Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR12. NÓVEMBER1999
fta
m,
Islensk
u-beygja?
Ná„ Umhverfisvinir“ að knýja fram
stefnuhreytingu oghvernig bregðast
landar Gunnars á Hlíðarenda þá við?
HVER verðavið-
brögð stjórnvalda
fari svo,að 50-
70.000 íslendingar
riti nöfn sín undir
kröfu þess efnis að fram fari
formlegt mat á „umhverfísáhrif-
um“ Fljótsdalsvirkjunar? Vissu-
lega kann að vera hæpið að gefa
sér að þátttakan í undirskrifta-
söfnun þeirri, sem svonefndir
„Umhverfisvmir" hleyptu af
stokkunum í fyrradag, verði svo
mikil. Talsmenn þessara sam-
taka hafa á hinn bóginn upplýst
að þeir vonist eftir því að allt að
70.000 manns skrifi undir kröf-
una og ljóst er að mestur vindur
mun verða úr þessu baráttumáli
„Umhverfisvina“ nálgist fjöldinn
ekki þá tölu. Tilgangurinn er
augljóslega sá að knýja stjóm-
völd til stefnubreytingar, til að
taka pólitíska
u-beygju.
Skyldi það
Eftir Ásgeir takast?
Pólitískar
VIÐHORF
Sverrisson
u-beygjur hafa ekki sett mark
sitt á íslensk stjómmál á undan-
liðnum áratugum. Miklu frekar
hafa stjómmálamenn og flokks-
leiðtogar mjakað sér í áttina að
öðmm viðhorfum þegar vindátt-
in hefur boðið þeim að skipta um
skoðun. fslendingum hugnast
enda ekki að menn skipti um
skoðun. Slíkt er talið birtingar-
form skorts á stefnufestu og
þykir óþjóðlegt. Þeir stjómmála-
menn, sem staðnir em að slíkum
umskiptum andans, era hafðir að
háði og spotti enda hefur íslensk
þjóðmálaumræða aldrei verið
grandvölluð á rökræðu. Sú hefð
er ekki til í samfélaginu líkt og
glögglega má greina á degi
hverjum. Síðan gleymist ekki
hvemig fór fyrir Gunnari á Hlíð-
arenda. Gunnar var að vísu
ágætur íslendingur, bæri vísast
diplómatavegabréf sem fastur
liður í kynningum á íslenskri
menningu erlendis væri hann
enn á meðal vor. Gunnar skipti
hins vegar um skoðun og örlög
hans era öllum kunn.
Flokkar á íslandi taka sumsé
að öllu jöfnu ekki pólitískar
u-beygjur. Hins vegar gera ein-
stakir stjórnmálamenn og önnur
íslensk mikilmenni það á stund-
um og er raunar rannsóknarefni
hversu misjöfn viðbrögð slík
skoðanaskipti kalla fram.
Nýr umhverfisráðherra, Siv
Friðleifsdóttir, var talin hafa
skipt um skoðun varðandi fyrir-
hugaða Fljótsdalsvirkjun í þvi
skyni að hreppa ráðherrastól og
uppskar fáheyrðar óvinsældir.
Steingrímur Hermannsson, fyrr-
um forsætisráðherra, sem stóð
að sambærilegum ákvörðunum á
þeim áram er Islendingár nutu
stjómvisku hans, kemur nú fram
sem miki]] vinur umhverfisins og
er tekið fagnandi. Raunar er
áhugi Steingríms Hermannsson-
ar á umhverfismálum svo hams-
laus að hann taldi sjálfsagt að
skattborgarar þessa lands
greiddu fyrir hann ferðir til út-
landa er hann gegndi embætti
seðlabankastjóra til að hann
gæti fylgst sem best með þróun
mála á þessu sviði.
Herra Ólafur Ragnar Gríms-
son fór forðum fyrir því guðlausa
Alþýðubandalagi en gerðist
óvænt ákafur trúmaður er hann
afréð að bjóða sig fram til emb-
ættis forseta lýðveldisins. Þeim
umskiptum tóku íslendingar
fagnandi. Herra Ólafur Ragnar
Grímsson ræðir nú við leiðtoga
þjóða Mið- og Austur-Evrópu
um ágæti NATO, sem hann hafði
forðum veralegar efasemdir um
ef rétt er munað. Þjóðin gerði
heldur engar athugasemdir er
fyrram skoðanabróðir herra Ól-
afs Ragnars Grímssonar, maður
að nafni Svavar Gestsson, gerð-
ist sérlegur fulltrúi stjómvalda
erlendis eftir að þafa gagnrýnt
utanríkisstefnu Islendinga um
áratuga skeið.
Það virðist því sem ekki sé
sama hver á í hlut. Enn meira
máli kann að skipta hvernig um-
skiptin era „markaðssett" eins
og það mun heita á nútímamáli.
Miklar og almennar óvinsældir
fulltrúa Framsóknarflokksins,
þeirra Sivjar Friðleifsdóttur og
Finns Ingólfssonar, er vitanlega
ekki unnt að rekja einvörðungu
til stefnu þeirra í stóriðjumálum
og meintra skoðanaskipta ráðs-
konu umhverfismála. Hins vegar
sýnist blasa við að erfiða stöðu
Framsóknarflokksins má ekki
síst skýra með tilvísun til ýmissa
ummæla þessara ráðherra, sem
þjóðin hefur afar litlar mætur á
ef marka má skoðanakannanir.
Pólitískar u-beygjur era hins
vegar vel þekktar erlendis.
Þekktasta dæmið frá seinni ár-
um er vafalaust stefnubreyting
ríkisstjórnar Edwards Heath,
þáverandi forsætisráðherra
Breta, árið 1972. Stjórn Heaths
neyddist til að hverfa frá nokkr-
um helstu stefnumálum sínum
og afneita markaðssjónarmiðum
í mörgum mikilvægum efnum.
Heath hélt enda aðeins velli til
1974 og u-beygjur hans urðu
m.a. til þess að Margaret
Thatcher tók við embætti leið-
toga Ihaldsflokksins.
Er íslensk u-beygja í vænd-
um? Munu íslensk mikilmenni og
umhverfisvinir á borð við Stein-
grím Hermannsson og Vigdísi
Finnbogadóttur ná að hrífa þjóð-
ina með sér líkt og forðum? Sú er
alltjent von forsvarsmanna und-
irskriftarsöfnunarinnar, sem
stillt hafa fyrram ráðamönnum í
fremstu víglínu. Vera kann að
það þjóðlega herbragð heppnist
þótt sá ráðahagur verði að
líkindum einnig til þess að ein-
hverjir treysti sér ekki til að
sfyðja framkomna kröfu um að
fram fari margnefnt „lögform-
legt umhverfismat".
Ríkisstjómin hefur komið sér í
afar þrönga stöðu í máli þessu.
Þungavigtarmenn á borð við
ágætan utanríkisráðherra, Hall-
dór Asgrímsson, hafa látið stór
orð falla, sem erfitt verður að
hverfa frá. Fari svo kann Gunn-
ars á Hlíðarenda-heilkennið að
skella á honum og undirsátum
hans af fullum þunga.
Undirskriftarherferð „Um-
hverfisvina" mun skerða enn
frekar svigrúm ríkisstjómarinn-
ar bregðist ráðamenn ekki hart
við. Mikil átök era yfirvofandi,
sem reyna munu á stjórnarsam-
starf og flokksaga. Hyggilegast
er því að þessi kaleikur verði tek-
inn frá stjómmálamönnunum og
að virkjunaráformin verði borin
undir þjóðaratkvæði í nafni hins
nútímalega, beina lýðræðis.
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ANTON BJÖRN
FERNANDO
Huggar, græðir hjartasárin
hlý og fógur minning þín.
(E.S.)
Hvíl í friði í faðmi Drottins.
Elísabet.
+ Anton Bjöm
Femando fædd-
ist 3. apríl 1977 í
Reylgavík og lést 4.
nóvember síðastlið-
inn. Móðir hans er
Pálína Guðrún
Kristjánsdóttir og
faðir hans Antonio
B. Femando. Anton
á einn bróður, Ed-
vin Má Femando.
Sambýliskona Ant-
ons var Tanja Aðal-
heiður Larsen og
dóttir þeirra er Al-
exía Rós Femando.
Foreldrar Tönju em Kaj Anton
Larsen og Þóra Haraldsdóttir.
Anton stundaði nám í trésmíði
þegar hann lést.
Utförin fer fram í dag frá
Fella- og Hólakirkju og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Einíhugamér
lifirþínmynd.
Svoheilogsðnn
sem aðeins lítil stund.
Værimérliðinhjá,
síðanþúvarst
hér enn í faðmi mér.
Einíhjartamér
lifaþínorð.
Þittvinarþel
semaldreisveikþóég
gæti ei skilið allt
semaðþúgafst
mérþáafhjartaþér.
Þó ár og fjarlægð skilji okkur að
og enginn getur komið í þinn stað
þá skal minning þín lifa
á meðan lifi ég.
Ogégþakkavil
þádýrugjöf
að Iffið leit til mín
ogleiddimigtilþín.
(Friðrik Erlingsson.)
Elsku besti Toni minn. Af
hverju? Stórt er spurt en það er lít-
ið um svör. Allt í einu eigum við
bara að sætta okkur við það að þú
sért farinn og komir aldrei aftur.
Við eigum aldrei eftir að sætta okk-
ur við það, en ef til vill eigum við
eftir að læra að lifa með því.
Eg man þegar ég sá þig fyrst,
slíka fegurð hafði ég aldrei séð áð-
ur. Þú varst svo fallegur, ástin mín.
Við fóram að vera saman, ég fjór-
tán ára og þú fimmtán ára, þetta
var svo yndislegur tími og allur sá
tími sem við áttum saman, næstum
sjö ár. Og litli dýrgripurinn okkar,
hún Alexía Rós. Ég man þegar hún
fæddist, hvað þú varst stoltur og þú
varst alltaf svo duglegur með hana.
Hún hefur nefið þitt og fallega
brosið, ég er svo rík að eiga hana
því að þú lifir í henni. Og þegar við
byrjuðum að búa fyrir einu og hálfu
ári, þú varst svo duglegur að hjálpa
mér að halda heimilinu okkar fal-
legu. Stundum þurfti ég samt að
minna þig á að ganga frá eftir þig
og ég gleymi aldrei öllum tann-
stönglunum sem ég var að finna
eftir þig hér og þar, ég fann þá á
ólíklegustu stöðum.
Ég á eftir að sakna þess að kúra
með þér í' sófanum og halda utan
um þig, ástin mín. Þó svo að það sé
erfitt að reyna að vera sterkur í
þessari miklu sorg veit ég að þú ert
hjá okkur og passar okkur vel. Við
munum geyma þig í hjörtum okkar
um alla eilífð.
Hvert örstutt spor var auðnuspor
með þér.
Hvert andartak er dvaldir þú hjá mér.
Var sólskinsstund og sæludraumur hár.
Minn sáttmáli við Guð um þúsund ár.
(Halidór Laxness.)
Við elskum þig.
Þínar
Tanja og Alexía Rós.
Augun þín, augun skær
elsku bamið bjarta.
Blika fín, blikatær
blíttímínuhjarta.
Góðanótt,góðanótt
Guðséralltogalla
vaggar þér í vöggu rótt
varðmennáþigkalla.
Englabam, englar Guðs
eruallirgóðir
fagna fógra bami Guðs
faðir, Jesú og María móðir.
Ljósið þitt lýsir inn
ljómarumeilífðalla
vinirbjóðavelkominn
vini sér, að halla.
(S.Y.)
Astarkveðjur
Mamma og Edvin bróðir.
Elsku Toni. Það er bæði sárt og
erfitt að reyna að sætta sig við það
að þú sért dáinn. Að eiga ekki eftir
að heyra röddina þína eða hláturinn
og sjá fallega brosið þitt sem alltaf
náði til augnanna. Að vísu mun
brosið þitt alltaf vera til staðar fyrir
okkur í litla gullmolanum ykkar
Tönju henni Alexíu Rós. Ltfið er
hverfult í allri sinni mynd og okkur
er líklega ekki ætlað að skilja allt
sem getur gerst, en aHir hlutir eiga
sér öragglega sinn stað og sína
stund hér í lífinu.
Við biðjum Guð um að senda okk-
ur öllum styrk á þessum erfiðu
stundum og þá sérstaklega Tönju
þinni og Alexíu, mömmu þinni og
bróður.
Vertu sæll, elsku Toni okkar, þú
heldur áfram að lifa í hjörtum okk-
ar. Við munum passa Tönju og Al-
exíu fyrir þig um ókomna framtíð.
Eg veit um lind, sem ljóðar
svoljúftaðraunirsofna.
Um lyf, sem læknar sárin
og lætur sviðann dofna.
Um lítið blóm, sem brosir
svo blítt, að allir gleðjast
Um rödd, sem vekur vonir,
þó vinir daprir kveðjast.
(Hulda.)
Kærar kveðjur.
Þínir
tengdaforeldrar Þóra
ogKaj, Lilja, Ingi og
dætur, Finnur, Anna
María og dætur, Anna,
Valli og synir.
Við þökkum þér fyrir hvað þú
varst alltaf góður við okkur og biðj-
um Guð um að passa þig vel.
Þóaðkaliheiturhver
hyjji dali jökull ber
steinar tali allt hvað er
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa.)
Þín
Þóra, Sonja, Edvard, Kaj,
Lúkas, Lena og Viktoría.
Kæri Toni.
Með sorg í hjarta kveð ég þig og
bið Drottin að umvefja ástvini þína
kærleika sínum. Ég minnist þín
sem góðs ogljúfs drengs. Nokkram
djögum fyrir lát þitt hitti ég þig á
fömum vegi. Áttum við langt spjall
saman. Mér fannst svo vænt um að
hitta þig. Hafði ekki hitt þig svo oft
eftir að Wilbert flutti vestur um
haf. Ég minnist þín sem góðs vinar
sonar míns sem syrgir þig svo sárt.
Þegar sorgar titra tárin
tregamisturbyrgirsýn.
Mætt ég hefi víða vinum,
vel því fagnar hugur minn.
Eins og tindur yfir hinum
alltaf gnæfði kollur þinn.
(Ólafur Sigfússon.)
Hingað til Bandaríkjanna berast
mér þær sorgarfréttir að hann Toni
vinur minn sé dáinn. Ég vil ekki
trúa, ég ákalla guð - ekki Toni, ekki
Toni. Fyrsta hugsun mín er að
komast heim til Islands. Ég verð að
fá að faðma Tönju, Alexíu, Pálínu
og Edda. Ég reyni allt til að fá frí,
en fæ ekki. Eg græt vegna þess að
ég get ekki fylgt þér til grafar. Það
særir mig svo. Ég græt örlög þín,
ég græt lát þitt.
Það var mikið tilhlökkunarefni
hjá mér að fá að hitta alla vini mína
núna um áramótin. Það verður svo
dapurt án þín, Toni. Þegar ég kem
heim mun ég fara að leiði þínu,
drúpa höfði í hljóðri bæn og þakka
fyrir að hafa átt þig að vini. Eg mun
aldrei gleyma þér.
Hvíl í friði.
Wilbert.
Fyrir rúmu ári hóf störf hjá mér
ungur og efnilegur maður, Anton
Bjöm. Strax kom í ljós að hann var
drengur góður og hvers manns
hugljúfi og reyndist okkur sem
unnum með honum þennan stutta
tíma góður vinur. Anton Bjöm var
góður verkmaður og samviskusam-
ur og átti stutt eftir af námssamn-
ingi í húsasmíði. Enginn veit að
morgni hvar dvelur að kveldi. Sú
tilfinning að þú sért ekki lengur á
meðal okkar er þungbær en erfið-
ast er það fjölskyldunni. Tanja og
Alexia Rós hafa misst mikið. Eg bið
algóðan guð að styrkja ykkur í
raunum ykkar.
Þorsteinn Einarsson.
Þegar við fengum þær fréttir að
Toni, unnusti Tönju, væri látinn,
sáum við hvað lífið getur snögglega
breyst úr gleði í sorg og hvað
stundirnar með ástvinum okkar era
dýrmætar.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur
hannmighvílast,
leiðirmigaðvötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
Leiðir mig um rétta vegu
fyrirsakirnafnssíns.
Jafnvelþóttégfarium
dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
þvíaðþúerthjá mer.
Sprotiþinnogstafur
huggamig.
Þúbýrmérborð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
allaævidagamína,
og í húsi drottins bý ég langa ævi.
(23. Davíðss.)
Elsku Tanja og Alexía, við vott-
um ykkur og fjölskyldum ykkar
okkar innilegustu samúð. Megi
góður guð varðveita ykkur á þess-
ari erfiðu stundu.
Svea, Jenný, Rannveig,
Ragnheiður, Hrönn,
Svava og Kristín.
Skilafrestur
minningargreina
EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði
ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags-
og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, fóstudags- og laugardagsblað þarf greinin
að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Þar
sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests.