Morgunblaðið - 02.09.1999, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 43
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Ræðsluiniðstöð
Rejigavíkur
Laus störf í grunn-
skólum Reykjavíkur
Starfsmenn vantar í eftirtalda skóla
Borgaskóli, sími 577 2900.
Hóf störf haustiö 1998 með kennslu fyrir yngstu nemendur hverfisins
í lausum kennslustofum. Með um 180 nemendur í 1.—6. bekk. Gert
er ráð fyrir að nemendum fjölgi árlega þannig að skólinn verði fyrir
1. —10. bekk.
Starfsmaður í lengda viðveru frá kl. 12.00—15.15.
Grandaskóli, sími 561 1400.
Með um 475 nemendur í 1.—7. bekk.
Starfsmenn til að annast nemendur í leik og
starfi, m.a. baðvörslu fyrir drengi, gangavörslu
o.fl.
Stuðningsfulltrúi.
Matráður.
Selásskóli, sími 567 2600.
Með um 425 nemendur i 1.—7. bekk.
Sérkennari.
Starfsmaður í sérdeild. Hlutastarf sem hentar
t.d. vel með námi.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 567 2600
og 895 8926.
Við ráðningar í störf vilja borgaryfirvöld stuðla
að því að þau flokkist ekki í sérstök kvenna-
eða karlastörf og hvetja því karlmenn til að
sækja um ofangreindar stöður.
Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðar-
skólastjórar. Umsóknir ber að senda í skólana.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Samskiptamiðstöð
heyrnarlausra og heyrnarskertra
Vélritar þú hratt?
Við leitum að fólki sem getur vélritað a.m.k.
80 orð á mínútu til að rittúlka fyrir heyrnarlausa
og heyrnarskerta nemendur.
Hægt er að ráða sig í hlutastarf eða tímavinnu
og viðkomandi þarf að geta hafið störf strax.
í starfinu er krafist trúnaðar og færni í sam-
skiptum.
Upplýsingar veitir Árný Guðmundsdóttir eða
Valgerður Stefánsdóttir í síma 562 7702.
Umsóknir skal senda til Samskiptamiðstöðvar
heyrnarlausra og heyrnarskertra, Sjómanna-
skólanum, v/Háteigsveg, 105 Reykjavík.
£k
BREIÐABLIK
Starfsfólk
í íþróttahús
Starfsfólk óskast til almennra starfa, s.s. bað-
vörslu í búningsklefum kvenna og karla
í íþróttahúsi Breiðabliks, Smáranum.
Fullt starf og hlutastarf.
Nánari uppl. veitir Ólafur í síma 564 1990 og
á staðnum milli kl. 10 og 12 virka daga.
Léleg laun/
óörugg framtíð?
Ört vaxandi fjölþjóðafyrirtæki býður rösku og
áreiðanlegu fólki störf á eftirtöldum sviðum:
Markaðssetning og stjómunarstörf.
Góð kunnátta í ensku, á tölvum og interneti
nauðsynleg. Viðtalspantanir í síma 832 0250.
vJrWá Iðnaðarráðuneytið
Skjalavörður í
iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytum
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti auglýsa starf
skjalavarðar lausttil umsóknar. Starfsmannin-
um er ætlað að vera yfirmanni skjalasafns til
aðstoðarvið öll dagleg störf á skjalasafni ráðu-
neytanna.
Leitað er eftir starfsmanni með góða tungu-
málaþekkingu, tölvufærni og einhverja reynslu
á sviði skjalastjórnar.
Um er að ræða fullt starf sem er laust frá 15.
sept. nk. Laun eru skv. launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Skrifleg umsókn ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytum, Arnarhváli, 150 Reykjavík
fyrir 10. sept. nk.
Nánari upplýsingar veitir Jónína Guðmunds-
dóttir, deildarsérfræðingur, í síma 560 9070.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytum,
30. ágúst 1999.
CAFÉ
0ZI0
Café OZIO vantar
starfsfólk
Við þurfum að bæta við okkur glaðlegu og
duglegu fólki í eftirfarandi stöður:
• Matreiðslumann.
• Framreiðslumenn.
• Aðstoð í eldhús, fullt starf.
• Þjónustufólk í sal, fullt starf.
• Létt þrif og uppvask, dagvinna.
Sláðu til, hringdu í Steinþór eða Orra í síma
551 8811 eða komdu við á Café Ozio,
Lækjargötu 6.
Tannlæknir
— Bolungarvík
Laus er til umsóknar staða tannlæknis við Heil-
brigðisstofnun Bolungarvíkur.
Upplýsingar um starfið, aðstöðu og búnað
eru gefnar á bæjarskrifstofunni, Bolungarvík,
í síma 456 7113.
Umsóknarfresturertil 10. september 1999 og
skal umsóknum skilað inn til bæjarskrifstof-
unnar, Aðalstræti 12,415 Bolungarvík merktar:
„Tannlæknir".
Bæjarstjórinn í Bolungarvík.
Hjúkrunarfræðingar
— sjúkraliðar
60 rúma hjúkrunar- og dvalarheimilið Kumb-
aravogur, Stokkseyri, óskar eftir að ráða hjúkr-
unarfræðing og sjúkraliða. íbúð fyrir hendi.
Upplýsingar í síma 483 1310.
Saumakona
Óskum eftir saumakonu. Þarf að vera vön.
Erum mikið í fatabreytingum og gardínusaum.
Góð laun í boði fyrir rétta manneskju. Upplýs-
ingar í síma 552 0855.
Saumsprettan.
Starfsmaður
óskast til að sinna verkefnun á sviði
símenntunar
Auglýst er eftir starfsmanni til að sinna verk-
efnum á sviði símenntunar, öldungadeildar,
starfsmenntunar og fjarkennslu á Norðurlandi
vestra. Æskilegt er að viðkomandi gæti hafið
störf sem fyrst.
Starfið felst m.a. í að vinna með skipulags-
stjóra Farskóla Norðurlands vestra að upp-
byggingu og þróun þjónustunets símenntunar
og fullorðinsfræðslu.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendisttil Önnu Kristínar Gunnars-
dóttur, Farskóla Norðurlands vestra, — mið-
stöð símenntunar.
Nánari upplýsingar eru veittar af:
Fjölbrautaskóla Norðurl. vestra, s. 453 6400,
Jóni F. Hjartarsyni, Farskóla Norðurl. vestra,
s. 453 6800, Önnu Kr. Gunnarsdóttur, Fjar-
kennslusamstarfi Norðurl. vestra, s. 455 4300,
Herði Ríkharðssyni.
BYGGÓ
BYGGINGAFÉLAG GYLFA & GUNNABS
Verkamenn
í garðyrkju
og byggingavinnu
Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. óskar
eftir að ráða eftirfarandi starfsmenn:
Verkamenn vana garðyrkjustörfum.
Upplýsingar gefur Örn í síma 897 9304.
Verkamenn í byggingavinnu.
Upplýsingar gefa Gunnar í síma 893 4628,
Hólmar í síma 892 1147 og Jón í síma
562 2991.
Laghenta verkamenn í sérhæfð störf í viðhalds-
deild.
Upplýsingar gefur Þorkell í síma 861 2966.
Verslunarstörf
Starfsfólk óskast til verslunarstarfa.
Æ^^borgarljós hf.
Ármúla 15, sími 581 2660.
Aldamót án aukakílóa
Feitt fólk sem vill léttast óskast til starfa sem
fyrst.
Viðtalspantanir í síma 862 9016.
augl@mbl.is
Sparaðu þér umstang og tfma með því að
senda atvinnu- og raðauglýsingar til birtingar
í Morgunblaðinu með tölvupósti.
Notfærðu þér tæknina næst.