Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
"Í----------------------------
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ
OPIÐ BRÉF TIL LÆKNA-
FÉLAGS ÍSLANDS
Reykjavík, 9. nó-
vember 1999
MÉR hefur borist
bréf frá Læknafélagi
íslands þar sem fram
kemur að félagið hafi
^amþykkt á aðalfundi
sínum í október sl.
ályktun, þar sem segir
að lögum um gagna-
grunn sé áfátt „þar
sem ekki er gert ráð
fyrir upplýstu sam-
þykki sjúklings og
lögin geta því grafið
undan þeim trúnaði
sem ríkja þarf milli
læknis og sjúklings".
Þessu er ennfremur
lýst yfir í samþykktum aðalfundar-
ins að hann telji það „ófrávíkjan-
lega kröfu að við framkvæmd laga
um miðlægan gagnagrunn á heil-
brigðissviði verði tryggt að fram-
kvæmd brjóti ekki siðareglur
lækna, lög um réttindi sjúklinga,
læknalög eða þær alþjóðlegu sam-
þykktir sem að þessu máli lúta,
enda sé það skylda þeirra lækna,
sem að samningagerð vegna fyrir-
hugaðs gagnagrunns koma eða að
framkvæmd, að tryggja að svo
verði".
Krafa um upplýst samþykki
I þessu sambandi er rétt að geta
þess að séu þessar samþykktir
lesnar saman, má af
þeim álykta að verði
krafa um upplýst sam-
þykki íyrir flutningi
upplýsinga úr sjúkra-
skrám í gagnagrunn
ekki samþykkt, verði
ekki aðeins grafið
undan þeim trúnaði
sem ríkja þarf milli
læknis og sjúklings,
heldur jafngildi það
einnig því að siðaregl-
ur lækna verði brotn-
ar, gengið verði gegn
lögum um réttindi
sjúklinga, læknalög-
um, og aljóðlegum
samþykktum sem lúta
að málinu.
Krafan varðar mannréttindi
og siðfræði
Forysta læknafélagsins hefur
gengið fram í kröfu um upplýst
samþykki í tengslum við miðlægan
gagnagrunn af mikilli festu. Undir-
ritaður hefur fylgst með þróun
þessarar umræðu með nokkurri
undrun og áhyggjum og velt því
fyrir sér hvaða afleiðingar þessi
krafa muni hafa fyrir íslenskt heil-
brigðiskerfi og sérstaklega fyrir
tölfræðilegar athuganir og vísinda-
rannsóknir í læknisfræði og á sviði
heilsugæslu. Ljóst er að krafan um
upplýst samþykki varðar mann-
Tómas Ingi
Olrich
AÐRIR ERU MEÐ MAT
MILLI TANNANNA
Gagnagrunnur
Heimild til notkunar
upplýsinga úr sjúkra-
skrám til tölfræðilegra
upplýsinga og vísinda-
rannsókna, segir Tómas
Ingi Oirich, er málefni
heilbrigðisyfírvalda.
réttindi og siðfræði, enda hefur um
hana verið fjallað á alþjóðlegum
vettvangi sem slíka. Hér er því
ekki um að ræða kröfu sem verður
snerti ekki beint meðferð upplýs-
inga úr sjúkraskrám, kom þar
mjög til umfjöllunar upplýst sam-
þykki og þær aðstæður sem liggja
til þess að þess er krafist. Nokkur
heildarmynd fæst af því hvernig
fjalla ber um upplýst samþykki
með samanburði á þessum sátt-
mála og öðrum alþjóðlegum samn-
ingum og samþykktum sem fjalla
um meðferð læknisfræðilegra upp-
lýsinga (smb. Council of Europe/
Committee of Ministers Recomm-
endation No. R (97) 5 on the Prot-
ection of Medical Data).
Megintilgangur með skráningu
upplýsinga í sjúkraskrá
Ljóst er að upplýsingar í sjúkra-
skýrslum eru skráðar í þeim til-
LÆKNAFÉLAG ÍSUNDS
ICELANDIC MEDICAL ASSOCIATION
Til alþingismanna
Kópavogi 2. nóvember 1999
21/SSl/ga
Á aðalfundi Læknafélags íslands í október s.l. voru samþykktar eftirfarandi ályktanin
" Aðalfimdur Lœknafélags íslands haldinn dagana 8. og 9. október 1999 í Kópavogi telur að
lögum um gagnagrunn á heilbrigðissviði sé áfátt þar sem ekki er gert ráð fyrir upplýstu
samþykki sjúklings og lögin geta því grafið undan þeim trúnaði sem rikja þarf milli lœknis og
sjúklings."
" Aðaljundur Lœknafélags íslands haldinn dagana 8 og 9 október, 1999 i Kópavogi telur það
ófrávUganlega kröfu að við framkvœmd laga um miðlœgan gagnagrunn á heilbrigðissviði verði
tryggt að framkvcemd brjóti ekki siðareglur lœkna, lög um réttindi sjúklinga, lœknalög eða þœr
alþjóðlegu samþykktir sem að þessu máli lúta enda sé það skylda þeirra lcekna, sem að samn-
ingagerð vegna fyrirhugaðs gagnagrunns koma eða að framkvœmd, að tryggja að svo verði."
Virðingarfyllst /'
Sigurtfjöm ý>Veinsson
fqn
Samrit:
Formenn læknaráða
Framkvæmdastjórar heilbrigðisstofnana
Lækningaforstjórar
Stjómir heilbrigðisstofhana
virk eða óvirk eftir því hvar upp-
lýsingar úr sjúkraskrám eru vist-
aðar, hvert þær eru fluttar og hvar
unnið er úr þeim. Líti Læknafélag-
ið svo á að krefjast beri upplýsts
samþykkis áður en flytja megi
upplýsingar úr sjúkraskrám í mið-
lægan gagnagrunn til notkunar í
vísindaskyni, er um að ræða
grundvallarafstöðu. Sú afstaða
mun hafa sambærileg áhrif á aðra
flutninga upplýsinga úr sjúkra-
skrám í gagnasöfn, sem notuð eru í
vísindaskyni eða til tölfræðilegrar
úrvinnslu.
Undirritaður hefur unnið, á vett-
vangi vísinda- og tækninefndar
Evrópuráðsþingsins, að gerð ál-
yktana um mannréttindi og vísindi,
þ.á m. að gerð alþjóðlegs sáttmála
um mannréttindi og læknisvísindi
(Convention for the protection of
Human Rights and Dignity of the
Human Being with regard to the
Application of Biology and Medici-
ne: Convention on Human Rights
and Biomedicine). Vinna að gerð
sáttmálans var mjög flókin og tók í
raun tæpan áratug að ná sam-
komulagi. Kom undirritaður að
starfinu þrjú síðustu árin, þegar
umræðan var einkum um við-
kvæmustu málin er varða það
svigrúm sem gefa á læknavísin-
dunum og rannsóknastarfsemi án
þess að gengið sé á rétt sjúklinga
og vegið að reisn þeirra og sjálfsá-
kvörðunarrétti. Þótt þessi sáttmáli
gangi einum að leita leiða til að tak-
ast á við sjúkdóma eða viðhalda
heilsu eða veita einstaklingum,
sem til heilbrigðiskerfisins leita,
þau úrræði sem tiltæk era. Margir
koma að gerð þessara skýrslna, en
eiga það allir sammerkt að þeir
taka með einum eða öðrum hætti
þátt í að tryggja sem best þau úr-
ræði sem heilbrigðiskerfið getur
veitt sjúklingnum.
Undantekningar
Þótt meginreglan sé þannig hag-
ur sjúklingsins, hefur verið viður-
kennt að undantekningar sé nauð-
synlegt að gera á því til hvers
þessar upplýsingar um sjúklingana
eru nýttar. Fara þær þá um hend-
ur utanaðkomandi aðila, sem í
sjálfu sér eru ekki að stuðla með
beinum hætti að hag sjúklingsins.
Þetta gerist t.d. þegar þessar upp-
lýsingar eru notaðar til tölfræði-
legrar úrvinnslu á vegum heil-
brigðisyfirvalda. Þótt augljóslega
megi halda því fram að slík úr-
vinnsla komi þjóðinni til góða til
lengri tíma litið, er slík tölfræði
ekki unnin til að stuðla með bein-
um hætti að hag einstaklinga sem
til heilbrigðiskerfisins leita. Þá
hefur það tíðkast lengi að upplýs-
ingar um sjúklinga eru færðar í
skrár, sem nýttar eru sem grund-
völlur rannsókna í læknavísindum.
Þótt framfarir í læknavísindum
komi sjúklingum til góða þegar
þær leiða til betri úrræða í lækn-
ingum, er þessi starfsemi þó ekki
beinlínis tengd hag þeirra sjúkl-
inga, sem upplýsingarnar fjalla
um. Slík úrvinnsla flokkast því
undir undantekningu frá þeirri
meginreglu að upplýsingar í
sjúkraskrám séu nýttar til hags-
bóta fyrir sjúklingana sepi þær
varða. Þeir sem rannsóknir stunda
á grundvelli upplýsinga úr sjúkra-
skrám, gera það ekki í krafti trún-
aðarsambands við sjúklinga.
Læknir, sem stundar rannsóknir á
sviði krabbameins á grundvelli
upplýsinga úr sjúkraskrám, er að
þessu leyti utanaðkomandi aðili,
jafnvel þótt hann hafi skráð ein-
hverjar af þeim upplýsingum sem í
því safni er að finna sem hann vinn-
ur með. Trúnaðarsamband hans
við sjúkling veitir honum sem slíkt
ekki umboð til að nota upplýsingar
um sjúklinginn í rannsóknum. Til
þess verða að liggja almennar
heimildir um undanþágur, sem
heilbrigðisyfirvöld bera ábyrgð á.
Utanaðkomandi aðilar
Málið snýst í grundvallaratrið-
um um það hvort veita megi utan-
aðkomandi aðilum aðgang að
sjúkraskýrslum. Utanaðkomandi
aðilar eru allir þeir, sem hafa þess-
ar skýrslur undir höndum eða upp-
lýsingar úr þeim og vinna á grund-
velli þeirra verk sem ekki snerta
heilsu og meðferð sjúklinganna
sjálfra. Sé trúnaður sjúklings og
læknis í hættu og siðareglur lækna
brotnar vegna þess að utanaðkom-
andi aðilum er veittur aðgangur að
upplýsingum um sjúklinga án upp-
lýsts samþykkis þeirra, í því skyni
að skapa grundvöll fyrir framgang
mála eins og vísindarannsókna og
tölfræðilegrar úrvinnslu, verður að
líta svo á að krafa Læknafélagsins
jafngildi því að slíkri starfsemi
verði hætt.
Aðgangur að sjúkraskrám
á Islandi
Það liggur fyrir að utanaðkom-
andi aðilar hafa haft aðgang að
upplýsingum úr íslenskum sjúkra-
skrám. Til, upplýsinga fyrir
Læknafélag Islands, sem á þó að
vera vel upplýst um þennan þátt
málsins, sendi ég með þessu bréfi
svar heilbrigðisráðherra við fyrir-
spurn minni á Alþingi. Upplýsing-
arnar í svarinu eru frá Krabba-
meinsfélagi Islands. I því kemur í
ljós að upplýsingar úr sjúkraskrám
heilbrigðisstofnana hafa __ verið
sendar Krabbameinsfélagi Islands
og skráðar þar í krabbameinsskrá.
Síðan hafa þessar upplýsingar ver-
ið nýttar til skýrslugerðar heil-
brigðisyfirvalda, til tölfræðilegra
athugana og annarra vísindarann-
sókna. Þessar upplýsingar hafa
verið samkeyrðar við aðra gagna-
grunna, svo sem ættfræðigrunn.
Það liggur fyrir í þessum upplýs-
ingum að ekki hefur verið leitað
eftir upplýstu samþykki sjúkling-
anna fyrir þessum flutningum og
þessari notkun, sem snertir ekki á
nokkurn hátt heilsufar þeirra og
læknismeðferð á sjúkrastofnunum.
Sama er uppi á teningnum þegar
konur fara í krabbameinsleit. Upp-
lýsingar um þessar konur eru nýtt-
ar til skýrslugerðar, tölfræðilegra
athugana og annarra vísindarann-
sókna, og keyrðar saman við aðra
gagnagrunna, án þess að konurn-
ar, sem upplýsingarnar varða, hafi
verið spurðar eða upplýsts sam-
þykkis aflað frá þeim. Þá kemur
það fram í svari við fyrirspurninni
að heilsufarsupplýsingar eru not-
aðar af starfsmönnum heilbrigðis-
stofnana í öðrum tilgangi en þeim
sem lá til grundvallar að söfnun
upplýsinganna. Er þar um að ræða
ritun fræðigreina svo dæmi sé tek-
ið. Slík notkun telst óviðkomandi
sjúklingunum. Þeir sem nota upp-
lýsingar úr sjúkraskrám með þess-
um hætti flokkast tvímælalaust
undir utanaðkomandi aðila. Notk-
un af þessu tagi hefur ekki verið
háð upplýstu samþykki sjúklinga.
Nauðsynlegt er að taka það fram
að undirritaður er ekki með þessu
bréfi að lýsa andstöðu við starf-
semi Krabbameinsfélagsins eða við
þá notkun upplýsinga úr sjúkra-
skrám, sem viðgengist hefur án