Morgunblaðið - 12.11.1999, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar bækur
• JARÐELDAR á íslnndi er eftir
Markús Loftsson, en hún var upp-
haflega prentuð hjá Einari Þórðar-
syni í Reykjavík árið 1880.
I bókinni er að finna elstu heim-
ildir um eldsumbrot á landinu frá
fyrstu tíð. Fjallað er um öll gos í
Kötlu, utan það síðasta, Heklugos,
gos í Eyjafjallajökli, Vatnajökli,
Skaftárelda o.m.fl.
Útgefandi er Halla Kjartans-
dóttir íÞorlákshöfn. Endur-
prentun fórfram íprentsmiðjunni
Prentseii á Selfossi. Bókin er 140
bls. og kostar 1.790 kr.
• LEITIN að týnda egginu er eftir
Menju von Schmalensee.
Sagt er frá Fögrufjöður sem
uppgötvar að litla eggið hennar er
horfið. Hún ákveður að finna söku-
dólginn. Þá hefst leit þar sem lesa-
ndinn er jafnframt kynntur fyrir
ýmsum íslenskum dýrum.
Bókin er skreytt vatnslitamynd-
um.
Menja von Schmalensee er
dönsk að uppruna en hefur búið á
íslandi frá 12 ára aldri. Hún hefur
sýnt yatnslitamyndir í Danmörku
og á íslandi.
Útgefandi er Ritverk. Bókin er
30 bls., unnin í Odda hf. Verð: 1.790
kr.
• REFIRNIR á Homströndum er
eftir Pál Hersteinsson.
Páll hefur stundað rannsóknir á
refum í meira en tvo áratugi. I bók-
inni er greint í máli og myndum frá
lífsbaráttu og afdrifum refanna
sem Páll og samstarfsfólk hans
komust í kynni við er þau stunduðu
rannsóknir á þeim á Homströnd-
um sl. tvö ár. Einnig prýða bókina
112 litmyndir og kort af svæðinu.
Útgefandi er Ritverk. Bókin er
110 bls., unnin íPrentsmiðjunni
Odda hf. Bókin er einnig til í enskri
útgáfu. Verð: 4.490 kr.
• SELURINN Snorri er eftir
norska höfundinn og teiknarann
Frithjól Sælin í þýðingu Vilbergs
Júlíussonar. Bókin er nú komin út í
fimmta sinn, en hún kom fyrst út
áriðl950.
„í ungum huga kópsins Snorra,
söguhetjunnar, rúmast sakleysið
eitt, allir hljóta að vera eins og
mamma eða þá Skeggi frændi. En
hann lærir, að ekki eru allir við-
hlæjendur vinir. Það er líka, að lífs-
brautin er hál og vakir margar.
Fagurgali hræsnarans tælir hann
að heiman, í villu þar sem lífsháski
leynist með jakahröngli og íssins
brún. Þó fer allt vel að lokum, með
hjálp Skeggja frænda svo að kóp-
urinn og urtan ná saman,“ segir í
fréttatilkynningu.
Útgefandi er Bókaútgáfan
Björk. Bókin er 96 bls., oghefur
Oddi annast gerð bókarinnar.
Verð: 1.482 kr.
• ÖXIN er eftir Hans Mahner-
Mons í þýðingu Hersteins Pálsson-
ar.Bókin kom fyrst út árið 1950.
í fréttatilkynningu segir að þetta
sé söguleg skáldsaga er greini frá
örlögum Charles-Henris Sansons,
böðuls Parísarborgar, sem uppi var
1789. Starf böðuls gekk í arf frá
föður til elsta sonar og enginn
hægðarleikur var að brjóta þá hefð.
Sagan segir frá takmarkalítilli
grimmd og þeim eldheitu tilfinn-
ingum, ást og hatri, sem tvær
manneskjur geta borið hvor til
annarrar.
Útgefandi er Ritverk. Bókin er
320 bls., unnin íPrentsmiðjunni
Oddahf.Verð: 3.490 kr.
Sýningu
lýkur
Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6
Sýningu Eirúnar Sigurðar-
dóttur lýkur nú á sunnudag.
Stöðlakot er opið daglega
frákl. 14-18.
Páll Jóhannesson tenór heldur
tónleika í Víðistaðakirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
Páll Jóhannesson syngur á tónleikum í Víðistaðakirkju á morgun.
Röddin öll að
verða léttari
og lýrískari
PÁLL Jóhannesson tenór heldur
einsöngstónleika í Víðistaða-
kirkju í Hafnarflrði á morgun,
laugardag, kl. 16. Ólafur Vignir
Albertsson leikur með á pianó. Á
efnisskrá tónleikanna eru lög eft-
ir Verdi, Puccini, Schubert, Sig-
valda Kaldalóns og fleiri.
Síðastliðin átta ár hefur Páll
verið fastráðinn við Konunglegu
óperuna í Stokkhólmi en segist
vilja koma heim til íslands endr-
um og eins til að minna á sig.
„Maður vill gjaman koma heim
einhvern tímann seinna og gera
stærri hluti - það er draumur-
inn,“ segir hann og bætir við að
sér þyki þó alitaf miklu erfíðara
að syngja á heimaslóðum.
Páll hyggst hefja tónleikana
með óperuaríunni La donna e
mobile úr Rigoletto eftir Verdi,
þá syngur hann hinar ýmsu ar-
íur, svo sem úr Aidu, Turandot,
Brosandi landi, Vetrarferðinni
og Requiem eftir Verdi en sí-
ðastnefnda verkið söng hann á
tónleikum í Stokkhólmi á sunnu-
daginn var. íslensk sönglög hef-
ur hann einnig í pokahorninu en
hann ætlar að syngja lögin Kata
litla í koti, Heimir og Sveinka-
dans eftir Sigvalda Kaldalóns og
Sáuð þið hana systur mi'na eftir
Pál ísólfsson.
Aðspurður um helstu verkefni
í Konunglegu ópemnni í Stokk-
hólmi í vetur nefnir Páll La travi-
ata, Don Carlos, Carmen og
Rakarann í Sevilla. Þá kveðst
hann hafa sungið mikið utan
hússins líka, m.a. með sjálfstæða
hópnum Roslags-óperunni, þar
sem hann tók nýverið þátt í flutn-
ingi á Tosca.
Páll segist að undanfömu hafa
verið að fínna mjög góða eigin-
leika i rödd sinni sem hann hafði
ekki vitað af áður. „Maður er
eins og fillinn, er að vaxa allt sitt
Iíf, þ.e.a.s. röddin,“ segir hann og
hlær. Utskýrir svo að röddin sé
öll að verða léttari og lýrískari,
söngurinn sé orðinn áreynslum-
inni. „Ég nýt þess meira að
syngja núna, það gefur sjálfum
mér miklu meira,“ segir hann og
veltir fyrir sér hvort hér sé ekki
á ferð aukinn þroski, bæði í rödd-
inni og i andanum.
Islensk hönnun
í alþjóðlegu
samhengi
HÖNNUNARFYRIRTÆKIÐ My
studio á Islandi hefur sent frá sér
veggspjöld og dagatal fyrir árið
2000. Glasaframleiðandinn Ritzen-
hoff í Þýskalandi heur einig hafið
dreifingu á mjólkurglasi frá MY
studio. Ritzhehoff er þekkt fyrir
framleiðslu á glösum sem hönnuð
eru af þekktum listamönnum og
hönnuðum, m.a. hefur Erró hannað
glas fyrir fyrirtækið.
Að baki MY studio standa hönn-
uðirnir Michael Young og Katrín
Pétursdóttir.
Vörurnar eru nú fáanlegar í safn-
verslunum Kjarvalsstaða og er opið
þar daglega frá kl. 10-18.
Kirsuberja-
garðurinn hjá
Leikfelagi
Kópavogs
FYRSTA verkefni Leikfélags
Kópavogs á þessu leikári er Kirsu-
berjagarðurinn eftir Anton Tsjek-
hov og verður frumsýning á sunnu-
dag kl. 16 í Hjáleigu Félagsheimilis
Kópavogs.
Sýningin er stytt útgáfa af verk-
inu og hefur leikfélagið fengið til
liðs við sig Hjalta Rögnvaldsson til
að starfa með hópnum.
Verkið fjallar um Andreévitsj-
fjölskylduna og raunir hennar og
taka níu leikarar þátt í sýningunni
auk aðstoðarfólks. Leikstjóri er As-
dís Þórhallsdóttir. Önnur sýning er
föstudaginn 19. nóvember.
Nýjar bækur
Líf og list Louisu
Matthíasdóttur
• Bókin Louisa Matt-
híasdóttir er rituð af
Aðalsteini Ingólfssyni,
Martica Sawin, Jed
Perl og Lance Es-
plund. Sagt er frá lífi
og list Louisu Matthía-
sóttir. I bókinni eru 220
myndir, þar af 140
myndir af verkum
hennar gömlum og nýj-
um. Ritstjóri bókarinn-
ar, Jed Perl, er list-
gagnrýnandi í New
York. Hann skrifar um
feril Louisu frá miðjum
sjöunda ái’atugnum til
dagsins í dag og telur
hana „meðal merkustu
listamanna vorra tíma“ sem gefi í
verkum sínum tæra mynd af við-
fangsefninu. Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur segir frá námsárum
Louisu og verkum fram að því að
hún flyst til New York
árið 1942. Martica
Sawin, listfræðingur
og rithöfundur, segir
frá fyrstu árum Lou-
isuíNewYorkog
rekur þroskaferil
hennar fram að þeim
tíma að verk hennar
fóru að vekja athygli.
Sigurður A. Magnús-
son gerir uppruna og
lífshlaupi Louisu skil í
æviágripi með fjölda
mynda. Vigdís Finn-
bogadóttir fyrrum
forseti f slands og
bandaríska ljóðskáld-
ið John Asbery rita
ávarps- og aðfaraorð.
Útgefandi er Nesútgáfan ísam-
vinnu við Reykjavík—Menningar-
borgEvrópu árið2000. Bókin er240
bls. ístóru broti og kostai• 9.950 kr.
Louisa
Matthíasdóttir
Senuveiðar
BÆKUR
Ljóð
MYRKURBIL
eftir Hjört Marteinsson, Mar,
Reykjavík, 1999, 46 bls.
MYRKURBIL er önnur ljóða-
bók höfundar, áður hefur komið
út Ljóshvolfín árið 1996. Ljóðin í
Myrkurbilum eru annarlegar
svipmyndir, smámyndir af kring-
umstæðum og mannveru; þau
eru gjaman í annarri eða þriðju
persónu, „hann“, „þú“, en einnig í
fyrstu. Upphafsljóðið nefnist
„Hvítindin“ og gefur tóninn:
Hann stendur einn við sleðann
á jöklinum og ber hönd að eyrum
í hvítri víðáttunni er hann orðinn
gagnsærri en áður þar sem hann
nemur enn drunur í Jjarska Ferðbúinn
ákveðurhannsamt
að halda kyrru fyrir um stund
ogristaminningar
fráheimabyggðsinni
í hvolfþak snjóhússins
Þarsemristumar
erudýpstartekur
snjónum senn að blæða.
Ljóðin kallast sum hver á, vísa
í hvert annað og hafa leiðarminni.
í fleiri ljóðum má finna þessar
„ristur“ í snjó og heimabyggðin
skýtur víðar upp kollinum. Myrk-
urbil leita eftir annarleika, ein-
kennilegum andartökum. Verið
er á veiðum eftir skringilegum
senum, svo sem undarlegum
mannshvörfum og hvörfum í víð-
ari skilningi. Sum ljóðin eru nátt-
úrumyndir en gjaman skekktar,
ef svo má segja: það teygja sig
hendur upp um glufur á hraungj-
ótum í ljóðinu „Felustaður tón-
skálda“. Fáein ljóð eru kímin, þar
á meðal flippað lokaljóð bókar-
innar, tæknilega séð sonnetta,
enda nefnt svo. Mörg ljóð fjalla
um ferðalög, þrjú ljóð fjalla um
ljósmyndir („Ljósmyndun á
ferðalögum") eða eru ort út frá
þeim („Steinkast í fjöru“), öll
prósaljóð. Eitt Ijóðið nefnist
„Hugsað til Sigurðar Breiðfjörð"
og er einn sterkasti textinn í
verkinu. Fáein önnur ljóð byggj-
ast á sögulegum skírskotunum.
„Frá fundarhöldum um víða-
vangshlaup á 20. öld“ er aftur á
móti framtíðarsena í skýrslu-
kenndum stfl.
Myrkurbil eru full af myrkum
senum og skringilegum andar-
tökum, kannski stundum ívið
óræðum. En í heildina leynir
þettaverkásér.
Hermann Stefánsson
Ketill Larsen opnar málverkasýningu í Ráðhúsinu í dag. Hér er hann
með tvær mynda sinna.
Ketill Larsen sýnir í Ráðhúsinu
KETILL Larsen opnar málverka-
sýningu í Ráðhúsinu í dag, föstu-
dag, kl. 17. Sýninguna nefnir hann
Friður frá öðrum heimi og hefur að
geyma 100 olíu- og acrylmyndir,
flestar nýjar.
Þetta er 26. einkasýning Ketils,
en hann málar aðallega blóma- og
landslagsmyndir, en einnig ber fyr-
ir myndir sem lýsa hugmyndum
Ketils um annan heim.
A sýningunni verður leikin tónl-
ist eftir Ketil af segulbandi. Að'-
gangur er ókeypis.