Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 31
LISTIR
Inga Elfn tók til höndunum í bakgarðinum hjá Ófeigi á listanótt.
Þær fáu kvöldstundir skráðu sig 400 manns f gestabók listhússins.
Þrjú listhús
MYMDLIST
IIMGA ELÍIV/
MEISTARI JAKOB/
LISTHdS ÖFEIGS
MYNDLIST/LISTIÐNAÐUR
Opin á verslunartíma. Til 4. sept-
ember. Aðgangur ókeypis.
LITLU listhúsunum fer
stöðugt fjölgandi og að baki
þeirra standa yfirleitt hópar ein-
staklinga, sem eru að koma að-
skiljanlegustu verkum sínum á
framfæri. Á stundum eru þetta
líka einstaklingar að markaðs-
setja list og listiðnað sinn, eru
jafnvel svo lánsamir að hafa get-
að innréttað notalegt rými fyrir
almennar listsýningar, líkt og
gullsmiðurinn og listhönnuður-
inn Ófeigur Bjömsson. Er hér
átt við starfsemi menntaðs lista-
fólks, sem í sumum tilvikum hef-
ur í fá hús að venda til að koma
munum sínum og verkum á
framfæri, sumt svo til á götunni
eftir að Heimilisiðnaðarbúðin á
Hafnarstræti varð að loka sem
var stórslys um lífrænt andrúm í
miðborginni. Þessi framtaks-
semi er að sjálfsögðu af hinu
góða, því hér geta borgarbúar
og landsmenn allir gengið að
ekta hlutum til augnayndis eign-
ar og gjafa, í flestum tilvikum
módelverkum þegar um smíðar
og skart er að ræða, hvað þá
frjálsa myndlist. Hér stendur
Skólavörðustígurinn sterkt með
listíðaverslanir og listhús hlið
við hlið að segja má, nú síðast
var opnað Listhús Reykjavíkur
með pomp og prakt á listanótt,
en það er sér á parti í stærð og
umfangi og mun stækka enn
frekar er kjallarinn sem mun
ætlaður fyrir sérsýningar tekur
til starfa.
Ekki er svo langt síðan list-
munaverslunin Meistari Jakob,
á Skólavörðustíg 5, opnaði dyr
sínar, en þar ráða ríkjum 10 vel
þekktar listakonur, sem hafa
kippt einum útlendingi af Veik-
ara kyninu upp í til sín. Þó lítið
sé, er þar um lygilega auðugan
garð að gresja um listiðnað,
hönnun og málverk, í uppsetn-
ingu allri hið menningarlegasta,
rétt og skylt að víkja nánar að
starfseminni í framtíðinni. Ann-
ars er ekki ástæða til að rýna að
staðaldri í það sem allir þessir
staðir hafa á boðstólunum, er
frekar í verkahring fréttamiðla,
en menningargildið er borð-
leggjandi og þeir hækka til
Skyldmenni í lífi og list,
málarinn Iljördís Frímann og
skartsmiðurinn Ófeigur
Björnsson á verkstæði Ófeigs.
muna ris borgarkjarnans. Fyrir
ofan er svo listmunaverslun
Ingu Elínar, sem kynnir þar
fjölþætt úrval eigin verka og
enn ofar er loks verkstæði, list-
hús og skartgripaverslun
Ófeigs. Við þetta má bæta að
neðan við þessa þrenningu,
raunar við hliðina á meistaran-
um er svo hin gamalgróna kaffi-
stofa (og listhús) Mokka, sem
hefur starfað í meira en 40 ár,
svo hér má með réttu tala um
fjögralaufasmára listarinnar á
Skólavörðustíg.
Ástæða þessara skrifa er þó
helst sú, að staðirnir þrír eru
með samsýningu í Listhúsi
Ófeigs og kynna þar hina fjöl-
þættu starfsemi sína, getur þar
að líta sígilda miðla svo sem olíu
á léreft, grafík, einþrykk, leir-
list, vefnað, glerverk og postu-
lín, en einnig sjaldgæfari svo
sem basalt og stál, fjörusteina
og silfur, kol og jarðefni, gler og
steinsteypu, grágrýti og járn.
En hvort sem miðillinn er sígild-
ur eða um er að ræða að stefnt
er saman náttúruformunum og
handunnum hlutum þá skiptir
útfærslan og frumlegt hand-
bragð öllu.
Drjúg ástæða til að vísa til
þessa hressilega framnings, sem
er til fyrirmyndar á tímum
óheftrar og harðvítugi’ar sam-
keppni og innlit á alla staðina
þrjá gerir hverjum manni gott
sem á annað borð er með skyn-
rænu ratsjána í lagi.
Bragi Ásgeirsson
Diet ‘99. Ein af 28 stafrænum prentmyndum Hall-
gríms Helgasonar í Galleríi 101.
Grim,
... aftur
á kreik
MYMDLIST
Gallerí 101,
Laugavegi 48h
GRAFÍK
HALLGRÍMUR HELGASON
Til 14. september. Opið mánudaga
til föstudaga frá kl. 11-19,
laugardaga frá kl. 11-17, og
sunnudaga frá kl. 14-17.
STAFRÆNT prent hentar
myndum Hallgríms Helgasonar af-
ar vel. Það sannar sig á þeim 28 lit-
myndum í A3, sem hann sýnir í
Gallerí Oneoone. Þar er Grim aftur
kominn á kreik með sína kaldrifj-
uðu íyndni, skögultennur eins og
rostungur og Gosalega spýtunef.
Hallgrími hefur tekist á örskömm-
um tíma að búa sér til ímynd í
formi teiknimyndafígúru sem er í
senn chaplínsk og sjálfspeglandi.
Eftir að Þórbergur Þórðarson leið
þarf að fara suður til Ítalíu til að
finna menn með jafnekta húmor
fyrir sjálfum sér og Hallgrímur
hefur alías Grim.
Það sem gerði Þórberg svo óvið-
jafnanlegan var hvemig hann gat
fundið upp skopstælingu af sjálfum
sér sem alvarlegur, dauðfeiminn en
ofurspurull unglingur, sem alltaf
missti andlitið í fullkomnunar-
áráttu sinni af því hann var svo
barnslega fortakslaus andspænis
lífinu og tilverunni.
Hallgrímur heyrir vissulega til
miklu séðari tíma þar sem bláeyg-
ur Öræfasveinninn hefur vikið íyr-
ir borgarbaminu sem hrærist í
sjálfhverfum og ofurmeðvitandi
heimi töffara og tildurrófna. En
heiðarleiki hins spurula meinar
honum að gangast þessum heimi á
hönd af því gagnrýnisleysi sem
þarf til að heyra honum til hundrað
prósent. Alvara Grim - sem þýðir
meðal annars „grímulaus“ - virkar
í íyrstu hæðin, líkt og Gosinn glotti
í sífellu, en við nánari kynni koma
aðrir og einlægari þættir í ljós.
Vandræðagangur Grim afhjúpar
nefnilega í hví-
vetna við-
kvæmni okkar
harða heims og
finnur hvar-
vetna á honum
snöggan tOfinn-
ingablett. Hinn
spuruli kemst
fljótlega að því
að töffaraskap-
urinn er bara
gríma af sama
tískutoganum
og ímyndunar-
veiki og önnur
ámóta uppgerð
var á 17. og 18.
öld; hegðunar-
máti sem
fölskvalaus nú-
tímaunglingur-
inn íklæðist án
þess að spyrja
um slitþol. Líkt
og í ekta amer-
ískum hollí-
vúddara sem
byrjar á stór-
kallanótunum
eru allir famir
að skæla í lokin.
Valdsmannsleg
harkan víkur í
miðri mynd fyr-
ir bullandi væmni.
Það er okkar margræða samtíð
sem Hallgrímur bregður upp með
öllum tónum litrófsins, í bland við
heimspekilegar vangaveltur Grims,
sem viU vera með á nótunum en er
það ekki alltaf, ekki frekar en ég
eða þú, lesandi góður, því samtíðin
býr alltaf yfir nægum flækjum sem
tíma tekur að greiða úr og skilja í
þaula. Styrkur Hallgríms er fólg-
inn í næmu auga hans og eyra fyrir
mannlegum samskiptum. Sá styrk-
ur skín úr nánast hverri mynd.
Halldór Björn Runólfsson
iVríOOOO
íanntu að
Leyndarmál
pM£íÍM>Etl Eldheit sumarást - Skrautiegir hattar sem maður gerir sjálfur
Öðruvisi iimgerði - Úhoilt heilsufæði • Tiu kommóður • Persónuleikapróf:
Ertu góður meðleigjandi - Uney föndurkona - Gott á grillið o.m.fl.