Morgunblaðið - 12.11.1999, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
j*
Aburðarverksmiðjan leggur áherslu á sölu beint til bænda
Allt að 16%
afsláttur af
listaverði
Gunnar Sæmundsson í Hrútatungu, varaformaður Bændasamtaka ís-
lands, gengur frá áburðarpöntun hjá Lárusi Daníel Stefánssyni sölu-
manni hjá Áburðarverksmiðjunni hf.
ÁB URÐARVE RKSMIÐJAN hf. í
Gufunesi hefur kvnnt nýtt sölu- og
dreifingarkerfi. Ahersla er lögð á
sölu áburðar beint til bænda og
veittir stighækkandi afslættir sem
ráðast af því hve mikinn þátt kaup-
endur vilja taka í að lækka birgða-
og dreifingarkostnað.
Þegar nýir eigendur og stjórn-
endur tóku við Aburðarverksmiðj-
unni hf. í mars síðastliðnum var
fyrirtækið rekið með tapi. Har-
aldur Haraldsson stjórnarformað-
ur segir að með aukinni verðbólgu
og hækkun kostnaðarliða hefði
verið útlit fyrir enn meiri halla
sem að óbreyttu hefði leitt til
10-15% hækkunar gjaldskrár.
Unnið hefur verið að hagræðingu
í rekstri fyrirtækisins, meðal ann-
ars með fækkun starfsmanna úr
84 í 62. Segir Haraldur að með
þessum aðgerðum hafi tekist að
snúa tapi í hagnað og gott betur
því verðskrá áburðar yrði óbreytt
frá fyrra ári.
Jafnframt hefur verðlagningar-
kerfi áburðar verið breytt í þeim
tilgangi að gera verðlagninguna
eins gagnsæja og mögulegt er, að
sögn Haraldar. Áburðarverksmiðj-
an hefur selt megnið af framleiðsl-
unni til kaupfélaga og annarra
þjónustufyrirtækja sem hafa end-
urselt hana til bænda. Haraldur
segir að þessir milliliðir hafi tekið
100 milljónir kr. á ári fyrir þjón-
ustu sína. Nýja sölufyrirkomulagið
gerir ráð fyrir aukinni beinni sölu
til bænda og þeim gefinn kostur á
afslætti. Bændur geta áfram keypt
áburð hjá kaupfélögum og öðrum
þjónustufyrirtækjum en þurfa þá
að greiða viðkomandi fyrirtækjum
fyrir umsýsluna.
8% staðfestingarafsláttur
Þeir bændur sem geta nýtt sér
alla kosti nýja afsláttarkerfisins
geta sparað umtalsverðar fjárhæð-
ir í áburðarkaupum, eða allt að
16% áburðai'verðsins. „Með því að
panta áburðinn snemma verður
framleiðslu- og birgðastýring skil-
virkari og framleiðslukostnaður
lækkar, sem aftur gerir Áburðar-
verksmiðjunni kleift að bjóða
bændum betri kjör,“ segir í frétta-
bréfí fyrirtækisins. Afslætth-nir
eru þrenns konar.
í fyrsta lagi er staðfestingaraf-
sláttur. Með því að staðfesta kaup
á áburði í vetur fæst 1 til 8% af-
sláttur. Sé áburðurinn keyptur í
nóvember fæst 8% afsláttur og 7%
ef hann er keyptur í desember og
fer afslátturinn síðan stiglækkandi
þar til hann fellur niður í maí. Unnt
er að staðfesta kaupin þótt greiðsla
sé ekki innt af hendi strax og er
fjárhæðin þá vaxtareiknuð þar til
greiðsla berst.
Veittur er 3% geymsluafsláttur
ef gengið er frá áburðarpöntun fyr-
ir árslok og viðkomandi er reiðubú-
inn að taka áburðinn til geymslu
þegar hann er tilbúinn til afhend-
ingar. Loks er veittur 5% verk-
smiðjuafsláttur ef bændur taka
áburðinn við verksmiðjudyr í Gufu-
nesi.
Áburðurinn er seldur á sama
verði um allt land, það er að segja
frá uppskipunarhöfnum. Svokallað-
ir flutningsstyrkir eru felldir niður
en Áburðarverksmiðjan hefur tek-
ið upp þá nýbreytni að aðstoða
bændur við að fá tilboð í flutning
áburðar. „Rauði þráðurinn í þessu
er að reyna að koma áburðinum á
sem ódýrastan hátt heim á hlað til
bænda,“ segir Haraldur.
Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Tekjur af fasteigna-
sköttum hækki ekki
meira en um 5%
BORGARFULLTRÚAR Sjálf-
stæðisflokksins lögðu fram í borg-
arráði á þriðjudag tUlögu um að
tekjur borgarinnar af fasteigna-
gjöldum í Reykjavík hækkuðu ekki
um meira en 5%. Lagt verður fram
nýtt fasteignamat 1. desember nk.
þar sem gert er ráð fyrir verulegri
hækkun fasteignamats. Afgreiðslu
tillögunnar var frestað.
Tillagan er svohljóðandi: „Borg-
arráð felur forsvarsmanni fjármála-
defldar að reikna út álagningarpró-
sentu fasteignaskatts í Reykjavík á
grundvelli nýs fasteignamats miðað
við það að fasteignaskattar hækki
um 5% á næsta ári eins og gert var
ráð fyrir í þriggja ára fjárhagsáætl-
un borgarinnar frá því í mars á
þessu ári. Fasteignamat verður
lagt fram 1. desember næstkom-
andi. Gert er ráð fyrir að fasteigna-
mat á íbúðarhúsnæði hækki um
fast að 20% vegna hækkunar fast-
eignaverðs í höfuðborginni. Helsta
ástæða þess að fasteignaverð í höf-
uðborginni hefur hækkað sem raun
ber vitni er að lóðaeftirspum er
langt umfram framboð. Það er þvi
óeðlflegt að borgin hagnist á þeim
lóðaskorti sem hún ber helst
ábyrgð á. Fjárhagsáætlun fyrir ár-
ið 2000 verður lögð fram í næsta
mánuði. Verði álagning fasteigna-
skatta óbreytt á næsta ári mun
fasteignaskattur hugsanlega
hækka um hátt í 600 mflljónir
króna vegna hækkaðs fasteigna-
mats. Borgin hefur ekki gert ráð
fyrir þeim tekjum í fjárhagsáætlun-
um sínum. Fasteignaskattar fjár-
hagsáætlunar skulu af þeim sökum
miðaðir við áðurgreinda 5% hækk-
un í krónutölu milli ára.“
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, einn
þeirra sem fluttu tillöguna, segir
að helst vflji hann að fasteigna-
skattarnir hækki alls ekki en hann
sjái 5% hækkun sem hugsanlega
neyðarlendingu í ljósi verðlagsþró-
unar síðastliðins árs. „Tillagan er
sett fram í þeirri von að það geti
orðið sátt um að hækka ekki fast-
eignaskatta meira en þetta," segir
Júlíus Vífill.
Fundur norrænu utan-
ríkisráðherranna
Ræddu um
breytingar á
öryggis-
stefnu ESB
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra hélt í dag framsögu um
utanríkismál fyrir hönd norrænu
utanríkisráðherranna á 51. þingi
Norðurlandaráðs í Stokkhólmi. I
ræðunni fjallaði hann um þau ut-
anríkismál sem ofarlega eru á
baugi og málaflokka sem Norður-
löndin hafa unnið að á árinu. Lagði
hann sérstaka áherslu á málefni er
tengjast Evrópuráðinu, ÖSE,
ESB, Eystrasaltsráðinu og
Barentsráði, en svo sem kunnugt
er fóru Norðurlönd með for-
mennsku þessara fimm stofnana á
árinu.
Norrænu utanríkisráðherramir
hittust einnig í gær á fundi þar sem
þeir fjölluðu sérstaklega um breyt-
ingar á öryggisstefnu ESB, en jafn-
framt um alvarlegt ástand Tjetsníu.
Á miðvikudag stýrði utanríkis-
ráðherra fundi norrænu utanríkis-
viðskiptaráðherranna en Island hef-
ur sem kunnugt er farið með for-
mennsku í Nprðurlandasamstarfinu
á þessu ári. Á þeim fundi var aðal-
lega rætt um komandi samninga-
fund í Alþjóðaviðskiptastofnuninni,
en einnig bar önnur málefni svo
sem Schengen og EES-samstarfið á
góma.
---------------
Keflavíkurflugvöllur
Tekinn með
500 grömm
af hassi
TOLLGÆSLAN á Keflavflanfiug-
velli fann 500 grömm af hassi á 21
árs gömlum íslenskum manni á
þriðjudagskvöld.
Maðuiinn var handtekinn og
fluttur tfl yfirheyrslu hjá fíkniefna-
deild lögreglunnar í Reykjavík. Við
yfirheyrslu játaði hann að vera eig-
andi efnisins og var honum sleppt
þar sem málið telst upplýst, sam-
kvæmt upplýsingum frá fíkniefna-
defld. Mál hans verður síðan sent til
ákæruvaldsins.
Talskona Stigamóta um máttleysi réttarkerfísins 1 kynferðisafbrotamálum
Innan við 10%
af kærum leiða
til sakfellingar
„RÉTTARKERFIÐ megnar ekki
að fást við kynferðisbrotamál og
við lýsum eftir umræðu um leiðir
sem gæfu betri árangur við lausn
þessara mála,“ segir Rúna Jóns-
dóttir fræðslu- og kynningarfull-
trúi Stígamóta.
Rúna segir staðreyndimar tala
sínu máli. 465 kynferðisbrot gegn
bömum hafi verið kærð tfl barna-
vemdamefndar á áranum 1992 til
1996 og af þeim kæmm hafi innan
við 10% leitt tfl sakfellingar. Þetta
komi ekki á óvart þvi vegna eðlis
þessara mála sé erfítt og oft á tíð-
um ómögulegt að sanna, sam-
kvæmt kröfum réttarins, að kyn-
ferðislegt ofbeldi hafi átt sér stað.
Því séu fómarlömb þess oft í mikl-
um vafa um hvort það sé þess virði
að fara með mál sín í gegnum slíkt
kerfi.
Rúna segir nýuppkveðinn
sýknudóm Hæstaréttar, yfir manni
sem ákærður var fyrir' kynferðis-
brot, hafa valdið þeim hjá Stíga-
mótum miklum vonbrigðum. „Þeg-
ar þessi dómur var kveðinn upp
var okkur nóg boðið, sérstaklega
vegna þess að við teljum þetta mál
hafa verið mun betur upplýst en
flest þau mál sem við á Stígamót-
um emm að fást við.“
Rúna segir að öll fómarlömb
kynferðisbrota sem leiti til Stíga-
móta séu hvött til að ákæra, en
samt fari 78% af þeim málum sem
komi til þeirra aldrei neitt lengra.
„Við vitum að flest þessi mál eru
ekki kærð og því er enn meira
áhyggjuefni að sjá þau mál sem
eru kærð fá slíka meðhöndlun.“
Sönnunarkrafan
of ströng
Rúna segir algjöra nauðsyn að
böm njóti sannmælis í réttarkerf-
inu. „Við hjá Stígamótum hljótum,
ásamt samfélaginu öllu, að gera þá
skýlausu kröfu að börn njóti rétt-
arverndar, en eins og staðan er
núna gera þau það ekki. Einnig
verður að gera þá kröfu að réttar-
kerfið verði sem best úr garði gert
til að rannsaka og fást við þessi
mál.“
Rúna segist vissulega geta verið
sammála því að sú regla að ekki
megi sakfella ekki fyrr en sekt sé
sönnuð sé hornsteinn réttarkerfis-
ins og tekur fram að hún sé alls
ekki á þeirri skoðun að sönnunar-
byrðinni beri að snúa við. Hins
vegar segir hún takmörk fyrir því
hversu ströng sönnunarkrafan geti
verið í þessum málum og í marg-
umræddum Hæstarréttardómi hafi
hún verið alltof ströng, því mál af
þessu tagi verði ekki öllu betur
sönnuð.
Þó að ýmislegt hafi verið gert til
úrbóta á rannsókn og meðferð
þessara mála telur Rúna að núver-
andi aðferðir réttarkerfisins ráði
ekki við þau og lýsir hún eftir um-
ræðu um kerfi sem gæti nýst bet-
ur.
Aðrar leiðir mögulegar
Hún bendir á að hægt sé að fara
aðrar leiðir í meðferð sakamála en
þá hefbundu, þess séu meira að
segja fordæmi og nefnir hún sann-
leiks- og sáttanefndina í Suður Af-
ríku sem dæmi. Þar var sakborn-
ingum í alvarlegustu málunum,
eins og morðum, pyntingum og
mannshvörfum, veitt friðhelgi gegn
óskilorðsbundnu fangelsi ef þeir
segðu sannleikann og játuðu glæpi
sína og vom nöfn þeirra svo birt
opinberlega. Þó ekki sé hægt að yf-
irfæra þessar aðferðir beint hér á
landi segir Rúna þær sýna að hægt
sé að leita annarra leiða.
Hún segir rannsóknir hafa sýnt
að það mikilvægasta fyrir þolendur
kynferðisabrota sé að gerandinn
viðurkenni að hann hafi beitt þá
hrottalegu ofbeldi, en eins og rétt-
arkerfið sé í dag, náist þetta mark-
mið alltof sjaldan. Hún segist sjálf
ekki vera með lausnina á reiðum
höndum, segir brýnt að vekja upp
umræðu um þessi mál og leita
lausna. „Þess verður að gæta að
gefa aldrei afslátt af þessum mál-
um eða gefa í skyn að það sé ekki
glæpsamlegt að fremja kynferðis-
afbrot. En eins og núverandi kerfi
virkar virðist niðurstaðan oft vera
sú að það sé ekki glæpsamlegt að
fremja þessi brot. Auk þess getur
það að leita réttar síns haft aukna
vanlíðan í för með sér fyrir þoland-
ann þegar hann situr uppi með það
að vera gerður tortryggflegur, ofan
á allt annað sem hann hefur þurft
að þola,“ segir Rúna.