Morgunblaðið - 12.11.1999, Page 66
1
> 66 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
________________HESTAR______
Fjölbreyttur fróðleikur
á Netinu og í tímaritum
MARGIR vilja halda því fram að
hestur sé hestur, sáma af hvaða
kyni hann er. Þó ekki séu allir sam-
mála því er það staðreynd að mörg
sömu vandamál hrjá tegundina í
heild. Asdís Haraldsdóttir kíkti inn
á Netið og í nokkur erlend hesta-
blöð og komst að því að þar eru
ógrynni gagnlegra upplýsinga
þrátt fyrir að fjallað sé um flest
önnur kyn en íslenska hestinn.
Á Netinu gefst fólki tækifæri til að
ná í upplýsingar sem áður fyrr var
mjög erfítt að nálgast. Má í því
sambandi nefna niðurstöður rann-
sókna á ýmsum þáttum hesta-
mennskunnar sem áður voru hin-
um almenna hestamanni sem lok-
uð bók. Auðvitað verður fólk að
hafa í huga að ekki eru allar upp-
lýsingar sem um Netið fara jafn
áreiðanlegar, en fljótlega lærist
hvað er vandað og hvað ekki. Þá
þarf að hafa í huga að rannsóknir
sem gerðar eru erlendis á hestum
gætu gefið aðrar niðurstöður ef
þær væru framkvæmdar hér á
landi meðal annars vegna um-
hverfisáhrifa og sjúkdóma sem ís-
lenski hesturinn kemst aldrei í
snertingu við hér á landi.
Flest sem fróðleiksþyrstur
hugur girnist
Það voru aðeins fáar síður sem
skoðaðar voru vel að þessu sinni
enda má segja að þar hafi verið að
finna allt sem hugurinn girntist
hvað varðar heilsu og umhirðu
hesta.
Fyrst ber að nefna síðu Hesta-
rannsóknarmiðstöðvarinnar
Equine Research Centre í Kanada.
Hún er rekin í tengslum við Uni-
versity of Guelph í Ontario, en þar
eru einmitt frægar landbúnaðar-
og dýralæknadeildir. Síðan er á
slóðinni www.erc.on.ca.
Á þessari heimasíðu eru ógrynni
upplýsinga um þær rannsóknir
sem stundaðar eru við stofnunina.
Sem dæmi má nefna rannsóknir á
hófum, á því hvað getur haft áhrif á
sæðisgæði hjá stóðhestum og fleira
sem við gætum haft gagn af. Ef
smellt er á Horse Health Care er
þar að finna upplýsingar um sjúk-
dóma sem við könnumst við svo
sem um hrossasótt og hófsperru.
Um fjölmörg atriði sem fjallað er
um á síðunum gefur stofnunin
einnig út myndbönd og hljóðsnæld-
ur sem hægt er að panta sérstak-
lega.
Mikið er einnig fjallað um æxlun
hrossa, sæðingar, fósturvísaflutn-
inga og fleira, enda er það stór
þáttur í starfsemi stofnunarinnar.
Fjarnám í hrossa-
fræðum
Stofnunin býður upp á fjamám
sem gæti verið gimilegur kostur
iyrir þá sem vilja auka þekkingu
sína í hrossafræðum. í fjamáminu
er boðið upp á nám þar sem kynnt
er æxlun hrossa, þar með talið
sæðingar o.fl. en einnig í næringu
hrossa, þjálfunarlífeðlisfræði og
umhirðu.
Á heimasíðu ERC er einnig
barna- og unglingasíða og þar er
ýmsan fróðleik að finna. En þeir
sem hafa áhuga ættu bara að skella
sér á Netið og fletta þessu upp og
komast að því sjálfir hvað þar er að
finna, enda áhugamál fólks svo
misjöfn. Eins er hægt að skrá sig
inn á tölvupóstlista og fá allar nýj-
ustu upplýsingar sendar beint inn
á tölvuna sína.
Frá þessari síðu er svo hægt að
tengjast síðunni www.
equinecanada.com, þar er mikið
fjallað um hestaiðnaðinn í Kanada
og margt fróðlegt þar að finna.
Einnig er hægt að komast þar inn
á tímaritið Equine Canada Mag-
azine, en það fjallar meðal annars
mikið um þær rannsóknir sem fara
fram á ERC.
Vönduð og fjölbreytt
tímarit
Fyrir fróðleiksþyrsta er svo rétt
að benda á tímaritið The Horse,
sem gefið er út í Kentucky í
Bandaríkjunum. Þrátt fyrir að
ekki sé mikið fjallað sérstaklega
um íslenska hesta birtist þó falleg
teikning af íslenskum hestum eftir
Andra Faye Oppergard í apríl á
þessu ári. Þetta er mjög vandað
tímarit og fjallar að miklu leyti um
heilsu hesta, umhirðu, umhverfi,
ýmis tæki sem nýtast í hrossabú-
skap, svo sem dráttarvélar, hesta-
kerrur og fleira. The Horse hefur
einnig góða heimasíðu á www.
thehorse.com sem vert er að
skoða. Þar er til dæmis að finna
mjög athyglisverða grein úr
nýjasta hefti tímaritsins um maga-
sár í hestum. Þar kemur fram að
eftir að fundin var upp sérstök
magasjá fyrir hesta hefur komið í
ljós að þessi sjúkdómur er mun al-
gengari en áður var haldið. Þeir
sem hafa áhuga á að kynna sér
tímaritið ættu að nota tækifærið,
fara inn á heimasíðuna og biðja um
ókeypis eintak sem nú er boðið
upp á.
Breska tímaritið Riding býður
einnig upp á það. Riding er vandað
tímarit sem er ekki eins tengt
hestaheilsu þó vissulega sé fjallað
um hana líka. Tímaritið er mjög
fjölbreytt og þeir sem hafa áhuga á
að kynna sér efni þess ættu að
skoða heimasíðuna á www.riding-
magazine.co.uk Tímaritið fjallaði
sérstaklega um íslenska hesta í
október 1998.
Auk þessara tímarita og heima-
síðna er fjöldinn allur af frægum
hestatímaritum svo sem Equus
sem margir kannast við.
Þrír nemend-
ur Hestaskól-
ans hættir
ÞRÍR nemendur við Hestaskólann
á Ingólfshvoli eru hættir. Strax að
loknum tveimur vikum í skólanum
héldu nemendur skólans fund þar
sem þeir lýstu óánægju sinni með
kennsluaðferðir í skólanum og fóru
fram á breytingar. Einn nemend-
anna, Anna Nilsson frá Svíþjóð,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
ástandið hefði lagast í nokkra daga
en síðan hafi allt farið í sama farið
aftur.
Gagnrýni nemenda Hestaskól-
ans hefur aðallega beinst gegn
kennsluaðferðum sem þeir telja
gamaldags og harðneskjulegar.
Anna sagði að flestir nemend-
urnir væru stúlkur og þær hefðu
hvorki líkamlega burði né áhuga á
að beita kröftum við tamningu
hrossa eins og aðferðirnar sem
kenndar væru byðu upp á. Flestir
hefðu átt von á nútímalegri og
mannlegri tamningaaðferðum sem
nú eru að ryðja sér til rúms í heim-
inum og að meira væri fjallað um
sálarlíf hesta, atferli og viðbrögð.
Bæklingar og heimasíða skólans
gæfu ekki rétta mynd af náminu og
því sem boðið væri upp á við
Hestaskólann.
Einnig hefur komið fram óá-
nægja með þau hross sem nem-
endum var úthlutað til keppnis-
þjálfunar og samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins munu
mörg þeirra ekki flokkast undir
keppnishross. Tamningahrossin
hafi hins vegar verið efnileg en
eftir fjórar vikur væru þau mörg
taugastrekkt og tortryggin í garð
mannfólksins.
Tíu vikna nám við Hestaskólann
kostar tæplega hálfa milljón króna
og sagði Anna að hingað til hafi
kennslan alls ekki verið pening-
anna virði. Þrír þeirra hefðu ákveð-
ið að hætta til að mótmæla þeim
aðferðum sem notaðar hafa verið
við skólann. Þeir ætla að reyna að
fá hluta skólagjaldanna endur-
greiddan.
Fram kom að mikil og almenn
.ánægja væri með þær Freyju
Hilmarsdóttur og Olil Amble, sem
hlaupið hafa í skarðið í kennslunni í
stað Hafliða Halldórssonar skóla-
stjóra, sem hefur dregið sig í hlé.
Hvar í líkamanum endaði skyndibitinn í gær?
56-1-HERB
Eru rintlagardínurnar óhreinar!
Vl» hreinsum:
Rimlo, strimla, plíseruö og sólargluggatjöJd.
Setjum afrafmagnandi bónhúó.
Sækjum og lendum ef óskab er.
4f-
$L tækni hránsunin
StfMmor 35 • Sími: 533 3634 • OSM: 897 3634
HESTAR/FÖLK
■ VPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ hefur
verið opnuð á Ingólfshvoli fyrir
hestamenn þar sem safnað hefur
verið saman fjölþættum upplýsing-
um og aðgangur verður að tölvu og
Netinu. Á staðnum verða allar
myndbandsspólur sem gefnar hafa
verið út af hestamótum og sýning-
um á íslandi. Þá verða þar einnig
myndbandsupptökur af söluhross-
um frá hrossabændum í nágrenni
við Ingólfshvol. Sagði Öm Karls-
son, eigandi staðarins, tilvalið fyrir
hestakaupmenn sem hygðust fara
um Suðurlandið að nýta sér þær,
bæði erlenda sem innlenda, eða þá
einstaklinga sem væru að leita sér
að hrossum.
■ HESTHÚSIÐ, hið nýja hlutafé-
lag sem stofnað var með samruna
þriggja hestavöruverslana, hefur
ráðið Guðbjörn Árnason fram-
kvæmdastjóra íyrirtækisins en
hann hefur verið framkvæmda-
stjóri Landssambands kúabænda.
Hann hefur hafið störf hjá hinu
nýja fyrirtæki hálfan daginn.
■ HESTHÚSIÐ hefur keypt hús-
næði að Fosshálsi 1 í húsi sem oft
hefur verið kallað Bflaborgarhús-
ið. Er þar um að ræða 800 fer-
metra rými en til samanburðar má
nefna að hestaverslunin Hestamað-
urinn hefur verið í 300 fermetra
húsnæði.
■ SIGURÐUR Marínusson, tamn-
ingamaðurinn kunni, er nú fluttur
til Hollands en hann hyggst búa
þar með hollenskri unnustu sinni,
Irmu Schortinghuis, en þau eiga
von á barni. Sigurður keypti eitt
af hesthúsum Fáks fyrir ári og
verður það leigt út með fóðri og
hirðingu og mun Davíð Jónsson sjá
um húsið.
■ ÞÓRÐUR Jónsson er kominn til
landsins og mun verða við tamn-
ingar og þjálfun hjá bróður sínum,
Albert Jónssyni, að Strandarhöfða
í Landeyjum. Þar verður einnig
annar kunnur tamningamaður,
Sigurður Oskarsson, en hann var í
landsliði Islands á Norðurlanda-
mótinu á síðasta ári og sýndi kyn-
bótahross íyrir Þýskaland á HM í
sumar.
■ SIGURBJÖRN Bárðarson opnar
í dag 100 fm safnahús sem stendur
rétt við íbúðarhúsið á Oddhóli. Þar
verða geymdir allir verðlaunagrip-
ir sem Sigurbjörn hefur unnið í
gegnum árin.
■ SIGURBJÖRN segir þetta gaml-
an draum og gert til að bera til-
hlýðilega virðingu fyrir þessum
gripum. I ljós er komið að húsið er
þegar of lítið;_
■ SIGURBJÖRN segist allur vera
að hressast eftir slysið sem hann
lenti í. Batinn komi þó hægt og síg-
andi og reiðmennska á bannlista í
bili.
■ SIGRÚN Ögmundsdóttir á skrif-
stofu LH segir að rífandi gangur
hafi verið í miðasölu á Uppskeru-
hátíð hestamanna. I gær höfðu
selst 660 miðar og enn eftir 70 sæti
við borðhaldið.
mDANSGLAÐIR hestamenn sem
ekki vilja vera við borðhaldið og sjá
skemmtiatriðin geta mætt síðar og
þurfa ekki að missa af Stuðmönn-
um sem leika fyrir dansi.
■ BENEDIKT Þorbjömsson
tamningamaður og reiðkennari er
nú í Bandaríkjunum þar sem hann
aðstoðar við að koma upp hesta-
miðstöð fyrir íslenska hesta í
Campbell Hall í New York-ríki.
■ HESTEYRI nefnist búgarðurinn
og er í eigu Hratch Kaprielian.
Benedikt mun dvelja þar í tvær
vikur að þessu sinni.
fiSTUnD
SERVERSLUN
HESTAMANNSINS
Háaleitisbraut 68 i.: • Austurver
Sími 568 4240 **&*—>•=*■