Morgunblaðið - 12.11.1999, Síða 73
MORGUNBLAÐIÐ
í DAG
BRIDS
IJmsjón Gnðmundnr
I‘áll Arnarson
KÍNVERJAR hafa í fjög-
ur ár haldið stórmót með
þátttöku úrvalsspilara víðs
vegar úr heiminum og fór
fjórða mótið fram í ná-
grenni Hong Kong í lok
október. Þetta er fimm
daga mót, sveitakeppni og
tvímenningur og heitir ó
ensku „China Cup“. í
sveitakeppninni er keppt
bæði í opnum flokki og
kvennaflokki, en aðeins
fjögur lið í hvorum flokki
um sig. Ein sveit er að
sjálfsögðu frá Kína, en
hinar þrjár spila í nafni
Evrópu, Norður-Ameríku
og svo er ein sveit fulltrúi
„stjarnanna“ - þ.e.a.s.
þeirra sem skína á jörðu
niðri. Sú sveit heitir
„Stjörnusveitin“ eða
„Worid Stars". Stjörnu-
sveitin vann kvennaílokk-
inn, en Evrópusveitin -
sem skipuð var tveimur
dönskum pörum og einu
sænsku - vann opna flokk-
inn. Hér er spil úr loka-
viðureign Evrópu og
Stjarnanna í opna flokkn-
um:
Suður gefur; AV
hættu.
Norður A 7 ¥ K654
♦ KD1062 * Á107
Vestur Austur
♦ 6543 * K10982
¥ Á1073 ¥ DG9
♦ 7 ♦ G84
*KD98 * G3
Suður
♦ ÁDG
¥82
♦ Á953
♦ 6542
I AV voru Svíamir
Magnus Lindkvist og Pet-
er Fredin, en í NS voru
stórstjörnurnar Tony
Porrester frá Bretlandi og
hinn norski Geir Helgemo.
Þótt þeir félagar Tony og
Geir hafi spilað töluvert
saman á undanförnum ár-
um eru þeir greinilega lat-
ir við að ræða kerfið sitt.
Hér fara þeir alvarlega út
af sporinu:
Forrester Lindkvist Heigmo
— — — llauf
Pass 1 hjarta Pass 1 grand
Pass 21auf* Pass 2tígiar*
Pass 3 spaðar* Pass 4 i\jörtu
Pass 5 tíglar Pass 5 työrtu
Dobl 6 tíglar Pass Pass
Dobl Allirpass
Kerfið er eðilegt að
grunni til og eftir algenga
byrjun krefur Forrester
með tveimur laufum, sem
er einhvers konar afbrigði
af „Checkback Stayman“.
Helgemo neitar þrílit. í
hjarta með tveimur tíglum
og Forrester sér þá að
makker á 3-4 tígla og
stekkur í þrjá spaða til að
sýna þar stuttlit (splinter).
Helgemo er með á nótun-
um hvað það varðar, en
telur að Forrester sé með
einlita hjartahönd og
breytir því sífellt í hjarta.
Predin finnur lyktina af
misskilningi og dregur upp
doblmiðann þegar sagnir
hafa teygt sig upp á
fimmtaþrep.
Sex tíglar er auðvitað
vonlaus samningur og end-
aði tvo niður. Á hinu borð-
inu spiluðu NS þrjú grönd
°g unnu, en þar voru að
verki Danirnir Jens Auken
°g Koeh-Palmund.
Aðsendar greinar á Netinu
—ALLnrx\f= mbl.is
GITTHV'AO NÝTl
Arnað heilla
n ÁRA afmæli. í dag,
I Oföstudaginn 12. nóv-
ember, verður sjötíu og
fimm ára Stefanía Ágústs-
dóttir, húsfreyja að Ásum í
Gnúpverjahreppi. Hún er
að heiman.
Bama- og fjölskylduljósmyndir.
BRÚÐKAUP Gefin voru
saman 14. ágúst sl. í Selja-
kirkju af sr. Valgeiri Ást-
i’áðssyni Ki-istín Svala Jóns-
dóttir og Jens Viktor Krist-
jánsson. Heimili þeirra er í
Danmörku.
GULLBRÚÐKAUP. í dag, föstudaginn 12. nóvember, eiga
50 ára hjúskaparafmæli hjónin Kristrún Karlsdóttir og Ás-
mundur Bjarnason, Litla-Hvammi II, Húsavík. Þau eru að
heiman í dag.
Með morgunkaffinu
COSPER
Konan mín sér um kvenlega þáttinn á skrifstofunni.
LJOÐABROT
LITLA SKÁLD Á GRÆNNI GREIN
Litla skáld á grænni grein,
gott er þig að finna.
Söm eru lögin, sæt og hrein,
sumarkvæða þinna.
Við þinn létta unaðsóð
er svo ljúft að dreyma.
Það eru sömu sumarljóð,
sem ég vandist heima.
Þær verð ég að faðma fyrst
fyrir margt eitt gaman.
Við höfum sungið, við höfum kysstst,
við höfum dansað saman.
Syngdu vinur, syngdu skært,
syngdu á þýða strengi,
svo mig dreymi, dreymi vært,
dreymi rótt og lengi.
Þorsteinn Erlingsson.
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 Ti
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drakc
SPORÐDREKI
Þú átt auðvelt með að
vinna aðra á þitt band og
þarft sjaldan að láta
sverfa til stáls.
Hrútur ~
(21. mars -19. apríl)
Ekki er allt tekið út með
sældinni en þú verður að
halda þetta út og getur það
ef þú ýtir engu undir teppið
heldur horfist í augu við hlut-
ina.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Meðan vinnufélagai-nir eru
enn að velta hlutunum fyrir
sér hefur þú þegar tekið
ákvörðun. Sýndu öðrum þá
tillitssemi sem þarf.
Tvíburar t
(21. maí - 20. júní) oA
Þú stendur frammi fyrir
kröfum um aukna ábyrgð en
ert eitthvað tvístígandi.
Láttu slag standa því þú hef-
ur alla burði til þess að taka
þetta að þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það getur eitt og annað farið
úrskeiðis þegar menn tala
ekki hreint út um hlutina.
Vertu því skorinorður við
aðra og þá léttist andrúms-
loftið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt þér líði frábærlega
skaltu láta það eiga sig að
upplýsa aðra um hvað veldur
því. Stundum virkar það al-
veg öfugt að ætla sér að hafa
áhrif á aðra.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) <Su>
Skoðanir þínar hafa vakið
nokkra andstöðu sem þú
þarft að taka tillit til og yfir-
vinna með fullri sanngimi.
Taktu þér bara góðan tíma
til þess.
Vog m
(23. sept. - 22. október)
Áður en þú heldur lengra
skaltu íhuga hvers vegna
hlutimir hafa farið á skjön að
undanfömu. Ástæðan liggur
nær en þig kann að gmna.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^wfe
Þú vilt hafa skipulag á öllum
hlutum og það er útaf fyrir
sig ágætt en mátt ekki lenda
í þeim ógöngum að þér verði
ekkert úr verki.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) AT)
Loksins er allt komið í þann
farveg sem þú vildir og þú
sérð árangur erfiðis þíns.
Eitthvað verður samt til þess
að gleðja þig ennþá meir.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) 4MF
Menn láta eitt og annað
flakka í einkasamtölum sem
á ekkert erindi við aðra.
Haltu slíkum hlutum hjá þér
hver sem í hlut á.
Vatnsberi ,
(20. janúar -18. febrúar) wcnt
Þótt þér hafi alltaf fundist
óþarfi að undirbúa ræður
þínar veltur allt á því núna að
þú setjir mál þitt vel fram
svo tekið verði mark á þér.
Fiskar mc
(19. febrúar - 20. mars)
Eigirðu í erfiðieikum með
verkefni þitt skaltu hafa
samband við einhvem sem
getur hjálpað þér. Það getur
skipt sköpum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Veloursloppar
Frottésloppar með hettu
Náttkjólar, stuttir og síðir
tytu&turoerú,
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.
Qlæ&Uegur
samkmemi^otnaður
tiskuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
Stjörnuspá á Netinu
^mbl.is
UWF eiTTHV'AO NYn