Morgunblaðið - 12.11.1999, Síða 38
.38 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur
Norræna húsið
Brúðuleikhús
tengt Kalevala
SMALADRENGURINN er kon-
ungurinn (Karjapoiss on Kun-
ingas) heitir bi-úðuleikrit sem
Brúðuleikhús eistneska ríkisins
sýnir í Norræna húsinu á sunnu-
dag kl. 14.30 og kl. 15.30. Höfund-
ur leikritsins er Rein Agur og
byggir það á eistneskri þjóðsögu.
Sýningin er ekki hefðbundin
brúðuleiksýning, hún byggist
ekki á leikbrúðum eins og oftast
er í brúðuleikhúsi; í staðinn eru
trébekkir og stólar, ýmis hvers-
dagsleg áhöld og leikaramir sjálf-
ir í hlutverki leikbrúðanna.
„I sýningunni sameinast
fræðsla og skemmtun, söngur og
hefðbundin eistnesk menning.
Löngu gleymdar sagnir verða
sagðar einu sinni enn og áður
óþekktar sögur verða sagðar í
fýrsta sinn. Ahorfendur hlæja um
leið og þeir læra eitthvað nýtt.
Leiksýningin veitir áhorfandan-
um innsýn í hugsunarhátt eistn-
esku þjóðarinnar, og hvað vakti
kátínu hennar fyrr á öldum,“ seg-
ir í fréttatilkynningu. Leikritið
var þýtt á íslensku af Lemme
Laukas og verður verkið túlkað á
íslensku meðan á flutningi stend-
ur.
Sýningin tekur eina klukku-
stund og er aðgangur ókeypis.
Brúðuleikhús eistneska
ríkisins
Brúðuleikhús eistneska ríkis-
ins hefur aðsetur í Tallinn. Leik-
húsið var sett á laggimar 1952 af
Ferdinand Veike, leikstjóra
brúðuleikhúss og leikhúss. Það er
eina atvinnuleikhús sjnnar teg-
undar í Eistlandi. Á tæplega
hálfrar aldar starfsferli hafa yfir
300 leiksýningar eftir eistneska
og erlenda höfunda verið á fjölun-
um. Á leikárinu em yfir 15 leikrit
á efnisskránni, helmingur þeirra
er írumsaminn af Eistum. Brúðu-
leikhúsið er í tilkomumikilli bygg-
ingu í gamla borgarhlutanum í
Tallinn sem var reist 1906. Við
leikhúsið starfa 62 menn, þar af
12 leikarar.
Brúðuleikhúsið hefur sýnt um
allan heim, m.a. í Japan, Rúss-
landi og Færeyjum.
I sýningu Norræna hússins
koma fram leikaramir Riho Tam-
mert, Are Uder, Maie Toompere
og Hem-ik Toompere.
Kvennakór
í Njarðvík-
urkirkju
LÉTTSVEIT Kvennakórs Reykja-
víkur heldur tónieika í Njarðvík-
urkirkju á morgun, Iaugardag, kl.
17.
Kórinn var stofnaður árið 1995
og eru nú um hundrað konur í
Léttsveitinni og hafa þær haldið
tónleika bæði heima og erlendis,
m.a. hafa verið farnar tvær ferðir
til Irlands. Sijórnandi frá upphafí
hefur verið Jóhanna Þórhallsdótt-
ir og Aðaiheiður Þorsteinsdóttir
hefur verið undirleikari jafnlengi,
en hún hefur jafnframt raddsett
ijölda laga fyrir kórinn.
Hljóðfæraleikarar á tónleikun-
um á morgun eru Wilma Young
fiðluleikari og Tómas R. Einars-
son bassaleikari.
Miðaverð er 1.000 kr.
Morð í
BÆKUR
Þýddar bækur
LÍTTU EKKI UM ÖXL
Höfundur: Karin Fossum. Þýðandi:
Franzisca Gunnarsdóttir. Út-
gefandi: Mál og menning. 283 bls. í
kiljubroti.
VEGUR norrænna glæpasagna-
höfunda hefur vaxið hröðum skref-
um á undanförnum áram og er
margt mjög vel gert í þeirri grein í
Skandinavíu. Guðforeldrar flestra
norrænna glæpasagnahöfunda eru
sænsku hjónin Sjövall og Wahlö og
er undirtitill þeirrar sögu sem hér
um ræðir sá sami og þau lögðu sér
til; Skáldsaga um glæp.
Aðalpersónan er lögregluforing-
inn Sejer, ekkill um fimmtugt,
hægur og rólegur náungi sem lætur
lítið uppi hversu tilfinninganæmur
hann er og virðist á yfirborðinu
harður í hom að taka. Með honum
er unglöggan Skarre, dæmigerður
fylgisveinn í sögum af þessu tagi,
samspil þeima er hliðarstef við sög-
una sjálfa.
Umdæmi þeirra er norskur smá-
bær og sagan hefst á því að sex ára
stúlka hverfur að morgni dags og
stuttu síðar er tilkynnt að lík ung-
rar konu hafi fundist í skóglendi ut-
an við bæinn.
Lögreglumennirnir verða að
leita víða fanga við uppljóstrun
málsins og kemur á daginn að
lausnin liggur í fortíðinni, ýmislegt
hefur gerst sem legið hefur í þagn-
argildi.
Sagan er ágætlega skrifuð, bygg-
ist á innri spennu og mannlýsingum
fremur en ytri atburðarás, þó á
köflum séu lýsingar kröftugar.
Teikningar í Galleríi 101
„ANATOMY of feelings" nefnist
sýning sem opnuð verður á morg-
un, laugardag, kl. 17 í Galleríi 101
við Laugaveg. Á sýningunni era
teikningar, textaverk og myndb-
and, sem lýsir uppgötvun sem
Haraldur Jónsson gerði meðan
hann dvaldi nýverið í sjálfskipaðri
einangran inni í norskum skógi,
segir í fréttatilkynningu.
Ennfremur segir m.a.: „Skynjun
okkar og tilfinningar eru mjög flók-
in fyrirbæri. Þau lúta yfirleitt ekki
lögmálum hefðbundinnar eðlis-
fræði og því getur verið erfitt fyrir
hvert okkar að komast að áþreifan-
legri niðurstöðu um þessa grann-
þætti tilverannar.“
Eyður í skáldsagnagerð
Gunnars Gunnarssonar
BÆKUR
F r æ ð i r i t
TRÚ í SÖGUM
Um heiðni og kristni í sögnm og
samtíma Gunnars Gunnarssonar,
Halla Kjartansdóttir, Studia Is-
landica 56, Bókmenntafræðist.ofn-
un Háskóla íslands, Reykjavík,
1999.
ÝMSAR ástæður geta verið fyrir
því að höfundarverk Gunnars
Gunnarssonar hefur dottið jafn
mikið úr umræðunni og raun ber
vitni, sumar kannski beinpraktísk-
ar, svo sem skortur á endurútgáf-
um. Hugsanlega kemur til munur á
ritunartíma á dönsku og þýðingar-
tíma á íslensku; og ef til vill hefur
skort fleiri rannsóknir og endurmat
á verkum hans.
Gunnar lét sig ungur dreyma um
að skrifa mikinn sagnabálk þar sem
saga íslands væri að heita má ort
upp á nýtt eða endursköpuð. Bálk-
urinn átti að nefnast „Landnám";
hann þróaðist í að eiga að vera safn
sjálfstæðra verka, þversnið af ís-
lenskri sögu, hugarheimi og lífi
þjóðarinnar. Sögulega skáldsagan
Fóstbræður kom út
1918, Jón Arason 1930
og geta báðar fallið
undir skilgreininguna á
bálkinum. En Trú í
sögum eftir Höllu
Kjartansdóttur fjallar
einkum um Jörð,
Hvítakrist og Grámann
sem komu út 1933, ’34
og ’36 og einnig teljast
til þessa flokks. Þetta
era ekki þau verk
Gunnars sem oftast er
talað um og Kristinn E.
Andrésson lét þau orð
falla í grein um skáld-
skap Gunnars að sögu-
legu skáldsögurnar
væru „eyður í skáldsagnagerð
hans“. Þetta rit hér er ekki beinlín-
is hugsað sem andóf gegn ummæl-
um Kristins heldur má orða það svo
að hugmyndagreiningin á verkun-
um skýri hvers vegna þau höfðuðu
lítt tfl byltingarsinnans Kristins.
Lykilinn að þessum sögum telur
Halla að sé að finna í andstæðunni -
eða hliðstæðunni - kristni/heiðni.
Rit Höllu skiptist í fjóra hluta: sá
fyrsti nefnist „Landnám Gunnars
Gunnarssonar“, annar „Sköpunar-
saga þjóðar", þriðji „Rætur Gunn-
ars Gunnarssonar í
norrænni þjóðemis-
rómantík" og sá fjórði
nefnist „Gunnar og
samtíminn“. Þetta er
allítarleg greining
þar sem hugmynda-
heimur verkanna er
rakinn saman við
hræringar á Norður-
löndum á þessum
tíma og rætur raktar,
ekki síst til rómantík-
ur, í „rómantískan
synkretisma", en
hugtakið er ættað frá
þýska heimspeking-
num Friederich
Schelling: um er að
ræða þá hugmynd að öll trúarbrögð
séu af sama meiði. Og hér er fjallað
um og vel farið með þetta við-
kvæma efni: sameiginlegar hug-
myndalegar rætur Gunnars og
þýskra nasista. Að auki er efni bók-
arinnar dregið saman í bókarlok í
enskri þýðingu Garðars Baldvins-
sonar. Hins vegar er íhugunarefni
hvort ekki hefði verið heillavænna,
í það minnsta lesendavænna, að
þýða tilvitnanir í hina og þessa inn-
an bókarinnar, bæði úr dönsku,
sænsku og þýsku.
Trú í sögum er hefðbundið fræð-
irit. Höfundurinn og hugmynda-
heimur hans eru miðlæg hugtök í
Trú í sögum og þangað er allrar
merkingar að leita. Og talað er um
ætlun höfundarins, skilaboð frá
höfundi, trú höfundar á manninn,
samúð hans með kristindóminum,
boðun höfundarins. Ekki er skeytt
um þótt nútíma fræði þykist fyrir
löngu hafa sýnt fram á að engin
rödd höfundar geti mögulega talað
tfl eins eða neins í gegnum skrifað-
an texta. Aðferðafræðin er ekki
skoðuð, skýrð og sundurgreind við
upphaf bókar, ekki er velt mikið
vöngum yfir hugtökum og notkun
þeirra. Þetta er ekki galli heldur
einkenni - enda má á móti segja að
róttækari fræðin eru gjaman gagn-
rýnd fyrir að rýna um of í eigin að-
ferðarfræði og fyrir orðhengflshátt
í hugtakanotkun. Það er ekki hægt
að gagnrýna verk fyrir það sem það
er ekki; Trú í sögum er samkvæm
sjálfri sér, ætlar sér að vera hefð-
bundin ritskýring og hugmynda-
greining og er það. Sem slík gengur
hún prýðilega upp og varpar nýju
ljósi á ýmsa þætti í minna þekktum
verkum Gunnars Gunnarssonar.
Hermann Stefánsson
Halla
Kjartansdóttir
smábæ
Frásögnin er raunsæ með hvers-
dagslegu sálfræðilegu ívafi sem er
nánast orðið einkennismerki hinna
norrænu glæpasagna; utan vinnu
er aðalpersónan einmana sál, börn-
in uppkomin og konan farin eða dá-
in; heima fyrir er því oftast að litlu
að hverfa. Innst inni vonast lesa-
ndinn til að lögreglumaðurinn finni
sér konu, mátar þær sem ber fyrir í
sögunni og þannig er lesandinn
dreginn inn í hugarheim persón-
unnar, umfram söguþráðinn sjálf-
an, og þegar vel tekst til lyftist sag-
an uppfyrir svið hreinnar
afþreyingar og nær því marki að
teljast bókmenntir af einhverju
tagi.
Þýðing Franziscu Gunnarsdótt-
ur er þokkaleg en ekki verður af
henni metið hversu persónulegan
stíl höfundur hefur tileinkað sér.
Hávar Sigurjónsson
Soffía Sæmundsdóttir á vinn-
ustofu sinni.
Soffía Sæ-
mundsdóttir
sýnir í Galler-
íi Fold
SOFFÍA Sæmundsdóttir opnar
sýningu í baksal Gallerís Foldar,
Rauðarárstíg 14, á morgun, laugar-
dag, klukkan 15. Sýninguna nefnir
listakonan Dalbúar.
Soffía Sæmundsdóttir stundaði
nám við Myndlista- og handíða-
skóla Islands og lauk þaðan prófi úr
grafíkdeikl 1991. Soffía hefur hald-
ið nokkrar einkasýningar og tekið
þátt í samsýningum. Nýlega tók
hún þátt í stórri samkeppni á veg-
um fyrirtækisins Winsor og
Newton í Bretlandi. Alls tóku 255
listamenn frá 51 landi þátt í sam-
keppninni og var mynd Soffíu valin
ein af tólf bestu verkunum í sam-
keppninni, en endanleg úrslit hafa
ekki verið kynnt.
Gallerí Fold er opið daglega frá
kl. 10-18, laugardaga til kl. 17 og
sunnudaga frá kl. 14-17. Sýningin
stendur tfl 28. nóvember.
------------
Nýjar bækur
LJÚLÍ ljúlí er fyrsta skáldsaga
Guðrúnar Evu Mínervudóttur.
Sagt er frá
ungri mennta-
skólastúlku sem
býr með föður
sínum og fjórum
vinum hans í lít-
illi íbúð í
Reykjavík.
Þessi litla fjöl-
skylda er sam-
heldin og innfleg
þar tfl unga
stúlkan og einn
af vinum föðurins hefja flókið og til-
finningaþrungið ástarsamband.
Guðrún Eva sendi í fyrra frá sér
smásagnasafnið Á meðan hann
horfir á mig er ég María mey.
Utgefandi er Bjartur. Bókin er
240 bls., prentuð íprentsmiðju Gut-
enberg. Kápugerð annaðist
Snæbjörn Arngrímsson. Verð:
3.380 kr.