stjórnin muni vinna vel
saman, þeir einstaklingai- sem
kjörnir voru í dag eru vel til þess %
hæfír og hafa það viðhorf að vinna
af heilindum að framgangi bank-
ans,“ segir Þorsteinn.
Hann segir niðurstöðu stjórnar-
kjörsins mjög heppilega fyiir FBA
en telur ekki æskilegt að bera hana
saman við niðurstöðu sem hugsan-
lega hefði getað orðið ef eigendur
Orca S.A. hefðu sjálfir gefið kost á
sér í stjórn. Næsti stjórnarfundur
Fjárfestingarbankans er fyrirhug-
aður í september, að sögn Þor- ^
steins. „Fyrsta mál er að kynna
málefni bankans fyrir nýjum
stjórnarmönnum svo þeir séu bet-
ur í stakk búnir til að taka þátt í
stjórnarstarfi þegar fyrsti fundur
verður boðaður."
Bjarni Armannsson, forstjóri
FBA, segist mjög sáttur við niður-
stöðu kjörsins. „Ég er ánægður ;
með að niðurstaða er fengin. Mér ]
líst vel á þessa menn og trúi því að
þeir eigi eftir að vinna félaginu
gagn og stuðla að framgangi þess.“
Eyjólfur Sveinsson, stjórnarformaður Orca S.A., að loknu
stjórnarkjöri í stjórn Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
„Vildum sýna að
hugur fylgdi máli“
A hluthafafundi í
Fj árfestingarbanka
atvinnulífsins, sem
haldinn var í gær, voru
Jón Ingvarsson, fyrr-
verandi stjórnarfor-
maður Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, og
Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri á Akureyri,
kosnir í stjórn bankans
fyrir hönd Orca S.A.
MEIRIHLUTA stjórnar
FBA fyrir hönd ríkis-
sjóðs skipa eftir sem
áður Þorsteinn Ólafs-
son stjórnarformaður, Magnús
Gunnarsson varaformaður og Örn
Gústafsson. Stjórnarformaður
Orca S.A., Eyjólfur Sveinsson, fór
á fundinum fram á að margfeldis-
kosning yrði viðhöfð og var sú
beiðni samþykkt af Þorsteini
Geirssyni, formanni atkvæðanefnd-
ar ríkissjóðs.
Atkvæðanefnd ríkissjóðs lagði á
fundinum fram tillögu um fimm
stjómarmenn. „Það eru fimm
menn í stjóm FBA, við lögðum
fram lista með nöfnum fimm
manna, enda lá ekkert samkomu-
lag fyrir um annað. Ef enginn hlut-
hafi hefði komið fram með tillögu
hefði sá listi orðið sjálfkjörinn."
Þorsteinn segist ekki hafa vitað
fyrir víst hvort önnur tillaga um
stjórnarmenn kæmi fram á fundin-
um. „Orca S.A. gaf ekkert uppi um
það fyrirfram mér vitanlega hvort
lögð yrði fram tillaga um stjómar-
menn eða hve margir yrðu til-
nefndir,“ segir Þorsteinn. Auk
hans skipa atkvæðanefnd ríkis-
sjóðs þeir Þorgeir Örlygsson, Ki’i-
stján Skarphéðinsson, Kristján
Ragnarsson og Haraldur Sumar-
liðason.
Fundarstjóri á hluthafafundin-
um var Ásgeir Thoroddsen hrl. og
lýsti hann fundinn lögmætan.
Hann gerði fundarmönnum grein
fyrir mætingu en fulltrúar 73 hlut-
hafa vora mættir, með 85,581% af
atkvæðamagni félagsins.
í samþykktum FBA kemur fram
að boða verði til hluthafafundar
berist ósk þess efnis frá hluthöfum
sem ráða yfir a.m.k. 1/10 hluta
hlutafjár bankans. Orca S.A. ræður
nú yfír 28% hlutafjár í bankanum
og af hálfu félagsins var á fundin-
um lögð fram tillaga um tvo stjórn-
armenn ásamt varamönnum, þá
Kristján Þór Júlíusson og Þorvarð
Elíasson sem varamann hans og
Jón Ingvarsson og Gunnar Þór
Ólafsson sem varamann hans. At-
kvæðanefnd ríkisins lagði fram til-
lögu um fimm stjómarmenn ásamt
varamönnum: Þorstein Ólafsson og
Hrein Jakobsson; Magnús Gunn-
arsson og Sigurð Einarsson; Örn
Gústafsson og Arna Magnússon;
Þorgeir Örlygsson og Benedikt
Árnason; Þorstein Geirsson og Ár-
mann Kr. Ólafsson.
Margfeldiskosning
viðhöfð
Eftir að samþykkt hafði verið að
ganga til margfeldiskosningar
gerði fundarstjóri fundarmönnum
Morgunblaðið/Golli
Bjarni Ármannsson, forstjóri FBA, býður Eyjölf Sveinsson og Jón Ólafsson velkomna á fundinn.
Fundarmenn bera saman bækur sýnar fyrir margfeldiskosninguna.
grein fyrir slíkri kosningu. „í
margfeldiskosningu er atkvæða-
magn viðkomandi hluthafa marg-
faldað með fjölda þeirra sem kjósa.
Síðan geta menn valið um að setja
allt sitt atkvæðamagn á einn eða
fleiri.“
Hlutafé FBA er kr.
6.800.000.000, eins og fram kemur í
4. gr. samþykkta félagsins. í 19.
grein segir að á hluthafafundum
fylgi eitt atkvæði hverri einni krónu
í félaginu. Úrslit margfeldiskosn-
ingarinnar urðu sem hér segir:
Magnús Gunnarsson 5.990.857.375
atkvæði, Þorsteinn Ólafsson
5.986.518.285 atkvæði, Örn Gústafs-
son 5.972.538.118 atkvæði, Jón
Ingvarsson 4.774.969.097 atkvæði
og Kristján Þór Júlíusson
4.770.459.670 atkvæði.
Þorsteinn Geirsson, formaður
atkvæðanefndar ríkissjóðs, sagði í
samtali við Morgunblaðið að sam-
þykki atkvæðanefndarinnar fyrir
margfeldiskosningu hefði einungis
verið formsatriði. „Við höfðum
ekkert við margfeldiskosningu að
athuga, það er hægt að áskilja að
slík kosning verði viðhöfð ef óskað
er eftir því með fimm daga fyrir-
vara. Það er meginregla hjá hluta-
félögum að sé farið fram á marg-
feldiskosningu er orðið við því.“
Þorsteinn segist ekki hafa vitað um
tillögu stjórnar Orca S.A. um menn
í stjórn FBA fyrirfram og hvaða
einstaklingar þetta væru kæmi
samþykki atkvæðanefndarinnar
fyrir margfeldiskosningu ekkert
við. „Úrslitin voru eins og við var
að búast miðað við hlutafé þessara
aðila,“ segir Þorsteinn.
Tillögur Orca S.A. byggjast
á hagsmunum bankans
Jón Ólafsson, einn eigenda Orca
S.A., segir tillögur félagsins um
stjórnarmenn í FBA byggjast á
hagsmunum bankans. Aðspurður
hvort stjórnarmennirnir tveir væru
í forsvari fyrir hópa fjárfesta sagði
Jón svo ekki vera, heldur væru
þeir málsvarar hluthafa Orca S.A. í
heild. Jón sagði þá fjóra hópa fjár-
festa sem standa að baki Orca S.A.
ekki verða skilgreinda nánar að
sinni.
Eyjólfur Sveinsson, stjórnarfor-
maður Orca S.A., vísar til yfirlýs-
inga félagsins þegar tilkynnt var
um fjárfestingu þess í FBA. „Þá
kom fram að okkar markmið er
það að vinna fyrirtækinu heilt.
Sjónarmið okkar eru þau ein að
finna menn sem almennt geta orðið
bankanum og stjórn hans öflugir
liðsmenn." Hann segir það að sjálf-
sögðu koma til greina að eigendur
hlutafjár í félagi gæti sjálfir fjár-
festingar sinnar. „Okkur þótti rétt
með hliðsjón af þeim umræðum
sem orðið hafa um Fjárfestingar-
bankann að menn sæju að hugur
fylgdi máli. Markmið okkar væri
4