Morgunblaðið - 12.11.1999, Side 58
58 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
t*----------------------------
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Tæplega 7000
kennarar
sameinast
DAGANA 11. til 13.
nóvember verða Hið
íslenska kennarafélag
og Kennarasamband
Islands sameinuð í
.^pýju _ Kennarasamb-
andi Islands. Með því
sameinast tæplega
7000 grunn- og fram-
haldsskólakennarar í
einu sambandi sem
tekur til starfa 1. jan-
úar árið 2000.
Með sameiningunni
má segja að 20 ára
ferli sé loksins lokið.
Pessi félög urðu til við
sameiningu fjögurra
félaga árið 1979 og
1980 og þá má segja að ferlið hafí
byrjað.
Eiríkur
Jónsson
samband framhalds-
skóla-kennara sem
sameinuðust í Kenn-
arasambandi Islands.
Reyndar höfðu bæði
þessi félög breytt um
nöfn skömmu fyrir
sameininguna en þau
nöfn lifðu stutt. Fyrsti
formaður KI var Val-
geir Gestsson.
I Landssambandi
framhalds-skólakenn-
ara voru einkum kenn-
arar í unglinga- og
gagnfræðaskólum en í
Sambandi íslenskra
barnakennara einkum
Kennarar
HÍK stofnað
Árið 1979 sameinuðust Félag
Tienntaskólakennara og Félag há-
skólamenntaðra kennai’a í Hinu ís-
lenska kennarafélagi. Stofnfundur-
inn var haldinn 21. janúar og sat
það 41 kennari. Fyrsti formaður
HÍ K var Jón Hnefíll Aðalsteinsson.
í Félagi menntaskólakennara
voru, eins og nafnið bendir til, upp-
haflega kennarar í menntaskólum
og síðar Verslunarskólanum og
fjölbrautaskólunum sem urðu til á
8. áratugnum. í Félagi háskóla-
menntaðra kennara voru háskóla-
^enntaðir kennarar í öðrum skól-
um, svo sem iðnskólum og
gagnfræðaskólum.
Þegar við stofnun félagsins var
stefnan sett á frekari sameiningu
kennara. I annarri grein laganna
frá 1979 segir meðal annars um
tilgang félagsins: „Að hafa sam-
starf við önnur kennarasamtök inn-
anlands og utan og vinna að víð-
tækri sameiningu
kennarastéttarinnar."
KÍ stofnað
I maí árið 1980 voru önnur tvö fé-
lög sameinuð. Þau voru Sam-band
íslenskra barnakennara og Lands-
Vilt þú fara vel með
PENINGANA
þína ? ? ?
Gleraugnaverslunin
SJÓNARHÓLL
HAFNARFIRÐI & GLÆSIBÆ
Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á fslandi
Sameiningin, segir
Eiríkur Jónsson,
var því samþykkt með
miklum meirihluta.
kennarar á yngri barnastigi grunn-
skólans. Eitt sérkenni á SIB var að
einungis þeir sem höfðu kennslu-
réttindi fengu inngöngu í félagið.
I markmiðslýsingu hins, KI, var
einnig að fínna ákvæði um frekari
sameiningu kennara eins og í
fyrstu lögum HÍK.
Það má því með /ullum rökum
segja að stofnun HIK og KÍ árin
1979 og 1980 hafí verið fyrstu
skrefin í sameiningarferli grunn-
og framhaldsskólakennara. Og síð-
asta skrefið í því ferli verður stigið í
nóvember 1999.
Tilraun sem mistókst
Um miðjan 8. áratuginn var gerð
tilraun til sameiningar félaganna.
Fyrir lágu drög að lögum. Efnt var
til allsherjaratkvæðagreiðslu um
sameiningu meðal félagsmanna
HÍK. Sameining var samþykkt með
54% gegn 46%. Það var mat þáver-
andi stjómar HIK að meirihlutinn
hefði verið of naumur til að gerlegt
væri að ganga til sameiningar.
Ekki fór fram atkvæðagreiðsla inn-
an KI en ljóst var að sameiningin
var farin út um þúfur.
Þar með var sameiningunni sleg-
ið á frest. Samvinna félaganna
næstu árin var að mestu fólgin í
sameiginlegri blaðaútgáfu en þau
gefa út Kennarablaðið og Ný
menntamál.
Aukin samvinna félaganna
Á 10. áratugnum jókst samvinna
kennarafélaganna á ný. Þau hófu
meðal annars samstarf í skólamál-
um sem hófst með sameiginlegum
fundi skólamálahópa félaganna árið
1994.
Kjaramálahópar félaganna hófu
einnig samstarf og árið 1995 gerðu
Hið íslenska kermarafélag og
Kennarasamband Islands sameig-
inlegan kjarasamning fyrir grunn-
og framhaldsskóla og hafa gert svo
síðan.
Stjórnir og kjaramálahópar fé-
laganna funduðu í Hvalfirði vorið
1996 og samþykktu ályktun um að
stefna að -sameiningu félaganna.
Allar götur síðan hefur verið unnið
að sameiningu sem nú er að komast
í höfn.
Afgerandi úrslit
Félagar beggja félaganna sam-
þykktu sameiningu í allsherjara-
tkvæðagreiðslu í mars sl. á grund-
velli draga að lögum sem lágu fyrir.
Lagadrögin og önnur gögn sem
varða sameininguna eru á heima-
síðum kennarafélaganna.
Stjórnimar settu skilyrði um
60% þátttöku og að 60% þeirra sem
greiddu atkvæðu yrðu að vera sam-
þykk. Þátttaka var geysimikil.
81,7% félagsmanna í Kennara-
sambandi Islands greiddu atkvæði
og 75,8% í Hinu íslenska kennara-
félagi.
Af þeim sem afstöðu tóku sögðu
80,8% Kennarasambandsmanna já
og 75,6% félaga í Hinu íslenska
kennarafélagi. Sameiningin var því
samþykkt með miklum meirihluta.
Samband félaga
Sex félög munu starfa innan hins
nýja Kennarasambands íslands.
Þau eru Félag framhaldsskóla-
kennara, Félag grunnskólakenn-
ara, Félag stjómenda í framhalds-
skólum, Skólastjórafélag íslands,
Félag tónlistarskólakennara og Fé-
lag kennara á eftirlaunum.
Samkvæmt drögum að lögum fé-
laganna er hlutverk þeirra að fara
með málefni félagsmanna sinna, til
dæmis að efla faglega umræðu og
gera kjarasamninga.
Hlutverk Kennarasambands Is-
lands er að fara með sameiginleg
málefni allra kennara.
Öflugt félag
Ekki er að efa að þessi sameining
mun sjást í verki þar sem samein-
aðir grann- og framhaldsskóla-
kennarar verða betur í stakk búnir
til að sinna hagsmunamálum sín-
um, jafnt þeim sem snúa að kaupi
og kjöram, faglegum málefnum og
uppbyggingu skólakerfis á Islandi
sem og þeim sem varða hagsmuni
allra launamanna.
Þá verður samstarf kennara á ól-
íkum skólastigum auðveldara og er
það í góðu samræmi við áherslur
nýrrar námskrár um samfellu í
skólastarfi.
Höfundur er kennari og ritstjóri
Kennarablaðsins
UMRÆÐAN und-
anfarið í fjölmiðlum
um klám og nektar-
dansstaði vakti með
mér vonir um að við
væram loks að vakna
af dvalanum og tilbúin
að skera upp herör
gegn hverskyns kyn-
ferðisofbeldi En svo
kom dómur Hæsta-
réttar frá 28.10. sl.
Mér fannst eins og við
værum aftur komin á
byrjunarreit. I þess-
um dómi er faðir sýkn-
aður af því að hafa
beitt dóttur sína sifja-
spellum um árabil.
Máltækið segir að ekki tjói að
deila við dómarann. Mér er ljóst að
slíkt er borin von, en það hindrar
ekki að ég láti í ljós skoðun mína á
niðurstöðu meirihluta Hæstarétt-
ar, sem sýknuðu ákærða í þessu
máli. Athugasemdir mínar eru af
tvennum toga. Annars vegar snerta
þær kröfurnar um sannanir í kyn-
ferðisbrotamálum og hins vegar 6.
mgr. 59. gr laga um meðferð opin-
berra mála nr. 19/1992.
I umræddum Hæstaréttardómi
frá 28. 10. er Hæstiréttur að taka
málið fyrir í annað sinn. í fyrra
sinnið vísaði Hæstiréttur málinu
frá þar sem dómarar töldu að á
skorti um sálfræðilegar athuganir á
stúlkunni og foður hennar. í hérað-
sdómnum sem þá lá fyrir var faðir
inn talinn sekur og dæmdur í
þriggja og hálfs árs fangelsi. Þegar
málið er aftur tekið fyrir í hérað-
sdómi hefur verið aflað ítarlegi'a
sérfræðiskýrsla um stúlkuna og
andlegt ástand hennar. Niðurstaða
héraðsdóms er hin sama og áður að
faðir sé sekur um sifjaspell og nú
hljóðar dómurinn upp á fjögurra
ára fangelsi. Þrír héraðsdómarar
sátu í dómi í bæði skiptin sem málið
var tekið fyrir á því dómstigi. I síð-
ari dómnum skilaði einn þeirra
sératkvæði og taldi sekt ekki fulls-
annaða gegn neitun föður á sekt
sinni.
Það liggur íyrir að á öllum stig-
um málsins, allt frá kæra stúlkunn-
ar til lögreglu til skýrslutöku af
henni fyrir héraðsdómi var fram-
burður hennar staðfastur og ávallt
á sömu leið. Auk þessa styrkti
framburður annarra vitna fram-
burð hennar svo og álit þriggja
sérfræðinga sem rannsökuðu stúlk-
una ítarlega en skýrslur þeirra
voru lagðar fram við síðari meðferð
malsins fyrir héraðsdómi.
I Hæstaréttardómnum kemur
fram að verjandi ákærða lagði þar
fram þrjár álitsgerðir þriggja sérf-
ræðinga um málið í því skyni, að því
er séð verður, að varpa rýrð á fyrri
sérfræðiskýrslur.
Þessir ágætu sérfræð-
ingar höfðu aldrei hitt
stúlkuna, en létu sig
þó hafa það að gefa út
álitsgerðir um hana
þrátt fyrir það. Einn
þessara sérfræðinga
hafði þar að auki haft
föður stúkunnar í
meðferð svo varla get-
ur hann talist fullkom-
lega óhlutdrægur í
málinu.
Af niðurstöðum
dómsins má ráða að
það era einkum fjögur
atriði sem áhrif hafa á
mat dómaranna á sekt
eða sýknu ákærða. Þessi atriði eru:
Að dómarar héraðsdóms voru ekki
allir á sama máli um sekt föður,
skýrsla eins af sérfræðingunum,
sem aldrei hafði séð stúlkuna, að
langt var liðið frá atburðunum og
Dómur
Ljóst er að mikið þarf til
til þess, segir Guðrún
Jónsddttir, að trúverð-
ugleiki þolenda sé ekki
dreginn í efa.
loks ágreiningur foreldra um um-
gengi föður við yngra bam þeirra.
í ljósi þessa verður að spyrja, er
það ekki vísbending um ranga
dómsniðurstöðu meirihluta Hæsta-
réttar að tveir af fimm dómurum í
þessu máli töldu föður sekan og það
bæri því að staðfesta niðurstöðu
héraðsdóms og sakfella hann. Er
það traustvekjandi að undirbyggja
sýknudóm með sérfræðiáliti eins og
því sem að ofan greinir? Er það
virkilega skoðun þessara dómara,
að það sé merki um að framburðar
stúlkunar sé ótrúverður, að hún
kærir ekki atferli föður meðan á því
stendur, heldur þegar hún er 17
ára? Ef svo er þurfa þessir ágætu
dómarar að sækja sér fræðslu um
kynferðisofbeldi og viðbrögð bai’na
við því. Loks varðandi síðasta at-
riðið, umgengnisdeilu foreldra. Er
það ekki langt seilst að ætla að um-
gengnisdeila foreldra hafi fengið
stúlkuna til að bera ljúgvitni gegn
föður sínum? Er ekki líklegra að
þessi deila hafi styrkt stúlkuna í því
að kæra vegna ótta um að ella biði
systur hennar sömu hremmingar
og hún mátti sæta?
Hvað þarf eiginlega til til þess að
mark sé tekið á kæram þolenda
kynferðisofbeldis? Myndbandsupp-
tökur af atburðinum, marga sjónar-
Deila við
dómara
Guðrún
Jónsdóttir
^ Y^V 1 K M yyy
5'/ERÐLÁVÍ
Kosningar
Kosningartil Edduverðlaunanna fara fram laugardaginn 13. nóvember.
Staður: Kvikmyndasjóður Islands, Túngötu 14, Reykjavík
Tími: Frá kl. 9:00 til kl. 19:00.
Kosningarétt hafa þeirsem eru á kjörskrá íslensku kvikmynda- og
sjónvarpsakademíunnar. Kjörskrá liggur fyrir á skrifstofu Kvikmyndasjóðs
fslands, sími 562-3580 og á mbl.is.
Munið einnig kosninguna á mbl.is
ISLENSKA KVIKMYNDA- OG SJÓNVARPSAKADEMlAN ehf.Túngötu 14.101 Reykjavík
Helsti stuðningsaðili Edduverðlaunanna
Aðrir stuðningsaðilar: