Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 39
GIQAJ3MUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 39
LISTIR
Hraunglóð,
listræn
hönnun og
framsækni
Morgunblaðið/Karl Blöndal
Með sinni litlu en á sama tíma stórkostlegu sendiráðsbygging-u
minnir Island á tilvist sína í Berlín á áhrifamikinn hátt, segir meðal
annars í dómnum.
BYGGINGAR-
LIST
NÝJA ÍSLENSKA SENDI-
RÁÐSBYGGINGIN
ÍBERLÍN
Arkitekt Pálmar Kristmundsson,
pk-hönnun.
ÞJ’OÐHÖFINGJAR allra Norð-
urlanda, þrjú konungspör og þrír
forsetar (þ.m.t. forseti sameinaðs
Þýskalands Jóhannes Rau) voru
viðstödd hátíðlega opnun nýju
bygginganna - um það hafði fleiri
dreymt en arkitektana. En með
sanni má fullyrða að hvorki hátíð-
leg viðhöfn opnunarinnar né
byggingarlist norrænu sendiráð-
anna beri keim af meintri forsjár-
hyggju (drottnunarstefnu) Vest-
urlanda í Berlín.
Þegar Norðurlöndin fimm
ákváðu árið 1995 að ráðist yrði í
sameiginlegar framkvæmdir um
byggingu norrænna sendiráða í
nýjum höfuðstað sameinaðs
Þýskalands var fólk almennt mjög
forvitið um hvernig löndunum
myndi takast verkefnið í borg sem
rómuð er fyrir mikla íhaldssemi.
Að lokinni samkeppni um sameig-
inlega svæðið völdu fulltrúar
Norðurlandaþjóðanna einhuga til-
lögu arkitektanna Alfred Berger
frá Vín og Tiinu Parkkinnen frá
Finnlandi. En hugmynd þeirra
um stóran vegg klæddum græn-
um koparskjöldum sem umlykur
fjögurra hæða byggingar sendir-
áðanna í „dínamískri“ sveiflu með
glæsilegu látbrigði, verður að telj-
ast byltingarkennd í byggingar-
sögu Berlínar. Með sameiginlegu
átaki varð stórvirkið að veruleika,
en einnig einstakar byggingar því
arkitektamir Pysall og Ruge frá
Berlín voru ráðnir sem verktakar
til að annast útfærslu veggjarins
og fimm sigurtillögur samkeppna
sem haldnar voru í hverju landi
fyrir sig.
Líkt og á landakortinu eru lönd-
in nú staðsett innan koparveggj-
arins, í suðaustri er þó ekki að
finna sendiráð baltnesku ríkjanna
heldur sameiginlega byggingu all-
ra landanna, „Felleshuset", en í
henni er að finna ráðstefnu-, fund-
ar- og sýningarsali sem og sam-
eiginlega móttöku allra sendiráð-
anna. Húsið er hagkvæm lausn og
hönnun þess ber vott um mikla út-
sjónarsemi þar sem hægt verður
að bjóða almenningi upp á menn-
ingarviðburði og almenna af-
greiðslu án þess að hver gestur
þurfi að ganga í gegnum mikla ör-
yggisgæslu.
Vatnsflöturinn á milli sendir-
áðsbygginganna minnir skemmti-
lega á hafið sem tengir löndin á
landakortinu. I biðsal sænska
sendiráðsins sem stendur við
vatnsflötinn verður maður þó að
ímynda sér sker á hafi úti.
Gert Wingárdh hannaði húsið
með þremur ólíkum framhliðum.
Innéttingar eru úr bæsuðum,
gylltum og appelsínugulum birk-
iviði sem minnir á glæsileika sam-
komusala gamalla gufuskipa.
Dönsku arkitektarnir Nielsen,
Nielsen & Nielsen völdu gataðar
ryðfríar stálþynnur sem klæðn-
ingu framhliðar sendiráðsins.
Stigi leiðir upp ljósagarðinn, ef
ekki til himna þá alla vega upp á
skrifstofu sendiherra.
Finnland kemur á óvart með
hráum og köldum efniviði. Ungu
arkitektarnir VIIVA Arkkitehtu-
uri Oy hjúpuðu hann með viðar-
málþynnu og notuðu aðeins þrjú
efni í innviði sendiráðsins; lag-
skipta steinsteypu (veggir og
gólf), kalt eðalstál (stigar og sa-
lerni) og birkivið
(dyr, kókonlagaður ráðstefnu-
salur við enda móttöku), í saman-
bland við mikið af glerefni. Fái
einhver starfsmannanna hroll get-
ur sá hinn sami leitað á náðir gu-
fubaðs, sem býður að vísu Við
sameiginlega torgið ber mest á
norsku sendiráðsbyggingunni
sem hönnuð er af Snohetta. Fram-
hlið hússins má líkja við tilbreyt-
ingaleysið sem einkenndi bygg-
ingarsögu Berlínarborgar þann
tíma sem múrinn stóð. „Fjögurra
hæða, hundrað og tuttugu tonna
og síðast en ekki síst
leiðinleg kveðja frá djúpum
fjörðum Noregs."
I samanburði skín litla sendi-
ráðsbyggingin frá Islandi á við
skatthol eða fjársjóð. Að utan er
byggingin klædd líparíti, efni sem
ekki hefur verið notað áður við
húsbyggingar samkvæmt upplýs-
ingum frá eldgosaeyjunni. Við
innkomuna verður maður var við
tilfærslur jarðskorpunnar. Vegg-
efni úr lagskiptri steinsteypu
bylgjast þar sem ekki er notað líp-
arit í klæðningu á útveggi og á að
minna á íslenskar byggingarhefð-
ir. Gólfflötur lítils garðs er klædd-
ur hraunhellum, en undir þeim
logar rautt ljós, áhrifamikið en
jafnvel einum of leikrænt.
Stigi, lyfta og salemi eru öll í
einum tumi en skrifstofur og
fundarsalur sendihema á þriðju
hæð mynda stærri flöt gegnt turn-
inum. Þýsk yfirvöld kröfðust þess
að bætt yrði við brunastiga sem
gaf arkitektinum enn eitt tækifæri
til að sanna hönnunarlist sína.
Látlaus, ódýr en vel valinn efni-
viður einkennir allt rýmið í ís-
lenska sendiráðinu. Lagskipt
steinsteypa sem bylgjast eins og
bámjám er sem eðalborin eftir
fyrmefnda vinnslu og útsjónar-
semi. Arkitektinn Pálmar
Kristmundsson frá pk-hönnun í
Reykjavík taldi heldur ekki eftir
sér að annast sjálfur hönnun og
útfærslu allra smáatriða í húsinu,
en þannig er hver hurðarhúnn
listrænt hannaður.
Fastar innréttingar og húsgögn
voru einnig hönnuð hjá pk-hönnun
í Reykjavík.
Með sinni litlu en á sama tíma
stórkostlegu sendiráðsbyggingu
minnir Island á tilvist sína í Berlín
á áhrifamikinn hátt.
Falk Jaeger, Berlin
FYRIR HEIMILI, IÐNAÐ OG LTPÆG
YFIR 9000VÖRUNUMER
Nú líka fjölbreytt vöruval frá Olísbúðinni
Innbyggður vaskur með gas
hellum. Verð 18.009-
Hitablásari fyrir rafmagn og gas.
Verð 29.900-
Hleðslutaeki fyrir rafgeyma.
Verð frá 2.995-
Logsuðutæki, verð frá 35.500-
Arináhöld og aringrindur [ úrvali.
Arinkubbatilboð: Kassi með 6
kubbum kostaraðeins 1.642-
Tóg og vírar í öllum gerðum og sver-
leikum. Splæsum tóg á staðnum.
Gasofnar, verð frá 13.900
Ellingsen ehf. hefur yfirtekið rekstur Olísbúðarinnar
og munu flestir vöruflokkar verslunarinnar
fást hjá Ellingsen í framtíðinni.
SENDUM EINNIG í PÓSTKRÖFU
OPIÐ LAUGARDAGA FRÁ10-14
Grandagarði 2, Rvík, sími 580-8500 og 800-6255