Morgunblaðið - 02.09.1999, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 59
Matur og matgerð
Rifsberja-
marengsterta
Hér innan girðingar í Grænagarði
hafa verpt 14 tegundir fugla, segir
Kristín Gestsddttir, en núna í sumar
hefur sílamávi fjölgað svo á Garðaholti
að hann er farinn að gera öðrum
fuglum lífið leitt.
OFT höfum við horft á sflamáv-
inn og hans skyldulið grípa
mófuglsunga og egg hér á holtinu
en aldrei eins oft og í sumar. Und-
anfarið þegar foreldramir hafa
verið að æfa ungana eru lætin og
hávaðinn með ólfldndum, auk þess
sem þessi stóri fugl dritar hér á
hús og umhverfi - ekki veit maður
hvað hann ber með sér úr
skolpræsunum en hann er mikið í
frárennsli þeirra. Við teljum okk-
ur fuglavini, en öllu má ofbjóða.
Annar gestur líka óvelkominn er
farinn að venja komur sínar hing-
að, en það er geitungur. I hitteð-
fyrra var hér mjög stórt trjágeit-
ungabú en núna valdi holugeit-
ungur sér stað fyrir bú sitt í
grjóthleðslu við gulrótarbeðið,
sem er við hliðina á rifsberjarunn-
unum. Við hjónin læddumst eins
og þjófar að runnunum til að
styggja ekki hina óboðnu gesti.
Eftirtekjan var ekki mikil - rétt
nægði í eina tertu enda berin
varla orðin rauð, þau vantar sól-
ina. Þau ber sem eftir eru verða
að bíða þar til geitungadrottning-
in er búin að leysa upp búið og
þegnarnir farnir á flakk.
Marengs-rifsberja-
kaka, bökuð í
tvennu lagi
Fyrri botninn
_________200 g smjör_______
100 g sykur
1 egg
3 eggjarauður
175 g hveiti
1 '/2 tsk. lyftiduft
1. Hitið bakaraofn í 190°C, blást-
ursofn í 175°C. 2. Hrærið lint
smjör með sykri, hrærið síðan
eggjarauður og egg út í. 3.
Blandið saman lyftidufti og hveiti
og hrærið út í. Setjið í smurt
form um 25-27 cm í þvermál og
bakið í 30 mínútur. Kælið vel og
hvolfið á smurðan álpappír á bök-
unarplötu.
Yfirbotninn:
___________3 eggjahvítur__________
____________150 g sykur__________
75 g fínt saxaðar möndlur
1 msk. kartöflumjöl
300 g vel þroskuð rifsber
1. Þeytið eggjahvítur og bland-
ið sykri smám saman út í og
hrærið vel á milli. Stráið kartöflu-
mjöli og hnetum út í og hrærið
varlega saman við.
2. Pvoið rifsberin og tínið af
stilkunum (gott er að ýta berjun-
um af stilkunum með gaffli). Þerr-
ið rifsberin og setjið út í marengs-
inn.
3. Setjið marengsblönduna ofan
á og niður með hliðunum á fyrri
botninum, sem á að vera vel kald-
ur og á að vera á álpappírnum. Ál-
pappírinn einangrar botninn örlít-
ið. Bakið við 180°C, blástursofn
við 165°C, í 25 mínútur.
4. Berið kökuna fram heita eða
kalda með ís.
Frábær skemmtun f allan vetur
IÐN0 leikárið 1999 - 2000
13.sýning
Sj«ik*pfe etn* og h»nn Wggur *»9
m
V/SA
. FRIÐINDA
«Cæ klúbburinn
*ef greitt er með VISA kreditkorti
-þú velur
Sex leiksýningar og tvær
gómsætar máltíðir á 7500kr .*
Þú velur þér fjórar kvöldsýningar og tvær hádegissýningar
úr spennandi vetrardagskrá IÐNÓ og færð að auki tvær
gómsætar máltíðir. Kortið veitir þér einnig 20% afslátt af
allri annarri starfsemi í Iðnó.
Kynntu þér frábært leikár
á www.idno.is
IÐNÓ - sími 5 30 30 30 - fax 5 30 30 31
netfang idno@idno.is - veffang www.idno.is