Morgunblaðið - 14.11.1999, Qupperneq 50
-»50 SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
í DAG
S'
Island
farsældafrón!
Listaskáldið góða, Jónas Hallgrímsson,
fæddist 16. nóvember árið 1807.
Stefán Friðbjarnarson gluggar í þær
þjóðfélagslegu aðstæður sem hann
fæddist inn í, sem og ljóð hans um
almættið og ættjörðina.
„ISLENDINGUR átjándu
aldar virtist borinn til þess
aumkunarverða hlutskiptis að
lifa stutta og öm-
urlega ævi meðal
menningarþjóð-
ar, sem var að
því komin að líða
undir lok, og ól
raunar aldur
sinn í landi, sem
var orðið ger-
samlega óbyggi-
legt, eins og öll
lönd eru óbyggi-
leg þeirri þjóð,
sem lætur undir-
okast af náttúr-
unni í stað þess
að rísa gegn
áþján hennar og
gera sér hana
auðsveipa, eins
og ritningin býð-
ur.“
Þetta eruupp-
hafsorð inngangs
Jónas Ilallgrímsson,
teikning.
Fegurð íslenzkrar náttúru er
rauði þráðurinn í ljóðum lista-
skáldsins: Landið er fagurt og
frítt - og fann-
hvítir fjallanna
tindar, - himinn-
inn heiður og
blár, - hafið er
skínandi bjart.
„Og hann ræðir í
fullum trúnaði
við skapara
sinn,“ segir
Tómas Guð-
mundsson, „þeg-
ar hann játar
honum þakklæti
sitt og fögnuð":
Vorblómin, sem þú
vekur öll,
vonfógur, nú um dali
ogfjöll,
og hafblá alda og him-
inskin
hafa mig lengi átt að
vin.
Tómasar borgarskálds Guð-
mundssonar í Ljóðmælum Jónas-
ar Hallgrímssonar í útgáfu
Helgafells árið 1956. Tómas segir
ennfremur:
„Um þær mundir sem nítjánda
öldin gengur í garð hafa síðustu
vígi hinnar æðri menningar í
landinu, hin fornfrægu mennta-
setur, Skálholt og Hólar, verið
rúin tign sinni, og Alþingi við Öx-
ará, sú stofnun, sem þjóðin hafði
litið til með mestu stolti um níu
aldir, var fallið um sjálft sig
vegna þess, að engin ráð vóru til
að afla slíkri samkomu þaks yfír
höfuðið“.
Við þessar þjóðfélagsaðstæður
fæddist skáldið og náttúrufræð-
ingurinn Jónas Hallgrímsson að
Hrauni í Öxnadal nyrðra, 16.
nóvember 1807. Næst komandi
þriðjudag verða 192 ár liðin frá
fæðingu listaskáldsins góða. Ævi
hans var stutt í árum talin. Hann
lézt 16. mai árið 1845, tæplega 38
ára gamall. En hann lifír með ís-
lenzkri þjóð í ljóðum sínum -
meðan íslenzk tunga er töluð.
Nánast öll Ijóð Jónasar tjá ást
hans á ættjörðinni. Jafnvel þegar
hann „yrkir harmljóð eftir vini
sína eða saknaðarljóð um stúlk-
una, sem hann unni, eru kvæðin
fyrr en varir orðin að ástarjátn-
ingu til ættjarðarinnar. Þess-
vegna er föðurlandslaust kvæði
naumast til í Ijóðabók hans. Jafn-
vel kvæðin sem hann þýðir
kunna ekki við sig annars staðar
en í íslenzkum átthögum,“ segir
Tómas borgarskáld í foiTnála sín-
um.
Jónas sér „mynd hins máttka“,
er sól og jörðu skóp, í Sólseturs-
ljóðum:
Hníg því hóglega
í hafskautið mjúka,
röðull rósfagur,
og rís að morgni,
frelsari, frjóvgari,
fagur Guðs dagur,
blessaður blessandi,
blíður röðull fríður.
Trúarsannfæring listaskálds-
ins kemur víða fram í ljóðum
hans: „Veit ég hvar von öll - og
veröld mín - gædd er Guðs
loga,“ segir hann í Ferðalokum,
þar sem ástarstjarna er ofar
Hraundranga. Máske speglast þó
trúarsannfæring hans hvað bezt í
eftirmælum um kæran vin,
Tómas Sæmundsson: „Dáinn,
horfinn. Harmafregn! - Hvílíkt
orð mig dynur yfir. - En ég veit
að látinn lifir. - Það er huggun
harmi gegn“.
Það fer vel á því að enda þenn-
an pistil á Islandsminni Jónasar
Hallgrímssonar. Megi það og ljóð
hans öll, „glædd Guðs loga“, lifa
með þjóðinni á vegferð hennar
inn í nýja öld.
Þið þektóð fold með blíðri brá
og bláum tindi fjalla,
og svanahljómi, silungsá,
og sælu blómi valla,
og bröttum fossi, björtum sjá
og breiðum jökulskalla.
Drjúpi hana blessun Drottins á
um daga heimsins alla.
Full búð af
bútasaumsefnum
VIRKA
Mörkin 3 - Sími 568 7477.
Opið
Mánud.-föstud. kl. 10-18
Laugard. kl. 10—16
, til 20/12
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til Fóstudags
Afmælisskeyti
SIGRÍÐUR hafði sam-
band við Velvakanda og
var afar óánægð með
skeytasendingu hjá Is-
landspósti. Hún hafði sent
vini sínum skeyti 1. nóv-
ember sl. í tilefni af afmæli
hans. Viku seinna fréttir
hún að skeytið hafi ekki
borist afmælisbarninu.
Þegar hún hafði samband
við Islandspóst fékk hún
þau svör að skeytið hafi
lent hjá óskilaskeytum.
Þeir báðust afsökunar og
buðu henni að senda nýtt
skeyti með afsökunar-
beiðni, en hún vildi það
ekki. Fannst henni leiðin-
legt að geta ekki treyst því
að skeyti bærist ekki, þeg-
ar þau væru send.
Til framkvæmdastjóra
íslenskrar getspár
EG heyrði í fréttum að
flytja ætti lottóið yfir á
Stöð 2. Flest ný hverfi á
höfuðborgarsvæðinu eru
farin að nota breiðbandið
endurgjaldslaust til að ná
Ríkissjónvarpinu í stað
þess að hafa loftnet á hús-
inu. Eina íslenska stöðin
sem næst ekki á þessu
kerfi er Stöð 2, þannig að
ég og margir aðrir, hætt-
um að ná beinni útsend-
ingu á Lottó á laugardög-
um eftir næstu áramót.
Það var gaman að taka
þátt í lottóinu. - Maður
breytir ekki breytinganna
vegna.
Ari Jóhannesson.
Óánægður
viðskiptavinur
ÞAÐ var í sfðustu viku að
ég og maðurinn minn og
mágkona fórum í Bakaríið
í Mjódd. Við sátum þarna
og fengum okkur kaffi og
súpu. Yfirmanneskjan
sagði okkur að ekki væri
hægt að sitja þarna upp á
hvern einasta dag í fjóra
klukkutíma og þamba bara
einn kaffibolla. Ég sagði
henni að fleiri sætu þarna
og drykkju vatn og reyktu,
en ekkert væri sagt við
því. Mér finnst að konan í
bakaríinu ætti að sýna við-
skiptavinum sínum meiri
kurteisi. Það verður ekki á
næstunni sem við stígum
inn í þetta bakarí.
Rúna
Tapað/fundið
Kvenúr týndist
GYLLT kvenúr af gerð-
inni Delma týndist á
Laugavegi mánudaginn 8.
nóvember sl. Skilvís finn-
andi skili því til lögregl-
unnar í óskilamunadeild.
Kvenúlpa týndist
NÝ blá kvenúlpa týndist
úr fatahenginu á Kaffisetr-
inu á Laugaveginum milli
kl. 16.30-17.30 nýverið.
Ulpan er blá með svörtum
lit á öxlunum. Þetta er ný
úlpa og mikill missir fyrir
eigandann, því að í úlpu-
vasanum voru asmalyf og
lyklar. Skilvís finnandi
hringi í síma 552-5444 eftir
kl. 15 alla daga nema
föstudaga eða 587-6037.
Peningar týndust
HINN 4. nóvember sl.
týndist umslag með pen-
ingum á leiðinni frá Lands-
bankanum í Austurstræti,
út Pósthússtræti að Toll-
húsinu við Tryggvagötu.
Umslagið var brotið saman
og límt aftur. I umslaginu
voru 215.709 kr. og er
þetta afar bagalegt, því
eigandinn er öryrki og ein-
stæð móðir með fjögur
börn. Skilvís finnandi er
beðinn að hafa samband í
síma 567-4240 eða 697-
3913 eða leggja inn á bók
nr. 11750511953 hjá Spari-
sjóði Vélstjóra.
Kvenúr fannst
KVENÚR fannst á bíla-
stæði við verslunarmiðstöð
á höfuðborgarsvæðinu,
laugardaginn 23. október
sl. Úpplýsingar í síma 581-
1463 eftir kl. 19.
Dýrahald
Bebbi er týndur
BEBBI er hvítur, svartur
og grábröndóttur köttur,
sem býr í vesturbæ. Hann
týndist á gatnamótum
Njálsgötu og Grettisgötu
nálægt Frakkastíg. Hann
er með endurskinsmerki
um háisinn og blátt merk-
isspjald með nafni og síma.
Bebbi er frekar styggur og
gæti verið vankaður eftir
sprautu hjá dýralækni.
Upplýsingar gefur Hildur í
síma 551-2270.
SKAK
llnisjón Margclr
Pótursson
gafst upp því eftir 53. - Kd8
leikur hvítur 54. e6! - fxe6
55. Rxe6+ - Ke8 56. f+! -
Kxf7 57. Rg5+ - Ke8 58.
RÍ3 og vinnur. Niðurstaðan
eftir 53. - Kf8 54. e6! verður
sú sama.
ÞETTA endatafl
kom upp á
armenska meist-
aramótinu í haust.
Karen Asrian
(2.575) hafði hvitt
og átti leik gegn
Ara Minasjan
(2.480). Hvitur get-
ur ekki stöðvað
svarta g-peðið og
virðist mega þakka
fyrir jafntefli. En
það leynist vinn-
ingsleið í stöðunni:
52. Rxa6! - g2 53.
Rc7+ og svartur
Hvítur leikur og vinnur.
COSPER
Víkverji skrifar...
BARCELONA verður sífellt
vinsælli meðal íslenskra ferða-
manna og Víkverji undrast það
ekki. Hann kom í fyrsta skipti til
þessarar yndislegu spænsku borg-
ar fyrir allmörgum árum og heill-
aðist gjörsamlega af staðnum.
Borgin er afskaplega falleg, íbúar
hennar vinalegir og margt að sjá
bæði í menningu og listum auk
þess sem stærsta íþróttafélag
borgarinnar, FC Barcelona, er
stórveldi á öllum sviðum þannig að
þeir sem hafa áhuga á íþróttum
ættu að geta fylgst með einhverju
við sitt hæfi, a.m.k. yfir vetrartím-
ann.
Mikið er um skemmtileg söfn í
borginni, þar er gott að versla -
sem íslendingum hefur oft fundist
gaman, þegar þeir bregða sér út
fyrir landsteinana - og urmull frá-
bærra veitingastaða er einnig í
Barcelona.
xxx
EGAR Barcelona ber á góma
rifjast upp fyrir Víkverja saga
sem vinur hans sagði honum ekki
alls fyiir löngu. Sá settist inn á veit-
ingastað þar í borg, hugðist panta
sér saltfiskrétt einu sinni sem oftar
og spurði þjóninn að gamni sínu
hvort um íslenskan fisk væri að
ræða. „Já, að sjálfsögðu!" sagði
þjónninn og vininum þótti vænt um
af hve mikilli virðingu hann talaði
um Bacalao de Islandia eins og
Spánverjamir kalla þetta frábæra
hráefni, sem þeir eru snillingar í að
matbúa.
Víkverja fínnst saltfiskur einmitt
herramannsmatur, bæði eins og
hann er gjaman matreiddur hér
heima upp á gamla mátann, en ekki
síst allir þeir réttir sem fást á Spáni
- og nú orðið sums staðar hér
heima, sem betur fer - þar sem
hvítlaukur, ólífur og ýmislegt fleira
góðgæti er notað til að gera yndis-
lega rétti úr góðu hráefni.
xxx
FRANSKI knattspymumaðurinn
Eric Cantona, sem lék síðast
með Manchester United í Englandi,
var lengi í miklu uppáhaldi hjá Vík-
verja. Þótt Frakkinn ætti oft erfitt
með að hemja skap sitt var hann
frábær leikmaður og jafnan fmm-
legur í tilsvörum. Cantona lenti
stundum í vandræðum og var t.d.
settur í nokkurra mánaða leikbann
árið 1995 fyrir að sparka í áhorf-
enda, sem hrópaði að honum
ókvæðisorð. Svar Cantonas er eftir-
minnilegt þegar hann var spurður á
blaðamannafundi hvemig hann
mæti umfjöllun fjölmiðla um það
mál. Hann sagði: Pegar máfar elta
togarann er það vegna þess að þeir
telja að sardínum verði fleygt í sjó-
inn. Og svo sagði hann ekki meira á
þeim fundi!
Víkverja barst á dögunum bæk-
lingur frá Englandi vegna umsókn-
ar þarlendra um heimsmeistara-
keppnina 2006, og er þar vitnað í
ýmsa mæta menn um ágæti alls
sem viðkemur íþróttinni þar í landi.
Þar segir fyrmefndur Cantona: Allt
sem snertir ensku knattspyrnuna er
stórkostlegt. Leikvangarnir eru
glæsilegir, stemmningin er frábær,
jafnvel löggurnar á hestunum eru
glæsilegar.
xxx
TALANDI um Cantona getur
Víkvcrji ekki annað en minnst á
stórt auglýsingaskilti frá Nike-
íþróttavömframleiðandanum, fyrir
utan Old Trafford, heimavöll
Manchester United, þegar Cantona
stóð á hátindi ferils síns. Hann lék
sem sagt í Nike-skóm og á skiltinu
var stór mynd af honum og eftirfar-
andi áletmn: 1966 var gott ár fyrir
enska knattspyrnu. Þá fæddist
Eric.
Englendingar hafa einmitt lengi
talið árið 1966 gott fyrir knatt-
spyrnuna sína því þá urðu þeir
nefnilega heimsmeistarar í fyrsta
og eina skipti. Höfundar auglýsing-
arinnar nýttu sér það og fæðingarár
Cantonas með afar skemmtilegum
hætti, að mati Víkverja.