Morgunblaðið - 02.09.1999, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.09.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 33 semur Karl Ágúst Úlfsson. Frum- sýnt í lok september. Næst á fjalirnar er Krítahring- urinn í Kákasus eftir Bertholt Brecht í leikstjórn Stefan Metz. En Metz starfar við Théatre de Comp- licité í London og kemur sérstak- lega til landsins til að stýra verkinu. Hlutverk eru m.a. í höndum Mar- grétar Vilhjálmsdóttur, Sigurðar Sigurjónssonar, Kristbjargar Kjeld, Arnars Jónssonar, Ingvars E. Sigurðssonai- og Rúnars Freys Gíslasonar sem nýlega var fastráð- inn við Þjóðleikhúsið. Verkið er í þýðingu Þorsteins Þorsteinssonar, brúðuhönnuður er Suze Wachter, en dramatúrg er Philippe Bischof. Frumsýning er fyrirhuguð í nó- vember. Jólaleikrit Þjóleikhússins að þessu sinni er Gullna hliðið, sem telst til gullmola íslenskrar leik- sögu og þarf vart að kynna sögu Davíðs Stefánssonar. Hilmar Snær Guðnason er leikstjóri verksins að þessu sinni, en með hlutverk kerl- ingar fer Edda Heiðrún Backman. Frumsýnt annan í jólum. Komdu nær eftir Patrick Marber er margverðlaunað leikverk sem vakið hefur töluverða athygli er- lendis. En leikritið þykir djörf, harkaleg og fyndin ástarsaga úr nútímanum. Verkið er í þýðingu Hávars Sigurjónssonar. Frumsýnt í janúar. I tilefni að hálfrar aldar afmæli Þjóðleikhússins var efnt til leikrita- samkeppni og er Landkrabbinn eftir Ragnar Arnalds sigurvegari þeirrar samkeppni. Verkið er á gamansömum nótum, með skraut- legum persónum og fjallar um lífið um borð í íslenskum togara. Hilmar Jónsson sér um leikstjóm og leik- mynd er hönnuð af Finni Arnari Arnarssyni. Frumsýning er fyrirhuguð í febr- úar-mars. Afmælisverk Þjóðleikhússins verður Draumur á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare. Verkið er einn vinsælasti gamanleikur Shakespeares en þar blandast sam- an draumur og veruleiki, galdrar og fyndnar flækjur. Leikstjóri er Baltasar Kormák- ur, en leikendur eru flestir af yngri kynslóðinni _og má þar nefna þau Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, BrynhUdi Guðjónsdóttur sem hlaut fastráðningu hjá Þjóðleikhúsinu nú í haust, Stefán Karl Stefánsson og Ingvar E. Sigurðsson. Smíðaverkstæðið Fedra eftir Jean Racine verður sett upp á leikárinu. En verkið er ein kunnasta ástarsaga leikhúsbók- menntanna og fjallar um ástríður, stjórnmál, sekt og ill örlög. Verkið er í þýðingu Helga Hálfd- ánarsonar, en leikstjóri er Sveinn Einarsson. Leikendur eru Tinna Gunnlaugsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Ai-nar Jónsson, Hall- dóra Björnsdóttir, Anna Kristín Amgrímsdóttir, Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir og Gunnar Eyjólfsson. Fmmsýnt í byrjun október. Vér morðingjai' eftir Guðmund Kamban fylgir í kjölfarið á Smíða- verkstæðinu. En verkið fjallar um hjónabandið, ást og afbrýði og hef- ur verið lýst sem einu besta ís- lenska leiki'iti aldarinnar. Leik- stjóri er Þórhallur Sigurðsson og meðal leikenda em Halldóra Björnsdóttir og Valdimar Örn Flygerring. Framsýning áætluð um áramót. Litla sviðið Hægan, Elektra eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur er eitt nýju íslensku verkanna sem frumsýnd verða í vetur. Verkið þykir metnaðarfullt og nýstárlegt leikhúsverk, en Hrafnhildur hlaut Norrænu leikskáldaverðlaunin fyr- ir fyrsta verk sitt, Ég er meistar- inn. Um leikstjórn sér Viðar Egg- ertsson, en leikendur em Edda Heiðrún Backman, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Atli Rafn Sig- urðarson. Framsýnt í janúar. Leikrit John Osborne Horfðu reiður um öxl telst með umtalaðri verkum aldarinnar. Þar er tekið á mannlegum samskiptum á bæði kraftmikinn og áhrifamikinn hátt. Kristján Sigrún Jóhannsson Eðvaldsdóttir Rico Bernharður Saccani Wilkinson Sinfóníuhljómsveitin hefur starfsárið með tónleikaferð um Norðurland, 9. til 11. september. Flutt verða_ verkin L’Arlesienne eftir Bizet, Áttunda sinfónía Dvor- áks og Trompetkonsert Alexanders Arutunians. Einleikari verður Ás- geir Steingrímsson og stjórnandi Bernharður Wilkinson, aðstoðar- hljómsveitarstjóri SÍ. Bláa röðin Bláa röðin verður í vetur helguð tónlist frá öldinni sem er að líða og koma íslensk tónskáld þar nokkuð við sögu. Er þetta nýbreytni og kveðst Helga Hauksdóttir, tónleik- astjóri SÍ, binda miklar vonir við röðina. Bláa röðin býður upp á framflutning á mörgum verkum hér á landi. Fyrstu áskriftartónleikar vetrar- ins heyra undir þessa röð og verða þeir 16. september. Gestir hljóm- sveitarinnar í það skiptið verða söngvararnir Gunnar og Guðbjöm Guðbjörnssynir, Marie McLaughl- in, Thomas Mohr og Manfred Hemm en flutt verða verkin Apol- lon musagete eftir Stravinskíj og Höfuðsyndirnar sjö eftir Kurt Weill. Fyrsti gestastjórnandi starfsársins verður Anne Manson frá Bandaríkjunum. Manson verður aftur á ferðinni á öðrum tónleikum Bláu raðarinnar 25. nóvember. Mun hún þá stjórna flutningi á Chairman Dances eftir John Adams, Cojunctio eftir Snorra Sigfús Birgisson og Píanó- konsert nr. 3 eftir Prokoffiev, þar sem Roger Woodward frá Ástraliu verður einleikari. Á þriðju tónleikum Bláu raðar- innar, 24. febrúar, ber hæst frum- flutning á Flautukonsert^ Hauks Tómassonar, þar sem ÁshOdur Haraldsdóttir verður í aðalhlut- verki. Ennfremur verða ilutt á þeim tónleikum verkin Osieaux ex- otiques eftir Messiaen, Fuglahópur lendir í fimmhyrnta garðinum eftir Takemitsu og Cantus Articus eftir Rautavaara. Hljómsveitarstjóri verður Diego Masson. Lokatónleikar Bláu raðarinnar verða haldnir 25. maí. Masson held- ur þá aftur á sprotanum en einleik- ari verður fiðluleikarinn Sascho Gawiiloff. Flutt verða Toccata eftir Karólínu Eiríksdóttur, sem er frumflutningur á íslandi, In- tégrales eftir Varese og Fiðlukonsert Ligetis sem saminn er fyrir Gawriloff. Græna röðin Græna röðin inniheldur það sem Sinfónian kallar létta og skemmtilega tónlist. Henni verður hleypt af stokkunum 14. október með óperettu- og söngleikja- kvöldi. Hljómsveitarstjóri verður Bemharður Wilkin- son en einsöngvarar Bergþór Pálsson og Hanna Dóra Sturludóttir. Tónleikarnir verða endurteknir 16. októ- ber. Hinir geysivinsælu Vínar- tónleikar tilheyra Grænu röðinni en þeir verða dagana 5.-8. janúar í Reykjavík og 9. janúar á Egilsstöðum. Páll Pampichler Pálsson kemur til að stjórna og tekur með sér söngvara frá Vínarborg. Óperutónleikar undir stjórn Ricos Saccanis, aðal- hljómsveitarstjóra SÍ, verða 10. og 12. febrúar. Á efnis- skrá verður hin ástsæla óp- era Verdis, Aida. Meðal ein- söngvara verða Kristján Jóhannsson, Þorgeir Andrés- son og Guðjón Oskarsson og Kór íslensku óperannar verður á vettvangi. Lokatónleikar Grænu rað- arinnar, 23. mars, verða helgaðir kvikmyndatónlist. Hljómsveitar- stjóri og einleikari verður Lalo Schifrin. Gula röðin Vinsæl einleiksverk og sígild hljómsveitai’verk prýða Gulu röð- ina. Fyrstu tónleikarnir verða 7. október þegar feðginin Alexander Lazarev, stjórnandi, og Tatyana Lazareva, píanóleikari, mæta til leiks. Á efnisskrá verða Gullöldin eftir Sjostakovitsj, Píanókonsert nr. 2 eftir Prokoffiev og Petruska eftir Stravinskíj. Fiðluleikarinn Livia Sohn verður gestur hljómsveitarinnar 11. nó- vember og mun flytja Fiðlukonsert Khatsjatúrians. Einnig verður leik- in Önnur sinfónía Rakhmanínovs. Stjórnandi verður Rico Saccani. Konsert fyrir tvö píanó eftir Pou- lenc ber hæst á tónleikum 2. des- ember. Flytjendur verða Anna Guðný Guðmundsdóttir og Helga Bi-yndís Magnúsdótth'. Jafnframt verða á efnisskrá Haustspil eftir Leif Þórarinsson og Myndir á sýn- ingu efth' Mússorgskij. Hljómsveitin sækir einleikara í eigin raðir 3. febrúar, þegar Daði Kolbeinsson flytur Öbókonsert Mozarts. Adagio eftir Magnús Blöndal Jóhannsson og Fjórða sin- fónía Brahms verða einnig á dag- skrá. Tónsprotinn verður í höndum Jerzys Maksymiuks. 2. mars kemur Anne Manson enn til starfa og stjómar flutningi á Rauðum þræði Hjálmars H. Ragn- arssonar, Annam sinfóníu Tsjajkovskíjs og Sellókonsert nr. 1 eftir Shjostakovitsj. Einleikari verður Bryndís Halia Gylfadóttir. Lokatónleikar Gulu rað- arinnar verða 6. apríl en þá mun Norðmaðurinn Ole Kristian Ruud stjóma flutningi á Áttundu sinfóníu Beethovens og Sjöundu sin- fóníu Brackners. Rauða röðin Á opnunartónleikum Rauðu raðarinnar, sem geymir sígild einleiks- og hljómsveitarverk, verða leikin hinn vinsæli Píanö- konsert nr. 1 eftir Tsjajkovskíj og Scheherazade eftir Rim- skíj-Korsakov 23. septem- ber. Stjórnandi verður Rico Saccani og einleikari Kun Woo Paik. 28. október kemur Petri Sakari, fyrrverandi aðal- hljómsveitarstjóri SI, til liðs við sveitina ásamt ein- söngvaranum Raimo Laukka. Flutt verða Lieder eines fahrenden Gesellen og Sinfónía nr. 10 eftir Ma- hler. Á þriðju tónleikum Rauðu raðarinnar, 18. nó- vember, mun Sigrún Eð- valdsdóttir, konsertmeist- ari SÍ, leika einleik í Fiðlukonsert Dvoráks. Að auki verða leikin verkin Via Dolorosa eftir Vasks og Konsert fyrir strengi, slagverk og selestu eftir Bartók. Stjórnandi verður Ur- iel Segal. Beethoven-kvöld verður í Há- skólabíói 20. janúar þegar Rico Saccani stjórnar flutningi á Fyrstu og Níundu sinfóníu meistarans. Kór íslensku, óperunnar og ein- söngvararnir Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir, Ingveldur Yr Jónsdóttir, Finnur Bjarnason og Guðjón Ósk- arsson taka þátt í flutningnum. Tónleikarnir verða endurteknir tveimur kvöldum síðar. Fiðluleikarinn og hljómsveitar- stjórinn Dmitríj Sitkovetskíj verð- ur gestur SÍ á tónleikum 16. mars, en hann var hér einnig í fyrra. Á efnisskrá verða Apprenti Sorcier eftir Dukas, Poem eftir Chausson, Zigane eftir Ravel og Þriðja sinfón- Verkið olli töluverðu fjaðrafoki þegar það var fyrst sýnt í Bretlandi 1956. Frumsýning er fyrirhuguð með vorinu. Söngskemmtun ogleiklestrar Dagskrá Þjóðleikhússins í vetur einskorðast þó ekki við leiksýning- ar því á Smíðaverkstæðinu verður boðið upp á söngskemmtun þar sem ljóð Þórarins Eldjárns eru flutt í útsetningu Jóhanns G. Jó- hannssonar. Dagskráin nefnist Meira fyrir eyrað og verða Sigrún Hjálmtýs- dóttir og Öm Árnason meðal flytj- enda. Þá verður sett upp gestasýning frá Konunglega breska þjóðleik- húsinu eftir áramót. Leikstjóri er Trevor Nunn, en sýning er unnin í samstarfí við Menningarborg 2000 og Listahátíð í Reykjavík. Þjóðleikhúsið mun einnig standa fyrir afmælishátíð. Rifjuð verða upp söng- og leikverkefni sl. 50 ára, auk þess sem horft verður til fram- tíðar leikhússins á næstu öld. En í því skyni verður yngstu kynslóð leikstjóra Þjóðleikhússins gefin laus taumur. Efnt verður til uppboðs úr bún- ingageymslum leikhússins í dag- skrá sem nefnist Þjóðleikhúsið fækkar fötum og einnig verður boð- ið upp á leiklestra á nokkram helstu íslensku leikritum aldarinn- ar. Fjórar sýningar verða að þessu sinni teknar upp frá fyrra leikári: Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxnes á Stóra sviðinu, Abel Snorko býr einn eftir Eric-Emmanuel Schmitt og Tveir tvöfaldir eftir Ray Coon- ey. Þá verður söngleikurinn RENT eftir Jonathan Larson sýndur áfram í Loftkastalanum. ía Rakhmanínovs. Á lokatónleikum Rauðu raðarinnar, 5. maí, ber hæst flutning Erlings Blöndal Bengts- sonar á Sellókonsert Saint-Saéns en einnig verða leikin Rococo-til- brigðin eftir Tsjajkovskíj og Symp- honie Fantastique eftir Berlioz. Aðrir tónleikar Þegar er getið tónleikanna ny- rðra en næstu tónleikar utan raða verða 21. og 23. október, þegar Frank Strobel mun stjóma undir- leik við kvikmyndir Chaplins, City Lights, The Kid og The Idle Class. 18. desember stjórnar Bernharð- ur Wilkinson Jólatónleikum og 27. janúar útskriftartónleikum nem- enda. 9. mars verða, sem fyrr segir, sérstakir afmælistónleikar og 14. og 15. apríl er röðin komin að Páskatónleikum, þai' sem flutt verður Requiem eftir Verdi. Rico Saccani verður með tónsprotann en einsöngvarar verða Kristján Jó- hannsson, Georgina Lukács, Ildiko Komlpsi og Edward Crafts, auk Kórs íslensku óperunnar. 18. maí stjórnar Bernharður Wilkinson framflutningi á óratóríu Þorkels Sigurbjörnssonar, Imm- anuel, en Söngsveitin Fílharmónía og einsöngvaramir Ólöf Kolbrán Harðardóttir og Bergþór Pálsson leggja SI lið í því verld. Óratórían er samin við biblíutexta sem bisk- upinn yfir Islandi, herra Karl Sig- urbjörnsson, hefur valið ásamt tón- skáldinu. Á tónleikunum verður einnig leikið verkið Sinfonia Sacra eftir Andrzej Panufnik. Lokatónleikar starfsársins verða 3. júní í Laugardalshöll, þegar nor- rænir barnakórar koma fram með hljómsveitinni. Stjórnandi verður Bemharður Wilkinson. Þess má síðan geta að þrjú stór verkefni bíða Sinfóníunnar næsta sumar. 8. júní kemur hún fram und- ir merkjum Listahátíðar í Reykja- vík ásamt einsöng\’urunum Sigr- únu Hjálmtýsdóttur, Rannveigu Fríðu Bragadóttur, Kristjáni Jó- hannssyni og Kristni Sigmun- dssyni; 2. júlí tekur hljómsveitin þátt í Kristnihátíð á Þingvöllum og 18. ágúst tekur hún þátt í flutningi á músíkdramanu Baldr eftir Jón Leifs í Laugardalshöll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.