Morgunblaðið - 02.09.1999, Síða 12

Morgunblaðið - 02.09.1999, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Hörður Gíeirsson Tœknideild Rafveitunnar flytur starfsemi af Þórsstígnum. Rafveita Akur- eyrar flytur sig á Rangárvelli Fjórar milljónir til neyð- araðstoðar í Tyrklandi RÍKISSTJÓRNIN ákvað að veita fjórar milljónir króna til neyðarað- stoðar vegna jarðskjálftanna í Tyrklandi á fundi sínum í fyrradag. Helmingur þeirrar upphæðar, tvær milljónir króna, renna til greiðslu kostnaðar við för íslenskr- ar björgunarsveitar sem sinnti rústabjörgun í Tyrklandi í kjölfar skjálftanna, en Rauða kross ís- lands var falinn hinn helmingur upphæðarinnar til ráðstöfunar. Rkí hafði áður veitt tveimur milljónum króna til aðstoðar vegna hörmunganna í Tyrklandi og að auki hafa aðildarfélög hans látið alls eina milljóna króna af hendi rakna, sem eftir er að ráðstafa, að sögn Sigríðar Guðmundsdóttur, skrifstofustjóra alþjóðaskrifstofu RKÍ. Alls er því ljóst að RKÍ mun veita fimm milljónir króna til neyð- araðstoðar í Tyrklandi með tO- stuðlan ríkisins og líklegt er að sögn Sigríðar að enn hærri upp- hæð renni til þess málefnis. „Við höfum ekki tekið endanlega ákvörðun um hvernig þessum fjár- munum frá ríldnu verður varið, enda tengist það því hvað RKÍ ger- ir fleira í málinu. Það getur vel hugsast að við notum þessa fjár- muni til matvælakaupa, en auk þeirra tveggja milljóna sem við sendum til Tyrklands í reiðufé höf- um við sent þangað sex þúsund matarpakka sem við áttum í Grikk- landi,“ segir Sigríður. Vantar mikið af fatnaði Hún segir að til greina komi að féð verði sent út til að standa straum af kostnaði sem til fellur vegna neyðaraðstoðarinnar. „Það vantar mjög mikið fatnað en Tyrk- ir vilja ekki notaðan fatnað heldur fá nýjan, og þá er ódýrast að kaupa hann í landinu sjálfu. Þá vantar tjöld, plast til að setja yfir tjöld og búa til skýli, það vantar húsnæði og sérstaklega varanlegt ef við töl- um um stórtækar aðgerðir og margt annað kemur að góðum not- um,“ segir Sigríður. Sendinefnd frá Alþjóða Rauða krossinum er stödd í Tyrklandi þessa dagana til að kanna hvers helst er þörf næstu mánuði í Tyrklandi og forgangsraða í sam- ræmi við vöntunina. Sigríður seg- ir að ein skýring þess að Rkí hafi frestað ráðstöfun umræddra fjár- muna sé að beðið sé eftir skýrslu frá nefndinni. Hennar sé að vænta í þessari viku. „Við munum í sam- ráði við Alþjóða Rauða krossinn og Rauða hálfmánann í Tyrklandi ákveða hvernig við komum til með að verja þessum fjármunum,“ segir hún. „Við getum ekki hjálp- að öllum og sennilega verður ákveðið að Rauði krossinn starfi á einhverju tilteknu svæði, eða þá að við ákveðum að taka einhverja ákveðna verkþætti að okkur í uPPbyggingunni sem er framund- an.“ RAFVEITA Akureyrar verið að flytja starfsemi tæknideildar frá Þórsstíg upp á Rangárvelli íyrir of- an Akureyri, en AKO-plast hefur fest kaup á húsnæði Rafveitunnar. Breytingar eru hafnar á húsnæð- inu svo að það geti sem best hentað starfsemi AKO-plasts. Sem kunn- ugt er verður starfsemi Plastos í Garðabæ flutt til Akureyrar og sameinuð AKO-plasti. Að sögn Svanbjörns Sigurðsson- ar, rafveitustjóra mun tæknideildin verða í bráðabirgðahúsnæði þar til nýtt húsnæði verður tilbúið í byrj- un nóvember. „Já við erum að flytja tækni- deildina. Það er sem sagt útideildin sem fer, hún sér um allan rekstur og framkvæmdir orkukerfisins, auk birgðahalds. Skrifstofurnar verða héma á Þórsstíg í eitt ár til viðbótar samkvæmt samningi," sagði Svanbjöm. Byrjað verður á skrifstofuhúsnæði í vetur Hann sagði að húsnæði tækni- deildar ætti að verða tilbúið um mánaðamótin október/nóvember. í vetur mun einnig verða byrjað á skrifstofuhúsnæði sem mun verða tilbúið á næsta ári, áður en skrif- stofumar flytja að Rangárvöllum. Tillögur vísindamanna um eflda vöktun og rannsóknir við Mýrdalsjökul Fylgst verði með sem flestum breytingum á ísbreiðunni TILLÖGUR vísindamanna um aukna vöktun á Mýrdalsjökli og við jökulinn felast meðal annars í því að fylgst verði með breytingum á yfirborði jökulsins út frá radar- myndum frá gervitunglum og ná- kvæmum hæðarmælingum með GPS-landmælingartækjum. Starfshópur á vegum Raunvís- indastofnunar Háskóla íslands lagði fram tillögur að vöktun og nauðsynlegum rannsóknum á jökl- inum sjálfum til áramóta á fundi Al- mannavamaráðs á þriðjudag. Að sögn Helga Bjömssonar jarðeðlis- fræðings er í fyrsta lagi lagt til að aukið eftirlit verði haft með breyt- ingum á yfirborði jökulsins. Verði það gert með hæðarmælingum úr flugvélum þar sem farið er eftir ákveðnum fiuglínum með radar og nákvæmum GPS-landmælingar- tækjum. í tillögunni felst einnig að unnið sé úr niðurstöðum mælinga og þær túlkaðar samdægurs og þær era gerðar. Með þessu móti verði unnt að meta breytingar á ís- rennsli og ísskriði jökulsins. Breytingar bomar saman við eldri heimildir í öðra lagi er lagt til að mæld verði botnhæð í skarði á börmum öskjunnar þar sem Kötlujökull skríður út til þess að unnt verði að meta hve mikið vatn getur safnast í botni öskjunnar sjálfrar. Það sé ákaflega mikilvægt eigi að segja til um mögulega stærð hlaupa við Kötlugos. í þriðja lagi leggur hópurinn áherslu á að sú atburðarás sem nú er hafin sé stöðugt borin saman við fyrri lýsingar á jöklinum sem liggja fyrir í rituðum heimildum sl. 400 ár. Að sögn Helga er reiknað með að heildarkostnaður við framkvæmd þessara tillagna til áramóta verði 3,2 milljónir. Vísindamenn á vegum Veðurstof- unnar skiluðu tillögum til Almanna- varnaráðs og ríkisstjómarinnar um eflda vöktun vegna jarðskjálfta og landbreytinga við Mýrdalsjökul á þriðjudag. Að sögn Ragnars Stef- ánssonar jarðeðlisfræðings era til- lögur um aukna vöktun byggðar á gögnum og mælingum sem þegar era fyrir hendi. Felst það bæði í sérstakri úrvinnslu til að skilja bet- ur þann óróa sem kemur frá fjallinu og til að greina hugsanlegan hlaupóróa. Vöktun veðurstofunnar verði betur nýtt í öðra lagi er lagt til að fylgst verði stöðugt með landbreytingum með GPS-landmælingartækjum sem veðurstofan getur nýtt í þessu skyni á næstu mánuðum. Gert sé ráð fyrir að slík tæki verði sett upp á þremur jarðskjálftamælistöðvum, en Veðurstofan hafi þegar yfir að ráða slíkum tækjum. Öskað er eftir fé til þess að koma stöðvunum upp og koma mælingunum á. Það felst einna helst í forritunar- og upp- setningarvinnu og kveðst Ragnar vonast til þess að mælingarnar verði komnar vel af stað innan mánaðar. í þriðja lagi er lagt til að fylgst verði með breytingum á yfirborði jökulsins út frá radarmyndum frá gervitunglum, en það yrði gert í samvinnu við Raunvísindastofnun, Norrænu eldfjallastöðina og er- lenda aðila. í fjórða lagi er lagt til að sú vökt- un sem fram fer á Veðurstofunni verði betur nýtt og upplýsingum komið áleiðis til annarra vísinda- stofnana. Sólarhringsvakt er þegar á Veðurstofunni og segir Ragnar að nauðsynlegt sé að nýta þá vöktun betur með því að fylgjast með fleiri þáttum en nú er gert. Auk tillagna frá Veðurstofunni og Raunvísindastofnun Háskóla ís- lands hafa einnig verið lagðar fram tillögur frá Vatnamælingum Orku- stofnunar um eftirlit með breyting- um á vatnaflæði við jökulinn. Morgunblaðið/Arnaldur Tombóla með af- greiðslutíma ÞEIR höfðu komið sölubás sínum haganlega fyrir þessir ungu drengir og stillt varningnum vandlega upp svo vegfarendur gætu auðveldlega séð hvað þeir höfðu upp á að bjóða. Þá höfðu þeir nælt í viðskiptavin þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá og útskýrðu líklega verð, gæði og úrval tombólunnar fyrir honum. Þama em ef til vill við- skiptajöfrar framtíðarinnar á ferð sem þó setja sér takmörk og ætla ekki að hafa opið lengur en til kl. 20. Ekiðáhjol- reiðamann EKIÐ var á hjólreiðamann á Vestur- landsvegi í Ártúnsbrekku í gær- morgun. Að sögn lögreglu var mað- urinn, sem var ekki með hjálm, flutt- ur með sjúkrabíl á slysadeild Sjúkra- húss Reykjavíkur. Að sögn læknis á slysadeildinni hlaut maðurinn aðeins minniháttar meiðsl og fékk að fara heim fljótlega eftir læknisskoðun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.