Morgunblaðið - 14.11.1999, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins
Stofnfundur Samfylkingar
vonandi í byrjun næsta árs
MARGRÉT Frímannsdóttir, formaður Alþýðu-
bandalagsins, segist vonast til þess að formlegur
stofnfundur Samfylkingarinnar sem stjómmála-
flokks verði haldinn á fyrstu mánuðum næsta
árs. Átti hún von á því að fulltrúar á landsfundi
Alþýðubandalagsins, sem haldinn er í Reykjavík
um helgina, myndu samþykkja tillögu þess efnis
að Aiþýðubandalagið gerðist stofnaðOi að þessum
nýja stjómmálaflokki en sagði hins vegar engar
áætlanir uppi um að leggja Alþýðubandalagið
sjálft niður.
Margrét var endurkjörin formaður Alþýðu-
bandalagsins á fostudag en þá flutti hún jafn-
framt setningarræðu landsfundarins þar sem
hún hvatti flokksmenn til að samþykkja aðild að
Samfylkingunni. Hún sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að aðild að Samfylkingunni væri
meginefni þessa landsfundar Alþýðubandalags-
ins.
„Það liggur fyrir tillaga þess efnis að Alþýðu-
bandalagið í heild sinni samþykki að gerast aðili
að Samfylkingunni þegar Samfylkingin verður að
formlegu stjórnmálaafli sem ég geri mér vonir
um að gangi eftir á fyrstu mánuðum næsta árs,“
sagði Margrét. Sagðist hún ekki eiga von á öðra
en að landsfundarfólk samþykkti þessa tillögu.
Búið er að stofna Samfylkingarfélög í sex af
átta kjördæmum landsins, sé miðað við gömlu
kjördæmaskipanina, og í undirbúningi er stofnun
kjördæmafélaga í Reykjavík og á Reykjanesi en
að því loknu segir Margrét ekkert því til fyrir-
stöðu að boðað verði til stofnfundar flokksins á
landsvísu, vonandi snemma á næsta ári. Nákvæm
dagsetning í þeim efnum hefur þó ekki verið
rædd.
Jóhann Geirdal endurkjörinn varaformaður
Á lanfsfundinum í gærmorgun var Jóhann
Geirdal endurkjörinn varaformaður Alþýðu-
bandalagsins, Gerður Jóhannsdóttir var kjörin
ritari flokksins og Elínbjörg Jónsdóttir gjaldkeri.
Jafnframt vora kynntar hugmyndir nefndar, sem
skipuð var í sumar, um skipulag Samfylkingar.
Kvaðst Margrét í því sambandi gera ráð fyrir að
næsta skref væri að skipa samráðshóp sem á
grandvelli þeirra athugasemda, sem fram hefðu
komið við fyrirliggjandi hugmjmdir, myndi móta
endanlegar reglur þessara nýju stjórnmálasam-
taka.
Aðspurð sagðist Margrét efast um að nokkur
maður væri tilbúinn að svara þeirri spurningu
hvort Alþýðubandalagið mundi í kjölfar stofn-
unar Samfylkingar sem stjórnmálaflokks verða
lagt niður. „Auðvitað er það þannig að ef Ai-
þýðubandalagið gerist formlegur aðili að Sam-
fylkingunni sem stjómmálaafli þá munu fund-
arhöld og pólitísk umræða líklega eiga sér stað
á öðrum vettvangi að stærstum hluta. Alþýðu-
bandalagið hefur hins vegar sínar skuldbind-
ingar og við eigum okkar stofnanir og það er
ljóst að við myndum þurfa að fara út í mikla
vinnu ef til þess kæmi að flokkurinn yrði lagður
niður.“
Jólaversl-
unin kom-
in af stað
UNDIRBÚNINGUR fyrir jólaversl-
unina er nú í fulhim gangi hjá
verslunareigendum. Nýtt korta-
tímabil hófst 11. nóvember og er
verslunarfólk bjartsýnt á komandi
jólaverslun. Sigurþór Gunnlaugs-
son, markaðsstjóri Kringlunnar,
segir að aðsókn hafi strax farið vel
af stað þegar stækkunin varð og
virðist sem hugur sé bæði í gestum
og rekstraraðilum Kringlunnar.
Búið er að færa Kringluna í jóla-
búning og voru skreytingarnar
settar upp á svipuðum tíma og í
fyrra.
Erla Jóhannsdóttir, eigandi
verslunarinnar Djásn og grænir
skógar, Laugavegi 51, segir að
jólaverslunin Ieggist vel í verslun-
areigendur á Laugaveginum. Þessa
dagana er verið að hefja vinnu við
skreytingar, en formleg jólaopnun
verður 27. nóvember þegar kveikt
verður á jólatrénu við Austurvöll.
Hún telur að verslunin fari fyrr að
stað heldur en fyrir ári og ekki
spilli veðurblíðan þessa dagana
fyrir aðsókninni að Laugaveginum.
MIKILL ljöldi fólks lagði leið sína í Kringluna í gær til að skoða jólavörurnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Seltjarnarnes
Sýndist
golfskálinn
vera alelda
SLÖKKVILIÐINU var tílkynnt
um það í fyrrakvöld að golfskálinn
á Seltjamarnesi væri alelda. Allt
tiltækt lið var gert klárt og hélt af
stað áleiðis út á Nes en var fljót-
lega kallað til baka.
Liðsmenn sjúkrabfls sem vora
fyrstir á staðinn, ásamt aðalvarð-
stjóra, sáu fljótlega að ekki var allt
sem sýndist. Skálinn var alheill, en
bakvið hann, í fjarska úti á hafi,
var fraktskip á siglingu vel upplýst
gulum ljósum. Að sögn slökkviliðs
hefur sá er hringdi í slökkviliðið
ekki séð skipið, heldur bara gula
bjarmann af ljósunum um borð og
þar sem skipið var bakvið skálann
leit það út eins og skálinn stæði í
ljósum logum.
Að sögn slökkviliðs hefur svipað
atvik átt sér stað áður en gulu ljós-
unum svipar mjög til elds, sérstak-
lega í súld eða rigningu eins og var
í fyrrakvöld.
American
Style kaupir
Aktu-taktu
VEITINGASTAÐURINN
American Style hefur tekið við
rekstri Aktu-taktu-staðanna við
Sæbraut og Sogaveg og verða
fyrirtækin sameinuð um næstu
áramót. Staðimir verða þó áfram
reknir undir sömu nöfnum.
Að sögn Helga Pálssonar, eig-
anda American Style, verður fyr-
irtækið mjög öflugt eftir samein-
inguna, en fyrirtækin hafa bæði
gengið vel undanfarin ár, að
sögn Helga.
Aktu-taktu var í eigu systkina
Helga og keypti hann fyrirtækið
af Sveini bróður sínum. Helgi
segir að þau hafi verið orðin
þreytt á rekstrinum og viljað
breyta til. Sex ár era liðin síðan
Aktu-taktu-staðimir hófu göngu
sína. Fyrst var opnaður staður
við Sæbraut og í kjölfarið var
staðurinn við Sogaveg opnaður.
Helgi segir að rekstur slíkra
staða sé oft erfiður varðandi
mannahald og íleira og að fólk
endist mislengi í slíkum rekstri.
Meginástæðan fyrir kaupunum
sé því sú að eigendumir vildu
breyta til.
Mikil hagræðing fylgir
sameiningu
Helgi segir að sameiningunni
fylgi einnig veraleg hagræðing.
Þá sparist í yfírbyggingu fyrir-
tækjanna og innkaup verði hag-
kvæmari, enda staðimir að
mörgu leyti í svipuðum rekstri í
skyndibitasölu.
American Style rekur nú þrjá
staði, við Skipholt og tvo staði í
Kópavogi og Hafnarfírði. Helgi
segir kaupverð á Aktu-taktu
vera trúnaðarmál á þessari
stundu.
Breytingar ekki ógnun
heldur tækifæri
► Breytingarnar sem Flugleiðir
kynntu í byrjun vikunnar snúast
ekki eingöngu málningu og fata-
efni heldur er að koma fram á
sjónarsviðið í raun nýtt fyrirtæki.
/10
Slegið á putta risans
►Alríkisdómari segir hugbúnað-
arfyrirtækið Microsoft hafa teygt
sig of langt í markaðsyfirráðum.
/14
íslendingar kóngar
í eðli sínu
►Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson for-
maður Sambands íslenskra sveit-
arféiaga vill fækka sveitarfélögum
um 80 á næstu tíu árum. /24
Besta pólitíkin að
berast ekki á
►Viðskiptaviðtalið er við Bárð
Hafsteinsson hjá Skipatækniy30
►1-28
Hindúanna helga fljót
► Móður Ganga kalla hindúar hið
helga fljót Ganges. Hvergi er
helgin þó meiri en við vesturbakka
fljótsins þar sem hin forna borg
Varanasi stendur. /1&14-16
Fífl í dulargervi
► Flosi Ólafsson, nýorðinn sjötug-
ur, er sestur í helgan stein á
hestabúgarði sínum að Bergi í
Reykholtsdal, sem hann kallar
sjálfur Stóra-Aðalberg. /6
Múrvirki eru enn
í hugum fólks
►Efnahagsiegir erfiðleikar hafa
dregið úr hæfni fjölmargra Aust-
ur-Þjóðverja til að laga sig að
breyttum aðstæðum. /8
C5 FERDALÖG
► l-4
Kraká
► Ein fallegasta borg sem Sigríð-
ur Sveinsdóttir hefur komið til. /2
Vinsældir íslands
aukast á Ítalíu
► Fjaliað um Island í einu virtasta
fagtímariti ítala. /4
ÍD BÍLAR
► l-4
Á prófunarsvæði
Subaru
►Af faglegum tilburðum íslend-
inganna í Tochigi. /1
Reynsluakstur
►Velheppnuð Toyota Celica. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-20
Campylobacter jejuni
og fleiri boðflennur
► Námskeið hjá Endurmenntun-
arstofnun Háskóla íslands eftir
helgi. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Hugvekja 50
Leiðari 32 Brids 50
Helgispjall 32 Stjömuspá 50
Reykjavíkurbréf 32 Skák 50
Viðhorf 36 Fólk í fréttum 54
Skoðun 36 Utv/sjónv. 52,62
Minningar 37 Dagbók/veður 63
Myndasögur 48 Mannl.str. 22b
Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 26b
ídag 50
INNLENDAR FRÉTTIR:
2Á-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6