Morgunblaðið - 02.09.1999, Síða 62
i 62 FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
FLUGUR LAbAST AÐ
GNÝJUM EINS OG
MÖLFLUGUR AÐ ELÖI!
—
JÆJA, LIÐUR ÞER EKKI
BETUR m PETTA?
Grettir
Hundalíf
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
Ég hef ekki heyrt þig syngja Fuglar eiga að syngja..
upp á síðkastið... Allir gera ráð fyrir því...
Nei, ég hef engar
sérstakar óskir...
4
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Enn kærir Lyfja hf.
Opið bréf til Samkeppnisstofnunar
skipti sem Lyfja kaupir upp apótek
er almenningi gert erfiðara um vik
að nálgast þessa vinsælu vöru.
Acidophilus+ frá Futurebiotics er
vara sem fram til þessa hefur nán-
ast eingöngu verið seld í lyfjabúð-
um. Eðalvörur hafa hins vegar ver-
ið undir þrýstingi, upp á síðkastið,
að breyta þessu t.d. austur á Hér-
aði og sunnanverðum Austfjörðum
þar sem fólk þarf að ferðast óraveg
til að komast í annað apótek en
Lyfju. Við þessar aðstæður telja
Eðalvörur brýna nauðsyn til að
auglýsa útsölustaði. Sú ákvörðun
Eðalvara að auglýsa útsölustaði
vörunnar var tilkynnt innkaupa-
stjóra Lyfju í Lágmúla símleiðis
með góðum íyrirvara.
Það sætir því furðu að forstjóri
Lyfju skuli láta eins og auglýsing
á útsölustöðum hafi komið honum
í opna skjöldu og telji ósanngjarnt
að Lyfja skuli ekki hafa verið talin
meðal útsölustaða. Ennfremur tel-
ur hann að það skaði hagsmuni og
heiður Lyfju að auglýsa að varan
fáist í öllum apótekum nema
Lyfju. Það kann vel að vera að for-
stjórinn átti sig á því að sú afstaða
hans, að eiga ekki viðskipti við Eð-
alvörur, valdi viðskiptavinum
óþægindum og skaði þannig
„hagsmuni og heiður Lyfju sem
alhliða smásala“ svo notuð séu
hans orð, en þá er tæplega við Eð-
alvörur að sakast.
Hitt er annað mál að það kemur
Eðalvörum ehf. ekki á óvart að
Lyfja skuli leita á náðir Samkeppn-
isstofnunar til að reyna að halda
þessu máli leyndu.
Fh. Eðalvara ehf.
SIGURÐUR ÞÓRÐARSON.
Frá Sigurði Þórðarsyni:
LYFJA hf. hefur kært Eðalvörur
ehf. til Samkeppnisstofnunar
vegna auglýsingar á hinum eftir-
sóttu mjólkursýrugerlum frá Fut-
urebiotics.
Málavextir eru þeir að til
skamms tíma voru hinir vinsælu
mjólkursýrugerlar frá Futurebiot-
ics, Acidophilus+ seldir í öllum ap-
ótekum á Islandi. Þeir voru á sín-
um tíma rannsakaðir af Hollustu-
vernd ríkisins ásamt nokkrum
sambærilegum vörutegundum og
komu framúrskarandi vel út. Gerl-
ar þessir hafa einkum verið notaðir
af verðandi mæðrum, fólki sem
notar fúkkalyf, fólki sem fer til út-
landa, að ógleymdum þeim sem
vilja koma jafnvægi á meltinguna.
Vöru þessa hefur ekki þurft að
auglýsa og hún hefur notið fádæma
og sívaxandi vinsælda.
Það kom mér því spánskt fyrir
sjónir þegar Lyfja hætti að panta
vöruna og um líkt leyti fóru að
koma ábendingar frá neytendum
sem fengu þær upplýsingar hjá
Lyfju að varan væri ekki lengur til
hjá heildsalanum, sem var rangt.
Þegar innkaupastjórar Lyfju voru
inntir eftir þessu, upplýstu þeir að
það væri talsverð eftirspurn eftir
vörunni en því miður hefði forstjóri
Lyfju lagt blátt bann við því að
verslað væri við Eðalvörur. Þá kom
það fyrir að starfsmenn Lyfju, sem
ekki virtust upplýstir um málið,
pöntuðu Acidophilus+ frá Eðalvör-
um en hringdu svo skömmu síðar
og afpöntuðu vöruna og höfðu þá
greinilega fengið tiltal.
Lyfja er íyrirtæki í örum vexti,
sem keypt hefur upp apótek í þétt-
býli og úti á landsbygðinni. I hvert
Askorun til félags-
málaráðherra
Frá Davíð Bergmann Davíðssyni:
STUTTU eftir yfirlýsingu ríkis-
stjómarinnar um aukafjárveitingu
til stofnunar og reksturs meðferð-
arheimilis, lýsir félagsmálaráðherra
því yfir á fréttamannafundi að það
standi til að opna meðferðarheimili í
Vestur-Húnavatnssýslu, nánar til-
takið í Þorfinnstaðarskóla. Það er
minn grunur að félagsmálaráðherra
taki þessa afstöðu af því hann vilji
nýta þessa byggingu þar sem hún
er í hans kjördæmi. Hér er um
hreina fyrirgreiðslupólitík að ræða
sem á ekkert skylt við meðferðar-
mál barna. Það er ekkert vandamál
að finna byggingar hingað og þang-
að um landið. Það sem skiptir höf-
uðmáli er áhöfnin eða fólkið sem á
að vinna á slíku heimili og að stað-
setning sé góð þar sem þjónusta og
aðgengi fagfólks og foreldra þeirra
barna, sem þurfa á slíkri þjónustu
að halda, sé í lagi.
Barnavemdarstofa auglýsti eftir
rekstraraðila til að reka meðferðar-
heimili úti á landi og rann umsókn-
arfresturinn út 16. júlí. Það er minn
granur að fyrirgreiðslupólitík fé-
lagsmálaherra hafi háð honum í
starfi, en það breytir ekki þeirri
staðreynd að aðgerðarleysi í þess-
um málaflokki bitnar helst á þeim
sem minnst mega sín.
Það verða því að teljast óviðun-
andi vinnubrögð að í einn og hálfan
mánuð sé ekki tekin afstaða til um-
sóknar um stofnun nýs meðferðar-
heimilis, í ljósi þess að ríkisstjórnin
hefur lagt fram aukafjármagn í
þennan málaflokk.
Eg skora á félagsmálaráðherra
að mæta undirrituðum nú þegar,
hjá hverjum þeim fjölmiðli sem
hann kýs, til að ræða það neyðar-
ástand sem ríkir í meðferðarmálum
bama á íslandi.
DAVÍÐ BERGMANN DAVÍÐSSON,
unglingaráðgj afi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.