Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 2
■
2 FÖSTUDAGUR 12, NÓVEMBER 1999______________________________________________ ______MORGUNBLAÐIÐ
FRÍTTÍR
Hæstiréttur dæmir manni miskabætur vegna handtöku
Haldið saklausum
í hálfan sólarhring
Gróðursett fyrir veturinn
Víða 16 til 18 stig
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
manni 20 þúsund krónur í bætur
vegna handtöku. Rétturinn sagði
það andstætt ákvæðum laga um
meðferð opinberra mála að halda
manninum í fangageymslum eftir
að í ljós var komið að ekki vai'
ástæða til að gruna hann um lög-
brot.
Maðurinn var handtekinn síð-
degis dag einn í mars sl. þar sem
hann var á ferð með samstarfs-
manni sínum. Sá var grunaður um
fíkniefnabrot, því pakki með einu
kílói af amfetamíni hafði fundist í
BMW-bifreið, sem hann fluttí til
landsins. Fíkniefnalögreglan hafði
Jörðin Syðri-
Reykir I til sölu
Þriðjungur
í einum
vatnsmesta
hver lands-
ins fylgir
JARÐIRNAR Syðri-Reykir I og
III í Biskupstungum era til sölu.
Þeim fylgir liðlega þriðjungur í ein-
um vatnsmesta hver landsins,
Syðri-Reykjahver.
Á Syðri-Reykjum I og nýbýlinu
Syðri-Reykjum III, sem nú fylgii’
jörðinni, var lengi hefðbundinn bú-
skapur en honum var hætt fyrir
allmörgum áram. Jörðin er um 800
hektarar að stærð. Þar er nú rekin
garðyrkjustöð og útleiga sumarbú-
staðalanda. Á jörðinni eru þijú
íbúðarhús og henni fylgja veiðirétt-
indi í Brúará og læknum Fullsæl.
Annar vatnsmesti hver Iandsins
Syðri-Reykjahver er talinn ann-
ar vatnsmesti hver landsins, næst-
ur á eftir Deildartunguhver í Borg-
arfirði. Hann var á sínum tíma
mældur 40 sekúndulítrar en Grétar
Grímsson eigandi jarðarinnar segir
að ekki hafi verið unnt að mæla
hann í mörg ár. Syðri-Reykir I og
III eiga liðlega helming hversins
og er hann notaður til að hita upp
íbúðar- og útihús, gróðurhús og
sumarbústaði. Grétar segir að á
sínum hluta jarðarinnar séu um 50
sumarbústaðir, bæði á eignar- og
leigulandi. Þá hefur hann skipulagt
stórt sumarbústaðahverfi þar sem
unnt er að koma fyrir um 80 bú-
stöðum.
Grétar hefur verið veikur og vill
selja eignina ef viðunandi boð ber-
ast. Hann segir að nokkuð hafi ver-
ið spurst fyrir um hana án þess að
það hafi leitt til sölu.
fylgst með ferðum mannsins og lét
til skarar skríða þennan dag.
Mennirnir tveir vora færðir á
lögreglustöð. Þegar maðurinn, sem
síðar höfðaði mál til greiðslu bóta,
hafði gefið lögreglunni skýrslu, sex
klukkustundum eftir handtökuna,
taldi lögregla að hann væri ekki
viðriðinn umrædd brot. Honum var
þó ekki sleppt þar sem lögregla
taldi hugsanlegt að hann gæti spillt
íyrir rannsókn málsins. Þá fékk
hann ekki að láta ættingja vita af
sér fyrr en kl. 22.30 um kvöldið, en
hann var handtekinn kl. 16.30.
Honum var ekki sleppt úr haldi
fyrr en kl. 4.30 um nóttina, eftir
hálfs sólarhrings innilokun, þegar
lögreglan hafði handtekið annan
mann sem reyndist eiga aðild að
fíkniefnainnflutningnum.
Óskýrður dráttur
Héraðsdómur hafði fallist á þá
röksemd lögreglu að hætta væri á
að maðurinn spillti rannsókn máls-
ins og féllst ekki á að hann ætti
rétt til bóta. Hæstiréttur var á
öðra máli og sagði andstætt lögum
að lögregla héldi manni án þess að
grunur léki á um að hann hefði
framið lögbrot. Þá benti Hæstirétt-
ur á að ekki hefði komið fram við-
hlítandi skýring á því hvers vegna
dróst í um það bil sex klukkustund-
ir, frá því að maðurinn var tekinn
höndum, að taka skýrslu af honum.
ÞÓRUNN H. Sveinbjömsdóttir,
fyrsti varaformaður stéttarfélagsins
Eflingar, segir að með auknu fram-
boði á menntun fyrir ófaglærða
starfsmenn á leikskólum megi ná
meiri stöðugleika í starfsmanna-
haldi leikskólanna. Á undanförnum
tuttugu áram hafa verið haldin stutt
starfstengd námskeið fyrir starfs-
fólk á leikskólum á vegum starfs-
mannafélagsins Sóknar og Dagvist-
ar barna í Reykjavík.
Nýjar tillögur svokallaðs starfs-
greinaráðs uppeldis- og tómstunda-
greina ganga út á að komið verði á
tveggja ára starfsnámi á sviði upp-
eldismála í framhaldsskólum fyrir
þá sem áhuga hafa á því að starfa
sem aðstoðarmenn í leik- eða
grannskólum. Markmið námsins
yrði m.a. að auka færni nemenda í
uppeldi og umönnun barna og ung-
linga, kynna þeim leiki sem náms-
leið hjá börnum og unglingum og
þjálfa þá í að takast á við daglegt
starf í leik- og grunnskólum. Starfs-
náminu er einnig ætlað að vera
hvatning til áframhaldandi náms.
Tillögur starfsgreinaráðsins hafa
að undanfömu verið til umfjöllunar í
menntamálaráðuneytinu og að sögn
Jónmundar Guðmarssonar, aðstoð-
ai-manns menntamálaráðherra, hef-
Maðurinn krafðist 150 þúsund
króna í miskabætur en Hæstirétt-
ur dæmdi honum 20 þúsund krón-
ur. Málskostnaður greiðist úr ríkis-
sjóði.
ur sú ákvörðun verið tekin í ráðu-
neytinu að bjóða fyrrgreindu starfs-
greinaráði til viðræðna um næstu
skref. Starfsgreinaráð uppeldis- og
tómstundagreina er eins og kunnugt
er eitt af fjórtán starfsgreinaráðum
sem skipuð voru af menntamálaráð-
herra, Bimi Bjarnasyni, á síðasta
ári í þeim tilgangi að meta þörf fyrir
stuttar starfsmenntabrautir í fram-
haldsskólunum í samvinnu við at-
vinnulífið.
Um 60% allra starfsmanna
leikskólanna ófaglærð
Þórann bendir á í samtali við
Morgunblaðið að ófaglært starfs-
fólk sé nær 60% allra starfsmanna í
leikskólum landsins. Gera megi ráð
fyrir því að um helmingur þeirra
HLÝTT var á landinu öllu í
gær. Ibúar austan til á landinu
nutu áfram mestu hlýindanna
og mældist hiti mestur 18 stig á
Sauðanesvita á Langanesi. Víða
á Austfjörðum, til dæmis á Hall-
ormsstað, mældist hiti í kring-
um 16 stig en svalast var á
Kambanesi, 7 stig.
í Reykjavík var hiti um 11
stig og hlýtt þótt hvasst væri og
minnti sunnanáttin höfuðborg-
hafi lokið námskeiðum starfs-
mannafélagsins Sóknar eða sam-
bærilegum námskeiðum. Mikill
áhugi sé meðal þessara starfs-
manna á starfstengdu starfsnámi og
komist oft færri að en vilji. Með því
að bjóða upp á stuttar starfs-
menntabrautir í framhaldsskólun-
um megi hins vegar koma til móts
við þennan áhuga ófaglærðs starfs-
fólks á frekara námi.
Að sögn Þórannar má m.a. rekja
vanda þann sem nú ríkir hjá leik-
skólum borgarinnar til þess að of
mikil áhersla sé lögð á að ráða ein-
göngu fagfólk til starfa á leikskóla,
til að mynda leikskólakennara, leik-
skólasérkennara eða annað fagfólk.
Leikskólar Reykjavíkur auglýsi til
dæmis yfirleitt eftir fagfólki og líti
arbúa á tilveru sína. Þessir
starfsmenn létu vindinn ekki á
sig fá þar sem þeir unnu að
gróðursetningu á horni Álf-
heima og Suðurlandsbrautar.
Hiti víðast hvar í Evrópu
mældist á bilinu 6-9 stig í gær.
Gera má ráð fyrir að hægja taki
á vindi í dag og smám saman
fari að kólna, en búast má við
áframhaldandi hlýindum fram á
mánudag.
þar með framhjá þeirri staðreynd
að um 60% allra starfsmanna leik-
skóla landsins era ófaglærð. Þórunn
bendir á að aðrir kostir séu í stöð-
unni en að ráða eingöngu faglært
fólk, til að mynda geti umönnun
bama á leikskóla hentað húsmæðr-
um sem hafi reynslu af því að ala
upp sín eigin börn. Þá mætti kanna
hvers vegna starfsfólk yfir sextugu
er að mestu horfið af þessum starfs-
vettvangi. „Er ekki starfsfólk milh
sextugs og sjötugs jafn ve'rðmætt?"
spyr Þórann.
Samhliða þessu leggur Þórann þó
áherslu á mikilvægi þess að réttar-
stöðu og kjai'a ófaglærðra starfs;
manna leikskólanna verði gætt. I
þeim tilgangi vill hún að réttarstöðu
ófaglærðra á leikskólum verði sér-
staklega getið í lögum um leikskóla
en einnig telur hún mikilvægt að
laun þessara hópa verði hækkuð fra
því sem nú er. Miðað við launataxta
stéttarfélagsins Eflingar eru byrj-
unarlaun ófaglærðs starfsmanns,
undir tvítugu, á leikskóla rétt rúm-
lega sjötíu þúsund krónur á mánuði
en sá starfsmaður sem lokið hefur
öllum námskeiðum Sóknar og er yf-
ir 36 ára gæti verið með rúmlega
níutíu þúsund krónur í laun á mán-
uði.
Morgunblaðið/Kristinn
Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir, varaformaður Eflingar, um málefni leikskólanna
Of mikil áhersla
á að ráða ein-
göngu fagfólk
| Sérblöð í dag
Á FÖSTUDÖGUM
Þátttaka í Evrópukeppni of
kostnaðarsöm / C1, C2, C3
Charles Barkley og O’Neal í
slagsmálum í Houston / C4
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is