Morgunblaðið - 12.11.1999, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Jóhannes Páll páfí við messu í Nýju-Delhí á sunnudag.
Páfa ráðlagt að hætta
ferðalögunum
Rómaborg. The Daily Telegraph.
EINN af læknum Jóhannesar Páls
II páfa sagði í fyrradag, eftir
komu hans í Páfagarð, að páfí
hefði ofreynt sig í ferðinni til Ind-
lands og Georgíu og ráðlagði hon-
um að hætta að ferðast til fjar-
lægra landa.
Páfí virtist örþreyttur og veik-
burða eftir ferðina, sem stóð í
fímm daga. Hann er orðinn 79 ára
gamall og hefur gengist undir sex
skurðaðgerðir. Corrado Manni,
svæfíngarlæknir í föruneyti páfa,
sagði að hann hefði virst „mjög,
mjög þrotinn að kröftum" í Georg-
íu og yrði að hætta að ferðast til
fjarlægra landa þar sem því fylgdi
of mikið álag.
Heimsóknin til Indlands reyndi
mjög á páfa og þegar hann var í
dómkirkjunni í Tbilisi í Georgíu á
mánudag voru teknar sjónvarps-
myndir af honum þar sem hann
sást skjálfa. Myndatökumönnun-
um var þá sagt að fara út úr
kirkjunni.
Þegar páfí hélt aftur til Rómar,
sögðu embættismenn Páfagarðs
að hann hefði aðeins fengið
„kuldahroll" þótt ákveðið hefði
verið að aflýsa áheyrn hans í Páfa-
garði á miðvikudag.
Úr hitasvækju í fimbulkulda
„Siðasta ferðin hefði reynst
miklu yngri manni ofviða,“ sagði
læknirinn. „Á nokkrum klukku-
stundum fór hann úr hitasvækju á
Indlandi í fímbulkuldann í Georg-
íu. Ofan á þetta bættist flugþreyta
og álagið við að ávarpa milljónir
manna.“
Embættismenn Páfagarðs
reyndu að gera lítið úr málinu og
sögðu að skyndilegar hitabreyt-
ingar hefðu valdið skjálftanum,
ekki Parkinsons-veikin sem þjáir
páfa. Fjölmiðlarnir í Róm fjölluðu
hins vegar meira um heilsufar
páfa en ferð hans.
„Hvílík pína það er að sjá páfa
þjást og skjálfa," sagði í fyrirsögn
ítalska dagblaðsins 11 Messeggero.
Blaðið La Repubblica sagði að páfí
virtist „sífellt þreyttari og veiklu-
legri“.
Fjöldi aðila með
nandi vöru á góðu verði.
Ný tilboð alla föstudaga!
KOLAPORTIÐ
L ------------ Á
Sharif, fyrrv. forsætisráðherra Pakistans,
sakaður um flugrán og mannrán
Reuters
Nawaz Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra, ásamt Pervez Musa-
harraf, yfirmanni hersins og núverandi herstjórnar. Myndin var tek-
in í febrúar sl. er allt lék í lyndi milli þeirra.
Varað
við ólgu
komi til
réttar-
halda
Karachi. Reuters, AP.
NAWAZ Sharif, fyrrverandi for-
sætisráðherra Pakistans, hefur
verið sakaður um flugrán og mann-
rán en við þessum sakargiftum
liggur dauðarefsing. Sumir óttast,
að réttarhöld yfir Sharif geti valdið
mikilli ólgu í landinu.
Talsmaður lögreglunnar í Kar-
achi sagði í gær, að búast mætti við
formlegri ákæru á Sharif innan
fárra daga en hann er sakaður um
að hafa stefnt lífi margra manna í
hættu.
Málið er í hnotskum það, að 12.
október sl. rak Sharif Pervez Mus-
harraf sem yfirmann hersins. Mus-
harraf var þá staddur á Sri Lanka
en þegar hann var á heimleið,
nokkrum klukkustundum eftir
brottreksturinn, ásamt 200 óbr-
eyttum borgurum, var farþegaþot-
unni neitað um lendingarleyfi í
Karachi. Neyddust flugmennirnir
til að hringsóla yfir borginni og
voru að verða eldsneytislausir þeg-
ar herinn tók völdin í landinu í sínar
hendur og opnaði flugvöllinn.
Er Musharraf hafði sett Sharif í
stofufangelsi skýrði hann frá því, að
legið hefði við stórslysi enda hefði
þotan ekki haft eldsneyti nema til
sjö mínútna flugs er hún lenti.
Verða örlög Sharifs þau
sömu og Bhuttos?
Auk Sharifs verða fjórir menn
aðrir ákærðir í þessu máli en for-
sætisráðherrann fyrrverandi er nú
í stofufangelsi í Islamabad ásamt
nokkrum fyrrverandi ráðherrum
og háttsettum embættismönnum
fyrrverandi stjórnar. Raja Zafaml
Haq, sem var trúmálaráðherra í
stjórn Sharifs, sagði í gær, að rétt-
arhöld yfir Sharif gætu valdið mik-
illi ólgu í landinu enda myndu
margir líta svo á, að þau væm af
pólitískum rótum rannin.
Verði Sharif fundinn sekur, hvað
þá ef hann verður dæmdur til
dauða, er það ekki í fyrsta sinn, sem
þannig fer fyrir pakistönskum for-
sætisráðherra. A sínum tíma lét
herstjórnin, sem steypti Zulfikar
Ali Bhutto af stóli, hengja hann eft-
ir að hann hafði verið dæmdur fyrir
að ætla að ráða pólitískan andstæð-
ing af dögum.
Alþjóðabannið við kjarnorkutilraunum
Stjórn Clintons reynir
að bjarga samningnum
Chicago. Reuters.
BANDARÍKJASTJÓRN reynir
nú að bjarga alþjóðasamningnum
um allsherjarbann við kjarnorku-
sprengingum í tilraunaskyni eftir
að öldungadeild þingsins hafnaði
honum í síðasta mánuði. Hún
kvaðst í gær vera tilbúin að koma
til móts við repúblikana í öldunga-
deildinni og bæta við fyrirvörum í
samninginn til að greiða fyrir því
að hann verði staðfestur.
Öldungadeildin hafnaði samn-
ingnum í atkvæðagreiðslu 13.
október. Madeleine Albright, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði að niðurstaða atkvæða-
greiðslunnar væri að hluta til
stjórninni að kenna þar sem hún
hefði ekki lagt grunninn að má-
lefnalegri umræðu um samning-
inn.
Viðræður verða hafnar við
repúblikana
Albright skýrði ennfremur frá
því í ræðu í Chicago að stjórnin
hygðist skipa háttsetta embættis-
menn í sérstaka nefnd sem ætti að
hefja viðræður við repúblikana um
skiljrrði þeirra fyrir staðfestingu
samningsins og útskýra hann fyrir
þjóðinni.
„Við þurfum að færa málefnin í
ríkari mæli til almennings vegna
þess að fólkið í öldungadeildinni er
Frá Roykjavík Frá Vestm.eyjum
Vestmannaeyjar
Vetraráætlun íslandsf/ugs
Wrka daga
07:30 08:15
11:50 12:35
17:00 17:45
Lauyai uaya 08:00 08:45
11:50 12:35
17:00 17:45
öunriuaaaa
11:50 12:35
17:00 17:45
vey@islandsflug.is • sími 481 3050 • fax 481 3050
ISLANDSFLUG
gerir tlelrum fmrt efl fílúgn
www.islandsflug.is sími 570 8090
kosið af fólkinu," sagði utanríkis-
ráðherrann. „Engin umræða hef-
ur í raun farið fram í þjóðfélaginu
um hlutverk Bandaríkjanna,
hvernig framkvæmdavaldið og
löggjafarvaldið vinna saman að
því að móta utanríkisstefnuna ...
bandaríska þjóðin vill taka þátt í
umræðunni.“
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
og Albright ætla að reyna aftur að
fá þingið til að staðfesta samning-
inn og segja að þangað til verði
engar kjarnorkusprengjur
sprengdar í tilraunaskyni í Banda-
ríkjunum.
Andstæðingar samningsins
segja að hann komi ekki í veg fyrir
að önnur ríki geti hafið leynilegar
kjarnorkutilraunir, að ekki sé
hægt að halda kjarnavopnabúri
Bandaríkjanna við án sprenginga
og að ríki sem séu staðráðin í að
eignast kjarnavopn muni snið-
ganga samninginn. Albright sagði
hins vegar að samningurinn væri
til þess fallinn að fæla önnur ríki
frá kjarnorkutilraunum, að
Bandaríkjamenn hefðu enga þörf
fyrir frekari kjarnorkusprenging-
ar og að eftirlitskerfið, sem kveðið
er á um í samningnum, sé betra en
það sem er fyrir hendi.
Stefnunni í málcfnum
Iraks mótmælt
Albright þurfti að gera hlé á
ræðu sinni nokki-um sinnum
vegna hrópa nokkurra mótmæl-
enda sem sökuðu hana um að
styðja kerfisbundna útrýmingú ír-
ösku þjóðarinnar. „Hvers vegna
drepið þið 4-5.000 börn í írak á
hverjum mánuði?" hrópaði einn
mótmælendanna.
Albright svaraði þeim og sagði
að Saddam Hussein íraksforseti
ætti sök á ástandinu í landinu því
hann kysi frekar að eyða pening-
unum í „gereyðingarvopn og hallir
handa virktavinum sínum" í stað
þess að kaupa matvæli og lyf.