Morgunblaðið - 12.11.1999, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Hvað er
málstol?
FLESTUM þykir
sjálfsagt að geta talað
eða með öðrum hætti
tjáð hugsun sína. Ger-
um okkur í hugarlund
að heilinn brygðist
okkur og við gætum
ekki boðið góðan dag,
beðið um aðstoð í
verslun eða greint frá
eigin nafni. Þannig er
málstol. Með málstoli
er átt við að hæfileiki
einstaklings til að tjá
sig og að skilja mælt
mál hefur skerst
vegna heilablóðfalls.
Einnig á fólk með mál-
stol yfirleitt í erfíðleik-
um með að lesa og skrifa. Málstöðv-
ar heilans eru langoftast staðsettar
vinstra megin í heila og getur mál-
stol því komið í kjölfar heilablóð-
falls þeim megin (oft fylgir lömun í
hægri líkamshelmingi). Málstol
getur verið mismunandi alvarlegt
og skiptir þar mestu umfang og
staðsetning skemmdar sem verður
við heilablóðfallið. Ef málstolið er
vægt þá á einstaklingurinn e.t.v.
Samskipti við annað fólk
eru okkur öllum mikil-
væg, segja Elísabet
Arnardóttir og Þóra
Másdóttir, því hver
Elísabet
Arnardóttir
Þóra
Másdóttir
getur verið án þeirra?
aðeins erfitt með að muna orð yfir
hluti og nöfn á fólki, en ef málstolið
er alvarlegt eru allir þættir máls
mjög mikið skertir, þ.e. einstakl-
ingurinn getur lítið sem ekkert les-
ið, skrifað, talað eða skilið af því
sem sagt er við hann. Að vera mál-
stola er stundum líkt við það að
vera staddur í framandi landi og
tala hvorki né skilja tungumálið.
Margir þeirra sem fá málstol fara í
talþjálfun. Talþjálfunin er mjög
einstaklingsbundin og fer eftir eðli
þeirra erfiðleika sem hver og einn
glímir við. Sumir þurfa helst að æfa
lesskilning, aðrir skrift, sumir
þurfa að æfa setningamyndun, aðr-
ir að nefna hluti, sumir þurfa helst
að læra að hlusta eftir merkingu
talaðs máls og svona mætti lengi
telja. Þegar tjáning er mikið skert
er stundum reynt að örva látbragð
eða unnið með tal í gegnum takt og
ARBONNE
INTERNATIQNAL
Jurtasnyrtivörur
án ilmefna
fyrir húð og hár.
Útsölustaðið um land allt.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Kynning í dag
í Apótekinu Smáratorgi
kl. 14-18 og
Hagkaupi Kringlunni
kl. 16-19.
söng, en oftast er unnið með hlust-
un, lestur, skrift og hið talaða orð í
ýmsum myndum. Alltaf er leitast
við að hafa þjálfunina sem hagnýt-
asta fyrir hvern einstakling, þ.e. að
sníða verkefnin að hans eigin þörf-
um í daglegu lífi.
Oft eru aðstandendur og aðrir
þeir sem annast fólk með málstol,
óöruggir um hvernig best sé að
haga samskiptunum. Þeim er
gjarnan bent á að tala eðlilega en
nota jafnframt látbragð, bendingar
og gott augnsamband, til að auð-
velda málskilning. Einnig er best
að aðeins einn tali við hinn málstola
í einu og snúi sér þá að honum svo
hann sjái framan í viðmælanda sinn
og forðast samræður í hávaðasömu
umhverfi. Mikilvægasta reglan í
samskiptunum er nú samt líklega
sú að hlýlegt viðmót og virðing
gagnvart einstaklingnum segir
meira en þúsund orð.
Það er vissulega mikið áfall fyrir
fjölskyldu að sjá ástvin sinn allt í
einu sviptan málinu að meira eða
minna leyti. Sem betur fer ná flest-
ir nokkrum bata. Sumum fer mikið
og hratt fram í máli og öðrum hægt.
Ferlið er afar einstaklingsbundið
og erfitt að sjá fyrir í byrjun hvem-
ig batinn muni verða. Mörgum
hættir til að draga sig í hlé vegna
málstols, en það er vís leið til að ein-
angrast og draga úr batahorfum,
því þá fær viðkomandi ekki nauð-
synlega æfingu í að tala og hlusta.
Samskipti við annað fólk eru okkur
öllum mikilvæg, því hver getur ver-
ið án þeirra?
Höfmidíir eru talmeinafræðingar á
Reykjalundi.
PORCELANOSA
CERAMICA
Flísar fyrir vandláta
ALFABORG f
KNARRARVOGI4 • * 568 6755
Sturtuhorn
Sturtuhorn úr
öryggisgleri
meö segullæs-
ingu, 4ra eða 6
mm þykkt.
Verðfró
kr. 19.900,- stgr.
VERSLUN FYUR AUA I
. .
'
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
I dag verður efnt til
hönnunardags þar
sem veitt verða
verðlaun fyrir fram-
úrskarandi hönnun
og framleiðslu hús-
gagna og innréttinga
á ísiandi.
Tilnefningar verða til
sýnis á eftirtöldum
stöðum:
Á. Guðmundsson
Bæjarlind 8-10,
Kópavogi
Epal
Skeifunni 6,
Reykjavík
GKS
Smiðjuvegi 2,
Kópavogi
Penninn
Hallarmúla 2,
Reykjavík
<§)
SAMTOK
IÐNAÐARINS
■ HiR