Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 56

Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 56
♦ 56 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ CÍSj ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 SALA OG ENDURNÝJUN ÁSKRIFT ARKORTA HEFST FÖSTUDAGINN 3. SEPTEMBER j Miðasölusími 5 30 30 30 FerSaskrifstofa stúdenta Alltaf á mlðWku-, fimmtu-, og föstudögum Hádegisverður kl. 12.00, sýningin hefst kl. 12.20 og lýkur um kl. 12.50. Miðaverð með mat 1.450 kr. Leikari: Stefán Karl Stefánsson Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson f r Ó n pnMo M M 5 30 30 30 Möasala opfei ala vrka daga Irá kL 11-18 og teá kL 12-18 un helgar IÐN O-KORTIÐ, SALA í FULLUM GANGI! )rl^pláa HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 12.00 mið 1/9 örfá sæti laus flm 2/9 örfá sæti laus fös 3/9 örfá sæti laus mið 8/9, fim 9/9, fös 10/9, ATH. Lau 11/9 ÞJONN í s ú p u n n i Fim 9/9 kl. 20.00 nokkur sæti laus Nánari dagsetn. auglýstar síðar TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA! 20% afsláttur af mat fyrir leikhúsgesti i Iðró. Borðapantanir í síma 562 9700. Gamanleikrit i leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar Fim 2/9 kl. 20 UPPSELT Lau 4/9 kl. 20 UPPSELT Fös 10/9 kl. 20 UPPSELT Lau 11/9 kl. 20 UPPSELT Ósóttar pantanir seldar daglega Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 10 Miðasala opin frá ki. 13—19 alla daga nema sunnudaga Ipft, Vi 5S1 Ú S.O.S. Kabarett í leikstjórn Sigga Sigurjónss. fös. 3/9 kl. 20.30 örfá sæti laus lau. 11/9 kl. 20.30 örfá sæti laus fös. 17/9 kl. 20.30 Nd-eréf U&v HATTUR OG FATTUR BYRJA AFTUR EFTIR SUMARFRÍ sunnudag 12. sept. kl. 14.00. Á þín fjölskylda eftir að sjá Hatt og Fatt? Miðasala í s. 552 3000. Opið virka daga kl. 10—18 og fram að sýningu sýningardaga. Miðapantanir allan sólarhringinn. -Ælina Fegurðin kemur innan fró Laugovegi 4, sími 551 4473 ____FÓLK í FRÉTTUM_ LEIKSTJ ÓRINN DAVID MAMET MÓTTÖKURNAR erlendis benda til þess að einn hápunkta Kvik- myndahátíðar í ár verði Winslow strákurinn - The Winslow Boy, nýjasta mynd Bandaríkjamannsins Davids Mamet. Líkt og flestir vita er hann eitt virtasta og áhrifamesta leikritaskáld og kvikmyndahandrita- höfundur samtímans, en að undan- förnu hefur hann snúið sér í auknum mæli að kvikmyndaleikstjórn þar sem hróður hans er sífellt að aukast. Þessi kúvending á ferli Mamets varð til þess að hann sá sér ekki fært að þiggja gestaboð hátíðarinnar þar sem hann er upptekinn við að leik- stýra næstu mynd, State and Maine, norður í fylkinu hans Stephens King. Umfjöllun um Winslow dreng- inn bíður betri tíma. Spánski fang- inn - The Spanish Prisoner, næsta mynd Mamets á undan, var eitt af trompum Kvikmyndahátíðarinnar í febi-úar og sýndi stökkbreytingar framá við hvað snertir tök skáldsins á leikstjórninni. Fékk lofsamlega dóma hjá almenningi og gagn- rýnendum, og sjálfsagt verið aðal- hvatinn að því að hann hefur nú skipað sér í hóp með Woody Allen og örfaáum öðrum, góðum mönnum, sem sinna bæði sjóm og skriftum. Það hefur ekki farið framhjá þeim sem þekkja verk Mamets að bak- gmnnur þeirra flestra er Chicago, stórborgin við Michiganvatnið sem kölluð er „rokrassinn" („Windy city“), af heimamönnum. Þar er Ma- met fæddur (‘47), og alinn upp. For- eldrar hans rússneskir innflytjendur af gyðingaættum. Að loknu háskóla- námi, þar sem hann setti upp og lék í sviðsverkum, sneri Mamet sér beint að leikhúsunum í Chicago. Stofnaði St. Nicholas Theatre Company og stýrði Goodman leik- húsinu um hríð. Var eftirsóttur fyr- irlesari í leikhúsfræðum við Yale, New York University og fleiri, virta háskóla, strax uppúr tvítugu. 1971 gerði hann leikritaskrif að aðalat- vinnu og athyglin lét ekki á sér standa. Sexual Perversity in Chicago (kvikmynduð undir nafninu About Last Night, (‘86)), færði hon- um Obie verðlaunin og heimsfrægð aðeins tveiumur árum síðar. Mamet gulltryggði sig síðan 1976, þegar American Buffalo (kvikmynduð ‘96 með Dustin Hoffman), kom fram á sjónarsviðið, eitt margverðlaunað- asta verk leikritaskáldsins, var m.a. valið besta leikrit ársins af virtasta og kröfuharðasta hópi bandarískra gagnrýnenda, The New York Drama Critic Circle. Þeir veittu Ma- met sama heiður ‘84, fyrir hans besta verk til þessa, Glengarry Glenn Cross, (kvikmyndað ‘92 með A1 Pacino, Alec Baldwin ofl. öndveg- isleikurum). Aukinheldur vann það til sjálfra Pulitzerverðlaunin og fernra Emmyverðlauna. Meðal ann- arra, kunnra verka höfundar má nefna Obie verðlaunaverkin Ed- mond og The Cryptogram. Lake- Leikritaskáldið, handritahöf- undurinn og -læknirinn David Maniet, við tökur á Winslow stráknum. Það er engnm að treysta í Spánska fangunum. boat, A Life In the Theatre, Oleanna og The Old Neighorhood. Áhugi Mamets á kvikmyndalist- inni kom snemma í ljós. I dag er hann bæði mikilsmetinn handrita- höfundur og „handritalæknir", sem eru hátt skrifaðir fagmenn í kvik- myndaiðnaðinum; úrvalspennar sem leitað er til þegar minni spámenn klúðra hlutunum. Fyrstur til að gefa Mamet tæki- færi við skrif kvikmyndahandrita var Bob Rafelson, sem treysti þessu orðheppna, oft kjaftfora leikrita- skáldi manna best til að gera nýja kvikmyndagerð eftir Pósturinn hringir alltaf tvisvar, fílm noir kreppusögunni hans James M. Cain. Það var 1981. Ekki betrumbætti hann handbragð Harrys Ruskins frá ‘46, en átti þess betri daga við gerð The Verdict, (‘82). Það er eitt lang- besta handritið sem hann hefur samið fyrir aðra og myndin hans Sydneys Lumet hlaut fjölda Paul Newman vinnur sinn stærsta leiksigur í The Verdict, sem útbrunninn lögfræðingur sem rís uppúr öskustónni í mögnuðu hlutverki - skrifuðu af Mamet. Óskarsverðlaunatilnefninga, m.a. fyrir handritið. Önnur Chicago- mynd, Hinir vammlausu - The Untouchables, (‘87), var einnig mik- ilvæg mynd undir stjórn Brians De Palma. Hoffa, (‘92, var hinsvegar nokkur vonbrigði, náði ekki tilætluð- um mikilleik þó hún væri um margt athyglisverð. Sama má segja um The Edge,(‘97), nýjustu mynd Nýsjálendingsins Lee Tamahori, en Mamet bætti um betur með Wag the Dog, sama ár. Þessi fyndna, póli- tíska ádeila státaði af ótrúlega mein- fyndnu handriti þar sem Clintonleg- ur forseti er hafður að skotspæni. Þáttaskil varð á ferli Mamets árið 1987, er hann leikstýrði House Of Games, fyrstu kvikmynd sinni. Hann er einnig höfundur handrits- ins. Áii síðar leikstýrði hann Things Change, sem hann skrifaði í sam- vinnu við háðfuglinn Shel Silver- stein. Þessi litla perla státar m.a. af Don gamla Ameche (sem reyndar vann enga leiksigra á yngri árum, þegar hann var stjarna), hreint óborganlegum sem skóari sem tekur að sér að sitja inni fyrir mafíufor- ingja. Smábófi (Joe Mantegna), er fenginn til að gæta hans uns dómur- inn fellur. Hann miskunnar sig yfir karlangann og fer með hann útá lífið þar sem þeir njóta lífsins um sinn. Homicide, (‘91) og Oleanna, (‘94), næstu leikstjórnarverkefnin, byggði hann á eigin leikhúsverkum, en myndirnar hafa ekki farið vfða þrátt fyrir þokkalega dóma. Eftir nokk- urra ára hlé komst Mamet síðan aft- ur á fulla ferð í leikstjóminni með Spánska fanganum, og virðist hafa haslað sér engu síðri völl sem leik- stjóri en skáld. Það getum við von- andi sannreynt á Kvikmyndahátíð- inni. Sígild myndbönd THE VERDICT (‘82)+1rk'h Hafandi séð nánast allar myndir Pauls Newman þá er það engin spurning í mínum huga, minnipoka- lögfræðingurinn hans í þessari vel gerðu mynd af Sydney Lumet, er ein hans besta túlkun á stórkostlegum ferli, Enda handritið hans Mamets (byggt á skáldsögu Barrys Reed), óhemju vel skrifað. Rulla Newmans bein og mergur myndar um drykkju- sjúkan, hálfútbrunninn lögmann sem rís upp úr öskustónni þegar síst var- ir. Lætur ekki knésetja sig af út- smognum lögfræðingum trygginga- fyrirtækis (magnaðir James Mason og Milo O’Shea). Heldur setur tapp- ann í flöskuna, og endurvinnur sjálfsvirðinguna. Fyrsta flokks skemmtiefni á allan hátt. HOUSE OF GAMES, (‘87)★★★ Frumraun Mamets í leikstjóra- stólnum (skrifaði einnig handritið), er snjöll spennumynd í anda Hitchcoeks. Sálfræðingur (leikinn af Lindsay Crouse, þáverandi eigin- konu Mamets), dregst inní út- smogna svikamyllu sem sett er upp af fjallbröttum klækjaref (Joe Man- tegna). Crouse á góðan dag sem sjálfumglöð hæfileikamanneskja á sínu sviði og metsölubókarhöfund- ur. Sem fyrr en varir veit ekki hvað snýr upp né niður í ráðabruggi refsins, sem hún hefur fallið fyrir. Einstaklega vel útfærður'söguþráð- ur er spunninn í kringum marg- snúna atburðarásina, útsjónarsemi er eitt aðalsmerki höfundar. Man- tegna (einn af fastaleikurum Ma- mets, annar er hinn frábæri Willi- am H. Macy, sem hefur verið í annarri hverri mynd frá Fargo, og í slagtogi við skáldið/leikstjórann síðan á ártímum St. Niicholas leik- hópsins), fer á kostum og myndin óvenju fullnægjandi af verki af þessum toga. SPÁNSKI FANGINN - THE SPANISH PRISONER (‘98) lck+Vi Þaulhugsuð flétta sem snýst um elstu brellu klækjasögunnar, fyndin, snúin og oftast skynsamleg. Camp- bell Scott leikur ungan, tvístígandi tölvusnilling sem hefur fundið upp byltingarkennt forrit. Vill að sjálf- sögðu fá sem mest fyrir sinn snúð, en málin snúast þannig að þessi hlé- drægi og óreyndi maður veit ekkert hverjum hann á að treysta. Mamet spinnur við fléttuna skemmtilegum persónum sem erfítt er að henda reiður á. Steve Martin leikur klækjaref sem platar tölvumanninn uppúr skónum. Ben Gazzara vafa- saman eiganda tölvuyrh-tækisins og Rebecca Pidgeon óáreiðanlega kven- persónu. Þau standa sig öll frábær- lega og ástæða til að benda fólki sér- staklega á þessa fáséðu mynd. Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.