Morgunblaðið - 12.11.1999, Side 59

Morgunblaðið - 12.11.1999, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 votta, stórfellda líkamlega áverka á þolanda eða hvað? Vissulega þarf að gæta réttaröryggis meintra sakamanna í þessum málum, en er ekki of langt seilst í þessu máli? Segja ekki lögin að fram sé komin nægileg sönnun, þegar hana sé ekki hægt að vefengja með skynsamleg- um rökum? Hvað um réttaröryggi og réttlæti gegnvart þolendum? Þá vil ég víkja að síðara efnisat- riði þessarar greinar. Það varðar 6. mgr. 59. gr laga um meðferð opin- berra mála nr. 19/1992. Efnislega fjallar þessi málsgrein laganna um að dómara sé heimilt að víkja ákærða úr dómssal meðan skýrsla er tekin af brotaþola, telji hann að nærvera ákærða geti haft áhrif á framburð þolanda eða verði honum til íþyngingar. Á þetta reyndi í þessu máli. Dómari í héraðsdómi vék föður stúlkunnar úr dómssal meðan skýrsla var tekin af henni og var sú ákvörðun staðfest í Hæsta- rétti 1997, en verjandi föður hafði kært ákvörðun dómara fyrir Hæstarétti. I Hæstaréttardómnum þar sem staðfest er ákvörðun dómara segir að með því að taka undir ósk stúlk- unnar leiði „að ákæruvaldið sé reiðubúið að axla byrðina af því, að sönnunargildi skýrslu kunni ekki að verða hið sama og ef hún væri gefin að varnaraðila viðstöddum" (Hæstaréttardómur nr. 449/1997, bls.3234). Til þessa er síðan aftur vitnað í þeim Hæstaréttardómi sem hér er til umræðu. Þessi tilvitnun veldur mér mikl- um áhyggjum. Hún verður varla skilin öðruvísi en svo að það rýri sönnunargildi skýrslu þolenda fyrir dómi, ef dómari ákveður að ákærði sé ekki inn í dómssal þegar skýrsla er tekin af þolanda. Umrætt heim- ildarákvæði hefur skipt miklu máli, Skólavörðustíg 21 a 101 Reykjavík Sími/fax 552 1220 Netfang: blanco@itn.is Veffang: www.blanco.ehf Glæsileg hreinlætistæki Ifö Cera. Innbyggt frárennsli auðveldar þrif. Tvívirkur skolhnappur, hægt er að velja um 3ja eða 6 lítra skol. Ifö - Sænsk gæðavara Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sími: 564 1088 • Fax= 564 1089 UMRÆÐAN vegna þess að það að hafa ofbeldis- mann í návígi í dómssal er meiri háttar raun fyrir þolendur. Hér er því mikið í húfi fyrir þolendur kyn- ferðisofbeldis. í ljósi umræðunar hér að ofan um sönnunarfærslu í kynferðisbrotamálum er ljóst að mikið þarf til til þess að trúverðug- leiki þolenda sé ekki dreginn í efa. Þar að auki virðist nú blasa við að sé meintum ofbeldismanni vísað úr dómi geti það enn veikt trúverðug- leika framburðar þolenda. Það er óþolandi og skora ég á löggjafann að taka af allan vafa í þessu máli hið fyrsta og tryggja að frávísun ákærðra úr dómssal verði ekki til þess að rýra trúverðugleika fram- burðar brotaþola fyrir dómi. Höfundur er félagsráðgjafi og fyrr- um starfskona Stígamóta. Jólaskreytingar í Garðyrkjuskólanum EINS og undanfarin ár býður Garðyrkjuskóli ríkisins, Reykj- um í Ölfusi, upp á nokkur jóla- skreytingarnámskeið fyrir áhugafólk fyrir jólin. Að þessu sinni verður hægt að velja um þrjár dagsetningar, laugardag- inn 27. nóvember, sunnudaginn 28. nóvember og laugardaginn 4. desember. Öll námskeiðin standa yfir frá kl. 10-16 og eru haklin í húsakynnum skólans. Á námskeiðunum í nóvember útbúa þátttakendur aðventukr- ans og kertaskreytingu og laug- ardaginn 4. desember verður út- búin jólaskreyting og hurðaskreyting. Leiðbeinandi á námskeiðunum verður Erla Rannveig Gunnlaugsdóttir, blómaskreytir. Takmarkaður fjöldi kemst á hvert námskeið. Skráning og nánari upplýsingar fást hjá end- uRmenntunarstjóra skólans. ...fyrir stóra, fyrir smúa... sterling verslun H AFN ARSTRÆTI11 REYKJAVÍK SÍMI 551 4151 Jólapoki Hvað er í pokanum? Nú getur þú keypt fallegan og vandaðan jólapoka á aSeins 300 kr. og fengið um leið gjöf eöa afslátt hjá 12 verslunum Kringlunnar áb verámæti allt að 12.000 kr. Tilboðin gilda til 30. nóvember og pokinn fæst við þjónustuborSið á 1. hæS við skartgripaverslunina Jens. Komdu í Kringluna og kynntu þér málið. ISLAN DSBAN Kl SAMLIF SameinaÖa líjlryggingarfélagið hf. KrÍt\Ck(c*j\ Þ H R S E J n R T n Ð 5 L ff R f'isl i byggÍnggvBruverSÍiiniiin um hunl nlli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.