Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 16

Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Götunöfn Rán- fuglar í Aslandi? Hafnarfjörður BYGGINGANEFND og bæjarráð Hafnarfjarðar vinna nú að tíllögnm um götunöfn í 2. áfanga byggðarinnar við Ásland og eru ekki á einu máli. Bæjarráð vill að götur nefnist eftir fuglum sem er að fínna á svæðinu, þar sem er friðland fugla og eini varpstaður flórgoð- ans sunnanlands. Bygginganefnd hefur hins vegar gert tíllögu um að göturnar verði nefndar eftír ránfuglum. Arnarás, Fálkaás og Smyrlaás Upphaflega lagði bygg- inganefndin tíl þann 7. júlí sl. að hringtorg í hverfínu skyldu nefnast Arnartorg og Vörðutorg en göturnar Arnarás, Fálkaás, Hrafnaás, Haukaás, Smyrlaás og Ugluás. Þegar þessi ákvörðun kom tíl staðfestíngar í bæjarráði þann 5. ágúst sl. endursendi bæjarráðið tillögurnar tíl bygginga- nefndarinnar með ósk um að nefna skyldi göturnar eftír fuglum sem fínnast á svæðinu. Bygginganefndin tók málið fyrir að nýju á fundi þann 25. þessa mánaðar og í fundargerð þar er bókað að að lokinni um- fjöllun vinnuhóps um götunöfn leggi byggingar- nefndin tíl að staðið verði við áður gerða tíllögu. Vísað tíl bæjarsljóra Málið kom svo enn tíl afgreiðslu þegar fundar- gerð bygginganefndar- innar var lögð til af- greiðslu í bæjarráði þann 26. ágúst. Þar var fundargerðin samþykkt að öðru leytí en hvað varðar götunöfn í Áslandi og málinu vísað til bæjarsljóra milli funda. Morgunblaðið/Eiríkur P. Foreldrar og starfsmenn Laufásborgar hafa miklar áhyggjur af umferðarhraðanum umhverfís skólann. Búið er að mála stórum stöfum 30 á Njarðargöt- una til að minna ökumenn á gildandi hámarkshraða í hverfínu. Starfsmenn og foreldrar hafa áhyggjur af umferðinni við Laufásborg Hraðatakmark- anir ekki virtar Þíngholt ÞUNG umferð og mikill um- ferðarhraði veldur starfs- mönnum og foreldrum bama í leikskólanum Laufásborg áhyggjum og sendu þeir borg- aryfirvöldum erindi í vor þar sem óskað er úrbóta. Leik- skólinn stendur á horni Lauf- ásvegar og Njarðargötu, en í hverfínu er 30 km hámarks- hraði sem fáir ökumenn virða. Foreldrar og starfsmenn gerðu í erindi sínu tillögu um að sett yrði hraðahindrun á Njarðargötu, rétt ofan við Laufásveg neðarlega í bratt- anum. Þá var einnig iagt til að lögreglueftirlit yrði aukið með umferðinni og þá sérstaklega hraða í nágrenni leikskólans og ekki síst á Njarðargötu. I erindinu kemur fram að þetta sé orðið aðkallandi mál, því enn sé útlit fyrir þyngri umferð í hverfínu þegar bygg- ing og síðar starfsemi barna- spítala verði að veruleika. Þá megi líka búast við aukinni umferð í tengsium við flutning á skrifstofu Ríkisspítalanna á hornið við Eiríksgötu og Bar- ónsstíg. Jóhanna Thorsteinsson, leikskólastjóri Laufásborgar, segir að umhverfís skólann sé mikil umferð og að fólk keyri ofsalega hratt. Fólk virðir ekki hraðatakmarkanir og segir Jóhanna að árekstrar á götuhornum nálægt skólanum séu algengir. Hún telur að lögreglan mætti fylgjast bet- ur með umferðinni og ætti að beita sektum til að ná niður hraðanum. í Laufásborg eru um 30 starfsmenn og 100 börn ásamt foreldrum sem þurfa að kom- ast til og frá skólanum á hverjum virkum degi. Jó- hanna segir aðgengi að skól- anum á bflum sé erfítt vegna skorts á bflastæðum, og ekki bæti úr sök hröð og mikil um- ferð á götunum umhverfís skólann, þar sem hún ætti að vera róleg. Jóhanna telur það koma til álita að þrengja göt- urnar, það væri sennilega ein- faldasta leiðin til að ná niður hraðanum. Að sögn Stefáns A. Finns- sonar hjá umferðardeild Reykjavíkurborgar hefur ver- ið fjallað um erindi foreldra og starfsmanna við Laufás- borg. Hann segir að ekki hafí verið vilji fyrii' því að setja hraðahindrun á Njarðargöt- una. Hins vegar hafí verið ákveðið að vera með sérstak- ar merkingar í brekkunni og sjá hvort það skilaði einhverj- um árangri. Búið er að mála á götuna töluna 30 með stórum stöfum, til að minna ökumenn á að hámarkshraði í hverfínu sé 30 km/klst. Það hefur hann verið í mörg ár enda voru Þingholtin eitt af fyrstu 30 km svæðunum í borginni. Bömin á Laufásborg verða að halda sig innan hliðsins, því hætturnar leynast víða á götunum umhverfís Ieikskólann. Það er nú alltaf gaman í leikskólanum. Knatthús ehf. vinnur að byggingu knattspyrnuhúss fyrir sveitarfálögin sunnan Reykjavíkur Líklega sátt um staðar- val í Vífílsstaðalandi Gardabær KNATTHÚS ehf. er félag sem knattspyrnufélög í Hafnarfírði, Kópavogi, Garðabæ og Bessastaða- hreppi hafa stofnað til að meta þörf, athuga möguleg byggingarform, kanna hag- kvæmni, fjármögnun og rekstur sameiginlegs knatt- spyrnuhúss í sveitarfélög- unum. VSÓ hefur unnið skýrslu með frumáætlun um stofnkostnað og nýtingu slíks húss og hefur skýrslan verið kynnt bæjarfélögun- um. Þar kemur fram að byggingarkostnaður við upphitað hús með 12,5 metra lofthæð í mæni yrði 510 milljónir króna. I skýrslunni kemur fram að líklega verði hægt að ná sátt um staðarval íyrir hús- ið í landi Vífilsstaða, við Reykjanesbraut norðan Víf- ilsstaðavegar. Sandgrasvöllur í fullri stærð Miðað er við að í húsinu verði knattspymuvöllur af fullri stærð, 68x105 metrar, á sandgrasi. í skýrslunni er fjallað um kostnað við sex tegundir af húsum, annars vegar er lofthæð húsanna breytileg og hins vegar er miðað við ólíkar gerðir húsa, allt frá óupphituðu skýli upp í fjölnota íþrótta- og sýningarhús. Annars vegar er miðað við lofthæð sem er 12,5 metrar við mæni og 5,5 metrar við hliðarlínu vallar, sem er sú útfærsla sem not- uð hefur verið í Danmörku, og hins vegar við hús með 20 metra lofthæð við mæni og 10 metra við hliðarlínu, en þannig hús hafa Norð- menn byggt. Þá er kannað hvað kosti að reisa kalt knattspyrnuhús, sem er óeinangrað og eingöngu ætlað fyrir knattspyrnu. Með lægri lofthæðinni yrði kostnaðurinn 420 milljónir, en 480 milljónir ef um 20 metra lofthæð yrði að ræða. Upphitað og einangrað knattspyrnuhús, með mögu- lega notkun fyrir aðrar íþróttir, myndi kosta 510 milljónir en 590 ef lofthæðin yrði 20 metrar. Við fjölnota íþrótta- og sýningarhús, þar sem auk boltaíþrótta verði aðstaða til að stunda frjálsar íþrótt- ir og halda stærri vörusýn- ingar, yrði stofnkostnaður- inn 880 milljónir en 980 milljónir ef lofthæðin verð- ur 20 metrar í mæni. í öllum tilvikum yrði hægt að koma fyrir stæðum fyrir 1-2.000 áhorfendur. í húsinu yrði hægt að halda rokktónleika og ýmsar aðr- ar uppákomur. 2 klst. á aldursflokk Knattspyrnufélögin sem standa að Knatthúsum eru Breiðablik, HK, Haukar, FH, Stjarnan og Ung- mennafélag Bessastaða- hrepps. Miðað við að ein- göngu yrði spiluð knatt- spyrna í húsinu og húsið yrði notað frá klukkan 16-23 virka daga en frá 9-19 laugardaga og 9-23 sunnudaga yrðu 100 klukkustundir til skiptanna í viku hverri og kæmu þá 2 klukkustundir í hlut hvers aldursflokks þessara félaga. Þá er miðað við að 80% tím- ans yrði spilað á tveim hálf- um völlum í húsinu. Skýrsla Knatthúsa hefur nú verið send sveitarfélög- unum þar sem hlutaðeig- andi íþróttafélög starfa til kynningar, og segir Þor- bergur Karlsson, forsvars- maður Knatthúsa, undir- tektir ágætar. „Við vitum að bæjarfélögin hafa áhuga á þessu máli,“ segir Þorberg- ur. Næst á dagskrá í málinu segir hann að sé að fara í nánari viðræður við sveitar- félögin um hugsanlega hús- byggingu og þá hver ofan- greindra kosta verði fyrir valinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.