Morgunblaðið - 02.09.1999, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJONUSTA/FRETTIR
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 61 ±
v/Suðurgötu: Opið á þriðjud., funmtud. og sunnud. frá kl.
13-17. Tekiö er á mðti hópum á öðrum tímum eftir sam-
komulagi.
FRÆÐASETRIÐ í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerói,
sími 423-7651, bréfsími 423-7809. Opið alla daga kl. 13-
17 og eftir samkomulagi.____________________
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sum-
ar frá kl. 9-19.____________________________
GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, Reylyavík. Opið
þriðjud. og miðvikud. kl. 16-19, fimmtud. kl. 17-21,
föstud. og laugard. kl. 15-18. Lokaö vegna sumarleyfa tií
23. ágúst. Slmi 551-6061. Fax: 552-7570.______
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar
opin alla daga nema þriðjud. frá kl. 12-18.___
KJARVALSSTAÐIR: Opið daglega frá kl. 10-18. Safna-
leiðsögn kl. 16 á sunnudögum. ________
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Opið mán.-fimmtud. kl. 8.16-22. Föstud. kl. 8.16-19 og
laugd. 9-17. Sunnud. ki. 11-17. Þjóðdeild lokuð á
sunnud. og handritadeild er lokuö á laugard. og
sunnud. S: 525-5600, bréfs: 525-5615._______
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703.______
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Höggmyndagaríur-
inn er opinn alla daga. Safnið er opið alla daga nema
mánudaga, frá kl. 14-17.____________________
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, lokað
mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiö-
sögn: Opið alla virka daga kl. 8-16. Bðkasafn: Opió
þriðjud.-fóstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á mið-
vikudögum. Uppl. um dagskrá á internetinu:
http//www.natgall.is________________________
LISTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12-18 nema mánud. ______________________
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opiö
daglega nema mánudaga kl. 14-17. Upplýsingar í síma
553-2906._____________
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið
alla daga frá kl. 13-16. Slmi 563-2530._____
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, SeHjarnarnesi. í sumar
verður opið á sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugard.
milli kl. 13 og 17. ________________________
MINJASAFN AKUREYRAR, Mii\jasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 68, Akureyri. S. 462-4162. Opið frá 19.6. - 16.9.
alla daga frá kl. 11-17. Einnig á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum í júlí og ágúst frá kl. 20-21 í tengslum við
Söngvökur i Mir\jasafnskirKjunni sömu kvöld kl. 21.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig við gamalt handbragö í tóvinnu undir leiðsögn
eldri borgara. Safnbúð með mii\jagripum og handverks-
munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net-
fang minaust@eldhorn.is.______________________
MINJASAFN ORKUVEITU ReyKjavíkur v/rafstöðina
v/Elliðaár. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17
eða eftir samkomulagi. S. 567-9009. __________
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opiö alla daga í sumar
frá kl. 13-17. Hægt er að panta á öðrum tímum í síma
422-7253._____________________________________
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14-18, en lokað á mánudögum.
Simi 462-3550 og 897-0206. _________________
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, sími 669-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðr-
um tima eftir samkomulagi.____________________
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvcgi 12.
Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630.__
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sunnud. þriöjud. fimmtud. og laugard. kl.
13.30- 16.__________________________________
NESSTOFUSAFN, safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga,
laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17.________
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17.
Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn-
ingarsalir: 14-18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði, Opið þriðjudaga og sunnudaga 15-18. Slmi 555-4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið laugardaga
og sunnudaga til ágústsloa frá 1.13-18. S. 486-3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl.
13.30- 16.__________________________________
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
_ opið alla daga frá kl, 13-17. S: 565-4442, bréfs. 565-4251.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard. frá kl.
13-17. S. 581-4677.___________________________
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl.is: 483-1165, 483-1443.__________________
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10-18.
Simi 435 1490.________________________________
SÍOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suöur-
götu. Handritasýning opin daglega frá 1. júní til 31.
_ ágúst kl. 13-17.____________________________
STEINARÍKIÍSLANDS Á AKRANESI: Opiö alla daga kl.
13- 18 nema mánudaga. Slmi 431-5566.________
MÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17.___________________________
ÁMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga til föstu-
daga kl. 10-19. Laugard. 10-15._______________
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl.
14- 18. Lokað mánudaga._____________________
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, Hafnarstræti. Opið alla daga
frá kl. 10-17. Slmi 462-2983._______________
NÖNNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10-17 frá 1. júní
-1. sept. Uppl. i slma 462 3565.______________
NÖRSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
arfrákl. 11-17._______________________________
ÖRÐ DAGSINS________________________________
Reykjavík sími 551-0000.______________________
Ákurcyri s. 462Á84Ö
SUNDSTADIR ____________
SUNDSTAÐIR í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opiö í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8-
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.60-21.30, helgar 8-19.
Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.60-22, helgar kl. 8-20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8-
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.60-22.30, helgar kl.
8-22. ^jalarneslaug opin mán. og fimmt. kl. 11-16. þri.,
mið. og föstud. kl. 17-21.__________________
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 7-22. Laugd.
og sud. 8-19. Sölu hætt hálftima fyrir lokun._
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd.
og sud. 8-17. Sölu hætt hálftima fyrir lokun._
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-föst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. SundhöII HafnarQarðar: Mád.-
föst. 6.30-21. Laugd. og sunnud. 8-12.________
VARMÁRLAUG í MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl.
_ 6.30-7.45 og kl. 16-21. Um helgar kl. 9-18.
SUNDLAUGIN í GRINDAVÍK:Opi« alla virka daga kl. 7-
21 og kl. 11-15 um helgar. Slmi 426-7565.___
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.46-8.30 og 14-22,
helgar 11-18._________________________________
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin rainud.-föstud. ki.
7-21, Laugard. kl.8-17. Sunnud. ki. 9-16._____
SUNDLAUGIN í GARDI: Opin mán. rósl. kl. 7-0 og 16.30-
21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUlFAKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard.
og sunnud. kl. 8-18. Slmi 461-2532._________
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-fösl. 7-
20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30._______
JÁDARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-fösl. 7-
21, laugd. og sud. 9-18. S: 431-2643._________
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21.
StTvist arsvædi ______________________________
HUSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10-17. Lok-
að á miðvikudögum. Kaffihúsiö opið á sama tíma. Fjöl-
skyldugarðurinn er opinn sem útiw vistarsvæöi á vet-
urna. Slmi 5757-800._______________
SORPA
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.15. Endurvinnslu-
stöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 cn lokaöar á stórhá-
tíöum. Að auki verða Ánanaust, Garóabær og Sævarhöfði
opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 520-2205.
Samstarf Talló
og Borgarleikhiíss
TALLÓ og Borgarleikhúsið hafa
gert með sér samning um að Talló
bjóði ákveðið magn Borgarleik-
húsmiða á sýningar leikársins.
Um er að ræða 5 leiksýningar í
hverjum Talló-leikhúsmiða að eigin
vali af þeim 13 leiksýningum sem
verða í boði á yfirstandandi leikári.
Handhafi Talló-leikhúsmiða velur
sýninguna, fer þegar honum hent-
ar og situr þar sem hann vill.
Upplag Talló-leikhúsmiða er
takmarkað og verður strax hægt
að bjóða í miðana í næsta Talló-
blaði sem kemur út 3. september
nk. og verður tekið við tilboðum frá
kl. 10-22 alla daga til og með 13.
september. Talló-blaðið kemur út í
100.000 eintökum og er dreift inn á
hvert heimili landsins.
Hægt verður að bjóða frá 4.900
kr. í hvern Talló-leikhúsmiða sem
veitir aðgang að 5 leiksýningum að
eigin vali sem kosta að jafnaði um
2.000 kr. hver um sig eða samtals
10.000 kr.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
300 gengu
á Esjuna
MÆÐGININ Alexander fvar
Birgisson og Hrönn Hrafnkels-
dóttir létu sér nægja að ganga
síðasta spölinn niður fjallið á
meðan aðrir þreyttu Esjuhlaup.
Það tók þann sprettharðasta,
Bjartmar Birgisson, 33 mínútur
og 48 sekúndur að ná fjallstoppi.
Um þrjú hundruð manns tóku
þátt í hlaupinu að þessu sinni.
Heldur færri voru með nú en síð-
ast, að líkindum vegna heldur
drungalegs veðurs. Þetta er í átt-
unda skipti sem Hjálparsveit
skáta í Reykjavík stendur fyrir
Esjudegi.
Lögreglan
herðir eftirlit
við grunn- *
skólana
LÖGREGLAN í Reykjavík, For-
varnadeild, hefur sent frá sér eftir-
farandi:
„Nú er skammdegið að fara í
hönd og farið að huga að umferð
skólabarna við grunnskóla.
Lögreglan í Reykjavík hefur haft
sérstakan viðbúnað til að efla lög-
gæslu við skólana fyrstu dagana á
meðan börnin eru að venjast,
kannski nýixi leið, í og við skólann. .
A þessu hausti mun lögreglan ein-
beita sér sérstaklega að þessu verk-
efni með þátttöku lögreglumanna
úr öllum deildum embættisins.
Þess má geta að þeir nemendur
sem eru að leggja í sína fyrstu
skólagöngu, þ.e.a.s. 6 ára nemai',
eru búnir að fá nokkra kennslu um
umferðarmál og er þá átt við skóla-
göngu þeirra í „Umferðarskólanum
ungir vegfarendur", sem er starf-
ræktur í júní ár hvert. Hlúa þarf
sérstaklega að þessum aldurshópi
og leiðbeina honum eins og kostur
er.
Lögreglan í Reykjavík hvetur
foreldra til að ræða við börn sín um
hættumar er leynast í umferðinni. '
Foreldrar ættu að fara fyrstu dag-
ana með bömunum í skólann og
hjálpa þeim við að velja öruggustu
leiðina.
Ahersla lögreglunnar við skólana
mun einkum beinast að hraðakstri
og umferð í nánd við gangbrautir.
Einnig verður hugað að lagningu
ökutækja og því hvernig bifreiðar
verða stöðvaðar til að hleypa böm-
um út.
Lögreglan í Reykjavík vill hvetja
alla ökumenn til að sýna fyllstu að- .
gæslu í umferðinni, sérstaklega í
nágrenni við skólana þar sem mikið
af ungum börnum verður á ferð-
inni.“
Skólaliðar og stuðn-
ingsfulltrúar verði
að fagstéttum
REYKJAVÍKURBORG og Borgar-
holtsskóli hafa undirritað samning
sín á milli um sérstakt nám fyrir
stuðningsfulltrúa og skólaliða sem
starfa í grunnskólum Reykjavíkur.
Námið markar upphafið að því að
gera skólaliða og stuðningsfulltrúa í
skólum að fagstéttum með því að
skipuleggja símenntun til langs
tíma og meta hana til framhalds-
skólaeininga.
Undirbúningur að náminu hefur
staðið í eitt ár og er verkefnið
styi-kt af Starfsmenntasjóði félags-
málaráðuneytisins. Auk Borgar-
holtsskóla og Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur kemur Starfsmannafé-
lag Reykjavíkur að náminu.
Fjarnám undirbúið
Tildrög námsins eru þau að við
Borgarholtsskóla er starfrækt
tveggja ára starfsnámsbraut, fé-
lagsþjónustubraut. Námsbrautin
miðar að því að búa nemendur und-
ir uppeldisstörf, félagslega aðhlynn-
ingu og umönnun og er Borgar-
holtsskóli eini framhaldsskólinn á
landinu sem býður upp á slíkt nám.
Fræðslumiðstöð leitaði því eftir
samstarfi við Borgai’holtsskóla um
þetta nám.
I fréttatilkynningu frá Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur og Borgar-
holtsskóla segir að fjölmörg önnur
sveitarfélög hafi þegar lýst yfir
áhuga á sambærilegum námskeið-
um fyrir starfsmenn sinna skóla.
Stefnt sé að því að koma til móts við
þær óskir með því að koma upp
fjarnámi við brautina á næstu miss-
erum og muni nemendur ýmist
stunda námið með hefðbundnum
hætti eða í fjarnámi. Þá er stefnt að
því að námskeiðin verði hluti af fé-
lagsþj ónustubraut.
Morgunblaðið/Arnaldur
Sigrún Magnúsdóttir, formaður fræðsluráðs Reykjavíkur, Gerður G.
Óskarsdóttir fræðslustjóri og Eygló Eyjólfsdóttir, skólameistari Borg-
arholtsskóla, við undirritun samnings um nám starfsmanna grunn-
skóla Reykjavíkur.
Haraldur V. Haraldsson, sérfneðingur í tölvuhjálpartækjum, sýnir
herra Ólafi Ragnari Grímssyni nýjan íslenskan talgervil. Þeim á hægri
hönd er Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra. Við hlið forsetans standa Iialldór Sævar Guðbergsson, formað-
ur Blindrafélagsins og Guðmundur Viggósson, yfirlæknir Sjónstöðvar
Islands og fylgjast grannt með.
Afmælishátíð
Blindrafélagsins
BLINDRAFÉLAGIÐ, samtök
blindra og sjónskertra á íslandi,
varð 60 ára 19. ágúst sl.
Dagana 18. og 19. ágúst var
haldin ráðstefna á vegum félags-
ins að Grand Hótel í Reykjavík.
Yfirskrift ráðstefnunnar var
Staða blindra og sjónskertra ís-
lendinga í nútíð og framtíð. Ráð-
stefnan var vel sótt og tókst í alla
staði mjög vel. í lok ráðstefnunn-
ar var hátíðarkaffi í nýrri félags-
aðstöðu í húsi félagsins að
Hamrahlíð 17.
Mikill Ijöldi fólks lagði leið
sína í Hamrahlíð 17 laugardag-
inn 21. ágúst þar sem voru kynn-
ingar og sýningar. Gestir voru á
annað þúsund. Þennan dag voru
aðilar sem þjónusta blinda og
sjónskerta með kynningar á
starfsemi sinni. Myndarleg hand-
verkssýning, munir unnir af
blindum og sjónskertum, var sett
upp og Blindravinnustofan,
Blindrabókasafn Islands, Dauf-
blindrafélag íslands, Hljóðbóka-
gerð Blindrafélagsins og Sjón-
stöð Islands kynntu starfemi sína
og vörur
Forseti íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, og heilbrigðis-
°g tryggingamálaráðherra, Ingi-
björg Páhnadóttir, voru meðal
margra góðra gesta sem heiðr-
uðu félagið með nærveru sinni.
Afmælishaldinu lauk með veg-
legri veislu sem nær tvö hundruð
manns sátu.
„Blindrafélaginu voru færðar
margar góðar og veglegar gjafir.
Félagið vill færa öllum gestum
og velunnurum sínum innileg-
ustu þakkir fyrir hlýhug og gjaf-
ir á þessum merku tímamótum,“
segir í frétt frá Blindraféiaginu.
I