Morgunblaðið - 02.09.1999, Side 58
58 FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Jason og
gullna reyfið
f SÍÐASTA þætti mínum var ljóð eftir Matthías
Jochumsson þar sem hann líkir vettlingum úr ull
við gull. f ljóðabálki eftir Apollonius frá Rhodes
kemur líka fram þessi samlíking en það fjallar um
Jason Argóarfara og gullna reyfíð. Ljóðið er
samið um 300 f.Kr. en er byggt á enn eldri sögn. í
ljóði Apolloniusar segir frá Jason Argóarfara sem
fer ásamt fimmtíu öðmm grískum sagnahetjum á
fleytunni Argó til Kolkis. Þangað fara þeir til að
sækja dýrmætt hrútsreyfí sem kallast „gullna
reyfið“. Þess var gætt af ógurlegum dreka. Þegar
Jason og félagar komu til Kolkis var þeim heitið reyfínu ef Jason gæti
Ieyst erfíðar þrautir. Honum tókst það með hjálp Medeu, fjölkunnugr-
ar eða með öðrum orðum göldróttar, konungsdóttur og sigldu þau
síðan heim til Grikklands með gullna reyfíð. Það er því ekki nýtt af
nálinni að líkja ullinni við gull.
í enskri þýðingu á ljóðinu um Jason er athugavert að enska orðið
yfir gullna reyfíð er „the Golden Fleece". Sem leiðir hugann að hinu
nýja efni sem kallast á íslensku „flís“ og hvaðan það orð er komið.
Skv. starfsmanni orðabókar Háskólans er hér um sama órðið að ræða
nema hvað búið er að islenska stafsetninguna. Enska orðið „fleece“
verður að íslenska orðinu „flís“ sem er borið eins fram. Það hefur því
engin þýðing átt sér stað í sjálfu sér. Skv. ensk-íslenskri orðabók þýð-
ir orðið „fleece": reyfí og skv. íslenskri orðabók Máls og menningar
þýðir orðið reyfí: samfelld ull af einni kind.
Flísefnið svokallaða er 100% polyester en það er heiti ýmissa gervi-
efna sem framleidd eru úr sýrum og alkóhólum. Það er því athuga-
verð niðurstaða að kalla 100% gerviefni fleece eða reyfi á íslensku
sem er nafn á algjörlega náttúrulegu efni. Já, það er margt skrýtið
undir sólinni.
Talandi um sól þá fer hún víst lækkandi sem þýðir að klæða þarf
börnin betur. Þá er ekkert betra en blessuð ullin, af 100% alvöru kind-
um, til að halda á þeim hita!! Þetta skemmtilega fyótprjónaða sjal og
húfa í stfl, úr ALFA garni á prjóna nr. 7, ætti að halda hita að litlum
kroppum í kuldanum í vetur.
Húfa og slá
Stærðir: (2-4) 6-8 (10-12) ára
Sídd á slá uþb. (48) 56 (62) cm
mæld á miðju að framan
Garn: ALFA 85% ull og 15%
mohair
Brúnt 2653: (400) 500 (600) g
Kremað 1012: (100) 100 (100) g
Koksgrátt 1088: (100) 100 (100) g
Hringprjónar og sokkaprjónar nr.
6 og 7
Prjónfesta á Alfa:
13 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 7
= 10 cm
SLÁ: Byrjið efst í hálsmálinu og
fitjið upp á sokkaprjóna nr. 6 með
kremuðu (52) 56 (60) lykkjur.
Prjónið 2 sléttar 2 brugðnar hring-
inn þannig: 1. umferð kremað - 2
umferðir koksgrátt - haldið áfram
með brúnu þar til stroffið mælist
(12) 14 (16) cm. Prjónið 1 umferð
slétt prjón og aukið út um 4 lykkj-
ur jafnt yfir prjóninn = (56) 60 (64)
lykkjur. Setjið 4 merki í hringinn
þannig: setjið merki í 1. lykkjuna
= miðja bak, í (15.) 16. (17.) lykkj-
una = öxl, í (29.) 30. (31.) lykkjuna
= miðja framan, og í (43.) 44. (45.)
lykkjuna = öxl, samtals = 4 merki-
lykkjur með (13) 14 (15) lykkjum á
milli. ATHUGIÐ: Gott er að setja
mismunandi liti í merkOykkjumar
til að aðgreina axlir og bak/fram-
stykki vegna útaukningarinnar.
Skiptið yfir á prjóna nr. 7. Prjónið
áfram slétt prjón, allar merkilykkj-
urnar eru prjónaðar sléttar og það
er aukið út um 1 lykkju báðum
megin við þær (6) 7 (8) sinnum =
(104) 116 (128) lykkjur á prjónin-
um. ATHUGIÐ: Aukið út með því
að taka upp bandið á milli og
Sláin og húfan eru fljótprjónuð á prjóna nr. 7 úr mjúku Alfa-garni,
prjóna það snúið slétt. Aukið áfram
út við miðjulykkjuna að framan og
aftan í annarri hvei-ri umferð eins
og áður en á öxlum í 4. hverri um-
ferð (4) 5 (6) sinnum. Aukið áfram
út að miðju framan og aftan þar til
að sláin mælist (32) 36 (40) cm frá
1. aukningu á miðju að framan.
Prjónið munsturbekki A + B + C.
Miðjusetjið munstrið eftir örinni á
munsturteikningunni þannig að
munstrið byrji og endi eins báðum
megin við merkilykkjuna að fram-
an og aftan. Eftir munstrið prjóna-
st (4) 6 (8) umferðir með brúnu.
Skiptið yfir á prjóna nr. 6 og prjón-
ið 1 umferð brugðið. ATHUGIÐ:
það er haldið áfram að auka út að
framan og aftan. Fellið af með
sléttum lykkjum. Búið til 4 koks-
gráa dúska. Saumið þá á miðju
framan og aftan og einn sinn hvor-
um megin á milli.
HÚFA með eyrum: Byrjið á öðru
eyranu og fitjið upp með brúnu 4
lykkjur á prjóna nr. 7. Prjónið slétt
prjón fram og til baka (slétt á réttu
brugðið á röngu) jafnframt sem
aukið er út um 1 lykkju báðum
megin á öðrum hverjum prjón (3) 4
(5) sinnum = (10) 12 (14) lykkjur.
Prjónið áfram án þess að auka út
þar til eyrað mælist (6) 7 (8) cm.
Prjónið hitt eyrað eins. Fitjið upp
r
Apwtekið
Kynning í Apótekinu
Smáratorgi í dag og á
morgun kl. 14-16.
■ T /
f
NÝ KVNSLÖP Vft V6 DCNTAL
HLUT1AF TANWHIROU
ÍSLCNDINÖA
ftfiC
tannlæknafélagið
mælir með notkun á sykurlausu
tyggigúmmíi á borð við V6.
lltí 'rl l ILCOA 001 l VY0OIOUMMI
MURFLEX
Á SVALIR 06 ÞÖK
SVEI6JANLE6T VATNSÞETTIEFNI
I
I steinprýði
Stangarhyl 7, sími 567 2777, fax 567 2718.
miðjulykkja á hvorri hlið
i
• • • • • • <? # • •
o c' • • • •
• •
• • • • • • • • *■ • • •
;>I X 1 :/ X X X X X X
X X X X X X X X X X
X X X X
X X X X X X X X
X1 X X X
X X X X X X X X s X
X X X X X X X X X X X X
• • • • • • • • • • • •
X • X • X • X • X • X o
X • X • X • X • X • X o
• X • X • X • X • X c a
?. k £ I* £ 1* nisnmnci
J
endurtekið
(-| _ kremað
@ = brúnt
® = koksgrátt
fyrir húfunni þannig: Fitjið upp (5)
5 (6) lykkjur, prjónið annað eyrað,
fitjið upp (24) 26 (26) lykkjur
(miðja framan), prjónið hitt eyrað,
fitjið upp (5) 5 (6) lykkjur = (54) 60
(66) lykkjur á prjóninum. Prjónið
slétt pijón hringinn með brúnu.
Eftir 1 cm er pijónað munstur B,
afgangurinn af húfunni er prjónað-
ur með brúnu og slétt pijón. Þegar
húfan mælist (10) 12 (14) cm í miðju
að framan er fellt af í toppinn
þannig: Pijónið (7) 8 (9) lykkjur
sléttar, prjónið 2 lykkjur saman, út
hringinn. Prjónið 2 umferðir án úr-
töku. Takið úr í 3. hverri umferð.
Það fækkar um 1 lykkju á milli úr-
tökustaða við hverja úrtökuumferð.
Þegar 6 lykkjur eru eftir á pijónin-
um er prjónað 3 cm slétt prjón.
Prjónið 2 lykkjur saman út umferð-
ina. Dragið þráðinn í gegnum lykkj-
urnar, herðið vel að og gangið frá
endanum.
Kantur utanum húfuna: Byrjið
að miðju aftan og prjónið upp með
koksgráu á prjóna nr. 6 1 lykkju í
hverja lykkju að framan og aftan
og u.þ.b. 3 lykkjur á hverja 2,5 cm
meðfram eyrunum = 1 umferð
slétt frá réttu. Fellið af frá röngu
með sléttum lykkjum = 1 garður.
Snúið saman brúnt og koksgrátt
u.þ.b. 5 cm langar snúrur, saumið
þær á eyran. Búið til 2 koksgráa
dúska og festið á endann á snúrun-
um.
SÖLUSTAÐIR UM
ALLTLAND
NY
SPARPERA
SEM KVEIKIR
OG SLEKKUR