Morgunblaðið - 12.11.1999, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 55^
MINNINGAR
INDRIÐINÍELSSON
þér strákur," hreytti af! út úr sér
þegar ég var loksins búinn að mála
alla gluggapóstana fyrir hann í
kjallaranum hjá Gunnsa en þar
geymdi hann vélarnar sínar eftir að
hann hætti með trésmíðaverkstæð-
ið og var með smá vinnuaðstöðu.
Ég sá mig auman og reyndi að
malda í móinn árangurslaust. „Þú
verður að ganga vel frá eftir þig
strákur.“ Og þar við sat.
Afram hélt ferðin og sá ég fyrir
mér þegar ég var að lesa fyrir stú-
dentspróf. Ég sat með afa og ömmu
í stofunni og reyndi hvað ég gat til
að halda athyglinni að námsefninu.
Amma var að leggja kapal og afi var
að lesa, eflaust einhver ljóð. Ég var
hins vegar alveg við það að sofna.
Afi fylgdist vökulu auga með mér
og sá til þess að ég væri við lestur.
„Ungir menn eiga ekki að sofna yfir
bókum, hvað þá námsbókum sínum
og ef að menn eru í námi er mikil-
vægt að þeir standi sig,“ sagði hann
við mig til að halda mér við efnið.
Það sama gilti greinilega ekki um
hann því stuttu eftir að hann sagði
þetta umlaði hann um að á sig sækti
svefn og sofnaði stuttu seinna í
stólnum við hliðina á mér.
Minningarbrotin héldu áfram að
sækja á mig og veittu mér mikla
gleði en um leið söknuð. Söknuð
með manni sem kenndi mér eitt og
annað um lífið og tilveruna. Hann
lifði góðu lífi og heldur áfram að lifa
innra með mér þar til ég hitti hann
aftur. Guð gefi okkur öllum styrk á
þessari stundu og þá sérstaklega til
þín, amma.
Indriði Freyr Indriðason.
Látinn er Indriði Níelsson, bygg-
ingameistari, 86 ára að aldri.
Kynni okkar hófust er ég byrjaði
að læra húsasmíði undir hans leið-
sögn árið 1947. Það var stór hópur
sem lærði og vann að byggingum
hjá Indriða á þessum tíma. Tengd-
umst við margir sterkum vináttu-
böndum, en nú eru margir horfnir
yfir móðuna miklu.
Ég sótti iðnskólanámið á kvöldin
jafnframt því, sem að ég vann hjá
Indriða. Arin urðu níu, sem ég vann
há honum allt í allt. Heimili Indriða
og Ingu, konu hans, stóð okkur allt-
af opið. Ofáa kaffibollana drukkum
við þar ásamt ýmsu góðgæti sem
alltaf var á boðstólum.
Indriði var glæsilegur maður og
góður stjómandi og ríkti góður
vinnuandi hjá mönnum hans. Hann
kunni að halda uppi glaðværð á
vinnustað á meðal manna sinna.
Um verk Indriða þarf ekki að
fjölyrða, þau sjást víða um bæinn,
t.d. Fiskifélagshúsið, hús Halldórs
Jónssonar, arkitekts við Ægisíðu,
hús Ottars Ellingsens einnig við
Ægisíðuna. Það hús er nú búið að
friðlýsa. Með þessum fátæklegu
orðum viljum við hjónin senda konu
hans og fjölskyldu innilegar samúð-
arkveðjur og þakklæti fyrir liðnar
samverustundir.
Inga og Ásmundur.
Kveðja frá Lionsfélögum
Við félagarnir kveðjum nú Indr-
iða Níelsson, mætan mann með
sterkan persónuleika. Hann gekk
til liðs við Lionsklúbbinn Ægi í apríl
1965. Á þeim árum aðstoðaði
klúbburinn Sesselíu Sigmundsdótt-
ur við uppbygginguna að Sólheim-
um í Grímsnesi. Flestir félagar í
klúbbnum voru kaupsýslumenn og
var mikill fengur fyrir klúbbinn að
fá fagmann í hópinn, en þá var verið
að byggja matsal og eldhús við
gamla húsið frá 1930. Þá, og á
næstu áratugum, var klúbburinn
með ýmis verkefni á Sólheimum og
var Indriði ávallt tilbúinn að fara
austur, ýmist til að vinna sjálfur eða
miðla af áratuga reynslu sinni sem
byggingameistari. Hann var fljótur
að átta sig á aðalatriðum mála og—
tjáði sig umbúðalaust á sinn hóg-
væra hátt og ráð hans voru ávallt
hollráð sem farið var eftir.
Þegar menn hittast reglulega yf-
ir veturinn á fundum um áratuga
skeið myndast sterk vináttubönd
en hugur félaganna beindist að
líknarmálum og þó aðallega að hög-
um heimilisfólksins að Sólheimum í
Grímsnesi. Indriði Níelsson var
traustur félagi og var hans sárt
saknað þegar hann hafði ekki leng-
ur heilsu til að vera með okkur, en
orðstír hans deyr aldrei. _
Kæra Ingunn, Guð blessi þig og^*
fjölskyldu þína. Við félagarnir
sendum ykkur innilegar samúðar-
kveðjur.
F.h. Lionsklúbbsins Ægis,
Tómas Grétar Olason,
formaður.
KUSGAGraAHOLLIN
-þegar þú cUí tofa i t'í
m-Seykiavik Srnú 510 8000
IDtGRAMD
LYFTJDÝNA
Lúxusdýna med
eiiwtaka eiginleika.
Böistraóur nækkan-
ieguf botn Rafsíýrð
stiiliog við nofða- og
fótalag. B90 v 1200 s.m,
273 Potketfjaðrir a
fgmietra. Dýnunni má
snitívyid. Sterkt. vatt-
stuncsiðkaklæd! sem
hægt er ao þvo vto
ö0' MeiðaKvfttdýna
og dynuhemiý fylgja
Lyftu upp tilverunni
Lyftidýnurnar frá Húsgagnahöllinni eru góð lausn
til að fullkomna hvíldina. Þær aðlaga sig að þínum
þörfum. Þú getur stillt höfða- og fótalag að eigin ósk,
þannig að líkaminn hvílist og endurnærist. Njóttu lífsins
útsofin og hvíld.
FUIMDIR/ MANNFAGNAÐUR
Laugardaginn
13. nóvember
Laugardaginn 13. nóvember kl. 10.30 veröur
Þuríður Jónsdóttir formaður FFK gestur á létt-
spjallsfundi. Fundarstaður Hverfisgata 33,3.
hæð.
Félagar fjölmennið.
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
L. ATVINNUHÚSNÆÐI
rz=
Skrifstofuhúsnæði
óskast til leigu
á svæði 103,105 eða 108
Gott skrifstofuhúsnæði óskast til leigu ca
60—100 fm. Aðkoma þarf að vera snyrti-
leg. Ekki nauðsynlegt að aðstaða sé stúkuð
niður. Þarf að vera laust fljótlega.
Vinsamlega hringið í síma 896 8882.
Tll_ SÖLU
Innréttingar
til sölu
Allar innréttingar í Silfurbúðinni
eru til sölu.
Upplýsingar í síma 568 9066 frá
kl. 14.00-17.00 daglega.
Verksmiðja til sölu
Til sölu er glugga- og hurðaverksmiðja í Reykja-
vík. Unnið er með álprófíla. Góður lager. Mikil
verkefni framundan. Traustir og áhugasamir
kaupendur hafi samband í síma 893 1121.
Söluturn til sölu
snyrtilegur og vel staðsettur. Yfir 20 millj.
kr. ársvelta. Góð rekstrarafkoma.
nfm. ehf., Hafnarstræti 20,
sími 552 5000.
SMAAUGLYSIINIGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 1 = 18011128'/2 = 9 III*
Frá Guðspeki-
félaginu
Ipgólfsstræti 22
Askriftarsími
Ganglera er
896-2070
I.O.O.F. 12 = 180111281/2 = 9.III.
Aðalstöðvar KFUM og KFUK
Holtavegi 28
Lofgjörðarvaka
verður á föstudagskvöld klukkan
átta í húsi KFUM og K við Holta-
veg 28. Efni: „Sing Out!" — Tón-
leikar með Ron Kenoly. Mynd-
band frá tónleikunum verður
sýnt á stórum skjá i aðalsal húss-
ins. Stórkostleg tilbeiðsla og
söngur. Allir velkomnir!
Kristniboðssambandið.
I kvöld kl. 21 heldur Karl Sig-
urðsson erindi: „Getur maður-
inn breyst?" í húsi félagsins,
Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15—17 er opið
hús með fræðslu og umræð-
um, kl. 15.30 í umsjón Karls
Sigurðssonar:
„Brot úr fræðum Blavatsky".
Á sunnudögum kl. 17—18 er
hugleiðingarstund með leið-
beiningum fyrir almenning.
Hugræktarnámskeið Guð-
spekifélagsins verður fram-
haldið fimmtudaginn 18. nóv-
ember kl. 20.30 í umsjá Bjarna
Björgvinssonar: „Hin mildiríka
návist". yf 1
Áfimmtudögum kl. 16.30—
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra
bókmennta.
Starfsemi félagsins er öllum
opin endurgjaldslaust.
Stjörnuspá á Netinu
mbl.is