Morgunblaðið - 01.09.1999, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 01.09.1999, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 43 UMRÆÐAN Ekki dreg ég í efa þekkingu fulltrúa þessara aðila á málefninu. Samtökin segja einnig að núver- andi kerfí, varðandi leyfisveitingar og eftirlit með innflutningi, hafí ekki verið lýst ófullnægjandi og því verði ekki séð að brýna þörf beri til að breyta því. Hvað samtökin eiga nákvæmlega við með þessum orð- um er erfítt að átta sig á, sérstak- lega í ljósi þess að reglugerðin ger- ir almennt ráð fyrir mikilli rýmkun á núgildandi reglum. Það er hálf- hjákátlegt að horfa upp á það að hagsmunasamtök skuli ekki vilja meira frelsi fyi’ir sína félagsmenn. I nýju drögunum eru reglurnar rýmkaðar til muna, en farið fram á Reglugerð Umfang viðskipta með fæðubótarefni og nátt- úruvöru, segir Hannes Hafsteinsson, hefur aukist gífurlega undanfarin ár. hlaupi Arnar og skildi hann ekki, því ég taldi að með nýju reglugerð- inni væri verið að veita honum auk- ið frelsi. Ég gerði mér því ferð í Heilsuhúsið í Kringlunni. Það tók ekki langan tíma að átta sig á öllu þessu moldviðri sem gert hefur ver- ið út af drögunum. Ég keypti brún- an bréfpoka, sem framan á var letr- að: 80 g „Jónsmessurunni", Heilsa hf. Laufbrekku 22 Kóp. Aftan á pokanum voru tveir hvítir miðar. Annar var verðmiði en á hinum stóð: Best fyrir 09.00. Ég var svo gáttaður að ég gleymdi að spyrja afgreiðslustúlkuna nánar út í þessa vöru. Þegar leitað var upplýsinga símleiðis um framleiðanda var svar- ið að hann væri erlendur. Einhverjir geta talið eðhlegt að selja Jónsmessurunna í lausu duft- formi í bréfpokum og það má vera að einhver virkni haldist næstu þrettán mánuði. Hvort Örn hefur fengið leyfi til þess að selja Jóns- messurunna á þennan hátt veit ég ekki, en fínnst harla ólíklegt. En hvers vegna er Jónsmessurunni tekinn sem dæmi? Jónsmessurunni heitir á ensku St. John’s Wort, er náttúrulyf og er notað víða erlendis, sem vægt geðdeyfðarlyf. Ábyggi- legir framleiðendur leggja metnað sinn í stöðlun vörunnar, nota ein- ungis rétta plöntuhluta og er hún yfirleitt seld í töflu- eða hylkjaformi í nútímalegum umbúðum. í Heilsu- húsinu er hún seld í lausu duftformi í brúnum bréfpokum. Efast einhver um það að ný reglugerð sé tíma- bær? I drögunum er gert ráð fyrir að Lyfjaeftirlitið geri tillögu til ráð- herra að gjaldskrá um umsóknar- og árgjöld, sem ætlað er að standa undir kostnaði er hlýst af umsýslu með viðkomandi umsókn. í drögun- um er hvergi minnst á neina upp- hæð. Fram kemur í viðtali við Einar Magnússon á Visi.is að gjaldið yrði eitthvað lítilsháttar. Slík gjaldtaka er ósköp ■ eðlileg svo fremi sem gjaldinu er stillt í hóf. I dag greiða menn ekkert gjald en geta komið með fulla kassa af fæðubótarefnum til Lyfjaeftirlitsins, haldið starfs- fólki uppteknu dögum saman og ekki greitt krónu fyrir. Hvar annars staðar fá menn fría þjónustu? Ef sett er sem dæmi að gjaldið yrði 5.000 kr. fyrir hvert nýtt vörunúm- er, sem síðan selst í 1.000 einingum fyrsta árið, þá er um að ræða 5 kr. á hverja einingu. Örn segir í viðtali við DV að ef þessi gjöld verði sett á þýddi það að ótalmörg fæðubótar- efni myndu detta út. Þau stæðu hreinlega ekki undir þeim kostnaði, sem þessi gjöld myndu íþyngja vör- unni með. Það má vera að til séu neytendur sem tækju eftir 5-20 kr. hækkun á einstökum vöruflokkum í verslunum Arnar, en ég hef ekki fundið þá enn. Fram kemur á Visi.is hinn 18. ágúst að bæði ráðherra og ráðuneyti séu mjög hlynnt þessum vörum, sem drögin fjalla um, og vilji með skýrari reglugerð um þær bæði tryggja hagsmuni neytenda og innflytjenda. Það er staðreynd að umfang við- skipta með fæðubótarefni og nátt- úruvöru hefur aukist gífurlega und- anfarin ár. Þúsundir fyrirtækja framleiða og markaðssetja shka vöru í dag. Á meðal þeirra eru til fyrirtæki, sem setja umhyggju fyrir neytendum ekki alltaf í fyrsta sæti. Vörur þeirra geta innihaldið ýmis óæskileg efni, sem ekki er getið um á umbúðum. Sem betur fer eru til fyrirtæki, sem neytendur geta treyst og markaðssetja vörur, sem hafa jákvæð áhrif á heilsufar neyt- enda. Mai’gnefnd reglugerð er skref í áttina til þess að neytendum standi einungis slík vara til boða hér á landi. Höfundur er forstöðumaður mat- vælarannsókna, Keldnaholti, og áhugamaður um fæðubótarefni. UNDANFARNA daga hefur mér og fleirum sem búa í Mosfellsbæ fundist við óvenjufljót í förum milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar og ástæða er íjós. Það er búið að loka Víkurvegi og biðraðirnar vegna umferðar í og úr Graf- arvogi eru úr sögunni, í bili að minnsta kosti. Undanfarin ár hefur umferð á Vesturlands- vegi frá Reykjavík í Mosfellsbaa vaxið stöðugt. Ástandið í Mosfellsbæ er þannig á álagstoppum að það tekur hátt í klukkustund að aka til Reykjavík- ur, leið sem tekur um 15 mínútur við eðlilegar aðstæður. Fyrir nokkrum árum voru gatnamótin við Höfðabakka mikill flöskuháls og loks þegar þau voru löguð með byggingu Höfðabakka- brúarinnar, voru gatnamót við Suðurlandsveg og Víkurveg orðin að flöskuhálsi. Nú bendir allt til þess að breikkun Vesturlandsveg- ar og stækkuð gatnamót við Víkur- veg geri lítið annað en rétt halda í við fjölgun íbúa á þessu svæði og næstu árin taki það enn lengri tíma fyrir íbúa í Mosfellsbæ og Grafarvogshverfum að fara þessa leið. Ibúafjölgun í Mosfellsbæ er með þvi mesta á landinu og heyrst hefur að Reykjavíkurborg sé að undirbúa lóðarút- hlutun í Grafarholti sem kemur til að kalla á enn meiri umferð á Vesturlandsvegi. Samkvæmt vegaá- ætlun er ekki gert ráð fyrir miklum fram- kvæmdum við Vestur- landsveg milli Mos- fellsbæjar og Reykja- víkur næstu árin og er það áhyggjuefni að ferðatími íbúa í Mos- fellsbæ muni aukast enn frekar næstu árin. Það er krafa íbúa í Mosfellsbæ að Vesturlandsvegur verði tvöfald- aður í Mosfellsbæ á næstu árum Vegamál Armæða fyrir íbúa Grafarvogs, segir Lúð- vík Friðriksson, en léttir fyrir íbúa Mos- fellsbæjar. svo fólk á svæðinu geti farið ferða sinna á eðlilegum ferðatíma. Höfundur er ibúi í Mosfellsbæ að innflytjendur standist ákveðið lágmark varðandi upplýsingagjöf og sjálfsagða þjónustu við neytend- I ur. I DV 16. ágúst gagnrýnir Örn Svavarsson drögin og segir orðrétt: „Þessir ágætu menn eru að reyna að koma fæðubótarefnunum undir sömu reglugerð og gilda um lyf. Um fæðubótarefni eiga frekar að gilda þau lög og reglugerðir sem ná yfir matvæli. En þeir reyna að troða þeim undir lyfjahugtakið." « Örn á að vita að ekki er verið að setja fæðubótarefni í sömu reglu- gerð og gildir um lyf. Það er verið 1 að semja nýja reglugerð. Ég viður- kenni að ég var hissa á þessu upp- Lokun Víkurvega Lúðvík Friðriksson mínir í Svínavatnshreppi meiri voðamenn en mig uggði. Það má minna á að þótt Svína- vatnshreppur hafi hagnast pen- ingalega á Blönduvirkjun vegna fasteignagjaldanna þá var mikil andstaða gegn virkjuninni í þeim hreppi á sínum tíma. Andstaðan byggðist einkum á því að menn töldu að of miklum landgæðum á Auðkúluheiði væri fórnað vegna virkjunarinnar. Hvorki stjórnuð- ust Svínhreppingar þá af blindri fégirnd né sóttu fram gegn mönn- um og umhverfi með vígvélum og bryntólum. Hveravellir eru í um 600 metra hæð yfir sjávarmáli. Frá hverun- um rennur lítill lækur og nokkurt gróðurlendi er við hann. Það hefur á síðustu árum látið allmikið á sjá vegna átroðnings ferðamanna, enda eru tjaldstæði og skálar Ferðafélags Islands í miðri þessari gróðurvin. Nú er Kjalvegur orðinn öllum bílum fær og umferð sívax- andi um hann. Nánast allir sem fara þar um koma við á Hveravöll- um. Gróðurlendi umhverfis hver- ina þolir ekki mikinn átroðning, en hann er mestur umhverfis skála og tjaldstæði ferðafélagsins. Sam- kvæmt núverandi skipulagshug- myndum er ætlunin að hlífa gróðr- inum umhverfis hverina með því að flytja mannvirkin, skála, vegi og tjaldstæði, lengra frá hverasvæð- inu. Páll segir að Svínhreppingar hafi ætlað sjálfum sér, skv. skipu- laginu, um 2.400 fermetra upp við Breiðmel. Það er blettur sem er rétt tæplega 50 metrar á kant og á honum er gert ráð fyrir bygging- um og bílastæðum. Þetta er álíka stórt svæði og það sem Ferðafélag Islands hefur undir á graslendinu við hverina, en er á ógrónu landi. Prófessornum verður tíðrætt um fégirnd og hagnaðarvonir Svínhreppinga í sambandi við ferðamannaþjónustu á Hveravöll- um. Ef af uppbyggingu þar verður er hugsanlegt að 2-4 menn úr hreppnum fái þar vinnu 2-3 mán- uði á sumri hverju, og kannski mætti selja eitthvað af heyi. Það hossar varla mjög hátt í pyngjum Svínhreppinga en gæti þó verið ágæt sumarvinna fyrir námsfólk. Það er furðulegt að prófessorinn skuli sjá ofsjónum yfir slíku og krydda málflutning sinn að auki með ómerkilegum dylgjum um heimamenn. Meginatriðið er að vernda Hveravelli um leið og ferðamönnum er gert kleift að fara um svæðið. Um það eru heima- menn og ferðafélagsmenn örugg- lega sammála. Stóryrðaflauminn ætti prófessorinn hins vegar að geyma handa einhverjum öðrum en Svínhreppingum. Höfundur er íslenskufræðingur. Draumavél heimilanna! Vegleg brúðargjöf! Isaumuð svunta með nöfnum og brúðkaupsdegi fylgir! 5 gerðir - margir litir 60 ára frábær revnsla /-/- Eínar Farestveit & Co. Itf. Borgaitúni 20 - sfmar 562 2901 og 562 2900 Góðar fréttir 26,7% Vaxtarsjóðurinn hf. Nafnávöxtun sl. 6 mánuði! WM ^ Hefur þú áhuga? Komdu viðí dag! Úrval irmlendra hlutabréfa Dæmi um félöa Markaðsverð Væqi islensk erfðagreining hf. 48.624.881 17,7% fslandsbanki hf. 33.108.499 12,1% Tryggingamiðstöðin hf. 29.263.700 10,7% Opin kerfi hf. 26.678.900 9,7% Eimskipafélag fslands hf. 19.565.715 7,1% Marel hf. 15.302.813 5,6% Önnur félöq oq laust fé 101.730.339 37,1% Samtals eignir 274.274.847 100% Sjóðurinn er fyrir þá sem vilja taka áhættu með hluta af sparifé slnu og líta á eign I sjóðnum sem langtlmaeign. Ávöxtun í fortíð er ekki vísbending um ávöxtun í framtíð. VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560 8900. Myndsendir: 560-8910.Veffang: www.vib.is Agla E. Hendriksdóttir deildarstjóri Einstaklingsþjónustu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.