Morgunblaðið - 02.09.1999, Side 4

Morgunblaðið - 02.09.1999, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Náttúru- undur við Eyja- bakka JÖKULSÁ í Fljótsdal hefur myndað íshelli í Eyjabakkajökli á leið sinni fram undan jökulsporð- inum. „Myndin er tekin í sumar en þá hafði snjórinn bráðnað of- an á jöklinum sem gerir það að verkum að bláminn kemur svona vel í gegn,“ segir Benedikt Bragason, sem starfar við vélsleðaferðir á Mýrdalsjökli. Hellirinn nær, að sögn Bene- dikts, hundruð metra undir jökulinn og víða er hátt til lofts og vítt til veggja. Á veturna frýs áin í botni hellisins og þá er gangfært býsna langt inn en þar sem Iiðið er á sumar var áin farin að brjótast upp og því komust Benedikt og félagar bara hálfa leið. Benedikt segir orðið býsna algengt að menn skoði hellinn, jafnt vetur og sumar, enda um sérstætt náttúrundur að ræða. Hann óttast að fyrirhugað lón kunni að eyðileggja hellinn nái það alla leið upp undir jökul. Morgunblaðið/Benedikt Bragason Kennarar fengu 31 milljón í ofgreidd laun NOKKUR fjöldi kennara í Reykjavík hefur fengið ofgreidd laun allt frá haustinu 1997 er síðustu kjarasamningar tóku gildi. Nemur heildarupphæð ofgreiddra launa um 31 milljón króna, að sögn Olafs Darra Andrasonar, for- stöðumanns fjármálasviðs Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. Ólafur Darri sagði að í samræmi við verklagsreglur Reykjavíkur- borgar og ríkisins um meðferð svona mála væri gert ráð fyrir þvi að kennarar verði krafðir um endur- greiðslu á ofgreiddum launum, en aðeins fyrir launagreiðslur sem fall- ið hafa til á þessu ári. Sú upphæð nemur um 11 milljónum króna. Hann sagði að kennurum yrði gef- inn kostur á því að greiða mismun- inn upp á ótta mánuðum og að þeir yrðu ekki krafðir um greiðslu á of- greiddum launum vegna áranna 1997 og 1998. Að sögn Ólafs Darra eru einnig dæmi um það að kennarar hafi feng- ið vangreidd laun allt frá árinu 1997. Hann sagði að þeir myndu fá endur- greitt og að sú endurgreiðsla myndi ná allt aftur til haustsins 1997. 179 kennarar fengu bréf „Það uppgötvaðist núna í sumar- lok að kennarar hafa í ókveðnum til- fellum fengið ranglega reiknuð laun,“ sagði Ólafur Darri. „Þegar við fórum að kanna þetta þá kemur í ljós að þegar kjarasamningurinn, sem gerður var 1997, var settur inn í launakerfi borgarinnar urðu ákveðin Vísitala neysluverðs Hækkun vegna bensíns 0,24% HÆKKUN á verði bensíns um rúm- ar fimm kr. lítrinn nú um mánaða- mótin mun ein og sér valda hækkun á vísitölu neysluverðs sem nemur 0,24%, samkvæmt upplýsingum Hag- stofu Islands, en vísitalan íyrir sept- ember verður birt í lok næstu viku. Hækkanir á bensínverði fyrr á ár- inu hafa til viðbótar valdið 0,6% hækkun á vísitölu neysluverðs, en vísitalan í heild hefur hækkað um 2,9% frá janúarmánuði fram í ágúst. Eftir bensínhækkunina nú um mánaðamótin er útsöluverð á hverj- um lítra af 95 oktana bensíni 87,70 kr. Þar af renna um 58 krónur í ríMs- sjóð í formi vörugjalds, bensíngjalds og virðisaukaskatts, samkvæmt upp- lýsingum Félags íslenskra bifreiða- eigenda, en um 30 krónur samanlagt eru innkaupsverð og flutningskostn- aður, flutningsjöfnunargjald og dreif- ingarkostnaður olíufélags. Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri FÍB, sagði að hlutur olíufélag- anna í bensínverðinu virtist ekki hafa aukist á þessu ári, en það hefði gerst á síðasta ári. Bensínverð væri byijað að lækka á heimsmarkaði og flest benti til þess að sú þróun héldi áfram. Að óbreyttu ætti bensínverð að lækka í síðasta lagi eftir mánuð og mjög mikilvægt væri að þetta gegnsæi héldist og heimsmarkaðs- verðið réði verði á hverjum tíma. Runólfur sagði að þegar jafnmikil hækkun hefði orðið á bensínverði og raun bæri vitni að undanfömu, en Skipting bensínverðs í einstaka hluta í september 1999 95 okt. bensín: 87,70 kr. tonnið hefði hækkað úr rúmum 100 dollurum tonnið í 230 dollara, fynd- ist þeim óeðlilegt að ríkissjóður tæki hlutfallslega sífellt meira af verði hvers lítra, en af hækkuninni nú um 5,30 kr. væru 3,10-3,20 krónur hreinn skattur sem rynni í ríkissjóð. mistök, sem leiddu til þess að launa- þrep voru ranglega reiknuð í ákveðnum tilfellum." Alls fengu 179 kennarar send bréf í byrjun vikunnar, þar sem þeim var tilkynnt um reikningsvilluna. Ólafur Darri sagði að búast mætti við því að einhverjir fleiri hefðu einnig fengið ofgreidd eða vangreidd laun, en það kæmi ekki í ljós fyrr en búið væri að fara alveg yfir málið. Óttast að þetta dragi dilk á eftir sér Eiríkur Jónsson, fonnaður Kenn- arasambands Islands, sagði að sam- bandið myndi fara yfir málið á næstu dögum og skoða hvort endur- greiðslukrafan stæðist lög. „Ef þetta er löglegt þá verður að sæta því, en ef ekki þá verður að grípa til einhverra ráða,“ sagði Eirík- ur. „Það er mjög alvarlegt þegar jafnstór launagreiðandi og Reykja- víkurborg gerir svona villur. Þá kem- ur þetta upp á mjög slæmum tíma, í upphafi skólaárs og í lokin á hörðum átökum. Eg óttast mest að þetta dragi einhvem dilk á eftir sér og að þetta muni valda úlfúð og leiðindum í skólunum og ýfa upp einhver gömul sár og verða til bölvunar." Að sögn Eiríks kom ýmislegt í ljós þegar kennararnir fóru að rýna í launaseðlana sína í kjölfar frétt- anna, m.a. hefðu sumir verið látnir greiða í rangan lífeyrissjóð og aðrh- settir í rangan launaflokk, þ.e. ein- um flokk neðar en þeir áttu að vera. „Þetta vekur upp ákveðnar spurn- ingai- um launakerfi borgarinnar, það er hvort eitthvað sé meira og minna að þarna og það er mjög mik- ilvægt að það verði skoðað.“ NÁMSI Við hjá Búnaðarbankanum vitum að nám er vinna. Við vitum líka að námsmenn eru duglegir og metnaðarfullir og þess vegna viljum við veita þeim aðstoð. $ námsmannalínan nam er vmna Gullreikningur meö námsmannakjörum Fjármálahandbók Heimilisbanki Bílprófsstyrkir Skipulagsbók Isic afsláttarkort Tölvukaupalán Framfærslulán Námsstyrkir Námslokalán * www.bi.is )ARMNKINN Tmuslur buuht Dómsmála- ráðherra lætur semja lög um fast- eignakaup SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála- ráðherra hefur ákveðið að láta semja frumvarp til laga um fast- eignakaup. Markmið laganna væri að bæta úr réttaróvissu en tilefnið er brýnt sagði hún, enda fasteigna- kaup jafnan mikilvægustu viðskipti í lífi einstaklinga og aleigan í húfi. Sólveig segir að formaður Húseig- endafélagsins, Sigurður Guðjóns- son, hafi vakið athygli á þessu máli og um það hefur verið rætt að und- anförnu. Sólveig Pétursdóttir bendir á að á Norðurlöndum hafi verið sett lög um fasteignakaup og að ástæða væri til að hliðstæð lög yrðu sett hér á landi. I slíkum lögum væri m.a. ástæða til að setja skýrar regl- ur um úrræði þeirra aðila sem þurfa að þola vanefndir. „Takist vel til með setningu laga um fasteigna- kaup mun það styrkja réttarstöðu bæði seljanda og kaupanda og stuðla að öryggi í fasteignaviðskipt- um,“ sagði ráðherra. Lögin verði afdráttarlaus Dómsmálaráðhen-a minnti á til- vik sem greint hafi verið frá þar sem kaupendur nýbygginga hefðu ekki fengið fasteignir afhentar á réttum tíma frá verktaka. „Þetta hefur oft í för með sér mikið óhag- ræði og tjón fyrir kaupanda, sem verður ef til vill að leigja sér annað húsnæði og þola ýmsan kostnað þessu samfara," sagði Sólveig. „í lögum um fasteignakaup er mikil- vægt að með afdráttarlausum hætti verði mælt fyrir um úrræði kaup- anda við þessar aðstæður, það er hvenær hann eigi rétt á bótum úr hendi seljanda og hvað skuli bætt.“ Sólveig vakti athygli á nauðsyn þess að réttarstaða verði skýr í öðru tilliti, t.d. um rétt kaupanda þegar eignin reynist gölluð. í lögunum þyrfti því að vera ákvæði um upp- lýsingaskyldu seljanda um ástand eignarinnar. Jafnframt benti ráð- herra á að í lögum um fasteigna- kaup verði jafnframt kveðið á um réttarstöðu seljanda og úrræði hans, svo sem ef kaupandi stendur ekki í skilum með- greiðslur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.