Morgunblaðið - 02.09.1999, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 02.09.1999, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 57 + Páll Kr. Stef- ánsson auglýs- ingastjóri fæddist í Reykjavík 10. maí 1941. Hann lést á heimili sínu 19. ágúst siðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaða- kirkju 26. ágúst. Góður drengur er genginn, langt um ald- ur fram. Kynni tókust með okkur Páli Stef- ánssyni fyrir þremur ái’atugum og við vorum samstarfsmenn í allmörg ár. Kunn- ingsskapur okkar þróaðist í vináttu sem aldrei bar skugga á þótt sam- fundir okkar haíi strjálast hin síðari ár. Nánast og mest var samstarf okkar á Vísi á sínum tíma þar sem Páll var auglýsinga- og sölustjóri en ég blaðamaður og síðar fréttastjóri. Ekki var þetta samstarf alltaf dans á rósum. Páll var mjög kappsamur maður og dró hvergi af sér við sölu auglýsinga í blaðið enda hafði hann sérstaka hæfíleika til þeirra verka. Bai- stundum við að okkur á rit- ' stjórninni þótti hann gerast fullfrek- ur til plássins sem hann vildi leggja undir auglýsingar og töldum hann ætla ganga um of á rúm fyrir annað efni. Því yrði hann að sætta sig við vissar takmarkanir. Auglýsinga- stjórinn tók slíkar kröfur oft óstinnt upp og iðulega undir þeim kringum- stæðum nötraði allur Síðumúlinn meðan Páll fór hamförum um skrif- stofur ritstjórnar og messaði yfir liðinu. Tóku sáttaumleitanir stund- um sinn tíma því Páll var ekki mað- ur sem lét í minni pokann fyrr en í fulla hnefana. Og ef hann var ofur- liði borinn í eitt skipti mætti hann tvíefldur í næstu orrahríð og var þá hálfu verri viðureignar. Þrátt fyrir að þessar umhleyping- ar í skapi Páls á þeim tíma hafí orðið mér minnisstæðar var hann fyrst og fremst maður góðvildar og því voru allir sáttir þegar öldurnar lægði. Greiðvikinn var Páll Stefánsson með afbrigðum og hjálpsemi hans var viðbrugðið. Ef eitthvað bjátaði á hjá vinnufélögum var Páll fyrsti maður- inn til að bjóða fram aðstoð og unni sér ekki hvíldar fyrr en búið var að leysa vandann. Hann reyndist mér vinur í raun á sínum tíma og þeir voru margir sem Páll rétti hjálpar- hönd með einum eða öðrum hætti. IHann var fæddur sjálfstæðismaður og vann mikið stai’f fyrir sinn flokk. Hins vegar dró hann ekki fólk í dilka eftir pólitískum skoðunum og átti vini og kunningja í öllum flokkum, enda mannblendinn og átti gott með að umgangast fólk. Páll Stefánsson var myndarlegur maður og bauð af sér góðan þokka. Smekkmaður og vandaði klæðnað sinn. Hann var svo heppinn að kvænast ungur þeirri góðu konu Onnu Guðnadóttur sem stóð með Imanni sínum í blíðu og stríðu allt þar til dauðinn kvaddi hann skyndi- lega á braut á besta aldri. Ég færi Önnu, börnum þeirra hjóna og öðr- um eftirlifandi ástvinum, mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Páls Stefánssonar. Sæmundur Guðvinsson. Ég var staddur erlendis þegar mér barst andlátsfrétt Páls Stefáns- sonar. Þar sem ég verð ekki kominn heim til að fylgja honum til grafar langar mig til að skrifa nokkur orð til minningar um þennan vin minn. , Okkar kynni hófust íyrir 30 árum. Ég var þá unglingur að hefja þátt- töku í starfí Heimdallar, félagi ungra sjálfstæðismanna, en hann um þrítugt að hefja störf á skrif- stofu Sambands ungra sjálfstæðis- manna. Fljótt varð samstarf okkar Ínáið og naut ég þar góðrar hand- leiðslu Páls. Síðan þá má segja að vinátta okkar hafi staðið. Þegar sest er niður yfír minningu Páls Stefánssonar koma upp í hug- ann margar og góðar minningar. Minningar um ljúfan dreng, sem vildi allt fyrir alla gera og mátti aldrei neitt aumt sjá án þess að kanna hvort hann gæti ekki veitt að- stoð á einhvern hátt. Við hittumst fyrir nokkrum vikum á forn- um vegi. Hann var samur við sig og vildi allt um mína hagi vita á þeim tímamótum sem ég stend á núna. Sem fyrr vantaði ekki góð ráð, ráð sem komu frá hjartanu og sem svo oft áður komu sér vel. Um leið og ég bið hans nánustu guðs blessunar, þá vil ég segja það að minningin um Pál Stefánsson mun lifa í hjörtum okkar sem þekktu hann. Með þessum fáu orðum kveð ég góðan dreng. Björn Hermannsson. „Hvernig dettur þér í hug, elsku drengurinn minn, að það sé hægt að koma inn opnu í blaðið á morgun? Það er löngu búið að loka blaðinu og langt komið að brjóta það um.“ Síð- an fylgdi réttmæt almenn áminning um nauðsyn fyrirhyggju á auglýs- ingapöntunum. „Dóri, ertu þarna?“ Já, já - ég var að hlusta. „Ég hringi.“ Tíu mínútum síðar hringdi Palli. „Þetta er komið inn.“ Ótímabært fráfall Palla Stef minnir harkalega á fallvaltleika lífs- ins og kallar um leið fram blik úr 20 ára samvinnu í erilsömu umhverfi, þar sem góður vilji og gáski varð alltaf ofan á þótt ólundin sýndist nærtækari þegar álagið varð hvað mest. Við leiðarlok þakkar starfsfólk Hvíta hússins langt og farsælt sam- starf og biður þér þeirrar blessunar sem hinn eilífi friður einn veitir. Halldór. Páll Stefánsson vinur og hollráð- gjafí er dáinn langt um aldur fram. Faðir minn sem einnig er látinn og Páll voru æskuvinir og skólafélagar og hélst sú vinátta alla tíð. Páll var greindur og fjölhæfur maður. Hann var einstaklega at- orkusamur og vandamál voru í hans augum aðeins til þess að þau væru leyst. Vináttan og stuðningurinn sem Páll og Anna sýndu föður mínum, fjölskyldunni allri og ekki síst mér í veikindum föður míns verður aldrei fullþakkað. Páll Stefánsson var drengur góð- ur og ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst honum. Fyrir hönd fjölskyldu minnar votta ég Önnu og fjölskyldu Páls allri innilega samúð. Konráð R. Konráðsson. Góður maður, Páll Stefánsson, hefur kvatt fyrirvaralaust. Raunar er það ekki ólíkt honum að hverfa þannig allt í einu. Hann hafði oft nauman tíma í erilsömu starfi; átti það til að standa snögglega upp frá fundarborði, kasta á okkur kveðju og vera á bak og brott áður en okk- ur gafst tóm til að svara kveðju hans. Páll Stefánsson starfaði lengi í sérstæðum heimi auglýsinga á Is- landi. Þar verður oft að taka snögg- ar ákvarðanir og ríður á miklu að vera fljótur að hugsa og snöggur að koma hlutunum í framkvæmd. Páll var gæddur þessum eiginleikum og nýtti þá gjarnan svo vel að menn máttu hafa sig alla við ef þeir vildu fylgja honum eftir. En framar öllu munum við minnast hans fyrir ein- staka ljúfmennsku í samskiptum, hlýlegt viðmót og fjörgandi andblæ sem fylgdi honum ávallt í erli dags- ins. Fyrir þetta viljum við þakka um leið og við sendum ekkju Páls og fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Starfsfólk íslensku auglýsingastofunnar. MINNINGAR Það var ekki fjölmennur stúd- entahópurinn sem kvaddi skólann sinn í júnímánuði 1961 og hélt út í lífið. Margra ára samvera, í blíðu og stríðu, í Verzlunarskólanum vai’ á enda. Samfélag og vinátta sem til hafði verið stofnað varð skyndilega eitthvað sem tilheyrði æskunni og uppvaxtarárunum. Framtíðin ólesin bók en bjartsýnin í fyrirrúmi. Ljúfar endurminningar um skóla- árin eru baðaðar ljóma, þær gleðja hugann og skólasystkinin eiga alltaf sinn sess í hjörtum manna. Þótt líði ár og dagar á milli þess sem þau hittast er eins og kvaðst hafi verið í gær þegar hist er á ný. En áætlanir um endurfundi ganga ekki alltaf eft- ir. Það höfum við bekkjarfélagar Páls Kr. Stefánssonar í Verzlunar- skólanum verið alvarlega minnt á. Hann er farinn frá okkur svo snögg- lega og við eigum þess ekki kost að faðma þennan ljúfa dreng á næsta bekkjarmóti. Við Palli Stef, eins og hann var ætíð kallaður, urðum vinir strax í öðrum bekk. Við vorum nágrannar og vorum iðulega samferða í og úr skóla, fyrstu árin í strætó og síðar í pabbabílum þegar svo stóð á. Einnig vorum við sessunautar nokkra vetur. Palli var skemmtileg- ur skólafélagi og góður vinur, enda vinamargur og vinsæll. Það var engin lognmolla þai’ sem hann fór og hressti hann svo sannarlega upp á samfélagið í Verzló. Hann lifði hratt og var að mörgu leyti á undan okkur hinum. En samt var hann alltaf sami drengurinn, ljúfi, góði. Ég minnist heimilis hans og kær- leiksríkra foreldra og systkina sem voru samhent og umhyggjusöm fjöl- skylda. I „gamla daga“ voru tvær Iitlar kennslustofur í risi skólahússins við Gnmdarstíg þar sem lærdómsdeild- in var til húsa, þ.e. 5. og 6. bekkur. Þar settumst við Palli ásamt 21 öðr- um nemanda fyrir réttum 40 árum. Okkur þótti það dálítil upphefð að fá að ganga um kennarainnganginn og „við áttum loftið“. Það vai- þröngt setinn bekkurinn en ef til vill gerði það samfélagið, sem þar varð til, skemmtilegra og nánara. Ekki er hægt að segja að hann Palli hafi leg- ið í skólabókunum, en með góðum gáfum og snerpu skilaði hann alltaf góðum árangri. Nei, kúristi var ekki til í orðabókinni hans Palla, hann hafði annað að gera. Ég hitti hann síðast ekki alls fyrir löngu í Kirkjuhúsinu við Laugaveg- inn og urðu það fagnaðarfundir sem fyrr og við kvöddumst með kossi, viss um endurfundi. Timinn er naumur. Hver þekkir sína kveðju- stund? Ég er þakklát fyrir að hafa átt hann að samferðamanni og vini. Við samstúdentarnir úr Verzlun- arskólanum söknum vinar í stað, það verður daufara á næsta bekkj- armóti, það er víst. Ekki síst við undirbúning þar sem Palli lék alltaf á als oddi og stjórnaði okkur hinum með festu en dró ekki af sjálfur. Þannig viljum við minnast hans. Aður höfum við horft á eftir vin- um úr stúdentahópnum, þeim Vil- hjálmi Ingvarssyni, Þorfinni Karls- syni, Ernu Þorleifsdóttur og Kon- ráði R. Bjarnasyni, góðvini Palla, sem við kveðjum nú með döprum huga. Við minnumst þeirra allra með virðingu og þökk fyrir sam- fylgdina. Við vottum Önnu, börnum þeirra hjóna, Hildi móður hans og öðrum ástvinum innilega samúð. Sár er söknuður þeirra. Guð blessi þau og minningu Páls Kr. Stefánssonar. Elsa Petersen. Einn skemmtilegasti maður landsins er horfinn. Eftir er stórt tómarúm, sem þó er fullt af hlýjum, skemmtilegum og góðum minning- um. Að hafa þekkt hann og fengið að njóta allra hans kosta eru sannköll- uð forréttindi. Hlátur, gleði, spaug, stuðningur, púkkspil! Ótrúlegustu hlutir koma upp í hugann. Elsku Anna, Guðný, Stebbi og Hilla; megi góður Guð styrkja ykkur, blessa og varðveita. Minningin um frábæran dreng er mun lifa sem stórt bros í hjarta og hug. Kristín Kjartansdóttir, Sigurður Trausti Kjartansson. PÁLL KR. STEFÁNSSON + Okkar góði og elskulegi faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KONRÁÐ GÍSLASON kompásasmiður, Úthlíð 4, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 3. september kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á að láta Blindrafélagið, Hamrahlíð 17, njóta þess. Bertha Konráðsdóttir, Jón B. Eysteinsson, Málfríður Konráðsdóttir, Guðlaug Konráðsdóttir, Örnólfur Örnólfsson, Guðmundur Konráðsson, Guðmunda Andrésdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA SIGURMUNDSDÓTTIR, Vogaseli, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði mið- vikudaginn 25. ágúst, verður jaðrsungin frá Stafafellskirkju laugardaginn 4. september kl. 11.00. Benedikt Egilsson, Helga Ólafsdóttir, Guðný Egilsdóttir, Sigurður Einarsson, Kristín Egilsdóttir, Víðir Guðmundsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. + Ástkæra móðir okkar, VALDÍS HJARTARDÓTTIR, Öldugötu 24, Hafnarfirði, sem lést á líknardeild Landspítalans, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstu- daginn 3. september kl. 13.30. Guðrún Hind og Hannes Þór. + Ástkær frænka mín, SÓLVEIG RÖGNVALDSDÓTTIR, Brúarlandi, Eyjafjarðarsveit, verður jarðsungin frá Kaupangskirkju laugardaginn 4. september kl. 13.30. F.h. aðstandenda, Sveinn Bjarnason. + Frændi minn og bróðir okkar, VALDIMAR BJARNASON, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstu- daginn 3. september kl. 15.00. Svava Davíðsdóttir og systur hins látna. + Innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur einstaka samúð og hlýhug við fráfall elskulegs eiginmanns míns og föður okkar, ÖGMUNDAR EYÞÓRS SVAVARSSONAR, Öldustíg 13, Sauðárkróki. Algóður Guð blessi ykkur öll. María Guðlaug Pétursdóttir, dætur og fjölskyldur þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.