Morgunblaðið - 12.11.1999, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Nýkommúnistar og þjóðernis-
sinnar á serbneska þingi
Hafna við-
ræðum um
kosningar
Samþykktu að Milosevic nyti
forsetafríðinda ævilangt
Belgrad. AP.
BANDAMENN Slobod-
ans Milosevic, forseta
Júgóslavíu, höfnuðu í gær
að ræða við stjómarand-
stöðuna um, að kosning-
um í Serbíu yrði flýtt.
Þykir það benda til, að
nýkommúnistar og þjóð-
emissinnar, sem era í
meirihluta á þingi, ætli
ekkert tillit að taka til
mótmælanna í landinu.
I yfírlýsingu frá Lýð-
ræðisflokknum sagði, að
ljóst væri, að valdhafamir
vildu ekki kosningar
vegna þess, að þeir vissu
sem væri, að þeir myndu
tapa þeim. „Enginn ein-
ræðisherra hefur afsalað
sér völdum af sjálfsdáðum og það
mun Milosevic ekki heldur gera,"
sagði í yfirlýsingunni.
Stefnir Milosevic á for-
setaembætti í Serbíu?
Meirihlutinn á serbneska þing-
inu var líka sammála um annað
mál en það var að setja í lög, að
serbneskir forsetar skyldu njóta
forsetafríðindanna eftir að þeir
væra sestir í helgan stein. I því
felst, að þeir fá ýmis hús til um-
ráða, öryggisverði, einkaritara,
bíla og bílstjóra, allt á kostnað
ríkisins.
Milosevic er forseti sambands-
ríkisins Júgóslavíu en talið er, að
hann stefni að því að verða forseti
Serbíu fari svo, sem margt bendir
til, að Svartfjallaland lýsi yfír
Reuters
Slobodan Milosevic
sjálfstæði innan ekki mjög langs
tíma.
Þrengt að
stjórnarandstöðunni
Bandamenn Milosevic sam-
þykktu einnig ný lög í fyrradag,
sem þrengja veraiega að þeim
sveitarstjórnum, sem stjómai--
andstaðan stýrir, og er talið, að
það muni auka enn á ólguna í
landinu.
Heita má, að efnt sé til mót-
mæla gegn Milosevic daglega ein-
hvers staðar í Serbíu en á þriðju-
dag barði lögreglan námsmenn,
sem komu saman til að krefjast
afsagnar forsetans. Þeir efndu þó
til annars fundar í bænum Kragu-
jevac í fyrradag og voru þar um
5.000 manna samankomnar.
Byltingarkenna nýjung íhönnun
>uxna
Komdu og kynntu'þér
nýju línuna frá Filodoro í
C3 LYFIU Lágmúla í dag
og á morgun frá kl. 14-18.
S O K K A 1U! X U I<
Ný lína
20% kynningarafsláttur
Cb LYFJA
%em Lyf 6 légmarksverðl
LAgmúla 5
Rannsóknin á EgyptAir-slysinu
JIM Hall, forstjóri samgönguöryggisnefndar Bandarikjanna, sýnir fréttamönnum upptökutækin í „svarta
kassanum“sem byrjað er að rannsaka. Kassinn með hljóðupptökum úr stjómklefa er enn á hafsbotni.
Talið mikilvægast að
finna hljóðupptökur
Washington, Newport í Rhode Island. AP, Reuters.
BANDARISKA Samgönguörygg-
isnefndin, NTSB, hélt í gær áfram
að reyna að finna vísbendingar um
orsakir þess að þota flugfélagsins
EgyptAir hrapaði í sjó við Mass-
achusetts fyrir skömmu. Slæmt
veður hamlaði leit á hafsbotni í
gær en búist er við betra veðri í
dag.
Sérfræðingar telja að upplýs-
ingar sem fengust úr flugritanum í
öðram „svarta kassanum" í fyrra-
dag varpi ekki miklu ljósi á rás
viðburða. Ljóst er af upptökunum
að sjálfstýring vélarinnar var tek-
in úr sambandi en átta sekúndum
síðar var vélinni beint niður á við.
Unnið var að því í gær að rann-
saka allar síðustu sekúndurnar á
upptökunum. Sagt er að allt bendi
til þess að hún hafi ekki hrapað
stjórnlaust í hafið en varla sé
hægt að fullyrða meira þar til hinn
svarti kassinn með hljóðupptökum
úr stjórnklefanum finnist. Hann er
enn á hafsbotni.
Slys eða tilræði
Allir sem voru um borð í
Boeing-breiðþotunni, 217 manns,
fórust. „Við erum að reyna að
ganga úr skugga um það hvort
vélin hrapaði af mannavöldum,“
sagði Lewis Schiliro, aðstoðarfor-
stjóri alríkislögreglunnar banda-
rísku, FBI, í New York en hann
stjórnar rannsókn lögreglunnar á
því hvort glæpsamlegt athæfi hafi
átt þátt í hrapinu.
Ekki er hægt að segja neitt um
það hvort um slys eða tilræði var
að ræða þegar EgyptAir-þotan
hrapaði en FBI hefur ekki úti-
lokað neina möguleika í rannsókn
sinni frekar en gert var þegar
þota TWA-flugfélagsins sprakk í
lofti árið 1996. Úrskurðað var þá
að bilun hefði valdið sprengingu í
bensíntanki en ekki hefur tekist að
varpa frekara ljósi á atburðinn. Er
ljóst að þung áhersla verður lögð á
að niðurstaðan verði ekki jafn
óljós að þessu sinni.
Upplýst hefur verið að um borð
í EgyptAir-vélinni vora um þrír
tugir egypskra liðsforingja, talið
er að þeir og farangur þeirra hafi
farið í gegnum málmleitartæki áð-
ur en þeir fóru um borð í Los Ang-
eles. Vélin millilenti í New York á
leið sinni til Kaíró í Egyptalandi.
Einnig hefur komið fram að flug-
stjórinn hafði keypt sér háa líf-
tryggingu.
Símtöl hleruð
Fulltrúar FBI hafa að sögn
Schiliros kannað feril og aðstæður
farþega og áhafnar, einnig við-
gerðarmanna og annarra starfs-
manna sem með einhverjum hætti
hafa komið við sögu flugferðarinn-
ar eða skömmu áður verið í að-
stöðu til að valda skemmdum á
vélinni. Munu alls um 500 manns
hafa verið yfirheyrðir. Einnig er
vandlega leitað í braki og per-
sónulegum munum sem fundust á
slysstaðnum og þá ekki síst reynt
að finna leifar af sprengju.
Liðsmenn stofnunarinnar hlei’a
auk þess samtöl ýmissa félaga í
hryðjuverkasamtökum í von um að
heyra eitthvað sem tengist atburð-
inum og fólk sem telur sig vita
eitthvað er máli skipti er hvatt til
að láta yfirvöld vita. Ekki munu
þær ábendingar hafa reynst gagn-
legar fram til þessa.
Slæmt veður á leitarsvæðinu olli
því að björgunarskip urðu að leita
hafnar á miðvikudag og í gær-
morgun. Jim Hall, forstjóri NTSB,
sagði að veðurfræðingar spáðu
betri skilyrðum í dag og á morgun.
Leitarmenn fundu á miðvikudag
ratsjársvara á hafsbotni og hafði
hann losnað frá svarta kassanum
með flugritanum en haldið áfram
að gefa frá sér merki.
„Við erum þó búnir að koma í
veg fyrir að tveir ratsjársvarar
villi um fyrir okkur,“ sagði Hall.
Upplýsingarnar í flugritanum hafa
dregið úr getgátum um að svo-
nefndir knývendar hafi valdið
slysinu. Hall sagði á fréttamanna-
fundi að ekkert benti til að það
hefði gerst.
Fyrir átta árum fórst þota
Lauda Air-félagsins í Taílandi er
knývendar, sem notaðir eru til að
draga úr hraða eftir lendingu, fóru
óvænt af stað. Þotan var af sömu
gerð og vél EgyptAir, Boeing 767,
og fórast 223 er þotan rakst á
fjallstind. Gerðar voru breytingar
á knývendum vélanna til að koma í
veg fyrir fleiri slys af þessum
toga.
Dómsmáli svissneska
drengsins vísað frá
Golden. AFI’.
ELLEFU ára svissneskum dreng,
sem var handtekinn og ákærður
fyrir að hafa misnotað fimm ára
systur sína kynferðislega í Colora-
do í Bandaríkjunum, var leyft að
fara til Sviss í gær eftir að dómari
vísaði máli hans frá.
Dómarinn féllst á beiðni verj-
andans um að visa málinu frá á
þeirri forsendu að brotið hefði verið
á rétti drengsins til skjótrar máls-
meðferðar. Samkvæmt lögum Co-
lorado-ríkis þurftu réttarhöldin að
hefjast innan 60 daga eftir að
drengurinn var ákærður.
Drengurinn var handtekinn 30.
ágúst og honum var haldið í fang-
elsi fyrir unga afbrotamenn í sex
vikur þar til hann var sendur á fóst-
urheimili.
Handtakan vakti heimsathygli
og margir fordæmdu harkalega
meðferð lögreglunnar á drengnum,
sem var tekinn úr rúmi sínu um
miðja nótt, handjárnaður og fang-
elsaður.
Tveimur mánuðum áður hafði
nágranni drengsins í Colorado séð
hann afklæða systur sína í garði við
heimili þeirra. Nágranninn hélt því
fram að drengurinn hefði káfað
kynferðislega á stúlkunni en hann
kvaðst aðeins hafa hjálpað henni að
kasta af sér vatni. Móðir og stjúp-
faðir drengsins flúðu til Sviss með
þrjár dætur sínar af ótta við að þau
yrðu svipt forræði yfir þeim.
Verjandi drengsins neitaði að
skýra frá því hvenær hann færi til
Sviss. Hann sagði að drengurinn
hefði orðið fyrir miklu sálrænu
áfalli vegna handtökunnar og þyrfti
næði til að jafna sig. „Þegar ég
sagði honum að hann fengi að fara
heim trúði hann mér ekki í nokkrar
mínútur, ætlaði svo að stökkva upp
á stól og reka upp fagnaðaróp, en
við urðum að róa hann.“