Morgunblaðið - 14.11.1999, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1999 7
FORSALA HAFIN
Stórglœsileg bók prentuð
d vandaðan pappír, 240 blaðsíður
í stóru broti með 220 Ijósmyndum, þar a^
125 litmyndum afverkum Louisu
Fæst bceði í íslenskri og
enskri útgdfu
Glæsileg bók um
Louisu Matthíasdóttur
kemur í verslanir um nœstu mánaðarmót en faest nú íforsölu
fyrir þá sem vilja tryggja sér eintak
Sagt er frá hinni virtu listakonu í máli og myndum á einkar fróð-
legan og skemmtilegan hátt. Mörg verkanna í bókinni hafa ekki
áður komið fyrir almennings sjónir og varpa þau nýju Ijósi á
þroskaferil Louisu sem margir gagnrýnendur telja meðal fremstu
listmálara þessarar aldar. Hér er á ferðinni fyrsta heildstæða
samantekt á lífi og starfi hennar og kemur þar margt á óvart.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur fjallar um námsár og upp-
haf listferils, fram að vesturferð 1942. Martica Sawin listfræð-
ingur og rithöfundur skrifar um fyrstu árin vestanhafs, sem voru
mikil umbrota- og þroskaár hjá Louisu. Jed Perl listgagnrýn-
andi í New York, sem jafnframt er ritstjóri verksins, rekur feril
hennar sl. fjóra áratugi þegar hún nær fullum þroska í list sinni.
Sigurður A. Magnússon rithöfundur skrifar mjög fróðlegt og
skemmtilegt æviágrip sem prýtt er fjölda Ijósmynda. Vigdís
Finnbogadóttir og bandaríska Ijóðskáldið John Ashbery rita
ávarps- og aðfaraorð.
SÖLUSTAÐIR: Eymundsson Austurstræti 18
Eymundsson Kringlunni
Mál og menning Laugavegi 18
Verð í forsölu kr. 8.460
Sýningareintök
15% afsláttur liggja frammi á sölustöðum.
BÓKIN ER GEFIN ÚT
[ SAMVINNU VIÐ
R E Y K J A V í K
MINNINaARBORC IVRÓPU
ARIÐ 2000