Morgunblaðið - 12.11.1999, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.11.1999, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 258. TBL. 87. ÁRG. FÖSTUDAGUR12. NÓVEMBER1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐINS Utanríkisráðherrann segir Rússa vilja binda enda á átökin í Tsjetsjníu sem fyrst Astandið í flóttamanna- búðum „skelfilegt“ Dubai, Helsinki, Moskvu, Sleptovsk^ja. AFP, AP, Reuters. NORÐMAÐURINN Kim Traavik, sem fór fyrir sendinefnd Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) til Tsjetsjníu, hvatti í gær Rússa og þjóðir heims til að leysa vanda þeirra 200 þús- und manna sem flúið hafa Tsjetsjníu undanfam- ar vikur vegna árása Rússa. Travik sagði að ástandið í flóttamannabúðunum í Ingúsetíu, sem sendinefndin heimsótti, væri „skelfilegt" og að aðgerða væri þörf í snatri. Atökin í Tsjetsjníu verða tekin til umfjöllunar á leiðtogafundi ÖSE, sem haldinn verður í Istan- búl í Tyrklandi 18. og 19. nóvember. Vestræn ríki hafa hert gagnrýni sína á Rússa þessa síð- ustu daga fyrir fundinn, og hafa þau ítrekað hvatt þá til að taka upp friðarviðræður við yfir- völd í Tsjetsjníu. Rússar hafa hingað til tekið slíkum hugmynd- um fálega og segja uppgjöf skæruliða forsendu viðræðna. ígor Shabduraslov, starfsmannastjóri Borísar Jeltsíns Rússlandsforseta, sagði á fréttamannafundi í gær að jafnvel þótt friðar- viðræður yrðu hafnar, myndu hernaðaraðgerðir Rússa í Tsjetsjníu ekki taka enda. Utilokaði hann að slíkar viðræður gætu leitt til þess að Rússar veittu Tsjetsjenum formlegt sjálfstæði. Pólitískrar lausnar leitað Igor Ivanov, utanríkisráðherra Rússlands, lýsti því yfir í gærkvöldi að Rússar vildu binda enda á átökin í Tsjetsjníu sem fyrst og hefja við- ræður um pólitíska lausn deilunnar. Sagði hann að það yrði unnt ef skæruliðar í Tsjetsjníu gæf- ust upp. Reuters Tsjetsjnesk böm í Spútnik-flóttamannabúð- unum í Ingúsetíu í gær. Farið er að kólna í veðri og óttast er um afdrif flóttamannanna, sem búa í tjöldum og hafa fæstir skjólgóðar flíkur meðferðis. Þá hafði ínter/ax-fréttastofan í gær eftir ígor Sergejev, varnarmálaráðherra Rússlands, að „það væri mögulegt" að hernaðaraðgerðum Rússa í Tsjetsjníu yrði lokið fyrir áramót. Rúss- neskir stjómmálamenn og yfirmenn hersins hafa hingað til verið afar varkárii- í ummælum um hvenær sókninni gegn íslömskum skærulið- um yrði lokið. Æðsti herforingi Rússa í Tsjet- sjníu sagði til dæmis í viðtali á miðvikudag að að- gerðirnar gætu staðið yfir í allt að þrjú ár. Rússneski herinn gerði í gær árásir á höfuð- borgina Grosní og bæinn Bamut, sem hefur ekki hemaðarlegt gildi, en er táknrænn sem eitt síð- asta vígi skæruliða í stríðinu 1994-1996. Sádí-Arabar neita aðild Innanríkisráðherra Sádí-Arabíu, Naif prins, hefur vísað á bug þeim ásökunum Rússa að Sádí- Arabar hafi sent skæmliðum í Tsjetsjníu vopn. „Þetta era algjör ósannindi," höfðu sádí-arabísk dagblöð eftir innanríkisráðherranum í gær. Rússar fullyrða að sádí-arabíski hryðjuverka- maðurinn Osama bin Laden standi að baki til- raunum íslamskra skæruliða til að ráðast inn í Dagestan-hérað frá Tsjetsjníu, með það fyrir augum að stofna þar íslamskt ríki. Hafa þeir meðal annars bannað beint flug frá Dagestan til Sádí-Arabíu og nokkurra annarra múslimaríkja, til að torvelda komu erlendra málaliða til hérað- sins. Samtök múslima í Dagestan mótmæltu banninu í gær og sögðu það hindra för um 2 þús- und Dagestana, sem hugðust leggja upp í píla- grímsferð tO Mekka 16. nóvember. Fjölbýlishiis hrundi til grunna í bænum Foggia á Italíu iMymMiiiiiiHimiiii tiifi Reuters Ekkert er eftir af fjölbýlishúsinu, sem hrundi snemma í gærmorgun, nema grjóthrúga. Talið er, að þá hafi verið að minnsta kosti 70 manns í húsinu. / Ottast að tugir manna hafi farist Foggia. Reuters, AP. Oflugur eftirskjálfti í Tyrklandi Einn maður lést Istanbúl. AFP, AP. JARÐSKJÁLFTI sem mældist 5,7 stig á Richters-kvarða reið yfir vesturhluta Tyrklands í gær, og varð hann að minnsta kosti einum manni að bana. Nærri tvö hundrað manns slösuðust, en flestir þeirra sem fluttir voru á sjúkrahús höfðu annaðhvort hlotið beinbrot eða orð- ið fyrir taugaáfalli. Jarðskjálftinn er eftirskjálfti eft- ir mikla skjálftann í ágúst, sem varð um 17 þúsund manns að fjör- tjóni. Hann átti upptök sín í Sakar- ya-héraði, við bæinn Adapazari, sem lagðist nánast í rúst í stóra skjálftanum. Hafast margir íbúanna enn við í tjöldum. Aldraður maður í bænum lést af völdum hjartaáfaOs og 156 bæjarbúar slös- uðust. Eins og vænta má olli jarð- skjálftinn mikilli skelfingu, enda missti stór hluti íbúanna á þessu svæði ættingja eða heimUi í skjálft- anum í ágúst. Hús titruðu einnig í höfuðborginni Istanbúl, og síma- samband rofnaði þar í heUa klukku- stund. Þúsundir eftirskjálfta hafa riðið yfir Tyrkland síðan í ágúst. Þetta mun vera sá öflugasti þeirra, fyrir utan skjálfta sem varð um miðjan september og mældist 5,8 stig á Riehter. OTTAST var í gær, að tugir manna hefðu týnt lífi eða grafíst undir rústum sex hæða fjölbýlis- húss í bænum Foggia á Suður-íta- líu, en það hrundi snemma í gær- morgun, er allir voru í fastasvefni. í gærkvöldi höfðu björgunarmenn fundið lfk 15 manna, en tekist hafði að bjarga 17 manns lifandi úr rústunum. Talið er, að allt að 90 manns hafí búið í húsinu en í því voru 24 íbúð- ir. Er ekki vitað hve margir voru þar í fyrrinótt, en giskað er á 70 til 90 manns. Talið er, að eitthvað verulega athugavert hafi verið við burðar- virki hússins, en það var reist á sjöunda áratugnum. Heyrðu skruðninga og forðuðu sér Fimm manna fjölskyldu tókst að forða sér út er hún heyrði mikla skruðninga i húsinu og fann, að það var á hreyfingu. Á leiðinni út hringdi fólkið öllum dyrabjöllum í anddyrinu til þess að vekja aðra íbúa, en varð að forða sér þegar húsið var í þann veginn að hryiya saman. Fimm mínútum áður en húsið hrundi var hringt í siökkvilið bæj- arins og það látið vita af skruðn- ingunum í húsinu, en þá var það orðið um seinan. * Ovissa á A N-Irlandi Belfast. AFP. DAVID Trimble, leiðtoga stærsta flokks sambandssinna (UUP) á Norður-íriandi, mistókst í gær- kvöldi að telja þingflokk UUP á norður-írska heimastjómarþinginu á að samþykkja tillögur um hvernig staðið verði að afvopnun írska lýð- veldishersins (IRA) og myndun heimastjómar í héraðinu. Munu 14 þingmenn hafa hafnað tillögunum í atkvæðagreiðslu en 13 greitt at- kvæði með þeim. Óljóst var hins vegar hvort þetta væri endanleg af- staða UUP og hvort endurskoðun friðarsamkomulagsins frá því í fyrra væri runnin út í sandinn. George Mitchell, bandaríski öld- ungadeildarmaðurinn fyrrverandi, hefur boðað leiðtoga stríðandi fylk- inga á nýjan fund í dag og þá mun væntanlega skýrast betur hver af- staða UUP er. Gerry Adams, leið- togi Sinn Féin, stjórnmálaarms IRA, sagði hins vegar í gærkvöldi að sér hefði verið sagt að UUP hefði hafnað tillögunum. Slagsmál í fangelsi Fullyrt er að þær tillögur sem þingflokkur UUP hafði til umfjöll- unar hafi borið með sér sérleg skilaboð frá IRA um að samtökin skuldbyndu sig til að halda friðinn. Jafnframt mun Sinn Féin, stjóra- málaarmur IRA, hafa útbúið yfir- lýsingu þar sem flokkurinn segist fordæma vopnuð átök. Meirihluti þingmanna UUP mun hins vegar ekki hafa talið orðalag yfirlýsing- anna ganga nægilega langt. Enn- fremur munu harðlínumenn í UUP ekki hafa talið að nægilega væri komið til móts við kröfur þeirra um afvopnun IRA. Harðlínumenn í IRA munu hins vegar hafa talið að allt of langt væri gengið til móts við óskir sam- bandssinna í þessum nýjustu tillög- um og írska lögreglan staðfesti í gær að komið hefði til slagsmála í fangelsi, þar sem margir IRA-fang- ar eru vistaðir, á þriðjudagskvöld þegar fulltrúar Sinn Féin kynntu stöðu mála fyrir félögum í IRA. ----------+++------ EgyptAir-slysið Oveður á leitarsvæði Newport í Rhode Island. AP. ENN er engu hægt að slá fóstu um orsakir þess að þota flugfélagsins EgyptAir hrapaði í sjóinn skammt frá Massachusetts 31. október. Sérfræðingai- héldu í gær áfram að rannsaka flugritann en upptökur í honum gefa ekki til kynna að vélin hafi hrapað stjórnlaust í hafið. Utilokað er hins vegar talið að fullyrða nokkuð um það hvað hafi valdið hrapinu, slys, tilræði eða mannleg mistök. Vonast er til þess að leitarmenn finni annan „svartan kassa“ með hljóðupptökum flugmanna en þær eru taldar geta varpað ljósi á að- dragandann. Slæmt veður hindraði að mestu leit á slysstað við Nant- ucket-eyju í gær en búist var við að vind lægði í dag. ■ HIjóðupptökur/26
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.