Morgunblaðið - 12.11.1999, Síða 63

Morgunblaðið - 12.11.1999, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 6^- SKOÐUN upplýsts samþykkis. Þvert á móti er ég hlynntur þessari notkun og tel að ekki megi trufla starfsemi Krabbameinsfélagsins né setja í uppnám þann grundvöll rannsókna á sviði læknavísinda, sem hér á landi hefur verið skapaður. Hér er verið að benda á hve krafan um upplýst samþykki getur haft víð- tæk áhrif á þennan grundvöll. Skil milli rannsókna og endurnýtingar upplýsinga Krafa Læknafélags íslands um upplýst samþykki er ekki í sam- ræmi við alþjóðlegar samþykktir og telst engan veginn samræmast þeim vinnubrögðum um meðferð upplýsinga úr sjúkraskýrslum, sem tíðkast hafa hér á landi sem og í nágrannalöndum okkar. Að því er kröfuna um upplýst samþykki varðar, má segja að vatnaskil liggi milli a) rannsókna á einstaklingum sem framkvæmdar eru í vísinda- skyni og b) notkunar upplýsinga úr upplýsingasöfnum heilbrigðis- stofnana sem skráðar eru í öðrum tilgangi en þpim að byggja á þeim rannsóknir. í fyrra tilfellinu (a) er það regla, virt hér á landi sem ann- ars staðar í nágrannalöndum, enda í samræmi við alþjóðlegar skuld- bindingar, að upplýsts samþykkis sé í öllum tilfellum leitað, og nær samþykkið þá aðeins til ákveðinnar rannsóknar, þar sem upphaf og endir er skilgreindur; þátttakend- ur í slíku rannsóknaverkefni geta hvenær sem er hætt þátttöku. I hinu tilfellinu (b) er um að ræða undanþágu frá meginreglu þar sem endurnýttir eru upplýsinga- grunnar, sem safnað hefur verið í þeim tilgangi að lækna fólk eða veita því heilsufarslega úrlausn. Þessar upplýsingar ná yfir áratugi. Þær geta haft mikið vísindalegt gildi. Upplýsingar, sem skráðar eru um sjúkling árið 1925, geta öðl- ast mikið gildi árið 1999. Ekki er raunhæft að krefjast upplýsts sam- þykkis fyrir notkun upplýsinga af þessu tagi til vísindarannsókna. Slíkt samþykki getur aldrei talist upplýst. Hvernig á að vera hægt að afla upplýsts samþykkis sjúklings árið 1999 fyrir því að upplýsingar um hann verði hugsanlega notaðar í vísindaskyni 20 árum seinna, þeg- ar ekki er vitað hvers konar rann- sóknir verða þá framkvæmdar, né hvers konar spurninga verður þá spurt? En út á slíka notkun gengur málið. Það er því viðurkennd stað- reynd og tekið tillit til hennar í al- þjóðlegum sáttmálum, að það er ekki framkvæmanlegt að ia-efjast upplýsts samþykkis þegar upplýs- ingar úr sjúkraskrám eru notaðar í vísindum. Á að nota þessar upplýsingar til rannsókna eða ekki? Málið snýst því ekki um upplýst samþykki eða ætlað samþykki. Það snýst um það hvort heimila á notk- un upplýsinga úr sjúkraskrám eða ekki. Krafa Læknafélags íslands er því sú í raun að upplýsingar úr sjúkraskrám verði ekki nýttar til vísindalegra rannsókna í læknis- fræði, nema þá með þeim takmörk- unum að grundvöllurinn undir þessari notkun upplýsinganna er í raun eyðilagður. Krafan um upp- lýst samþykki er yfirlýsing um að sá flutningur upplýsinga úr sjúkra- skrám í krabbameinsskrá, sem tíðkast hefur áratugum saman, hafi verið brot á trúnaði lækna og sjúklinga. Sem þingmaður er ég þessari kröfu ekki sammála og tel hana ekki standast. Eg tel að hún vinni gegn hagsmunum sjúklinga til lengri tíma litið og grafi undan þeim grundvelli tiþ framfara í læknavísindum á Islandi, sem byggist á góðum sjúkraskrám. Lokaorð Niðurstaða mín er sú að ef Læknfélag Islands geri kröfu um að upplýsingar úr sjúkraskrám megi ekki flytja í miðlægan gagna- grunn án upplýsts samþykkis sjúklinga, verði að líta svo á að sú krafa sé almenn og varði grund- vallaratriði. Heimild til notkunar upplýsinga úr sjúkraskrám til tölf- ræðilegra upplýsinga og vísind- arannsókna er málefni heil- brigðisyfirvalda. Ef annmarkar eru á slíkri notkun og hún brýtur í bága við siðareglur lækna og gref- ur undan þeim trúnaði sem ríkja þarf milli læknis og sjúklings, hljóta stjómvöld að taka á því al- mennt en ekki í ljósi þess hvar notkunin fer fram eða í höndum hvers úrvinnslan er. Stjórnsýslu- lög kveða á um að svo sé á málum haldið. Krafan mun því almennt þrengja að starfsemi þeirra, sem nú stunda úrvinnslu upplýsinga úr sjúkraskýrslum. Til þeirra verða gerðar sömu kröfur um upplýst samþykki, ef sú regla verður á ann- að borð viðurkennd sem grunvall- aratriði. Það er óhugsandi að í þessum efnum, sem snerta mann- réttindi og vísindasiðfræði, geti gilt tvöfalt siðgæði. Höfundur er alþingismaður. Handunnin húsgögn Gamaldags klukkur Urval ljósa 0 . og gjafavöru olgUYStjaVíia Opið kl. 12-18, lau. kl. 12-15. Fákafeni (Bláu húsin), sími 588 4545. Aðeins 1 hylki á dag Staðlað ginseng þykkni frá Indena. Tilboð í nóvember 72 hylki á verði 60! ,Ef ginsengafurðir eru ósviknar innihaida þær ginsenosíð Því meira vf þeim mun betra. Mönnum er því ráðlagt að kaupa aðeins afurðir með stöðluðu ginsenosíð-innihaldi". (Úr bókinni Lækningamáttur > líkamans, með leyfi útgefanda). i. 30% Ginsenosíðar GX 2500+ Korean Ginseng Extract 30% Ginsenosides Super Potent ÖFLUGRA OG VIRKARA! ... FÆR í FLESTAN SNJÓ... Volvo V70 Cross Country er sniðinn fyrir ísland. Margir samverkandi þættir tryggja einstaka aksturseiginleika við ólíkar og erfiðar aðstæður, hvort sem er á leyndum hálkublettum í borginm eða þungri vetrarfærð á fjallvegum. Volvo V70 Cross Country hefur lágan þyngdarpunkt Lágþrýst bensínvél með forþjöppu og millikæli skilar 193 hestöflum og hefur mikinn togkraft á öllu snúningssviðinu. Sjálfvirkur aldrifsbúnaður með seigju- tengslum deilir vélaraflinu milli hjólanna, í samræmi við breytilegar aðstæður. Fjölliðaöxull með fullri driflæsingu og háþróuð TRACS spólvöm tryggja ávallt besta mögulegt veggrip. Fullkomið hemlakerfi með ABS læsivöm og EBD afldretíingu lágmarkar hemlunarvegalengd. brimborg aldrifinn og albúinn VOLVO V70 XC AWD CROSS COUNTRY Upplifðu hann í reynsluakstri Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 • Akureyri Sími 462 2700 B r i m b o r g Blley Búðareyri 33 • Reyðarfirði Sími 474 1453 B I I d s h ö f ð a Betri bllasalan Hrísmýri 2a • Selfossi Sími 482 3100 Bllasalan Bllavlk Holtsgötu 54 • Reykjanesbæ Sími 421 7800 Tvisturinn Faxastíg 36 • Vestmannaeyium Slmi 481 3141
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.