Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 52

Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 52
52 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Hundalíf Ljóska Smáfólk 5EE? I PUT 6RAPE JELLT ON MY T0A5T...TMEN, l'M EXTRA CAREFULTO MAKE 5UREIT D0E5N‘T 5LIDE OFF.. ~y- Sjáðu? Ég setti ávaxtahlaup á brauðsneiðina mina... Nú verð ég að fara varlega svo það renni ekki út af... BUT I5THAT ENOU6H? NOÍ IT FALL5 DOWN THR0U6H LITTLE H0LE5 IN THETOA5T, AND 6ET5 ON MY 5HIRT! En er það nóg? Nei! Það kemur í gegn um litlu gðtin á sneiðinni og á skyrtuna mína! ekki við mig... BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavik • Sími 569 1100 # Simbréf 569 1329 Lokun gufubaðsins við Sundlaug Akureyrar Frá Valgarði Stefánssyni: MIKIL hátíð var haldin við sundlaug Akureyrar þann 23. júli síðastliðinn, en þá var tekin í notkun glæsileg búningsaðstaða fyrir konur og nýtt anddyri var vígt. Haldnar voru ræð- ur, blásið var í lúðra og klippt var á borða. Voru allir gestir sundlaugar- innar í miklu hátíðarskapi þennan hátíðisdag? Nei, aldeilis ekki! Þess var ekki getið í opnunarræðum að frá og með þessum sama degi yrði eina gufubaðinu (sauna) á Akureyri jafnframt lokað, en þetta gufubað hafði verið til afnota fyrir sundlaug- argesti allt frá opnun sundlaugarinn- ar 1956. Héðan í frá verða því gestir Sundlaugar Akureyrar að notast við venjulegt eimbað. Mörgum fasta- gestum sundlaugarinnar og gufu- baðsins til margra áratuga er veru- lega misboðið. Sjálfur hef ég verið fastagestur gufubaðsins í meira en þrjá áratugi og einnig hef ég verið nær daglegur gestur sundlaugarinn- ar frá opnun hennar og jafnvel fyrir þann tíma eða allt frá því að bún- ingsklefarnir voru norðan og ofan við núverandi eimbað. í þá daga kostaði ekkert útí fyrir okkur krakk- ana nema það að kalla til Ólafs sund- kennara Magnússonar: „Ólafur má ég fara út í?“ Og Ólafur svaraði þá venjulega að bragði: „Já, vertu vel- kominn!" Mér þykir því vænt mn staðinn og aðstaðan öll fer batnandi, nema lokun gufubaðsins sem er mik- il móðgun og ólíðandi í jafn stóru bæjarfélagi sem Akureyri. Allir sem reynt hafa vita að það er gríðarlega mikill munur á eimbaði og gufubaði. I gufubaði svitnar líkaminn enda hit- inn 90 til 100 gráður og líkaminn los- ar sig við óhreinindi, húðin mýkist og öll líffæri líkamans verða fyrir góð- um áhrifum hitans og eftir hvfld í hvíldarherberginu kemur maður út sem endumærður maður. En góð hvfld eftir gufubað er mjög nauðsyn- leg. Því miður hef ég ekki fundið aft- ur þessa sömu vellíðan, þessa sömu tilfmningu endurnæringar eftir lok- un gufubaðsins í Sundlaug Akureyr- ar. Eimbaðið er vissulega sæmilegt en það verður aldrei ágætt og getur aldrei komið í staðinn fyrir gufubað- ið. I eimbaði hitnar líkaminn aðeins, það er vart merkjanlegt að hann svitni þrátt fyrir langa dvöl, þetta sýna vísindalegar mælingar. Þetta vita líka fimm milljónir Finna en samkvæmt áreiðanlegum tölum frá 1998 eru þar í landi 1,5 milljóna gufubaða (sauna) eða 0,31 á per íbúa og eimbað þekkist tæpast þar í landi. Finnskt gufubað (sauna) á sér langa sögu sem er reyndar jafngömul kristnitökunni á Islandi og hefur unnið sér mikillar hylli um allan hinn vestræna heim, og víðar. Ritaðar hafa verið fjölmargar bækur og læknisfræðilegar ritgerðir um góð áhrif gufubaðs (sauna) fyrir líkama og sál. Því átti maður síst von á því á þessum síðustu og bestu tímum að forstöðumaður sundlaugarinnar og formaður íþrótta- og tómstundaráðs Akureyrar myndu taka þá ákvörðun að loka eina almenningsgufubaðinu á Akureyri fyrirvaralaust um ófyrir- séða framtíð og kasta tryggum fasta- gestum þess út á gaddinn, eins og skepnum. Eg óska svara frá for- manni íþrótta- og tómstundaráðs Akureyrar, Þórami B. Jónssyni, um það hvort það sé vilji fyrir því að opna fljótlega aftur jafn gott gufu- bað (sauna) og hvfldaraðstöðu á Akureyri. Það ætti ekki að kosta bæjarfélag- ið okkar stórar fúlgur fjár að reka áfram eitt lítið gufubað eða verða fyrrverandi fastagestir gufubaðsins og aðrir gestir sem þangað komu að leita út fyrir bæinn til að komast aft- ur í alvöru gufubað? VALGARÐUR STEFÁNSSON, Borgarsíðu 17, Akureyri. Flugvöllurinn í Skerjafírði Auðunni Braga Sveinssyni: STUNDUM getum við ekki orða bundist, þegar okkur virðist hallað réttu máli og villt um fyrir fólki. Þá skrifum við greinar í blöð og væntum þess, að þær fáist birtar við tæki- færi. Ég er hér með grein, sem mig langar til að fái inni sem bréf til Morgunblaðsins, því að þá er þess von, að flestir lesi hana. Morgun- blaðið hefur hlotið gífurlega út- breiðslu, svo að önnur blöð standast þar ekki samanburð. Mikið hefur verið rætt og ritað um flugvöllinn í Skerjafirði, sem í núver- andi gerð er svipaður þeim, sem lagður var af herveldunum, er sáu um vernd landsins á stríðsárunum síðustu. Herveldin gerðu tvo flug- velli, eins og kunnugt er: A Miðnes- heiði og í Skerjafirði. Vitanlega var gerður völlur sem næst þéttustu byggðinni, sjálfri Reykjavík. Ha- græði af vellinum, einmitt á núver- andi stað, er ómælt. Fáránlegt væri, ef innanlandsflugið yrði fært til Keflavíkur. Þá tæki í mörgum tilvik- um lengri tíma að flytja og sækja farþega þangað sem sjálf flugferðin út á land varaði. Við vitum, að flest fólk á landi hér býr við Faxaflóa, allt frá Akranesi til Reykjanesbæjar. Flutningur innanlandsflugsins kæmi sér einkar illa fyrir Vestmannaeyjar. Þangað er aðeins nokkurra mínútna flug frá Reykjavík, en næstum klukkustundar ferð í bíl frá Reykja- vík til Keflavíkur. Hagræði Hagræði af flugvellinum í Skerja- firði er alveg einstakt. Að hugsa sér, að við skulum geta sest upp í flugvél þar eftir nokkurra mínútna akstur í bifreið og verið komin á lendingar- stað hvar sem er á landinu að kalla, eftir klukkustund eða minna. Talað er um hættu af fluginu fyrir mannbyggð í Reykjavik. Víst getur allt komið fyrir, en tala nokkrir um hættu af flugi fyrir Reykjanesbæ? Ég hef ekki orðið var við það. Þar yf- ir fljúga þó vart færri flugvélar, og langtum stærri en innanlandsvélar þær sem yfir Reykjavík fljúga. Ekk- ert slys hefur enn orðið á mannvirkj- um eða á fólki, vegna innanlands- flugsins hér - sem betur fer. Komið hefur fram tillaga um að flytja flugvöllinn út í sjó í Skerja- firði! Hvflíkur dæmalaus barnaskap- ur! Flugvöllurinn verður nú endur- nýjaður, enda ekki vanþörf á. Ég vænti þess að geta enn um sinn sest upp í flugvél á Reykjavíkurflugvelli, og flogið síðan hvert sem ég ætla mér út á land. Reykjavíkurflugvöllur lengi lifi! AUÐUNN BRAGI SVEINSSON, Hjarðarhaga 28, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.