Morgunblaðið - 12.11.1999, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Umsdknir
um styrki úr
Afreks- og
styrktarsjóði
UMSÓKNIR um afreksstyrk
úr „Afreks- og styrktarsjóði"
Iþrótta- og tómstundaráðs
Akureyrar þurfa að berast
ráðinu að Glerárgötu 26 fyrir
25. nóvember næstkomandi.
Sjóðurinn var stofnaður ár-
ið 1991 og hefur árlega verið
úthlutað úr honum síðan auk
þess sem viðurkenningar eru
veittar til afreksmanna í
íþróttum og til þeirra sem
sérstaklega hafa unnið að
íþrótta- og tómstundamálum í
bænum.
Viðurkenningar eru veittar
þeim Akureyringum sem unn-
ið hafa til Islandsmeistaratit-
ils á árinu og einnig eru
íþróttafélögum veittir styrkir
vegna landsliðsmanna.
Til að ekki verði gengið
fram hjá neinum sem unnið
hefur til viðurkenningar
væntir Iþrótta- og tóm-
stundaráð þess að þau félög
sem hlut eiga að máli fari yf-
ir afrekalista sinna félaga og
tilkynni ráðinu nöfn þeirra
einstaklinga, liða og sveita
sem orðið hafa Islandsmeist-
arar á árinu. Nánast á
hverju ári hafa félögin
gleymt einhverjum innan
sinna vébanda segir í frétt
frá ráðinu og bent á að slík
vanræksla veki sárindi með-
al ungmenna sem lagt hafi
hart að sér til að ná árangri
og líta á úthlutun úr Afreks-
og styrktarsjóði sem há-
punkt ársins. Því er það
brýnt fyrir forsvarsmönnum
íþróttafélaga í bænum að
vanda sig þegar farið er yfir
afrekaskrá ársins.
Arleg hátíðardagskrá
sjóðsins verður að vanda í
íþróttahöllinni milli jóla og
nýárs.
Sekt fyrir ölvunarakstur en
kröfu um sviptingu hafnað
RÚMLEGA tvítugur karlmaður á
Akureyri var í Héraðsdómi Norður-
lands eystra dæmdur til greiðslu
sektar en kröfu ákæruvalds um
sviptingu ökuréttar var hafnað.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa ekið bifreið undii’ áhrifum
áfengis frá heimili sínu í miðbæ
Akureyrar og skömmu síðar þaðan
og aftur áleiðis heim til sín, en á
leiðinni þangað ók hann á ljósastaur
við gatnamót Skógarlundar og Mýr-
arvegai-. Atburðurinn átti sér stað í
lokjúlí í sumar.
A heimleiðinni úr bænum vildi
ekki betur til en svo að maðurinn
missti stjórn á bifreiðinni þannig að
hún snerist og hafnaði á ljósastaur
sem skemmdist. Tilkynnti hann ekki
óhappið til lögreglu. Lögregla komst
á snoðir um atvikið síðar þessa nótt
og var maðurinn boðaður til yfir-
heyrslu. Við skýrslutöku lýsti mað-
urinn því yfir að hann hefði fundið
til áfengisáhrifa er óhappið varð.
Var honum boðið að ljúka málinu
með sektargerð og sæta sviptingu
ökuréttar í tvo mánuði og féllst hann
á að ljúka málinu með þeim hætti.
Kvaðst hafa játað
vegna þrýstings
Sektargerðin var felld úr gildi
með bréfi ríkissaksóknara, en
ákvörðun hans byggist á því að
maðurinn hafi í febrúar 1997 geng-
ist undir sektargreiðslu og svipt-
ingu ökuréttar í eitt ár hjá sýslu-
manninum á Akureyri. Itrekunará-
hrif þess brots hafi enn verið virk
og lögreglustjórinn á Akureyri því
ekki haft lagaheimild til að ljúka
síðara málinu með þessum hætti.
í skýrslu fyrir dómi vék maður-
inn frá framburði sínum fyrir lög-
reglu og kvaðst ekki hafa verið
undir áhrifum áfengis er óhappið
varð. Kvaðst hann hafa játað ölvun-
arakstur vegna þrýstings frá lög-
reglumanni sem tók niður fram-
burð hans og hótunar um vist í svo-
nefndum biðklefa ef hann ekki ját-
aði. Einnig hefði hann með fyrri
framburði sínum verið að reyna að
útskýra hvers vegna hann stakk af
frá óhappinu. Astæðu óhappsins
sagði hann vera þá að hann hefði
gripið í handbremsu bifreiðarinnar
í þann mund sem hann ætlaði að
beygja inn í Skógarlund og við þær
tilfæringar misst vald á bifreiðinni.
Skýringar mannsins á því hvers
vegna hann játar fyrst akstur und-
ir áhrifum en dregur þann fram-
burð svo til baka þykja dómnum
með ólíkindum. Til þess yrði þó að
líta að ekki lægi fyrir rannsókn á
blóði úr ákærða né framburður
vitna um að hann hefði verið undir
áhrifum áfengis. Það væri því ekk-
ert umfram vitnisburð ákærða fyr-
ir lögreglu sem styddi að hann
hefði verið undir áfengisáhrifum
er bifreiðin skall á ljósastaurnum.
Hann játaði hins vegar að hafa
orðið valdur að umferðaróhappinu
og hafa látið undir höfuð leggjast
að tilkynna það og er gert að
greiða 20 þúsund króna sekt
vegna þess.
Morgunblaðið/Kristján
Hádegisveröarfundur á Fosshótel KEA
Mánudaginn 15. nóvember 1999, kl. 12:00 - 13:30
ÞENSLAN
Hættumerki í efnahagsmálum
• Hveijar eru ástæður þenslunnar?
• Er góðærinu að ljúka?
• Verður verðbólgunni náð niður?
• Eru fjármál hins opinbera í lagi?
• Þarf að minnka neysluna?
FRAMSOGUMENN:
Þórður Friöjónsson, forstj. Þjóðhagsstofnunar
Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður
Fundargjald (hádegisverður innifalinn) kr. 2.000,-
Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er
að tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 510 7100
eða bréfasíma 568 6564 eða með tölvupósti
mottaka@chamber.is.
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS
4
Á rúntinum í blíðunni
FÉLAGARNIR Orri og Elvar
notuðu góða veðrið til þess að rúnta
um á kassabílnum hans Orra í
Þorpinu á Akureyri. Ekki gátu þeir
þó báðir setið um borð í einu og
það var Elvar sem sá um ýta
kassabílnum er ljósmyndari
Morgunblaðsins rakst á þá félaga.
Fundur um starfsemi
nektardansstaða
JAFNRETTISNEFND, félags-
málaráð og áfengis- og vímu-
varnanefnd efna í sameiningu til
opins fundar í Deiglunni við
Kaupvangsstræti á morgun, laug-
ardaginn 13. nóvember, og hefst
hann kl. 14.
Á fundinum verður rætt hvernig
bregðast eigi við starfsemi nektar-
dansstaða og öðrum klámiðnaði
sem í vaxandi mæli hefur sett ljót-
an blett á okkar nánasta umhverfi
eins og það er orðað í frétt frá
nefndunum.
Á fundinum verða flutt erindi,
stutt innlegg og þá verða almennar
umræður. Erindi flytja Karl Stein-
ar Valsson, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík, Karólína Stef-
ánsdóttir fjölskylduráðgjafi og
Ingólfur Gíslason, starfsmaður á
skrifstofu jafnréttismála.
„Sungið fyr-
ir Sólveigu“
„SUNGIÐ fyrir Sólveigu“ er yfir-
skrift tónleika sem haldnii’ verða í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
laugardaginn 13. nóvember og hefj-
ast þeir kl. 17. Tónleikarnir eru
haldnir til minningar um Sólveigu
Hjálmarsdóttur.
Sólveig var fædd og uppalin á Dal-
vík og bjó síðustu æviár sín í Hrísey
og á Akureyri. Hún var sönghneigð
og nam söng, en hún útskrifaðist
með 8. stigs próf frá Tónlistarskólan-
um á Akureyri vorið 1992. Að lokinni
útskrift sótti hún þangað tíma með
hléum þar til skömmu áður en hún
lést. Meðfram tónlistariðkun sinni
vann Sólveig við ýmis störf en upp-
eldisstörf áttu hug hennar. Hún var
nemi á þriðja ári við kennaradeild
Háskólans á Akureyri er hún lést af
völdum krabbameins 6. nóvember á
síðasta ári.
Söngsystkin hennar sem með
henni störfuðu á einn eða annan hátt
í Tónlistarskólanum á Akureyri ætla
að efna til tónleika í minningu henn-
ar og verður efnisskráin fjölbreytt
og flytjendur margir. Aðgangseyrir
að tónleikunum er 1.000 krónur og
rennur ágóði til minningarsjóðs
Heimahlynningai- á Akureyri.
---------------------
Standist
grunnskóla-
próf í íslensku
VÖRÐUR, félag ungra sjálfstæðis-
manna á Akureyri, hefur sent frá sér
yfirlýsingu, þar sem íram kemur að
félagið telur það ekki sóma íslenskri
þjóð að veita fólki íslenskan ríkisborg-
ararétt sem hefur ónóg tök á íslensku.
Varðarmenn telja það nauðsynlegt
skilyrði að hver sá af erlendu bergi
brotinn sem æskir þess að hljóta ís-
lenskan ríkisborgararétt þurfi að
standast almennt grunnskólapróf í ís-
lensku. Enginn geti talist Islendingur
nema sá hinn sami sé fullfær um að
tjá sig á hinni íslensku þjóðtungu.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
Skuldfærði af reikningi
annars til að skoða klámvef
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra frestaði ákvörðun um refs-
ingu rúmlega tvítugs karlmanns í
Norður-Þingeyjarsýslu sem ákærð-
ur var fyrir fjársvik og fellur hún
niður að tveimur árum liðnum haldi
maðurinn almennt skilorð.
Maðurinn var ákærður fyrir fjár-
svik, með því að hafa tvívegis síðast-
liðið sumar látið heimildarlaust
skuldfæra á veraldarvefnum á Vísa-
reikning annars manns til banda-
rísks fyrirtækis sem greiðslu fyrir
aðgang að klámvef.
Maðurinn játaði skýlaust það at-
ferli sem honum var gefið að sök og
þótti háttsemi hans því nægilega
sönnuð. Með hliðsjón af afdráttar-
lausri játningu, ungum aldri og
greiðslu skaðabóta þótti dómnum
því eftir atvikum rétt að fresta
ákvörðun um refsingu hans og láta
hana niður falla haldi hann almennt
skilorð.