Morgunblaðið - 12.11.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 13
FRÉTTIR
Níu íslensk verkefni
í evrópskum netdögum
Hundraðþúsund-
asti viðskiptavinur
Símans GSM
EVA Kristinsdóttir, 19 ára
Reykvíkingrir, varð í síðustu viku
hundraðþúsundasti viðskiptavin-
ur Símans GSM, þegar hún
keypti áskrift að GSM-frelsi í Sel-
ect-versluninni í Breiðholti. Þór-
arinn V. Þórarinsson, forstjóri
Landssimans, afhenti henni gjöf
frá fyrirtækinu, T-28 GSM-síma
frá Ericsson auk 100.000 inn-
eignar hjá fyrirtækinu.
í tilkynningu frá Landssíman-
um segir að á þessu ári hafi
hvergi í Evrópu verið hlutfalls-
lega jafnmikiil vöxtur á GSM-
markaðnum og á íslandi. Um
58% íslendinga eiga nú farsíma
og fór ísland nýverið fram úr
Svíþjóð í þeim efnum. Einungis
Finnar og Norðmenn eiga hlut,-
fallslega fleiri farsíma en Islend-
ingar, en bilið fer minnkandi.
VERKEFNIÐ „Ned@ys“ hefur nú
verið starfrækt í þrjú ár á vegum
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins og helsta markmið þess er
að upplýsa menntastofnanir um þá
möguleika sem felast í notkun nýrr-
ar tækni í kennslu, sérstaklega um
Netið. Menntastofnanir í Evrópu
hafa verið hvattar til að taka þátt í
„Netdays" með því að setja tölvu-
og tæknivædd verkefni á Netið.
Þannig er hægt að kynna sér úr-
val verkefna á aðgengilegan hátt,
nú þegar hafa níu íslensk verkefni
verið flutt þangað, m.a. frá Mennta-
skólanum á Akureyri, Flensborg í
Hafnarfirði, Nýbúafræðslunni og
Hjallaskóla. Upplýsingar um verk-
efni er að finna á eftirfarandi slóð:
www.netdays99.org og síðan er far-
ið inn á „Projects“ en þar eru vef-
imir og upplýsingar um höfunda
þeirra.
Evrópsku netdagamir
(Netd@ys Europe 99) verða opn-
aðir í Helsinki í dag, 12. nóvember
1999, og sérstök „Netd@ys“ vika
verður haldin dagana 13.-21. nóv-
ember 1999. Hægt verður að fylgj-
ast með opnuninni á Netinu og
uppákomur verða á vefnum alla
vikuna. Þúsundir verkefna hafa
verið skráðar á „Netd@ys
Europe“ heimasíðuna. A opnuninni
taka sérfræðingar þátt í umræðum
um „menntunarhefðir á næstu þús-
öld“. Hægt er að fylgjast með því á
Netinu og verður myndband-
skrækjum komið fyrir.
iviorgun Diaoio/ívrisunn
Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri Landssi'mans, afhendir Evu Kristinsdóttur, hundraðþúsundasta viðskipta-
vini Si'mans GSM, gjöf frá fyrirtækinu.
Lögreglumenn í Reykjavík
Bíða niðurstöðu end-
urskoðunarnefndar
UM átta til níu lögreglumenn hafa
sagt upp störfum af ýmsum ástæð-
um hjá lögreglunni í Reykjavík á
undanfömum vikum og mánuðum
að sögn Óskars Bjartmarz, for-
manns Lögreglufélags Reykjavík-
ur. Á orðum Óskars snemma í
haust mátti hins vegar skilja að
von væri á fleiri uppsögnum meðal
lögreglumanna í Reykjavík m.a.
vegna óánægju með kjaramál enda
var talað um að um 75 lögreglu-
menn væm að leita að nýjum störf-
um á hinum almenna vinnumai-k-
aði.
Óskar sagði í samtali við Morg-
unblaðið í vikunni að ástæða þess
að fleiri lögreglumenn í Reykjavík
hefðu ekki sagt upp störfum væri
m.a. sú að enn væri ekki útséð um
bætt launakjör til handa lögreglu-
mönnum. Á hann þar við að nefnd,
svokölluð endurskoðunarnefnd,
skipuð m.a. fulltrúum lögreglunn-
ar og fjármálaráðuneytisins, sé nú
að vinna að því að bera saman
launaþróun lögreglumanna sl.
fjögur ár saman við launaþróun
annarra stétta í opinbera geiran-
um.
Að sögn Jónasar Magnússonar,
formanns Landssambands lög-
reglumanna, má búast við því að
niðurstöður nefndarinnar liggi fyr-
ir um næstu mánaðamót. „Þá kem-
ur í ljós hvort laun lögreglumanna
hafi dregist aftur úr launum opin-
berra starfsmanna," segir hann.
En eru líkur á því að laun lögreglu-
manna verði hækkuð komi í ljós að
þau hafí dregist aftur úr öðrum
launum? „Já,“ segir Jónas, „í
[kjarajsamningnum er kveðið á um
ákveðná hækkun komi í ljós að við
höfum sannanlega dregist aftur
úr.“
Opið bréf til ríkis-
stjórnar Islands
Reykjavík, 10. nóvember 1999
Davíð Oddsson
Stjórnarráðshúsinu
við Lækjartorg
Hæstvirtur forsætisráðherra.
Við, undirritaðar, erum konur sem fórum í
vettvangskönnun á nektardansstaðina í
Reykjavík og hófst hún í öndverðum október-
mánuði er ráðstefnan Konur og lýðræði var
haldin að tilstuðlan ríkisstjórnar íslands.
Ástæða könnunarinnar er klámbylgjan sem nú
dynur yfir íslenska þjóð í mörgum myndum af
rriiklum þunga og eirir engu. Börn og ung-
menni eru þar síst undanskilin.
Fyrsti nektardansstaðurinn í Reykjavík var
opnaður í ársbyrjun 1995, síðan hafa bæst við
sex, þar af þrír á þessu ári. Enginn veit hversu
margir þessir staðir verða áður en yfir lýkur. Við
fórum á nektardansstaðina til þess að sjá með
eigin augum hvað þar fer fram. Við vildum
kanna, að því marki sem unnt væri, þann kima
klámiðnaðarins sem þessir staðir eru og oftar en
ekki tengjast vændi, eiturlyfjasölu og -neyslu.
Nokkrar okkar heimsóttu alla sjö nektardans-
staðina í Reykjavík og eftir þá reynslu teljum við
rétt að segja tíðindin þeim sem völdin hafa,
handhöfum framkvæmdavalds og löggjafarvalds.
Við sáum engan eðlismun á nektardansstöð-
unum sjö, þótt sýnilegur munur sé á ytri bún-
áði þeirra. Hvergi sáum við dansgólf fyrir gest-
ina en hinar svokölluðu listdansmeyjar stigu á
pall hver af annarri, fettu sig og brettu við súl-
urnar um leið og þær tíndu af sér hverja spjör
og að lokum sáum við margar þeirra glenna sig
með klúrum tilburðum framan í kúnnana sem
sátu næst pallinum. Framganga stúlknanna
kom okkur nokkuð á óvart, því satt að segja
vissum við ekki fyrirfram að nektardansstað-
irnir væru svo grímulausir kjötmarkaðir, þar
sem söluvaran er sýnd á palli með súlu sem
hjálpartæki, og hver krókur og kimi mannslík-
amans er sýndur umbúðalaus.
Athæfi stúlknanna virtist okkur niðurlægj-
andi fyrir þær sem og þá sem á horfðu. Gestir
stinga seðlum í skorur nektardansmeyjanna
eða undir tiltækar teygjur. Einnig sáum við fá-
klæddar dansmeyjar hverfa með kúnnum inn í
svokallaða einkadansklefa. Hvað þar fór fram
var hulið augum okkar, en samkvæmt verðlista
á einum staðnum kostar einn dans kr. 3.000-, 20
rriínútur kr. 15.000-, og 30 mínútur kr. 25.000-.
Á sama stað kostar dýrasta kampavínið kr.
50.000- á meðan sams konar flaska kostar kr.
14.800- hjá umboðinu, en til að dansmeyjar setj-
ist við borð gesta þarf að veita þeim kampavín.
; Á öðrum nektardansstað urðum við vitni að
svokölluðum sófadansi sem samkvæmt verð-
lista staðarins kostar kr. 1.000,- en þá sat „lista-
konan“ í sófa í kjöltu viðskiptavinarins og ók
sér. Þetta gerðist í salnum fyrir allra augum.
Á þriðja staðnum sáum við tvær hálfnaktar
stúlkur í lostafullum leik uppi á sviði. Þá heyrð-
ist karlmannsrödd í hátalara sem sagði: „Þær
ganga lengra ef þið borgið meira.“
Vitað er að víða nýtir klám- og vændisiðnað-
urinn sér neyð þeirra sem eiga ekki annan val-
kost og kanna þarf hvað er í raun verið að selja
í afkimum þessara staða. Þessar stúlkur koma
inn í landið á undanþáguákvæði sem vísinda-
menn og listamenn njóta, en hvernig nokkrum
ábyrgum aðila dettur í hug að kenna þessar
brjóstumkennanlegu fettur og glennur stúlkn-
anna við list er óskiljanlegt.
Eftir að hafa farið í vettvangskönnum á nekt-
ardansstaðina fáum við ekki séð að sú starfsemi
sem þar fer fram hafi öll stoð í lögum. I Almenn-
um hegningarlögum, 206. gr., stendur: „Hver
sem stundar vændi sér til framfærslu skal sæta
fangelsi allt að tveimur árum. Hver sem hefur
atvinnu eða viðurværi sitt af lauslæti annarra
skal sæta fangelsi allt að fjórum ái-um. - Hver
sem stuðlar að því með ginningum, hvatningum
eða milligöngu að aðrir hafi holdlegt samræði
eða önnur kynferðismök gegn greiðslu eða gerir
sér lauslæti annarra að tekjulind, svo sem með
útleigu húsnæðis eða öðru, skal sæta fangelsi
allt að fjórum árum en sektum eða fangelsi allt
að einu ári ef málsbætur eru.“
Hvers vegna hefur lögreglan ekki fyrir löngu
fengið heimildir, fyrirmæli og fjármagn til þess
að kanna ofan í kjölinn starfsemi nektardans-
staðanna? Lögreglan hefur með afgerandi
hætti sýnt hvers hún getur verið megnug í
glímunni við eiturlyfjavandann, þegar mann-
skapur og fé er sett i baráttuna. Er þess ekki
að vænta að lögreglunni verði innan skamms
falið að rannsaka klám- og vændisiðnaðinn af
svipaðri alvöru og eiturlyfjasöluna, en alkunna
er að klám- og vændisiðnaðurinn er næsti bær
við eiturlyfjavandann og samtvinnaður honum.
Hvenær verða lög og reglugerðir aðlagaðar
þörfum dagsins í dag, svo lögreglan geti
óhindrað unnið sín störf og tekist á við vandann
sem stafar af klám- og vændisiðnaðinum ?
Þar sem nektardansmeyjarnar koma inn í
landið á undanþáguákvæði 14. greinar í lögum
nr. 133 um atvinnuréttindi útlendinga frá 1994
eni þær undanþegnar læknisskoðun. Erlendir
verkamenn sem t.d. vinna við línulagnir á há-
lendinu fara í gegnum nákvæma læknisskoðun,
en þessar stúlkur, sem eiga svo náin samskipti
við fólk, eru undanþegnar læknisrannsókn við
komuna til landsins. Auk þess eru þessar stúlk-
ur undanþegnar allri skráningu hjá Utlend-
ingaeftirliti og skattyfirvöldum, þurfa hvorki
atvinnu- né dvalarleyfi í landinu þótt flestar
þeirra komi frá svæðum sem eru utan EES.
Hafa hlutaðeigandi jdirvöld leitt hugann að því
að alvarlegir smitsjúkdómar kynnu að berast til
landsins með þessum stúlkum, svo sem eyðni
eða lyfjaþolnar berklabakteríur, sem Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin varaði við fyrir sex árum
og nú er talin hætta á að breiðist út í Vestur-
Evrópu og Norður-Ameríku.
Hafa heilbrigðisyfírvöld ekki áhyggjur af
þessari ógn? Hafa þau áætlanir um einhverjar
öryggisráðstafanir og þá hverjar og hvenær?
Klám og vændi er sem kunnugt er ekki sérís-
lenskt fyrirbæri heldur hluti alþjóðlegrar hol-
skeflu. Á ráðstefnunni Konur og lýðræði vöktu
ummæli dr. Vaira Vike-Freiberga, forseta Lett-
lands, mikla athygli en hún gerði að umræðu-
efni hina hættulegu og niðurlægjandi verslun
með manneskjur eða nútímaþrælahald, sem er
mikið vandamál í heimalandi hennar sem og
annars staðar í Austur-Evrópu.
Teljið þér, herra forsætisráðherra, ekki
ástæðu til þess að láta kanna ofan í kjölinn
hvort einhver angi þessarar starfsemi eða ann-
arrar af svipuðum toga hafí borist hingað til
lands, þar sem vissir aðilar græða á því að
senda stúlkur á milli landa til starfa í klám- og
vændisiðnaðinum?
Hinn 18. júlí 1985 öðlaðist gildi á íslandi
samningurinn um afnám allrar mismununar
gagnvart konum sem samþykktur var á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York
18. desember 1979. í sjöttu grein þessa samn-
ings segir: „Aðildarríkin skulu gera allar við-
eigandi ráðstafanir, þ.á m. með lagasetningu, til
að hamla gegn hvers konar verslun með konur
og gróðastarfsemi tengdri vændi kvenna."
Hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar af ís-
lands hálfu til þess að uppfylla skuldbindingar
þessa samnings?
Að lokum viljum við minna á að næsta ár
verður Reykjavík ein af menningarborgum
Evrópu. Skyldi það eiga eftir að vefjast fyrir
einhverjum að útskýra fyrir erlendum gestum
hina nýju ásýnd miðborgarinnar sem líkist æ
meira erlendum „rauðljósahverfum", enda
blasa skilti nektardansstaðanna við vegfarend-
um sem leggja leið sína um Fischersund, Aust-
urstræti, Hafnarstræti, Hverfisgötu og Lauga-
veg, að viðbættu Brautarholti og Grensásvegi.
Er þetta sú ásýnd höfuðborgarinnar sem okkur
sjálfum líkar og við viljum að böm okkar og
barnabörn alist upp við?
Afrit af bréfi þessu verður sent ráðherrum,
alþingismönnum og fjölmiðlum.
Virðingarfyllst,
Rannveig Jónsdóttir, cand.mag.
/framhaldsskólakennari
Margrét Guðmundsdóttir, kennari
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
hjúkrunarfræðingur
Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóitir,
sérþj ónustuprestur
Vilborg Harðardóttir, framkvæmdastjóri
Elísabet Þorgeirsdóttir, ritsljóri
Guðný Guðmundsdóttir, kaupkona
Hólmfríður Árnadóttir, talmeina-
fræðingur/kennsluráðgjafi
Sigrún Gunnlaugsdóttir, kennari
Rósa Guðmundsdóttir, deildarstjóri
María Bergmann, MGA
Arndís Ó. llauksdóttir, hjúkrunar-
fræðingur/guðfræðinemi
Ásdís Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur
Björg Gísladóttir, starfskona Stígamóta
Eliria Hrund Kristjánsdóttir, guðfræðinemi
Guðrún Þorkelsdóttir, launafulltrúi
Hólmfríður Hilmisdóttir, deildarstjóri
Kolbrún Erna Pétursdóttir, leikkona/
starfskona Kvennaathvarfsins
Magdalena Ósk Einarsdóttir, bókhaldari
Margrét Hákonardóttir, þjúkrunarfræðingur
Margrét Ó. ívarsdóttir, grunnskólakennari
Sigríður Magnúsdóttir, þýðandi
Sigríður Erla Jónsdóttir, viðskiptafræðingur
Sólveig Jónsdóttir, þýðandi
Steinunn Pálsdóttir, vefnaðarkennari
Svanhvít Hallgrímsdóttir, tónlistarkennari
Svala Jónsdóttir, jafnréttisfulltrúi
Þóra Björnsdóttir, hjúkrunarforstjóri á Vogi