Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 24
SS ooor r HITOACTTT>TTVffTM 24 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 mu & TííT/ninqnM MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Aukinn hagnaður hjá íslandsbanka-samstæðunni fyrstu sex mánuði ársins Hagnaður nam 693 milljónum króna ÍSLANDSBANKI hf. hagnaðist um 693 milljónir króna að teknu tilliti til reiknaðra tekju- og eignarskatta fyrstu sex mánuði ársins 1999, í sam- anburði við 596 milljóna króna hagn- að að teknu tilliti til skatta á sama tímabiii árið 1998. Hagnaður er því 97 milljónum króna meiri en á sama tímabili í fyrra. Hreinar rekstrar- tekjur bankans voru 3.321 milljón króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs en 3.075 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Vaxtamunur bankans var 3,6% og hækkaði um 0,1% milli ára. Heildarfjármagn hinn 30. júní síðastliðinn var rúmur 131 milljarður króna og hafði aukist úr tæpum 108 milljörðum hinn 31. desember 1998. Viðskipti með hlutabréf í Islands- banka á Verðbréfaþingi Islands í gær námu 111 milljón króna og lækkaði gengi þeirra um 3,8%, úr 4,50 í 4,33. „Það er ánægjulegt að hagnaður og arðsemi aukist frá seinasta ári, en Islandsbanki hefur notið góðs af góðu árferði í efnahagslífinu. Einnig skiptir máli að starfsfólk bankans hefiir lagt hart að sér og staðið sig frábærlega. íslandsbankasveitin hef- ur stækkað á þessu sex mánaða tímabili og heildarfjármagn stóð í 131 milljarði króna hinn 30. júní síð- astliðinn og hafði aukist um 22% frá áramótum," segir Valur Valsson, bankastjóri Islandsbanka, í samtali við Morgunblaðið. Spurður um hærri vaxtamun á tímabilinu segir Valui- að skýringam- ar séu fólgnar í hærri verðbólgu. Kostnaðarhlutfall íslandsbanka hækkaði úr 65% í 68% á fyrstu sex mánuðum ársins, og segir Valur skýr- inguna liggja í því að ákveðin útgjöld skiptist með þessum hætti niður á fyrri hluta rekstrarársins, og geri bankinn ráð fyrir að kostnaðarhlut- fallið verði lægra fyrir árið í heild. Afkoma íslandsbanka umfram væntingar Frosti Reyr Rúnarsson, verð- bréfamiðlari hjá Fjárvangi, segir af- komu Islandsbanka á fyrri hluta þessa árs vera góða og sé hún betri en Fjárvangur hefði vænst. Arðsemi eiginfjár Islandsbanka sé um 18%, samkvæmt hefðbundnum útreikn- ingum á þeirri stærð, sem verði að teljast vel viðunandi. „Hagnaðaraukninguna má m.a. annars rekja til aukinna vaxtatekna ásamt því að framlag í afskriftarreik- ing bankans hefur lækkað umtalsvert og er í sögulegu lágmarki hjá bankan- um á fyrri hluta þessa árs. Aukningu á hagnaði má einnig rekja til bættrar afkomu hjá félögum sem tengd eru íslandsbanka,“ segir Frosti. „Við hjá Fjárvangi teljum þó að gengi hlutabréfa félagsins hafi verið í hærra lagi að undanförnu, en þó hafi orðið nokkur leiðrétting á því eftir að íslandsbanki birti uppgjör sitt. Að okkar mati er bankinn góður fjárfestingarkostur til lengri tíma, m.a. vegna þess að stjórnendur og starfsmenn bankans hafa skilað góðri afkomu síðustu ár og hagnaður bankans hefur aukist milli tímabila," segir Frosti. ÍSLANDSBANKI hf. Úr milliuppgjöri 1999 ^ Samstæða 1 Rekstrarreíkningur 1SGQ 1SSG Milljónir króna JAN.-JÚNl JAN.-JÚNl Breyting Vaxtatekjur 6.020 4.483 +34% Vaxtagjöld 3.897 2.819 +38% Hreinar vaxtatekjur 2.123 1.664 +28% Aðrar rekstrartekiur 1.198 1.411 -15% Önnur rekstrargjöld 2.245 1.985 +13% Framlag í afskriftareikning útlána -325 -449 -28% Hagnaður fyrir skatta 751 641 +17% Reiknaðir skattar -58 -45 +41% Hagnaður tímabilsins 693 596 +16% 1 Efnahagsreikningur EIGNIR, milljónir króna 30/06 '99 31/12 '98 Breyting Sjóður, ríkisvíxlar og bankainnist. 10.116 6.903 +47% Útlán 92.258 83.510 +10% Markaðsverðbr. og eignarhl. í fél. 25.275 14.115 +79% Aðrar eignir 3.505 3.376 +4% EIGNIR SAMTALS 131.154 107.904 +22% SKULDIR og EIGIÐ FÉ Breyting Skuldir við lánastofnanir 19.600 13.289 +47% Innlán 58.713 49.320 +19% Lántaka 41.404 34.459 +20% Aðrar skuldir og víkjandi lán 3.481 3.383 +3% Eigið fé 7.956 7.453 +7% SKULDIR SAMTALS 131.154 107.904 +22% I Kennitölur 1 Arðsemi eigin fjár I 22,9%T 24,1 %T íslenski hugbún- aðarsjóðurinn hf. Tap Tæknivals nam 144,3 milljónHm fyrstu sex mánuðina Kaupir 9% hlut í Kögun hf. ÍSLENSKI hugbúnaðarsjóð- urinn hf. hefur fest kaup á 9% hlutafjár í Kögun hf. fyrir milligöngu íslandsbanka. Kög- un hf. hefur m.a. unnið að þró- un og framleiðslu á flugstjóm- arhermi og hefur nú selt NATO slíkan búnað. Við kaup- in verður Islenski hugbúnaðar- sjóðurinn hf. stærsti hluthaf- inn í Kögun hf. en kaupverð er ekki gefið upp. íslenski hug- búnaðarsjóðurinn á fyrir hluti í ýmsum hugbúnaðarfyrirtækj- um, t.d. Hugviti, Landsteinum International, og Teymi. Kögun hf. stundar gerð og rekstur loftvamarkerfa og hef- ur verið viðurkennt af banda- rískum hermálayfirvöldum og NATO sem verktaki við gerð flókinna vamarkerfa, eins og fram kemur í fréttatilkynn- ingu. Dótturfélag Kögunar hf., Navision Software Island ehf., sér um heildsöludreifingu Na- vision Financials viðskiptahug- búnaðarins á Islandi en rekur einnig þýðingardeild sem ann- ast íslenskuþýðingar á erlend- um hugbúnaði og þýðingar á íslenskum hugbúnaði. Starfs- menn Kögunar hf. era um 55 og var velta félagsins á síðasta reikningsári um 276 milljónir króna, hagnaður eftir skatta um 43 milljónir og eigið fé um 169 milljónir króna. „Við höfum verið að skoða Kögun og þetta er afar vel rek- ið fyrirtæki," segir Gunnar EngÖbertsson, framkvæmda- stjóri Islenska hugbúnaðar- sjóðsins. „Það hefur sérhæfða þekkingu á markaði sem mikl- ir möguleikar felast í. Þeir era meðal fremstu fyrirtækja í heimi á sínu sviði. Gríðarlegar kröfur era gerðar um gæði og hvað varðar rekstraröryggi. Það er erfitt fyrir aðra að til- einka sér þessa þekkingu á skömmum tíma og fyrirtækið hefur því sterka samkeppnis- stöðu,“ segir Gunnar. Birgðir færðar niður um 90 milljónir króna m Tæknival m. Úr reikningum móðurfélagsins Rekstrarreikningur janúar-júní 1999 1998 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna 2.068,8 1.402,9 +47% Rekstrargjöld 2.210,0 1.437,4 +54% Rekstrarafkoma fyrir fjármagnsliði -141,2 -34,4 +310% Fjármagnstekjur (gjöld) -35,7 -6,8 +425% Tekju- og eignarskattur 17,0 4,6 +270% Tap af reglulegri starfsemi -160,0 -36,6 +337% Söiuhagnaður eigna 22,3 - Hlutd. og áhrif dóttur- og hlutd.félaga -6,6 - Tap tímabilsins ■144,3 -36,6 +294% Efnahagsreikningur 30/699 31/1298 Breyting Fastafjármunir Milljónir króna 400,2 319,0 +25% Veltufjármunir 1.302,0 1.493,3 -13% Eignir samtals 1.702,1 1.812,3 -6% Eigið fé 137,2 284,7 -52% Langtímaskuldir 457,8 458,5 Skammtímaskuldir 1.107,2 1.069,1 +4% Skuldir og eigið fé samtals 1.702,1 1.812,3 -6% Sjóðstreymi og kennitölur 1999 1998 Breyting Veltufé frá rekstri Milljónir króna -146,4 -22,8 +542% Veltufjárhlutfall 1,18 1,40 Eiginfjárhlutfall 0,08 0,16 TAP Tæknivals-samstæðunnar nam 144,3 milljónum króna fyrstu sex mánuði ársins borið saman við 36,6 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra. Nema afskriftir birgða 90 milljónum króna. í afkomuviðvöran Tæknivals í sumar kom fram að gert var ráð fyrir 85-95 milljóna króna taprekstri á fyrstu sex mánuðum ársins. Auk þess sem boðað var að í kjölfar endurskoðunar á birgðum fyrirtækisins yrðu þær afskrifaðar. Að sögn Arna Sigfússonar, fram- kvæmdastjóra Tæknivals, skiptir máli að staðan í dag er sú að birgðir sem era sex mánaða og eldri era 7,4% af heildarbirgðum en þetta hlutfall var 25% um síðustu áramót. Þá hefur heildarbirgðatala lækkað úr 620 milljónum um áramót í 511 milljónir króna þrátt fyrir 47% veltu- aukningu miðað við sama tíma í fyrra. „I rekstri eins og þeim sem Tæknival er í skiptir öllu máli að vera með nýja vöra. Þannig að við höfum þegar náð veralegum árangri á því sviði.“ Velta Tæknivals á fyrstu sex mán- uðum ársins nam 2.068,8 milljónum króna og er það 47% aukning frá sama tímabili í fyrra. Aftur á móti hefur rekstrarafkoma fyrir fjár- magnsliði minnkað um 310%. Að sögn Árna hafa menn ekki gert nógu ítarlegar framlegðaráætlanir og framlegðarkröfur í verkefnum sem fyrirtækið hefur komið að. „Það er hluti af því sem verið er að taka fyrir hjá Tæknivali.“ Mikill fjármagnskostnaður hjá félaginu Fjármagnsgjöld félagsins hafa aukist úr 6,8 milljónum króna í 35,7 milljónir króna. Að sögn Árna eru verðbætur og vaxtagjöld sem fyrir- tækið er að greiða tæpar 66 milljónir króna. „Það er því mikill fjármagns- kostnaður hjá fyrirtækinu og mikið verk að vinna. Þetta er hluti af því sem við eram að vinna í. Við eram með lausnir á borðinu sem bæði skapa sterkari sýn á rekstur fyrir- tækisins og skapa okkur fjármagn til að taka á þessum þáttum," segir Árni Sigfússon. Hjá Tæknivali er unnið að því að efla hugbúnaðarsvið fyrirtækisins með mögulegri sameiningu við önnur hugbúnaðarhús. Byggja upp inn- kaupa- og vöruhús og efla smásölu- verslanir BT innan Tæknivals. Jafn- framt er unnið að því að efla þjón- ustuhús innan Tæknivals og endur- skoða innra skipulag fyrirtækisins. Gert ráð fyrir umskiptum á seinni hluta ársins Gert er ráð fyrir umskiptum í rekstri Tæknivals vegna þessara að- gerða sem samkvæmt fréttatilkynn- ingu á að snúa tapi af reglulegri starfsemi í 50 milljóna króna hagnað á seinni hluta ársins. Matthías H. Johannessen hjá greiningardeild Kaupþings segir tap Tæknivals vera mun meira held- ur en búist var við. Eins hafi niður- færsla á birgðum verið meiri en gert var ráð fyrir en ekkert annað en gott sé hægt að segja um að fé- lagið færi niður birgðir. „Það sem upp úr stendur er að 47% veltu- aukning er nánast að skila engu. Þetta er ekkert nýtt hjá Tæknivali en samkvæmt upplýsingum sem við höfum fengið hjá stjórnendum fé- lagsins á þetta að vera liðin tíð. Það er mjög jákvætt hversu mikið gaml- ar birgðir hafa minnkað hjá fyrir- tækinu og þær breytingar sem eiga sér stað innanhúss munu vonandi skila sér í bættri afkomu félagsins,“ segir Matthías. Brota- járni skip- að út frá Húsavík UM 700 tonnum af brotajárni hefur verið skipað út frá Húsavík en fyrirtækið Hr- ingrás hefur í samstarfi við Héraðsnefnd Þingeyinga unn- ið að því að safna brotajárninu saman. Sveinn Ásgeirsson hjá Hringrás sagði að þetta væri í fyrsta skipti sem brotajárni væri skipað út frá Húsavík. Sérstakir brotajárnsgámar hafa verið staðsettir víða í sýslunni og járninu síðan safn- að saman á Húsavík, þar sem það hefur verið endurannið og gert klárt til útflutnings. Þing- eyingar hafa verið duglegir að nýta sér þessa þjónustu og hent miklu af brotajárni, m.a. gömlum landbúnaðartækjum, heimilistækjum og bílflökum. Sveinn sagði að fyrirtækið hafi verið á ferðinni á Húsavík með sína færanlegu endur- vinnslustöð, sem bæði klippir niður og pressar efnið. Járnið er því orðið hæft til að bræða niður og framleiða nýtt járn úr. Með þessum framkvæmd- um er verið að færa jámaruslið frá hefðbundnu sorpi og koma því í burtu frá svæðunum. Frá Húsavík verður farið með endurvinnslustöðina til Sauðárkróks, þaðan til Skaga- strandar, Hólmavíkur og Isa- fjarðar. I framhaldinu verður svo farið um Vesturland og brotajárn unnið í Stykkishólmi og á Akranesi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.